Morgunblaðið - 24.03.2005, Page 68

Morgunblaðið - 24.03.2005, Page 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 24. MARS 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alla daga í Lágmúla og Smáratorgi MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út á páskadag, sunnudaginn 27. mars. Fréttaþjónusta verður að venju á Fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, alla páskahelgina. Koma má ábend- ingum um fréttir á netfrett@mbl.is. Áskriftardeildin verður opin á skír- dag kl. 6–14, á laugardag kl. 11–19 og á páskadag kl. 8–15. Lokað verður föstudaginn langa og annan páska- dag. Auglýsingadeildin verður opin á laugardag kl. 9–12 og annan í pásk- um kl. 13–16. Skiptiborðið verður opið á laug- ardag kl. 8–12 og annan í páskum kl. 13–20. Fréttaþjón- usta um páska ENSKA knattspyrnufélagið Watford hafn- aði í gær tilboði frá Íslendingafélaginu Stoke City í íslenska landsliðsmiðherjann Heiðar Helguson. Tony Pulis, knatt- spyrnustjóri Stoke City, lagði mikla áherslu á að fá Heiðar í sínar raðir en Wat- ford hafnaði boðinu án þess að gera Stoke gagntilboð./E1 Boði Stoke í Heiðar hafnað EYÞÓR GUÐJÓNSSON fer með eitt af burðarhlutverkunum í nýrri kvikmynd eftir einn efni- legasta leikstjóra í Hollywood, að talið er, Eli Roth. Myndin heitir Hostel og er hrollvekja sem gerist í Evrópu. Segist Ey- þór í samtali við Morgunblaðið leika „galsafullan og skemmti- legan bakpokaferðalang“ sem lendir í háskalegum ævintýrum ásamt tveimur bandarískum fé- lögum sínum. Tökur á myndinni hófust í Prag fyrr í vikunni en leikstjór- inn Eli Roth, sem m.a. hefur ver- ið hampað af Quentin Tarantino, sló í gegn með myndinni Cabin Fever. Hugmyndina að þeirri mynd fékk hann er hann dvald- ist hér ásamt foreldrum sínum er hann var 19 ára gamall. Síðan þá hefur Roth, að sögn Eyþórs, verið hugfanginn af Íslandi. Eyþór er með öllu óreyndur leikari, starfar sem athafnamað- ur og undirbýr m.a. framleiðslu teiknimyndar sem byggist á Grettissögu. Hann segir að það hafi hins vegar ekki skipt leik- stjórann Roth neinu máli, hann hafi frá upphafi viljað fá hann til að leika Íslendinginn í mynd- inni. „Eli er ótrúlegur sölumaður og hélt langa söluræðu um það af hverju ég ætti að taka að mér hlutverkið – og ég gat ekkert sagt heldur hló bara því hann gerði mig í raun kjaftstopp.“ Eftir að nokkrir aðrir íslenskir leikarar höfðu verið reyndir varð úr á endanum að Eyþór féllst á að taka að sér hlut- verkið. „Það hefur verið sagt við mig að ég búi yfir einhverjum ein- stökum hæfileikum til að lenda í skemmtilegum ævintýrum. Það er sennilega satt því hér sit ég í svítu á fimm stjörnu Hilton- glæsihóteli í Prag og það er komið fram við mig sem kvik- myndastjörnu án þess að ég hafi nokkurn tíma beðið um það.“ Hostels er beðið með tals- verðri eftirvæntingu því fyrsta mynd Roths, Cabin Fever, hefur nú þénað um 100 milljónir dala í tekjur, en það er Sony-veldið sem mun sjá um alþjóðlega dreifingu á myndinni. Ný íslensk stjarna í mynd Eli Roth Eyþór Guðjónsson á tökustað Hostel nálægt Prag í Tékklandi. Hann býr á fimm stjörnu hóteli og er meðhöndlaður sem kvikmyndastjarna.  Íslenskt/60 ÖKUMAÐUR fólksbifreiðar, ungur karlmaður, lést í umferðarslysi á Ólafsfjarðarvegi, er bíll hans fór út af veginum skammt sunnan við bæinn Rauðuvík í Dalvíkurbyggð. Talið er að slysið hafi orðið snemma í gær. Bíllinn fór út af veginum skammt sunnan við vegrið, áfram eftir hlíðinni um 100 metra, fram af 20–30 metra háum bakka og hafnaði í stórgrýti í fjörunni. Tildrög slyssins eru óljós en lög- reglu barst tilkynning um bíl í fjöru- borðinu á þriðja tímanum í gærdag og er að var komið var maðurinn látinn. Aðstæður á vettvangi voru erfiðar og aðstoðuðu björgunarsveitarmenn í Dalvíkurbyggð lögreglu og sjúkra- flutningamenn á staðnum. Málið er í rannsókn en ekki er hægt að birta nafn mannsins að svo stöddu. Banaslys á Ólafsfjarðarvegi Bíllinn fór út af veginum rétt sunnan við vegrið við Rauðuvík og sjást för eftir hann í snjóskaflinum. Daníel Snorrason, lögreglufulltrúi á Akureyri, skoðar aðstæður og félagar hans huga að bílnum í grýttri fjörunni. Morgunblaðið/Kristján FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ Grettir hefur boðist til þess að kaupa allt hlutafé í Olíufélag- inu Esso, dótturfélagi Kers, á um 8,5 milljarða króna. Þetta kemur fram í viðtali við Sigurð G. Guðjónsson, stjórnarmann í Keri og lögmann Jóns Kristjánssonar í Sundi, í blaðinu í dag en þar telur Sigurður að ræða þurfi við Ólaf Ólafsson, forstjóra Samskipa og aðaleiganda Kers, um hvað hann vilji gera við félagið og hvort hann ætli að kaupa Gretti út. Á Grettir rúman þriðjung í Keri. Sigurður segir að engin önnur ástæða en þessi hafi legið að baki ákvörðun umbjóðenda sinna í síðustu viku, Jóns Kristjánssonar og fé- laga, þegar þeir ákváðu að auka hlutafé í fast- eignafélaginu Festingu, sem á og rekur allar fasteignir Samskipa og Olíufélagsins, sem Ker á stóra hluti í. Hafa Ólafur Ólafsson og félagar hans í meirihluta Kers krafist lögbanns á hlutafjáraukninguna. Sýslumaðurinn í Reykja- vík tók kröfuna fyrir í gær en ákvað að fresta úrskurði til 4. apríl næstkomandi. Sigurður telur einsýnt að sýslumaður muni hafna lögbannskröfunni, fyrir því séu dóma- fordæmi. Málatilbúnaður Ólafs og félaga sé óskiljanlegur og „hreinn og klár skrípaleikur“. Sínir umbjóðendur hafi verið að skapa sér stöðu gagnvart Ólafi, til að koma í veg fyrir að hann gæti ráðskast með eigur Kers. Sigurður segir Ólaf hafa sérstakan samning um að hann geti keypt allar eignir Olíufélagsins og Sam- skipa út úr Keri. Því þurfi engan að undra að skjólstæðingar sínir hafi gripið til varnar- aðgerða. Auka hafi þurft hlutaféð í Festingu en Ólafur hafi haft aðrar hugmyndir, m.a. þær að setja meira af eignum Olíufélagsins inn í Festingu. Grettir vill kaupa Esso fyrir 8,5 milljarða króna Sýslumaður frestaði úrskurði um lögbannskröfu Kers  Þurftum/11 Morgunblaðið/Arnaldur DEPO heitir stórverslun með byggingavör- ur sem Norvik, með Jón Helga Guðmunds- son, kenndan við Byko, í fararbroddi, opnar í Riga í Lettlandi í júní nk. Er þetta fyrsta verslunin af keðju tíu til tólf verslana með byggingavörur í Lettlandi. Jón Helgi segir í viðtali við Viðskiptablað Morgunblaðsins stefnt að því að Depo verði í leiðandi hlut- verki á lettneska markaðinum og tækifærin séu mikil. Segir hann að þær muni líkjast verslun Byko í Breiddinni í Kópavogi. Opnar keðju stórverslana í Lettlandi  Byggir upp/C4 ♦♦♦ ÍSLENDINGUM hefur fjölgað um 50% í ferð- um Icelandair til Bandaríkjanna í vetur, samanborið við sama tíma í fyrra. Að sögn Guðjóns Arngríms- sonar, upplýsingafull- trúa Icelandair, eru Ís- lendingar í miklum minnihluta farþega fé- lagsins til Bandaríkj- anna, en hefur engu að síður fjölgað mikið í vetur. Guðjón taldi þessa ferðaaukn- ingu landans vestur um haf eiga sér nokkrar skýringar. „Bæði höfum við verið að bjóða mjög hagstæð far- gjöld vestur og ýmis tilboð hafa ver- ið í gangi. Svo er gengi dollarans mjög hagstætt um þessar mundir og verðlagið vestanhafs freistar margra,“ sagði Guðjón. Aðspurður sagði hann að starfsmenn félagsins yrðu þess vissulega varir að farþeg- arnir keyptu inn vestanhafs, en það væri líka hagstætt að njóta lífsins vestanhafs um þessar mundir. Hagkvæmt væri að gista á hót- elum og fara út að borða, vegna lágs gengis dollarans. Samsvarandi aukn- ing hefur ekki orðið í fjölda erlendra far- þega Icelandair til Bandaríkjanna, enda gengisþróun gagnvart dollar með öðrum hætti í nágrannalönd- um. Gengisþróun krónunnar gerir að verkum að það er orðið mjög dýrt fyrir Bandaríkjamenn að koma til Ís- lands. Guðjón sagði að þrátt fyrir það hafi tekist að halda uppi svip- aðri ferðatíðni Bandaríkjamanna hingað til lands, en gengið hjálpaði ekki við að fá þá hingað. Mikið er bókað í ferðir til Banda- ríkjanna héðan fram á sumar, að sögn Guðjóns. Hann sagði stefnt að því að halda þessari aukningu í ferð- um Íslendinga vestur um haf út árið. Frá New York. 50% fleiri ferðast vestur um haf

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.