Morgunblaðið - 30.03.2005, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
FRÁ síðustu áramótum hefur dregið
nokkuð úr fjölda þeirra sem huga að
íbúðakaupum á næstunni. Þeim sem
hyggjast festa kaup á bifreið hefur
hins vegar fjölgað og þá hefur þeim
einnig fjölgað sem hafa í huga að
ferðast til útlanda. Þetta er meðal
þess sem fram kemur í könnun Gall-
up en væntingavísitala Gallup var
birt í gær.
Í Morgunkorni Greiningar Ís-
landsbanka segir að breytingar á
áhuga þeirra sem hyggjast festa
kaup á húsnæði séu athyglisverðar í
ljósi mikillar veltu á fasteignamark-
aði að undanförnu. Segir deildin að ef
til vill sé tímabundin mettun að eiga
sér stað um þessar mundir eftir mikil
viðskipti að undanförnu. Þá sé einnig
sennilegt að verðhækkun dragi úr
áhuga kaupenda.
Segir Greining ÍSB að vísitölurnar
sem mæli fyrirhuguð bifreiðakaup og
utanlandsferðir hafi hækkað umtals-
vert og ekki mælst hærri frá því mæl-
ingar hófust í júní 2002.
Bætt mat á atvinnuástandinu
Segir í Morgunkorni Greiningar
ÍSB að neytendur virðist sáttir við líf-
ið og tilveruna um þessar mundir ef
marka megi væntingavísitölu Gallup.
Vísitalan hafi hækkað um 6,4 stig og
standi nú í 127,6 stigum. Mat neyt-
enda á atvinnuástandinu hafi batnað
umtalsvert frá fyrri mánuði og hafi
ekki mælst hærra frá því mælingar
hófust. Atvinnuleysi hafi farið minnk-
andi að undanförnu, spenna virðist
framundan á vinnumarkaði og það
hafi ekki farið framhjá neytendum.
„Fækkað hefur í hópi þeirra sem
telja að efnahagsástandið verði betra
eftir sex mánuði og þeim fjölgað sem
telja að ástandið verði verra. Þetta
endurspeglar ef til vill núverandi
landslag efnahagsmála þegar hag-
vöxtur er umtalsverður en skýr
hættumerki eru til staðar í háu raun-
gengi krónunnar og miklum og vax-
andi viðskiptahalla sem mun krefjast
leiðréttingar fyrr eða síðar,“ segir
Greining ÍSB.
Minni áhugi á íbúðakaupum
Morgunblaðið/ÞÖK
Ef áhugi er fyrir jöfnum forsendum til hagvaxtar á landsbyggðinni og í Reykjavík þarf annaðhvort að færa til
stofnanir eða lækka skatta á landsbyggðinni, segir Vífill Karlsson, dósent við Viðskiptaháskólann á Bifröst.
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís-
lands námu ríflega 16,5 milljörðum
króna í gær. Þar af voru viðskipti
með hlutabréf fyrir ríflega 1,1 millj-
arð.Mest hækkun varð á bréfum
Bakkavarar, 1,6%, en mest lækkun
varð á bréfum FL Group, -2,1%.
Úrvalsvísitala hækkaði um 0,12%
og er nú 3.896 stig.
Bakkavör
hækkaði mest
!"#
!"#"$
% "&' (&
)* &# +&(&
)#&
,&' (& % "&'
-$"
.# /
01$/
01 !/ $ &#(
2
! 1 % "&'
3 &'
31 /&
4(&
,56& /7 &&
89$/
0%!
0" :"# 0"&'
0"1 ;
<;##  &
= && " &
>17 11 ?06($#
!
(
! $"' @;//
,&' 51 % "&' <6 6
"#
$%
AB@C
05
$
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
$; &#
; $
?
? ?
?
? ?
?
?
? ?
?
? ?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
D EF
?
D EF
D ?EF
?
D ?EF
D EF
D ?EF
?
?
?
D ?EF
?
?
D ?EF
?
?
?
?
?
?
D EF
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
3$ "'
'# &
< "( 5 " '# G
) 0"
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
= 5 *+
<3 H #&" !/"'
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
<3? I 1 1"'&' " "/
● GREININGARDEILD KB banka spá-
ir því að vísitala neysluverðs muni
hækka um 0,4% í apríl. Fari svo verð-
ur verðbólga 4,5% á ársgrundvelli.
Vísitala neysluverðs hækkaði um
0,6% í apríl í fyrra.
Verði hækkunin að veruleika er
skýringuna helst að finna í út-
sölulokum og hækkun fast-
eignaverðs en greiningardeildin gerir
ráð fyrir að heldur muni draga úr
verðbólguhraðanum á næstunni í
ljósi verðhækkana síðasta vor.
Jafnframt gerir greiningardeildin
ráð fyrir því að verðbólgan muni
hækka enn frekar þegar líða tekur á
árið og að hún muni ná hámarki und-
ir lok ársins.
Spáir 4,5% verðbólgu
● HEIMSMARKAÐSVERÐ á hráolíu
hefur tekið að lækka á ný en loka-
verð á hráolíu af Brent-svæðinu í gær
var 52,08 dalir/fat. Fyrir rúmri viku
var verðið 55,66 dalir/fat.
Sömu sögu er að segja af hráolíu
á Nymex-markaðnum í New York en
þar var lokaverð 54,23 dalir/fat í
gærkvöldi. Lokaverð fyrir rúmri viku
var hins vegar 56,72 dalir/fat.
Þetta bendir til þess að áhrifa auk-
innar framleiðslu OPEC sé loksins
farið að gæta.
Olían tekin að lækka HAGNAÐUR
Tæknivals hf. á
síðasta ári nam
607 milljónum
króna eftir skatta.
Árið áður var tap
félagsins 289 millj-
ónir. Eigið fé fé-
lags í lok árs 2004
var jákvætt um
250 þúsund krón-
ur en það var hins
vegar neikvætt
um 608 milljónir í
árslok 2003.
Rekstrartekjur
Tæknivals námu um 2,5 milljörð-
um króna á árinu 2004, samanborið
við um 3,3 milljarða árið áður.
Rekstrargjöld lækkuðu hins vegar
enn meira milli ára, eða úr 3,4
milljörðum á árinu 2003 í tæpa 1,7
milljarða í fyrra. Rekstrarhagnað-
ur fyrir afskriftir (EBIDTA) var
871 milljón á síðasta ári samanbor-
ið við 89 milljóna króna tap árið áð-
ur. Þá var hagnaður eftir fjár-
magnsgjöld og tekjuskatt 607
milljónir í fyrra en það var hins
vegar 289 milljóna tap árið áður.
Í tilkynningu frá Tæknivali seg-
ir að félagið hafi tekið miklum
breytingum í kjölfar sölu á versl-
anasviði þess til Skífunnar í janúar
á síðasta ári. Eftir breytingarnar
hafi aftur verið lögð áhersla á það
sem ávallt hafi verið kjarnastarf-
semi fyrirtækisins, en það er sala
og þjónusta á tölvubúnaði til fyr-
irtækja og stofnana. Allt árið 2004
hafi verið unnið að því að styrkja
þessar áherslur enn frekar.
Betri afkoma
hjá Tæknivali
Morgunblaðið/ÁsdísSÆNSK-finnski fjarskiptarisinn
TeliaSonera hefur náð samkomulagi
við tyrkneska fyrirtækið Cukurova
um kaup á 27% hlut í farsímafyrir-
tækinu Turkcell. Eftir kaupin verður
eignarhlutur TeliaSonera í Turkcell
64,3% en kaupverðið var 3,1 millj-
arður Bandaríkjadala, sem samsvar-
ar 191 milljarði íslenskra króna.
Cukurova hefur, samkvæmt frétt
Financial Times, átt í rekstrarerfið-
leikum og grípur því til þess ráðs að
selja þennan hlut. Fyrirtækið verður
þó áfram minnihlutaeigandi í Turk-
cell með 13,5% hlut en eitt af skilyrð-
unum fyrir sölunni til TeliaSonera er
að tyrkneska kauphöllin aflétti
skyldu til yfirtökutilboðs. Þannig
getur Cukurova losað sig við miklar
skuldir en samt haldið stórum eign-
arhlut í langstærsta farsímafyrir-
tæki landsins en Turkcell hefur 70%
markaðshlutdeild í Tyrklandi.
Viðskiptin hafa vakið mikla reiði
meðal annarra minnihlutaeigenda í
félaginu sem telja sig vera svikna um
sinn hlutskerf. Hafa þeir hótað lög-
sókn til þess að stöðva kaupin en bú-
ist er við að þau gangi í gegn ein-
hvern tíma á öðrum fjórðungi ársins
samkvæmt sænsku fréttaþjónust-
unni Direkt.
TeliaSonera kaupir
27% í Turkcell
8 'J
0KL
E
E
!<0@
MN
E
E
BB .-N
E
E
)!N
8 $
E
E
AB@N MO 4&$
E
E