Morgunblaðið - 30.03.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2005 23
DAGLEGT LÍF
„ENGUM blöðum er um það að fletta
að fólk er farið að kalla eftir breyttu
mataræði, bættri heilsu og breyttu
líferni. Það eru hinsvegar allir orðnir
svolítið ruglaðir á því hvaða stefnur
séu líklegastar til að bera árangur því
mismunandi kúrar eru á hverju
strái,“ segja þau Þorbjörg Hafsteins-
dóttir og Oscar Umahro Cadogan
næringarþerapistar.
Til að einfalda hlutina fyrir fólk,
sem vill sinna líkama sínum vel án
þess að detta niður í fanatík, hafa þau
þróað tíu grunnreglur, byggðar á vís-
indalegum rökum. „Við tökum inn
kostina og sneiðum fram hjá göll-
unum í ríkjandi fæðustefnum nú-
tímans sem eiga t.d. rætur sínar að
rekja í Atkins-fæðinu, South Beach-
kúrnum, danska kúrnum, nýja fæðu-
pýramídanum, grænmetisfæði og
hráfæði. Eitthvað gott er í öllum
þessum kúrum, sem við nýtum okkur,
en öðru sleppum við.“ Þorbjörg og
Umahro hafa tekið upp samstarf við
verslunina og matstofuna Maður lif-
andi í Borgartúni 24.
Þorbjörg sinnir þar næring-
arráðgjöf auk þess sem hún og
Umahro halda reglulega kvöld-
námskeið sem byggjast á nýju grunn-
reglunum. Þorbjörg sér um fyr-
irlestrana og Umahro um matseldina,
en þau leggja mikið upp úr hollum
einfaldleika heima í eldhúsi svo að nú-
tímamaðurinn geti forðað sér frá
óhollum skyndibitalausnum. „Það er
nóg að taka frá einn og hálfan tíma
tvisvar í viku til að undirbúaheilsu-
samlega viku,“ segir Umahro. Versl-
unin Maður lifandi hefur svo eina
grunnreglu uppi við í hverri viku og
býður tilboð á vörum henni tengdum.
Lífsmáti er áhrifavaldur á heil-
brigði og benda rannsóknir til þess að
70–90% hættunnar á því að fá lang-
varandi eða krónískan sjúkdóm megi
rekja til hegðunarmynsturs.
Þau leggja áherslu á að ýmsir gall-
ar fylgi nútímafæðustefnum og því
mæli þau með því að fólk borði úr öll-
um fæðuflokkum, en sleppi óhollust-
unni. „Við viljum nefnilega að fólk,
sem er að leggja það á sig að breyta
lífsstílnum, geri það með hámarks-
árangri.“
Að sögn Þorbjargar og Umahro
þarf í sambandi við breytt og bætt
mataræði sérstaklega að huga að
blóðsykurs- og insúlínálagi því flökt-
andi blóðsykur geti mjög líklega verið
ávísun á streitu, sem leitt getur til al-
varlegri vandamála. Auk þess þarf
sérstaklega að huga að trefjum,
fitu, ávöxtum og grænmeti, prótein-
um, kolvetnum og fæðubótarefnum.
„Og í staðinn fyrir að sleppa kolvetn-
um alveg, er betra að borða heilkorn í
stað hvíts hveitis sem kemur í veg
fyrir að blóðsykur falli. Það getur vel
verið að fólk hrynji í kílóum með Atk-
ins- kúrnum, þar sem kolvetni eru á
bannlista, en það er ekkert endilega
víst að slíkt sé hollt. Það mikilvæg-
asta varðandi kolvetni er að minnka
glúkósaálagið þannig að líkaminn
verði ekki stöðugt fyrir álagi frá of
miklum blóðsykri.
Sykur á bannlista
Fyrsta stigið er að hætta algjörlega
neyslu unninna kolvetna. Í staðinn
má neyta belgávaxta, heilkorna af-
urða og hýðisgrjóna. Til að fá sætu-
bragð má nota ber, ávexti eða smá-
vegis af hunangi. „Sykur og önnur
sætuefni eru á bannlista þeirra, sem
vilja bæta hollustuna þar sem sykur
eykur innsúlínframleiðslu og stuðlar
að innsúlínónæmi,“ segir Þorbjörg.
„Trefjar eru mikilvægar til að
minnka álag á blóðsykur og insúlín
auk þess sem þær bæta meltinguna,
binda eiturefni og kólesteról og
styrkja þarmaflóruna. Plöntukím er
líkamanum mikilvægt auk þess sem
ávextir og grænmeti styrkja ónæm-
iskerfið, bæta meltinguna og fyr-
irbyggja velmegunarsjúkdóma. Og
síðast en ekki síst er holl fita mik-
ilvæg líkamanum. Hún eykur t.d. ins-
úlínnæmi, frumuhreysti, eykur
brennslu, er blóðþynnandi og bólgu-
eyðandi og minnkar kólesteról og
blóðfitu svo fremi sem restin af fæð-
unni sé holl. Hollar fitur er m.a. að
finna í dýrafitu úr villtum dýrum,
kókosolíu, smjöri í litlu magni, ólífu-
olíu, hörfræolíu, fiskiolíu, sólblóma-
olíu og sesamolíu. Óhollar fitur er
hinsvegar að finna í unnum fitum,
transfitum, smjörlíki, majónesi, olíum
úr unnum tilbúnum vörum og ódýr-
um jurtaolíum, sem hreinsaðar hafa
verið með ýmsum misjöfnum leysi-
efnum, upphitaðar, klóraðar og
bragðhreinsaðar.
Að lokum eru prótein mikilvæg til
að stuðla að jafnvægi á blóðsykri og
insúlíni. Þau eru byggingarefni fyrir
vöðva, vef, slímhúð, hormóna og boð-
efni. Þau auka brennslu, lækka blóð-
þrýsting og styrkja framleiðslu á
andoxunarefnum líkamans sem hann
notar til eigin forvarna.“
HEILSA | Borðað fyrir hollustu, vellíðan, útlit, þyngd og orku
Allir fæðuflokkar á matarborðið
Morgunblaðið/Jim Smart
Næringarþerapistarnir Þorbjörg Hafsteinsdóttir og Oscar Umahro Cadogan.
LÍKAMSRÆKT
Súludans fyrir alla
Konur í Bretlandi
stunda súludans sem
líkamsrækt, segir
Laila Pétursdóttir.
Zoe Balls, Heather Graham og fyr-
irsætan Kate Moss tilkynntu að
þeim þætti súludans vera besta leið-
in til að halda sér í góðu formi hafa
konur flykkst á líkamsræktar- og
dansstaði þar sem þetta listform er
í boði. Súludanskennslan getur far-
ið fram sem einkakennsla eða sem
hópkennsla allt eftir því hvað við-
komandi vill. Þegar nemandinn hef-
ur náð ákveðinni hæfni getur hann
svo farið að skemmta öðrum og sett
eru upp súludanspartý víðs vegar
um heiminn þar sem viðkomandi
getur leikið sér að stönginni fyrir
framan áhorfendur og klætt sig úr
eins miklu og hann vill. Oft á tíðum
eru það fyrrverandi eða jafnvel nú-
verandi stripparar sem kenna þessi
fræði og því má segja að þær hafi
greinilega fundið sér annan farveg
og nýtt sér það sem þær hafa lært
til að miðla til annarra. Sumar kon-
ur hafa látið sér nægja súlutímann
sinn með því að fara í kennslustund-
irnar en aðrar hafa tekið á það ráð
SÚLUDANS er fyrir flestum eitt-
hvað sem felst í nakinni konu sveifl-
andi sér í kringum súlu að fækka
fötum. Þetta dansform hefur eink-
um verið bendlað við reykmettaða
strippstaði þar sem karlar koma og
borga fyrir nekt. Því hefur þetta
tjáningarform verið álitið niðrandi
fyrir konur en nú eru breyttir
tímar. Eftir að leikkonur á borð við
að setja súlu inn á heimilin sín. Það
er hægt að kaupa svona súlur á Net-
inu og einnig er þar að finna bún-
inga og alls kyns dótarí sem sumar
vilja líka eignast til að lifa sig enn
betur inn í hlutverkið og njóta lík-
amsræktarinnar þá alveg í botn.
Konur sem stunda þessa líkams-
rækt segja hana vera með þeim erf-
iðustu sem þær hafi komist í tæri
við. Þær fái fallega vöðva, verði lið-
ugri og þar að auki bæti þetta
sjálfstraustið alveg gríðarlega.
Þetta sé því spurning um að líta
ekki niðrandi á súludansinn og telja
það vera niðurrífandi fyrir konur
heldur snúist þetta miklu meira um
persónulega tjáningu. Konur eiga
að vera ánægðar með líkama sinn
og mega því sýna hans eins og þær
vilja, þetta snýst því um frelsun lík-
amans og tjáningu kvenleikans.
Höfundurinn býr í Bretlandi.
Þú skalt ekki neyta sykurs, hvorki sýnilegs, ósýnilegs né gervisyk-
urs.
Borðaðu bara heilkorn og ekki meira hvítt.
Ekki forðast fitu – borðaðu rétta fitu, holla og lífræna.
Mundu að borða meira gæðaprótein.
Borðaðu belgávexti, svo sem baunir, linsur og kjúklingabaunir, og
hnetur á hverjum degi.
Þú skalt borða lífrænt grænmeti og ávexti oft á dag – minnst 600
grömm.
Drekktu 1½ lítra af vatni daglega og að auki ferskpressaða græn-
metis- og ávaxtasafa, grænt te og jurtate.
Borðaðu reglulega. Ekki sleppa morgunmat og borðaðu fleiri og
minni máltíðir.
Borðaðu jafnt úr öllum fæðuflokkum (prótein, holla fitu og heil-
korn eða belgávexti) og lífrænt.
Taktu inn fæðubótarefni – a.m.k. eina sterka fjölvítamín á dag en
helst meira.
Tíu grunnreglur
TENGLAR
.....................................................
www.madurlifandi.is
join@mbl.is