Morgunblaðið - 24.03.2005, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 24.03.2005, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 24. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Háaleitishverfi | „Kúnnarnir spyrja mig allir hvað þeir eigi að gera þeg- ar ég hætti að vinna. Ég segi þeim að þeir verði að ákveða það sjálfir, og bendi þeim á aðra góða rakara sem þeir geta farið til,“ segir Úlfar Jensson, sem er að hætta störfum eftir að hafa rekið rakarastofu við Starmýri í 32 ár. Úlfar hefur ákveðið að nú sé rétti tíminn til þess að hætta störfum og njóta lífsins eftir að hafa verið rak- ari frá árinu 1954 þegar hann tók sveinsprófið í Hamborg í Þýska- landi, þar sem hann er fæddur og upp alinn. Eftir að hafa komist í kynni við ís- lenska menn þar sem hann starfaði á rakarastofu á hóteli í Hamborg frétti Úlfar af því að lítið væri um rakara hér á landi og gott tækifæri til þess að koma undir sig fótunum á nýjum slóðum. Úr varð að hann kom hingað til lands í desember 1954 og hóf störf á rakarastofu á Laugaveg- inum. Hann hefur starfað sem rak- ari síðan, með fimm ára hléi þó þeg- ar hann starfaði hjá Álafossi. Það var á miðju bítlatímabilinu þegar allir söfnuðu hári, með tilheyrandi erfiðleikum og atvinnuleysi meðal rakara. Flutti 18 ára til Íslands Úlfar segir hvorki flóknar né raunalegar ástæður fyrir því að hann ákvað 18 ára gamall að flytja frá Þýskalandi og setjast að hér á landi. „Ég vildi bara fara og sjá eitt- hvað nýtt. Losa mig frá mömmu og pabba í Hamborg og komast í burtu.“ Eftir að hafa búið hér á landi í rúmlega ár kynntist hann konu sinni, Guðmundu Matthías- dóttur, og hafa þau verið gift síðan. „Þetta hefur gengið svona upp og niður í gegnum tíðina eins og geng- ur,“ segir Úlfar þar sem hann bíður eftir viðskiptavini á síðasta starfs- degi sínum á miðvikudag. Næstum allir viðskiptavinir Úlfars eru fasta- kúnnar sem hafa margir hverjir komið á stofuna í áraraðir. Mikið til eru þetta eldri menn sem eru fast- heldnir á sinn rakara og vilja helst bara rakara sem er karlmaður, kominn yfir miðjan aldur, segir Úlf- ar og hlær. Margt hefur breyst á þeim árum sem Úlfar hefur klippt menn og rakað á stofunni sinni í Starmýri, menn eru yfirleitt með styttra hár, sem kemur sér ágætlega fyrir rak- arana. Úlfar segir þó að nú séu krakkar með meiri lubba en hefur verið, og fari því sjaldnar til rak- arans. Hans viðskiptavinir hafi helst verið eldri menn og yngri börn svo það hafi ekki skipt miklu fyrir sig. Úlfar þarf ekki að hugsa sig lengi um þegar hann er spurður hvað hann ætli að taka sér fyrir hendur eftir að hann hættir að vinna. Hann reiknar með því að ganga meira og koma sér í betra form, auk þess sem hann eigi fjölskyldu, þrjú börn og ellefu barnabörn, sem hann ætli að eyða meiri tíma með. Hættur að klippa menn og raka eftir 32 ár í Starmýrinni Bítlatímabilið var erfitt fyrir rakara Morgunblaðið/Sverrir Síðasti starfsdagurinn Úlfar notaði síðasta daginn sinn í starfi m.a. til að klippa Þór Vilhjálmsson, fyrrverandi hæstaréttardómara. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI Vesturbær | Krakkarnir af leik- skólanum Ægisborg komu í heim- sókn í Neskirkju í vikunni og af- hentu kirkjunni listaverk sem þau höfðu gert, og tengdust verkin öll á einhvern hátt páskunum eða kirkjunni. Meðal annars var um að ræða kross, gröf Jesú og fag- urbleikt líkan af Neskirkju. Krakkarnir notuðu að sjálfsögðu tækifærið og sungu fyrir við- stadda, og ræddu við sr. Örn Bárð Jónsson, sóknarprest Neskirkju, segir Guðmunda Inga Gunn- arsdóttir, æskulýðsfulltrúi Nes- kirkju. Að því loknu fóru þau í nýja safnaðarheimilið og þáðu veitingar áður en haldið var aftur á leikskól- ann. Listaverk barnanna verða til sýnis í forkirkjunni út apríl. Morgunblaðið/Eyþór Gröf Jesú og bleik kirkja Tónleikar | Alexandra Cherny- shova, sópran og Zbigniew Zucho- wicz, píanóleikara halda klassíska tónleika í Glerárkirkju laugardag- inn 26. mars kl. 17.00. Tónleikarnir eru til styrktar Rauða krossi Íslands, miðaverð er 1.500 krónur en frítt er fyrir eldri borgara og 16 ára og yngri. Þetta eru fjórðu tónleikarnir hjá þeim í mars. Hinir þrír tónleik- arnir voru á Vopnafirði, Bakkafirði og Egilsstöðum. Á efnisskrá verða m.a. aríur úr óperum/óperettum/ kantöttum og rómantísk lög. Alexandra er fædd í Kiev í Úkra- ínu árið 1979. Hún lauk píanónámi í tónlistaskóla árið 1993 en þaðan fór hún í söngnám í tónlistarháskól- anum Glier í Kíev, því námi lauk ár- ið 1998. Í lok október 2003 fluttist Alexandra til Íslands. Zbigniew er skólastjóri tónlistarskólans á Vopna- firði. Hann er ættaður frá Póllandi en hefur verið búsettur hér á landi undanfarin ár ásamt fjölskyldu sinni. Zbigniew er mjög fjölhæfur og hámenntaður tónlistarmaður en auk þess að spila á fjölmörg hljóð- færi fæst hann einnig við tónsmíðar. Sorphirðugjald | Á síðasta fundi náttúruverndarnefndar var kynnt skýrsla Línuhönnunar ehf. sem gerð var fyrir framkvæmdaráð að frum- kvæði náttúruverndarnefndar. Nefndin telur að ekkert sé því til fyrirstöðu að hefjast handa við und- irbúning þess að koma í verk þeim tillögum sem lagðar eru fram í skýrslu Línuhönnunar um stefnu og lausnir í sorphirðumálum. Nefndin telur sérstaklega mikilvægt að sem fyrst verði tekið upp breytilegt sorp- hirðugjald eftir magni úrgangs. Þá bendir nefndin á þá almennu kröfu bæjarbúa að meðhöndlun úrgangs á urðunarstað og annars staðar eigi að vera til fyrirmyndar og telur að sam- staða sé um eðlilega gjaldtöku til að mæta þeirri kröfu. Líkamsrækt | Kraftalegt fólk verður fyrirferðarmikið á Akureyri um páskana en þá fram fara fram Íslandsmótin í vaxtarrækt annars vegar og hreysti (fitness) hins veg- ar. Á föstudaginn langa, 25. mars, verður dagskrá í Sjallanum en kl. 15 verður forkeppni í vaxtarrækt og kl. 16 forkeppni karla í hreysti. Um kvöldið, eða kl. 20.30 hefjast úrslit í vaxtarræktarkeppninni og þá fer einnig fram forkeppni kvenna í hreysti. Daginn eftir, laug- ardaginn 26. mars, verður keppni í hreysti fram haldið í Íþróttahöllinni kl. 13.15 en úrslitakeppnin hefst kl. 19. Þá verður vöru- og þjónustusýn- ing í Höllinni frá kl. 13–17 á laug- ardag. Kennslustundir | Á fundi skóla- nefndar var lögð fram tillaga um úthlutun almennra kennslustunda til grunnskólanna á Akureyri skólaárið 2005–2006. Tillaga vegna grunnskólans í Hrísey verður lögð fyrir síðar. Skólanefnd samþykkti eftirfarandi úthlutun almennra kennslustunda til grunnskólanna á Akureyri: Brekkuskóli 1.030 kennslustundir, Oddeyrarskóli 445 kennslustundir, Glerárskóli 826 kennslustundir, Lundarskóli 964 kennslustundir, Síðuskóli 848 kennslustundir, Giljaskóli 785 kennslustundir. Þetta eru alls 4.898 kennslustundir sem er fjölg- un um 50 kennslustundir frá fyrra ári, en nemendum fjölgar um 22. NÝTT stöðvarhús Glerárvirkjunar hefur risið á bakka árinnar og í byrjun vikunnar voru túrbína og rafall hífð ofan í stöðvarhúsið. Nú er m.a. verið að ganga frá þakinu og þá er lagning aðveituæðarinnar frá stíflunni langt kominn. Fram- kvæmdir ganga samkvæmt áætlun og er stefnt að því að hefja raf- orkuframleiðslu í Glerárvirkjun í lok næsta mánaðar. Framleiðslu- geta virkjunarinnar verður um 1,5 GWst. Tilgangurinn með endurreisn virkjunarinnar er þríþættur, verið er að minnast þess að á síðasta ári voru 100 ár liðin frá rafvæðingu á Íslandi, um leið fær Norðurorka rafmagn inn á dreifikerfi sitt og þá mun virkjunin hafa fræðslugildi og nýtast við kennslu allt frá grunn- skóla og upp í háskóla. Nýtt stöðvarhús Glerárvirkjunar risið á árbakkanum Rafmagnsframleiðsla hefst eftir mánuð Morgunblaðið/Kristján Virkjun Stefnt er að raforkuframleiðslu í Glerárvirkjun í lok næsta mánaðar. HÁTÍÐ ungs fólks í listum undir yfirskriftinni „Gaman í gilinu“ fer fram í Listagilinu á Akureyri laug- ardaginn 26. mars nk. og stendur frá kl. 14–24. Þarna verða í boði fjöl- breyttir kostir lista fyrir augu og eyru, munn og maga. Klukkan 14 fer fram formleg opnun Menningar- smiðju Populus Tremula. Þar verður Aðalheiður Eysteinsdóttir með sýn- ingu í galleríi Boxi, einnig verður Gallerí Jónasar Viðar opnað form- lega og sýning Frúarinnar í Ham- borg hefst á Café Karolínu samtímis. Rafstúdíur og nýtt orgelverk eftir Gunnlaug Lárusson hljóma á Lista- safninu á Akureyri kl. 15 og saxófó- nakvartettinn Saxófrón verður með tónleika í Ketilhúsinu kl. 16. Hið al- þjóðlega djasstríó Tread leikur einn- ig í Ketilhúsinu kl. 17.30. Hátíðinni lýkur svo á vænum skammti af besta poppi en kl. 23 leika hljómsveitirnar Tenderfoot og Leaves í Ketilhúsinu. Ókeypis aðgangur er inn á sýn- ingar og miðar á tónleika á hóflegu verði. Gaman í gilinu er hátíð sem allir einstaklingar, félög og fyrir- tæki, sem eiga bólstað í Listagilinu, standa að. Fjölbreytt dagskrá á hátíð ungs fólks í listum Gaman í gilinu á laugardag       Fréttasíminn 904 1100
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.