Morgunblaðið - 24.03.2005, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 24. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Sambúðin hefur gert ÖnnuMarín Schram, Urði Há-konardóttur og RagnarPál Steinsson svo sam-
heldin að þau deila nánast öllu, þó
sérstaklega matmálstímum. Þau
hafa búið saman síðan í fyrrasum-
ar og hafa mikinn áhuga á mat-
seld. „Við erum dugleg að elda
saman, halda matarboð og sunnu-
dags„brunch“ fyrir vinahópinn,“
segir Urður.
Þau segjast ekki hafa neina sér-
staka reglu á matmálstímum og
borða bara þegar þau eru svöng að
sögn Urðar en hún sér mest um
eldamennskuna ásamt Önnu Mar-
ín. Það sem þau elda helst er kjúk-
lingur, salöt og pasta en líka mikið
af fiski þar sem stjúpi Urðar er
sjómaður og gefur þeim óspart af
aflanum.
Speltpítsan
samvinnuverkefni
Þau eru þó reglulega með ýmiss
konar samvinnuverkefni en þá taka
allir til hendinni og skella í heima-
tilbúna speltpítsu en spelthveiti er
talið hollara en hvítt hveiti. Deigið
þarf heldur ekki að lyfta sér og
undirbúningur tekur þar með mun
styttri tíma. „Það er svo auðvelt,“
segir Anna Marín og þá er það
„hlutverk Ragga að útbúa deigið,“
skýtur Urður inn í, en álegg er
tínt til úr afgöngum í ísskápnum.
Austurlenska tímabilið
Á þessu heimili er sjaldan farið
eftir uppskriftum að sögn Önnu
Marínar og er hún nýbúin að
ganga í gegnum austurlenska
tímabilið. Stelpurnar eru orðnar
sjóaðar í að vita hvað á að nota
saman og eiga létt með að galdra
fram naglasúpur að hætti alvöru
húsmæðra, segir Anna Marín
skellihlæjandi. Hún tekur það fram
að hún njóti samvistanna í eldhús-
inu til hins ýtrasta með Urði og
Ragga, líklega vegna þess að hún
sé sjálf einhleyp og sá tími sé
sannkallaður gæðatími. Raggi er
einnig hæstánægður með að búa
með tveimur snilldarkokkum. „Mér
finnst allt sem þær gera gott og
þær eru báðar mjög góðir kokkar,“
segir hann.
Pétursbúðin
í uppáhaldi
Þau láta ekki matarinnkaupin
vefjast fyrir sér en fara stundum í
skipulagða verslunarleiðangra ef
þannig liggur á þeim. Yfirleitt er
það sá sem á pening sem sér um
innkaupin og deila þau þessu á
milli sín eftir bestu getu. „Það er
enginn að spá í einhverja hundrað
þúsund kalla,“ segir Raggi og
glottir. Stelpurnar hlæja og taka í
sama streng. Eitt af því sem Urði
finnst skemmtilegast er að kaupa í
matinn og gæti hún eytt mörgum
tímum í matvörubúðum ef hún
fengi að ráða. „Hún getur verið
ógeðslega lengi,“ segir Anna Mar-
ín, greinilega vön biðinni. Þau eru
öll sammála um að versla sem
mest í Pétursbúðinni og styðja
meðvitað kaupmanninn á horninu
gegn stóru verslunarkeðjunum en
neyðast þó til að leita stundum í
stærri búðir til að fá betra úrval.
Raggi reynir að sannfæra stelp-
HVAÐ ER Í MATINN?
Anna Marín Schram, Urður
Hákonardóttir og Ragnar
Páll Steinsson fara oftast í
Pétursbúð til að kaupa í matinn.
Ekki skortir frumkvæði og dugnað í eldamennsku
á heimili þeirra Önnu Marínar Schram
athafnakonu og hjá skötuhjúunum Urði
Hákonardóttur, sem betur er þekkt sem
söngkona hljómsveitarinnar GusGus, og
Ragnari Páli Steinssyni, bassaleikara Botnleðju.
Borða bara
þegar þau
eru svöng
Fjarðarkaup
Gildir 22. mars – 26. mars verð nú verð áður mælie. verð
FK hamborgarhryggur úr kjötborði.......... 798 1198 798 kr. kg
Svínakótilettur úr kjötborði .................... 698 898 698 kr. kg
Svínahnakki, sneiddur úrb. úr kjötborði .. 858 1178 858 kr. kg
FK bayonneskinka ................................ 779 1298 779 kr. kg
Svínalundir úr kjötborði ........................ 1398 1998 1398 kr. kg
Merrild kaffi nr.103 500 gr.................... 198 289 396 kr. kg
Pepsimax 4x2l Góu páskaegg n3 fylgir ... 498 636 62 kr. ltr
Móa veislukjúklingur ............................ 489 699 489 kr. kg
Kjörís konfekt ísterta, 6 manna ............. 998 1498 998 kr. stk.
Coke 4x2l, fótbolti fylgir........................ 495 695 62 kr. ltr
Nettó
Gildir 23. mars–28. mars verð nú verð áður mælie. verð
Koníaks grísasteik................................ 1198 1998 1998 kr. kg
Veislufugl með fyllingu.......................... 489 699 699 kr. kg
Lambalæri, ferskt................................. 899 1280 1280 kr. kg
Páska lambafille m. fitu........................ 1889 2699 2699 kr. kg
Kalkúnn, 1 fl........................................ 599 699 699 kr. kg
Kjúklingavængir, ferskir ........................ 150 299 299 kr. kg
Rauðlaukur ......................................... 19 37 37 kr. kg
Sellerí ................................................. 59 95 95 kr. kg
Nóatún
Gildir meðan birgðir endast verð nú verð áður mælie. verð
Svínalundir, fylltar ................................ 1398 2298 1398 kr. kg
Jarðarber í boxi, 250 gr......................... 199 268 796 kr. kg
Nóatúns hamborgarhryggur .................. 1299 1398 1299 kr. kg
Nóatúns þurrkryddað lambalæri ............ 1039 1599 1039 kr. kg
Nóatúns þurrkryddaðar grísakótilettur .... 998 1489 998 kr. kg
Nóatúns bayonneskinka ....................... 895 1398 895 kr. kg
Lamba innralæri .................................. 1949 2998 1949 kr. kg
Rainbow ananassneiðar ....................... 99 115 174,6 kr. kg
Samkaup/Úrval
Gildir 24. mars–27. mars verð nú verð áður mælie. verð
Páskalamb, læri af nýslátruðu ............... 999 1249 999 kr. kg
Páskalamb, hryggur af nýslátruðu .......... 1038 1298 1038 kr. kg
Borgarneskjötv.hamborgarhr. m/beini.... 719 1198 719 kr. kg
Kalkúnn .............................................. 599 798 599 kr. kg
Emmess skafís, 1,5 l............................ 349 698 349 kr. kg
Jarðarber box, 250 gr. .......................... 198 299 792 kr. kg
Bláber box, 125 gr. .............................. 198 269 1584 kr. kg
Matfugl, veislufugl með fyllingu ............. 559 689 559 kr. kg
Fyrirtakspizzur, 350 g ........................... 399 499 1140 kr. kg
Ísfugl, heill ferskur kjúklingur................. 399 689 399 kr. kg
Þín verslun
Gildir 23. mars–30. mars verð nú verð áður mælie. verð
Lambalæri .......................................... 798 1198 798 kr. kg
Bayonneskinka .................................... 909 1298 909 kr. kg
Rauðv. marineraðar grísakótilettur ......... 1198 1498 1198 kr. kg
Beauvais rauðkál, 580 gr...................... 168 99 168 kr. kg
BKI Kaffi, 500 gr. ................................. 359 299 598 kr. kg
McCain súkkulaðikaka, 510 gr. ............. 349 478 663 kr. kg
Vanillu skafís, 1 ltr................................ 477 398 398 kr. ltr
Pik-Nik kartöflustrá, 113 gr. .................. 198 159 1399 kr. kg
Veislumatur á páskaborðið
HELGARTILBOÐIN | Neytendur@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Það ætla eflaust margir að kaupa í matinn fyrir páskana í dag
enda er hátíðarmatur víða á tilboði. Hér er Friðrik Guðmunds-
son kaupmaður að sýna viðskiptavini sérvalið lambalæri.
Speltpítsa
spelthveiti
ab-mjólk
2–3 tsk. lyftiduft
ólífuolía
salt og pipar
oregano
pítsusósa
rifinn ostur
pepperóní
grænmeti að smekk
Spelthveiti, Ab-mjólk, lyfti-
dufti og nokkrum dropum af
ólífuolíu er blandað saman svo úr
verði pítsudeig. Gott er að
krydda vel deigið með t.d. salti,
pipar og oregano. Þá er deigið
tilbúið og flatt út í pítsuform.
Huntz pítsusósa dreifð vel yfir og
niðurrifinn ostur settur ofan á.
Svo má setja hvað sem er úr ís-
skápnum sem álegg t.d pepper-
oní sneiðar brokkólí, rjómaost,
sveppi, tómata epli eða spínat
Galdurinn er dressing sem kem-
ur ofaná eftir að pítsan hefur
bakast í ofni í nokkrar mínútur.
Dressing:
nóg af hvítlauk,
ferskt chili, skorið smátt
ferskt basil
9 msk. ólífuolía
3 msk. Balsamikedik
salt og pipar
Tómatsúpa að
hætti Urðar
Tekur u.þ.b. klukkutíma að
matbúa hana
2 dósir af heilum tómötum
3 hvítlauksrif
ólífuolía
1 dós tómatpúrra
1 glas vatn
1 teningur grænmet-
iskraftur
3–4 gulrætur
pipar
spergilkál
chili
soðin egg
Tómatarnir og hvítlaukur látn-
ir sjóða í ólífuolíu þar til úr verð-
ur mauk. Afgangi af tómatsafa úr
dósunum blandað saman við og
vatni, tómatpúrrru, grænmet-
iskrafti niðurskornum gulrótum
og pipar líka. Í lokin er sett smá-
vegis af spergilkáli og chili út í.
Soðin egg eru sett út í súpuna
þegar hún er tilbúin og borin
fram.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
urnar um að þau eigi nú eftir að
prófa að fara í Europris, „þú finn-
ur loftpressu við hliðina á mjólk-
inni og það er mjög cool“, segir
Raggi og þar með yrðu matarinn-
kaupin í hans augum töluvert
áhugaverðari. Þessir hressu mat-
gæðingar eru ekki í nokkrum vafa
aðspurð um heilræði í mat-
armennskunni: Anna Marín vill
vara fólk við að skera kjúkling á
trébretti og Urður hvetur fólk til
að prófa sig áfram, „það tekur
styttri tíma að elda en maður held-
ur“, segir hún en skilaboð Ragga
eru skýr: „Ef þú borðar ekki þá
deyrðu.“