Morgunblaðið - 02.04.2005, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Sparifatnaður
fyrir brúðkaup og aðrar hátíðir vorsins
Kringlukast
20% afsláttur af
yfirhöfnum frá
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, sími 588 1680
Vorið er komið!
Opið kl. 11-16
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Nýtt Nýtt
Yfirhafnir
á hálfvirði
þessa viku
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Vattúlpur, ullarkápur,
dúnúlpur,
húfur og hattar
!"#$%
&
Sumarjakkar
Stuttir jakkar
Vattjakkar
LANDSSAMBAND lögreglumanna
harmar verulega niðurstöðu í dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur yfir lög-
reglumanni sem stöðvaði vélhjóla-
mann með því að aka í veg fyrir
hann og telur hana í engu samræmi
við málavöxtu. Verði þetta endanleg
niðurstaða séu vinnubrögð lögreglu
í algeru uppnámi. Dómnum hefur
verið áfrýjað til Hæstaréttar.
Í dóminum var lögreglumaður
sakfelldur fyrir brot í opinberu
starfi samkvæmt 132. gr. alm. hgl.
og brot á umferðarlögum. Var lög-
reglumaðurinn talinn hafa beitt
óeðlilegum aðferðum við að stöðva
för bifhjóls.
Landssambandið sendi frá sér til-
kynningu í gær í ljósi „mikillar og
óvæginnar“ fjölmiðlaumfjöllunar
um málið. Lýst er furðu yfir á því
að vitni í málinu sem séu starfandi
lögreglumenn hafi verið nafngreind
og vænt um ósannsögli í ákveðnum
fjölmiðlum. „Verður ekki séð að slík
vinnubrögð geti talist málefnaleg
fréttamennska eða líkleg til að auka
traust almennings á fjölmiðlum,“
segir í tilkynningunni.
Það er mat sambandsins að við-
komandi lögreglumaður hafi í um-
rætt sinn unnið í samræmi við það
verklag sem hingað til hafi tíðkast
hjá lögreglu. Verði þetta endanleg
niðurstaða málsins búi lögreglu-
menn við mikla óvissu um hvernig
eigi að stöðva ökutæki sem ekki
sinni stöðvunarmerkjum lögreglu
og geri þeim erfitt um vik að halda
uppi góðu og markvissu umferðar-
eftirliti. Vinnuumhverfi lögreglu-
manna sé oft á tíðum erfitt og al-
gengt að þeir verði að taka
ákvarðanir á ögurstundu með litlum
sem engum fyrirvara. Svo virðist
sem oft sé ekki tekið tillit til þessa
þegar mál séu metin.
Gæti komið vinnu-
brögðum lögregl-
unnar í uppnám
ÖLL félög innan BSRB að
sjúkraliðum, lögreglumönnum
og tollvörðum undanskildum
eru búin að semja við ríkið. At-
kvæðagreiðsla stendur nú yfir
við samflot bæjarstarfsmanna-
félaga sem samdi við ríkið fyrir
páska. Fundir hafa verið boð-
aðir milli ríkisins og sjúkraliða
og lögreglumanna eftir helgina.
Öll félög háskólamanna hafa
ennfremur undirritað nýja
kjarasamninga við ríkið.
Ríkið að
ljúka kjara-
samningum
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111