Morgunblaðið - 30.03.2005, Síða 1
STOFNAÐ 1913 84 . TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Koníakslegnar
tarantúlur
Siggi Hall eldaði syfjaðar risakóngulær
fyrir ævintýramenn | Menning
Úr verinu | Fiskuðu samtals 1,6 milljónir tonna Hvað er
ESB að makka með Norðmönnum? Íþróttir | Lippi vill hefna
fyrir tapið á Íslandi Keflavík mætir Snæfelli í úrslitum
KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, er gagnrýndur í nýrri skýrslu nefndar
sem rannsakar áætlun samtakanna um sölu á olíu
frá Írak þegar viðskiptabann á landið var í gildi.
Annan er þó ekki sakaður um spillingu í skýrsl-
unni.
Rannsóknarnefnd undir forystu Pauls Volckers,
fyrrverandi seðlabankastjóra Bandaríkjanna, birti
í gær þá niðurstöðu sína að ekki hafi komið fram
nægar vísbendingar um að Kofi Annan hafi vitað
að svissneska fyrirtækið Cotecna Inspection, sem
sonur hans starfaði fyrir, hafi gert tilboð í verk í
tengslum við olíusöluáætlunina árið 1998. Ekkert
bendi því til þess að hann hafi haft áhrif á þá
ákvörðun embættismanna SÞ að taka tilboðinu.
Rannsóknarnefndin gagnrýnir hins vegar Ann-
an fyrir að hafa ekki fyrirskipað „ýtarlega og
óháða rannsókn“ um leið og málið komst í hámæli
til að ganga úr skugga um hvernig sonur hans,
Kojo, tengdist svissneska fyrirtækinu.
Annan sagði í gær að nefndin hefði hreinsað
hann af öllum ásökunum um embættisbrot.
Scott McClellan, talsmaður George W. Bush
Bandaríkjaforseta, sagði að stjórn hans styddi enn
Kofi Annan þrátt fyrir gagnrýnina.
Skjölum eytt
Í skýrslu nefndarinnar kemur fram að fyrrver-
andi skrifstofustjóri Annans, Iqbal Riza, lét eyða
skjölum sem tengdust málinu daginn eftir að ör-
yggisráð SÞ heimilaði rannsóknina. Nefndin sakar
einnig Cotecna og Kojo Annan um að hafa reynt
að leyna tengslum sínum. Í bréfi frá lögfræðingi
Kojos, sem fylgir skýrslunni, er viðurkennt að
hann hafi ekki sagt föður sínum allan sannleikann.
Bandaríkin
styðja Ann-
an áfram
Gagnrýndur í nýrri
skýrslu en ekki
sakaður um spillingu
New York. AP, AFP.
Paul Volcker ræðir nýja skýrslu sína um rann-
sókn á olíusöluáætlun Sameinuðu þjóðanna.
Reuters RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI hefur vísað til
dómsmálaráðuneytisins erindi bandarískra
yfirvalda þess efnis að þau íhugi að fá Bobby
Fischer framseldan til Bandaríkjanna.
Erindið barst ríkislögreglustjóra á skír-
dag, er Fischer kom til landsins, frá lands-
skrifstofu alþjóðalögreglunnar Interpol í
Washington. Yfirskrift þess er „Red Notice“.
Þar eru settar fram spurningar í tengslum
við hugsanlega framsalskröfu.
Þórir Oddsson vararíkislögreglustjóri hef-
ur staðfest við Morgunblaðið að erindi þessa
efnis hafi borist embættinu og að því hafi ver-
ið vísað til dómsmálaráðuneytisins, sem fer
ríkjamenn að Fischer dveljist hér á landi.
Fischer hefur verið eftirlýstur vegna brots
á viðskiptabanni við Júgóslavíu, en hann
tefldi einvígi við Borís Spasskí í Belgrad árið
1992. Davíð Oddsson utanríkisráðherra hefur
bent á að það meinta brot Fischers sé fyrnt
samkvæmt íslenskum lögum, en Íslandi beri
ekki skylda til að verða við framsalskröfu
nema brotið sem krafan beinist að sé jafn-
framt brot gegn íslenskum lögum. Fram hef-
ur komið í bandarískum fjölmiðlum að þar-
lend stjórnvöld hafi til skoðunar önnur meint
brot Fischers; á skattalögum og jafnvel lög-
um um peningaþvætti.
með framsalsmál.
Meðal þeirra at-
riða sem bandarísk
yfirvöld inna ríkis-
lögreglustjórann
eftir er staðfesting
á að Bobby Fischer
sé staddur hér á
landi. Þau tilkynna
ennfremur að
Fischer sé eftirlýst-
ur og yfirvöld hafi til skoðunar hvort þau
krefjist framsals hans. Embætti ríkislög-
reglustjóra hefur þegar staðfest við Banda-
Interpol sendir ríkislögreglustjóra erindi bandarískra yfirvalda
Íhuga að krefjast
framsals Fischers
Bobby Fischer
ÁSTANDIÐ á eyjunni Nias á
Indlandshafi er furðu gott mið-
að við aðstæður, þó að þar gæti
mikillar skelfingar eftir harðan
jarðskjálfta á mánudag. Ómar
Valdimarsson, sendifulltrúi
Rauða kross Íslands í Indó-
nesíu, segir viðbúnað hafa verið
mikinn og lán í óláni að mikið af
þrautþjálfuðu hjálparstarfs-
fólki var á svæðinu þegar
skjálftinn reið yfir. Hjálpar-
starfsfólkið hefur starfað að
uppbyggingu og hjálparstarfi í
miklar skemmdir en það er líka
heilmikið af hjálpargögnum
sem komið hefur til Indónesíu
og á þessi svæði í kjölfar
skjálftans í desember, svo það
er hægt að nota það sem fyrir
er til að bregðast við.“
Óttast er að hátt í 2.000
manns hafi látið lífið í jarð-
skjálftanum í fyrradag, að sögn
fréttastofunnar AP í gær.
kjölfar jarðskjálftans og flóð-
bylgjunnar 26. desember sl.
„Þannig að það á allt að geta
komist til fólks á mun skemmri
tíma en venjulega,“ segir Ómar
í samtali við Morgunblaðið.
Óttast að 2.000 hafi farist
Þórir Guðmundsson, upplýs-
ingafulltrúi Rauða kross Ís-
lands, efast um að íbúarnir
þurfi mikla utanaðkomandi að-
stoð aðra en þá sem þegar er
fyrir á svæðunum. „Þetta eru
Reuters
Indónesar kanna rústir verslunar í bænum Sibolga á Súmötru eftir jarðskjálftann í fyrradag.
Mikill viðbúnaður
dregur úr áfallinu
Yfir 1.000/16
Ekkert lát/6
Lán í óláni að fjöldi hjálparstarfsmanna var á
svæðinu, segir Ómar Valdimarsson í Indónesíu
YFIR 300.000 manns hafa dáið af
völdum átakanna í Darfur-héraði í
Súdan, að því er fram kemur í
skýrslu sem bresk þingnefnd birtir í
dag.
Nefndin kannaði ástandið í Darfur
í febrúar og samdi skýrsluna eftir
viðtöl við starfsmenn hjálparstofn-
ana, embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna og Hilary Benn, ráðherra þró-
unaraðstoðar í bresku stjórninni.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHO) hefur áætlað að 70.000
manns hafi dáið af völdum átakanna,
sem hafa staðið í tvö ár, en breska
þingnefndin telur að dánartalan sé að
minnsta kosti fjórum sinnum hærri.
Nefndin sakar WHO um að hafa van-
metið mannfallið stórlega og segir að
tölur stofnunarinnar nái aðeins til
dauðsfalla í flóttamannabúðum en
ekki til árása á þorp víðs vegar um
Darfur. Þá nái tölurnar aðeins yfir
tímabilið frá mars til október í fyrra
en átökin hafi staðið miklu lengur.
Telja 300
þúsund
liggja
í valnum
London. AFP.
RÚSSNESKIR saksóknarar kröfðust þess í gær
að auðkýfingurinn Míkhaíl Khodorkovskí, stofn-
andi olíurisans Yukos, yrði dæmdur í tíu ára fang-
elsi fyrir skattsvik og fjárdrátt.
Saksóknarnir kröfðust einnig þess að samstarfs-
maður Khodorkovskís, Platon Lebedev, sætti
sömu refsingu og að eignir þeirra yrðu teknar
eignarnámi.
Búist er við að dómur verði kveðinn upp í málinu
fyrir lok maímánaðar. Lögfræðingar Khodor-
kovskís voru ekki bjartsýnir á að dómstóllinn
sýknaði hann en sögðust enn halda í vonina og ætla
að áfrýja dómnum verði auðkýfingurinn dæmdur í
fangelsi.
Khodorkovskí
fái 10 ára dóm
Moskvu. AFP.
♦♦♦
MIKILL meirihluti reykingamanna
á Írlandi telur, að bannið við reyk-
ingum á opinberum stöðum hafi
gefist vel. Eru 80% þeirra á þeirri
skoðun en ár er nú liðið frá því lög
um það tóku gildi.
98% allra þeirra, sem könnunin
tók til, segja, að lögin hafi haft til-
ætluð áhrif og 89% reykingamanna.
Þá eru 98% allra á því, að vinnu-
staðir séu orðnir heilsusamlegri en
áður og 94% reykingamanna.
Kom þetta fram á fréttavef írska
blaðsins Irish Examiner.
Reykinga-
menn ánægðir
með reykbann
♦♦♦
Úr verinu og Íþróttir í dag