Morgunblaðið - 17.02.2005, Qupperneq 56
56 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er merkilegt hvað lítið hefur
verið fjallað um ástandsárin í leik-
list og bókmenntum. Um þau und-
arlegu ár í lífi þjóðarinnar þegar ís-
lenskar konur féllu fyrir útlendum
hermönnum sem streymdu inn og
út úr landinu. Sumar þessara
kvenna tengdust hermönnunum
ævilöngum böndum, hvort sem þær
fluttu með þeim til útlanda eða
syrgðu alla tíð þá sem féllu suður í
Evrópu. Aðrar voru sviknar og enn
aðrar sættu sig við stundarkynni.
Leikfélag eldri borgara setur nú
upp hið áhugaverða leikrit Ástandið
í annað sinn. Árið 1997 leikstýrði
Sigrún Valbergsdóttir verkinu en
hún samdi verkið þá ásamt Bryn-
hildi Olgeirsdóttur sem er einn leik-
félaga. Samvinnu þeirra var á þann
veg háttað að Brynhildur skráði
niður sannar sögur fjögurra kvenna
en Sigrún færði sögurnar í leik-
rænan búning. Eitthvað komu þær
að undirbúningi nú við að umskrifa
og skera niður.
Form verksins er skýrt, fjórar
konur koma saman á nýju veitinga-
húsi gamals kunningja til þess að
rifja upp reynslu sína af ástand-
sárunum. Verkið er ágætlega byggt
upp með því að segja fyrst sögu
sveitastúlku sem flytur ung til borg-
arinnar og fellur fyrir hermanni, þá
sögu saklausrar og trúaðrar stúlku
sem verður líka ástfangin þvert á
allan ásetning, svo er það sú lífs-
glaða sem kynnist mörgum mönn-
um og verður stundum illa svikin og
að lokum saga þeirrar fjórðu sem
hefur búið í Ameríku í fimmtíu ár.
Verkið er byggt á frásagnarforminu
og heldur sig ágætlega innan þess,
leikarar bregða sér í ýmis hlutverk
þegar sýnd eru dæmi um samskipti
kvennanna við fjöldskyldur og for-
dómafullt samfélag en um það er
fjallað tæpitungulaust. Það gefst
ágætlega að sýna ekki hina útlendu
ástmenn heldur láta konurnar um
að gefa þeim líf með upprifjun sinni.
Þar kemur einkar vel í ljós hvað
texti verksins er lipur og fallega
skrifaður auk þess sem lýsingarnar
verða enn áhrifameiri vegna þess að
áhorfendur vita að sögurnar gerð-
ust í raun og veru. Flestar leik-
kvennanna fjögurra sem leika þær
Bettý, Lilju, Lóló og Sísí fara prýði-
lega með hlutverkin. Þær segja sög-
ur líflega og ljá þeim auk þess blæ
eftirsjár og sorgar þeirra sem rifja
upp löngu liðna tíð. Vilhelmína K.
Magnúsdóttir var skemmtilega
stelpuleg sem Bettý og vakti aug-
ljósa samúð salarins þegar hún rifj-
aði upp það erfiða hlutskipti að
þurfa að gefa barnið sitt. Guðlaug
Hróbjartsdóttir var einlæg í hlut-
verki hinnar trúuðu Lilju. Aðal-
heiður Sigurjónsdóttir var mjög
fyndin og kraftmikil sem hin lífs-
glaða Lóló en tókst líka vel að vekja
samúð þegar við átti. Helga Guð-
brandsdóttir var eins og kjörin í
hlutverk Sísíar sem talar með hreim
eftir veruna í Ameríku en hún átti
nokkuð í land með að líða vel í hlut-
verki sínu þegar á leið en það var
sérstaklega áberandi í einræðu
hennar sem er hápunktur verksins
og einkar vel skrifuð. Svo langar
einræður þurfa sterka leikara, sem
nóg er af í Snúði og Snældu, og
mikla æfingu. Bjarni Ingvarsson
hefði þurft meiri tíma með hópnum
svo komast mætti hjá textaklúðri og
vandræðagangi undir lokin. Einnig
var eins og það ætti eftir að stað-
setja leikara í sumum atriðum.
Leikmyndin var einföld í sjálfu sér,
einn bar og borð og stólar en spurn-
ingin er af hverju dýptin á sviðinu
var ekki meira nýtt en raun bar
vitni og barinn var óþarflega fyr-
irferðarmikill. Lýsingin var ljóm-
andi falleg og tónlistin skemmtileg
en einnig þar vantaði meiri æfingu
og átti það einnig við um tækni-
stjórnun. Það er óþarfi að láta leik-
ara bíða eftir að tónlistin hefjist.
Vafalaust slípast þó sýningin þegar
á líður og óskandi að sem flestir
leggi leið sína í Iðnó til þess að sjá
þetta prýðilega skrifaða verk sem
byggist á sönnum og áhrifamiklum
sögum úr lífi okkar litlu þjóðar.
Hrund Ólafsdóttir
LEIKLIST
Snúður og Snælda
Sögur fjögurra kvenna frá hernáms-
árunum.
Höfundar: Brynhildur Olgeirsdóttir og Sig-
rún Valbergsdóttir. Leikstjóri: Bjarni Ingv-
arsson. Leikmynd Gunnar Helgason og
Bjarni Ingvarsson. Lýsing: Ingi Einar Jó-
hannesson, Stefán Örn Arnarsson, Bjarni
Ingvarsson. Leikhljóð og tæknistjórnun:
Stefán Örn Arnarson. Frumsýning í Iðnó,
13. febrúar 2005.
Ástandið
Brynhildur
Olgeirsdóttir
Sigrún
Valbergsdóttir
Stóra svið
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna
Jónssonar eftir vesturfarasögu
Böðvars Guðmundssonar
Í kvöld kl 20 - UPPSELT
Fö 18/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 19/2 kl 20 - UPPSELT
Fö 25/2 kl 20, Lau 26/2 kl 20, Fö 4/3 kl 20
Lau 5/3 kl 20, Su 13/3 kl 20, Fi 17/3 kl 20
Fi 7/4 kl 20, Fö 8/4 kl 20
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 20/2 kl 14 Su 27/2 kl 14
Su 6/3 kl 14 - AUKASÝNING
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
SÝNINGAR HALDA ÁFRAM EFTIR PÁSKA
AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA
Lau 19/2 kl 20, Lau 26/2 kl 20, Su 6/3 kl 20
Ath: Miðaverð kr 1.500
AUSA -
Einstök leikhúsperla
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Í kvöld kl 20, Su 20/2 kl 20 - UPPSELT
Fi 24/2 kl 20, Fö 25/2 kl 20 - UPPSELT
Fi 3/3 kl 20, Fö 4/3 kl 20, Lau 5/3 kl 20
Fi 10/3 kl 20, Fö 11/3 kl 20, Lau 12/3 kl 20
Allra, allra síðustu sýningar
AMERICAN DIPLOMACY
eftir Þorleif Örn Arnarsson
Í samstarfi við Hið lifandi leikhús
Aðalæfing mi 23/2 kl 20 - 1.000
Frumsýning fi 24/2 kl 20 - UPPSELT
Fö 4/3 kl 20, Lau 5/3 kl 20
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson, Í samstarfi við TÓBÍAS
Fö 18/2 kl 20 - UPPSELT
Fö 25/2 kl 20, Mi 2/3 kl 20SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Su 20/2 kl 20. Su 27/2 kl 20, Fi 3/3 kl 20
HOUDINI SNÝR AFTUR
Fjölskyldusýning um páskana
Forsala aðgöngumiða hafin
SEGÐU MÉR ALLT e. Kristínu Ómarsdóttur
Aðalæfing í dag kl 13 - kr. 1.000
Frumsýning fö 18/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 19/2 kl 20, Lau 26/2 kl 20, Su 27/2 kl 20
VESTURFARARNIR - NÁMSKEIÐ
Í samstarfi við Mími-símenntun
Mi 23/2 - Böðvar Guðmundsson
Innifalið: Boð á Híbýli vindanna
15:15 TÓNLEIKAR - HILDIGUNNUR HALLDÓRSDÓTTIR
SÓLÓ - KYNSLÓÐABIL FIÐLUNNAR
Lau 19/2 kl 15:15
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur
Frumsýning fö 4/3 kl 20
Su 6/3 kl 20, Fö 11/3 kl 20, Su 12/3 kl 20
Fö 18/3 kl 20, Lau 19/3 kl 20
geggjað grínleikrit eftir DANIEL GUYTON
☎ 552 3000
www.loftkastalinn.is
“SNILLDARLEIKUR”
• Föstudag 18/2 kl 20 LAUS SÆTI
• Föstudag 4/3 kl 23 XFM SÝNING
Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18
VS Fréttablaðið
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
„Áfram LA!“
S.A. Viðskiptablaðið
Óliver! Eftir Lionel Bart
Fös. 18.2 kl 20 Örfá sæti
Lau. 19.2 kl 20 Örfá sæti
Sun. 20.2 kl 14 aukasýn. Örfá sæti
Fös. 25.2 kl 20 Nokkur sæti
Lau. 26.2 kl 20 Örfá sæti
Fös. 04.3 kl 20 Nokkur sæti
Lau. 05.3 kl 20 Nokkur sæti
Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega!
Frumsýning 19.feb uppselt
Mið. 23.2 nokkur sæti laus
Fös 25.2
Lau 26.2
Sun 27.2
Upplýsingar og miðapantanir
í síma 555 2222 www.hhh.is
Brotið
sýnir
eftir þórdísi Elvu ÞorvaldsdótturBachmann
Það sem getur komið fyrir ástina
3. sýn. 18. feb. kl 20 – Uppselt • 4. sýn. 20. feb. kl. 19 – Uppselt
5. sýn. 25. feb. kl. 20 – Örfá sæti laus • 6. sýn. 27. febrúar kl. 19 – Örfá sæti laus
7. sýn. 4. mars kl. 20 – Örfá sæti laus • 8. sýn. 6. mars kl. 19 – Örfá sæti
9. sýn.12. mars kl. 19 – Örfá sæti laus.
Ekki er hleypt inn í salin eftir að sýningin hefst
Tosca – Vetrarkvöld með Puccini og Verdi,
í Laugarborg mið. 23. febrúar kl. 20.30
Elín Ósk Óskarsdóttir, sópran, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, tenór og
Kurt Kopecky, píanó flytja aríur og dúetta úr Toscu og úr öðrum óperum
eftir Puccini og úr óperum eftir Verdi.
Miðasala á netinu: www. opera.is
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala frá kl. 10 virka daga.
Rauð tónleikaröð #4
Anton Bruckner ::: Sinfónía nr. 8
Hljómsveitarstjóri ::: Petri Sakari
Sími 545 2500 I www.sinfonia.is
Bruckner
og Sakari
Petri Sakari stýrir
frumflutningi á 8. sinfóníu
Bruckners hér á landi. Bruckn-
er kallaði verkið „leyndardóm-
inn“ sinn enda verkið töfrandi
og stórfenglegt.
HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN
17. FEBRÚAR KL. 19.30
Samverustund Vinafélagsins hefst kl. 18.00
í Sunnusal Hótel Sögu. Árni Heimir Ingólfsson
tónlistarfræðingur kynnir efnisskrá kvöldsins.
Verð 1000 kr. Súpa og brauð innifalið.
VINAFÉLAG Íslensku óperunnar
efnir til hópferðar á óperusýningu í
Vínaróperunni í byrjun júní nk. þar
sem Kristinn Sig-
mundsson syngjur
hlutverk Mustafà í
Ítölsku stúlkunni í
Alsír eftir Rossini.
„Það verður
sérstaklega gam-
an að sjá og heyra
Kristin syngja
hlutverk Mustafà
sem er eitt af
stærri hlutverkum
óperunnar og býður upp á mikið
glens og gaman. Aðrir einsöngvarar
sem taka þátt í sýningunni eru meðal
annars, Daniela Barcellona og Juan
Diego Flórez sem er ein af skærustu
tenórstjörnunum í óperuheiminum
um þessar mundir. Fyrir utan Ítölsku
stúlkuna í Alsír eru í boði miðar á
sýninguna Don Carlos, óperu Verdi í
upprunalegri útgáfu þar sem sungið
er á frönsku. Þetta er ný uppfærsla
sem var frumsýnd í Vínaróperunni í
október síðastliðnum. Í aðaleinsöngv-
ara hlutverkum eru Alastair Miles,
Ramón Vargas, Bo Skovhus og Iano
Tamar,“ segir Freyja Dögg Frí-
mannsdóttir, yfirmaður markaðs-
sviðs Íslensku óperunnar.
Allar nánari upplýsingar og skrán-
ing eru hjá Eddu Jónasdóttur, mark-
aðssviði Íslensku óperunnar í síma
562 1077 eða hjá Helgu Láru Guð-
mundsdóttur, Vinafélagi Íslensku
óperunnar í síma 585 4371.
Hópferð
í Vínar-
óperuna
Kristinn
Sigmundsson
DANSKA dansleikhúsið Kassandra
Production er væntanlegt hingað til
lands síðar í mánuðinum. Hinn 25.
og 26. þessa mánaðar mun stofnandi
þess, Annika B. Lewis, flytja einleik
í Klink og Bank sem kallast Blænd-
værk, sem þýðir sjónhverfing á ís-
lensku.
Verkið var frumflutt á Junge
Hunde-hátíðinni í Kaupmannahöfn
árið 2003 og er þar blandað saman
textabrotum úr ólíkum áttum, þar á
meðal úr Myndinni af Dorian Gray
eftir Oscar Wilde og Macbeth eftir
Shakespeare, leik og dansi. Höfund-
urinn lýsir verkinu sjálfur sem „sögu
um hina tragikómísku þrá nútíma-
mannsins eftir eilífri æsku og ytri
fegurð, hræðsluna við hrörnun lík-
amans og forgengileika lífsins“.
Koma Kassandra Production
hingað til lands er tilkomin vegna
samvinnu Lab Loka og fyrirtækisins
á undanförnum árum.
Danskt
dansleikhús
sýnir í Klink
og Bank
♦♦♦