Morgunblaðið - 17.02.2005, Síða 40

Morgunblaðið - 17.02.2005, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Dauðinn er eitthvað sem heimsækir okkur öll einhvern daginn, en kemur öllum í opna skjöldu. Okkur í Iðju- bergi langar til að kveðja góðan vin og vinnufélaga sem nú er fallinn frá. Óli var mjög glaðleg- ur og litríkur persónuleiki með ein- dæmum iðinn og listrænn. Hér átti Óli marga vini og hans er nú sárt saknað. Með þessari stuttu kveðju sendum við foreldrum og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur og styrk í sorginni. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Prestshólum.) Minningin um Óla lifir í hjörtum okkar. Vinnufélagar og starfsfólk Iðjubergs. Þegar ég frétti lát vinar míns Óla Björgvins komu allar góðu minning- arnar um samskipti okkar fram í hug- ann. Leiðir okkar Óla lágu fyrst sam- an í Lyngási þegar hann var barn, síðan í Bjarkarási og að lokum í Lækj- arási þegar hann kom í dagvistun þangað. Óli var sterkur persónuleiki sem setti sín spor hvar sem hann var. Ég sé hann fyrir mér koma gangandi hröðum og markvissum skrefum. Ætíð klæddur fötum af vönduðustu gerð, tilbúinn að takast á við verkefni dagsins. Þrátt fyrir fötlun sína hafði hann sínar skoðanir um hvernig hlut- irnir áttu að vera og viljinn og ákafinn var oft meiri en líkamleg geta hans leyfði. Það er ekki erfitt að ímynda sér að það hefur oft verið erfitt fyrir hann að upplifa líkamlegan vanmátt sinn þegar athafnagleðin var jafnmikil og ÓLAFUR BJÖRGVINSSON ✝ Ólafur Björg-vinsson fæddist í Reykjavík 10. nóv- ember 1961. Hann lést á Landspítala – háskólasjúkrahúsi hinn 3. febrúar síð- astliðinn og var hann jarðsunginn frá Ás- kirkju 10. febrúar. hún var hjá honum. Óli var mjög fé- lagslyndur og elskaði að taka á móti gestum í húsinu sínu í garðinum hjá pabba og mömmu eða á eigin heimili, fyrst í Víðihlíðinni og síðan í Barðavoginum. Þá var ætíð boðið upp á kaffi sem hann bjó til sjálfur. Hann átti líka stórt safn af kassettum og geisla- diskum og hafði mikla gleði af tónlist og söng. Ferðalögin með pabba og mömmu og seinna vinunum voru honum líka mikils virði. Það er ekki hægt að tala um Óla án þess að tala um foreldra hans, Björg- vin og Ragnheiði. Þau voru mikilvæg- ustu manneskjurnar í lífi hans. Sér- staklega voru feðgarnir nánir og það voru ófáar ferðirnar sem Björgvin fór til Óla að gera við eitthvað sem hafði farið úr skorðum. Ef eitthvað fór úr skorðum hjá einhverjum var viðkvæð- ið: ,, Hringdu í pabba, hann gerir við þetta.“ Mér finnst ég ótrúlega heppin að geta ennþá talið þau hjón sem góða vini mína þrátt fyrir að ég hef verið búsett erlendis í næstum 12 ár. Óli var tryggur vinum sínum. Sam- starfsmenn mínir í Noregi gleyma ekki móttökunum sem ég fékk hjá Óla þegar ég kom ásamt þeim í Lækjarás nokkrum árum eftir að ég hætti þar. Hann hljóp upp um hálsinn á mér og hrópaði: ,,Ertu komin aftur allra besti vinurinn minn sem ég ekki er búinn að fá?“ Hvorki ég né Björg gleymum heldur gleði hans þegar við heimsótt- um ,,gullmolann hans“ (Björgu) í sum- arbústaðinn hennar á Þingvöllum. Ég hitti Óla síðast árið sem hann varð fertugur. Þá heimsóttum við Björg og Valla hann og foreldra hans í Sæviðarsund- ið. Óli sýndi okkur svo með stolti íbúð- ina sína í Barðavoginum. Yndislegur dagur sem við allar höfum talað um með gleði síðan. Elsku Björgvin og Ragna. Við Björg og Valla ásamt fjölskyldum okkar sendum ykkur okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Minningin un góðan dreng mun lifa áfram í hugum okkar allra. Arnheiður Andrésdóttir ( Arý). ✝ Alda Kristjáns-dóttir fæddist á Auðbrekku í Hörg- árdal 27. september 1924. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri 10. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigrún Ólafs- dóttir, f. í Staðar- tungu í Hörgárdal 1894, d. 1989, og Kristján Magnússon, f. á Ólafsfirði 1904, d. á Akureyri 1931. Alda giftist árið 1947 Guðlaugi Halldórssyni bónda í Hvammi í Hrafnagils- hreppi, f. 1923, d. 2001. Foreldr- ar hans voru Halldór Guðlaugs- son bóndi í Hvammi, f. 1889, og kona hans Guðný Pálsdóttir frá Möðrufelli, f. 1892. Börn Guð- laugs og Öldu eru: 1) Halldór, f. 1949, 2) Guðný, f. 1950, 3) Magnús, f. 1953, 4) Sigrún, f. 1955, og 5) Björk, f. 1957. Fyrir átti Alda soninn Viktor Albert, f. 1943, sem Guðlaugur ætt- leiddi. Barnabörnin eru 28 og lang- ömmubörnin eru 27. Guðlaugur og Alda bjuggu í Hvammi í Hrafna- gilshreppi til ársins 1964, en þá keyptu þau jörðina Merkigil í sömu sveit og bjuggu þar til áramóta 1978– 79, þá fluttu þau til Akureyrar, þar sem þau áttu lengst af heima í Ægisgötu 4. Útför Öldu verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Amma mín Alda hefur nú kvatt þennan heim og sameinast afa hinum megin, eða það var hún a.m.k. fullviss um sjálf. Ég minnist ömmu minnar fyrst og fremst sem fallegrar, brosmildrar konu sem spjallaði mikið og hló dátt. Ég minnist hennar í eldhúsi á Merkigili að kenna mér að baka, mik- ill var hamagangurinn og mikið bak- að. Vínarbrauð með sultu, jólakaka, marmarakaka, kleinur, soðið brauð, ástarpungar og tertur. Forðabúrið hennar ömmu var stórt og ekki skyldi vanta brauð á heimilinu. Ég minnist hennar í svefnherberg- inu að sauma kjól fyrir þorrablót, gott ef hún átti ekki að leika aðal- hlutverkið á blótinu. Ég horfi á þessa konu við saumavélina og afa lúinn af vinnu hvíla sig með bók og mér verð- ur litið á brúðkaupsmyndina af þeim, stórglæsileg, ung og ástfangin. Ég sannfærð um að prinsar og prins- essur séu ekki glæsilegri. Ég minnist ömmu minnar senda mig út með þvottinn, kenna mér að hengja upp svo fallega að ekki væri skömm að í sveitinni. Ég minnist ömmu sitjandi við eld- húsborðið að skrifa, vísu eða ljóð. Ég minnist ömmu að ráða kross- gátur, verðandi sér úti um öll kross- gátublöð sem hugsast gátu, sígarett- an ekki langt undan. Ég minnist ömmu og afa á bingói, staðurinn er gömlu Verksmiðjuhúsin á Akureyri, – skemmtilegri og ákaf- ari bingóspilurum hef ég ekki kynnst, enda komu þau aldrei tóm- hent heim. Ég minnist ömmu á Fjólugötunni, bjóðandi í mat og kaffi, – mikil um- ferð ættingja, vina og vandamanna sem leið áttu hjá. Ég minnist ömmu á Ægisgötunni í litla fallega húsinu sínu, huga að blómum og jurtum í garðinum, – enn boðna og búna til að hjálpa ungu fólki sem nýbyrjað er að búa, gefandi kökuuppskriftir og góð ráð. Ég minnist ömmu á ferðalögum með afa, til Reykjavíkur, Hvera- gerðis og jafnvel austur á firði. Fiðr- ingur í henni. Ég minnist ömmu á spítala, ekki að gefast upp þó annar fóturinn sé farinn. Ég minnist ömmu á spítala, hinn farinn líka – lúin. Ég minnist þín, amma mín, eins og þú varst, – hvíldu í friði. Sigrún Viktorsdóttir. Mig langar til að kveðja hana Öldu svilkonu. Ég kynnist henni og Guð- laugi manni hennar fyrir rúmum 50 árum. Mér fannst þau einstaklega hlýlegar og skemmtilegar persónur. Ég átti eftir að kynnast þeim betur þegar ég giftist Aðalsteini bróður Guðlaugs. Á milli þessara fjölskyldna var mikil vinátta og alltaf voru hjónin tilbúin að sýna þá vináttu í verki. Þegar ég gekk með yngsta barn okk- ar hjóna var heilsan ekki góð hjá mér og börnin fimm, það elsta sjö ára. Þá var bankað og voru þau komin og sögðust ætla að taka tvö börn og hafa þau þangað til ég væri búin að eiga. Börnunum skiluðu þau ekki fyrr en fimm vikum síðar. Þetta var á há- annatíma í sveitinni og þau sjálf með sex börn. Þessu vinarbragði mun ég aldrei gleyma. Sigrún dóttir mín var fjögurra ára og tók hún miklu ást- fóstri við þau. Jóni þótti líka mjög vænt um þau. Við vorum ekki þau einu sem nutum greiðvikni þeirra. Alda var glæsileg kona, óvenju fjölhæf. Hún var skáld, leikkona og naut tónlistar og söngs. Allt þetta gat Alda leyst af hendi ásamt því að vera húsmóðir á stóru heimili þar sem var mikill gestagangur og veisluborð töfrað fram á skömmum tíma. Manni fannst stundum að heimilið á Merki- gili væri hálfgerð félagsmiðstöð, þar virtust allir njóta sín, ungir sem aldn- ir. Eftir að Guðlaugur lést var eins og Alda missti lífsviljann og biði þess að fá að fylgja honum. Heilsu hennar hrakaði ört og hún missti báða fætur sökum veikinda, en hún tók þessum raunum með einstöku æðruleysi. Sólarhring eftir að Alda lést dreymdi mig hana hlaupa brosandi framhjá mér unga og hrausta og segjast vera orðin of sein í brúðkaup sitt. Hún hljóp berfætt út á fallegt grasi vaxið tún, það var ekkert óeðli- legt að hún væri berfætt því fæturnir voru svo fallegir. Þarna vaknaði ég ogvissi að hún var að fara að giftast Guðlaugi sínum. Mér þótti vænt um þennan draum, mér fannst að nú væri hún sæl, frísk og glöð. Með þá trú bið ég Guð að blessa minningu þeirra hjóna með þökk fyrir allt og allt. Þóra Björnsdóttir. Upp úr miðri síðustu öld er ég á leið til Öldu frænku og Gilla. Ég fæ far með Benna bílstjóra á mjólkur- bílnum sem stöðvar bílinn við af- leggjarann heim að Hvammi á leið sinni inn Eyjafjarðarsveitina, hleypir mér úr, ég er fimm ára. Mér sýnist brekkan ógnvænlega há, kjarkurinn dvín, ég græt. Niður brekkuna kemur gömul kona, þurrk- ar framan úr mér, tekur í hönd mína og leiðir mig upp brekkuna löngu. Hún gefur mér kaffi við eldhúsborð- ið, strýkur hönd mína, í augum henn- ar býr viska reynslunnar. Sigrún, amman í sveitinni, er mér góð, þakk- lætið býr enn í hjarta mínu. Það er sumar og sólskin, ég sit í tómum heyvagninum sem er tengdur við traktorinn, Gilli er við stýrið, ég kalla: Gilli, förum við á fulla ferð? Hann svarar játandi; við hlæjum og hlæjum, það er óskaplega gaman. Hjá Gilla býr gleðin, hlýjan í brúnum augum hans fylgir mér alla tíð. Ég er í kjallaranum hjá Öldu frænku sem stendur við skilvinduna og masar við mig, ég er örugg, mér líður vel. Uppi í herbergi Sigrúnar og Viktors sit ég og horfi á frænda minn spila á harmonikkuna, ég elska tón- listina og dáist að hæfileikum Vikt- ors, sé líka stoltið og gleðina sem skín af Sigrúnu þegar hún horfir á drenginn sinn, elsta dótturbarnið sitt. Ég leik mér við barnahópinn, glað- væran og skemmtilegan, brosin þeirra opin og björt. Ég er í leikhúsinu á Laugarborg og horfi með hrifningu á Öldu frænku á sviðinu, allt getur hún, leik- ið, sungið, talað hærra, meira og skýrar en annað fólk. Einstaklega hæfileikarík kona, fróðleiksfús, list- hneigð, greind, hörkudugleg, stál- minnug og alltaf skemmtileg. Það er aldrei komið að tómum kofunum hjá Öldu frænku þegar rekja þarf ættir, hún getur þulið endalaust. Ég er í helgarheimsókn, ellefu eða tólf ára. Börnin gengin til náða, Alda hefur búið um mig í stofunni. Vind- urinn hvín úti fyrir og trjágreinarnar slást við gluggann. Ég er myrkfælin, hrædd. Fer aftur fram þar sem Alda og Gilli sitja og spjalla, sest hjá þeim við borðið. Fljótlega stendur frænka upp, kemur aftur innan stundar og segir: Jóna mín, ég er búin að búa um þig í herberginu hjá okkur. Hún skil- ur allt, orðin sem er erfitt að segja óþörf. Ég sofna örugg í hlýrri nær- veru fjölskyldunnar í Hvammi, vænt- umþykjan og þakklætið til minnar góðu frænku býr enn innra með mér. Vertu Guði falin, elsku Alda, þökk fyrir allt. Börnum Öldu og fjölskyldum þeirra sendi ég einlægar samúðar- kveðjur. Jóna Þrúður Jónatansdóttir. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson.) Nú er hún Alda mín komin til Gilla, það flaug um huga minn þegar ég frétti látið hennar. Í mínum huga eru það einhvern veginn alltaf Alda og Gilli, ekki af því að Gilli væri föður- bróðir minn, þau voru bara ein heild. Faðmlögin hans Gilla, bjarta brosið, sindrandi augun og smitandi hlátur- inn hennar Öldu og öll lífsgleðin sem einkenni hana. Þar sem er nóg hjartarými þar er nóg húsrými. Það sannaðist hjá Öldu, hana munaði aldrei um eitt eða tvö börn til viðbótar við sín eigin. Hugurinn flýgur í Merkigil: Nei, nei, það er engin fyrirhöfn, hvað heldurðu að það muni um hana, þið getið sótt hana næst þegar þið komið í heimsókn. Mamma að reyna að malda í móinn og segja að ég sé ekki með nein föt. Hvað er þetta, segir Alda, heldur þú ekki að það sé til nóg af krökk- unum. Þegar pabbi og mamma óku í bæinn voru þau einu barninu fátæk- ari, þar til þau komu næst, ef mér tókst þá ekki að verða aftur eftir þá. Í minningunni er alltaf sól, alltaf gleði, alltaf hlátur. Sigrún Aðalsteinsdóttir. ALDA KRISTJÁNSDÓTTIR Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr- ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn- ur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Minningargreinar Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Einarsson Sverrir Olsen Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Komum heim til aðstandenda ef óskað er

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.