Morgunblaðið - 02.04.2005, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís-
lands í gær námu ríflega 5,2 millj-
örðum króna. Þar af voru viðskipti
með hlutabréf fyrir tæpa 4 millj-
arða. Mest viðskipti voru með bréf
Kaupþings banka.
Mest hækkun varð á bréfum Og
Vodafone, 2,7%. Næst mest hækk-
un varð á bréfum Kaupþings banka,
2,3%, en mest lækkun varð á bréf-
um Fiskmarkaðs Íslands, 1,8%.
Næst mest lækkun varð á bréfum
Marel, -0,7%.
Úrvalsvísitala aðallista hækkaði
um 1,04% og er 3.957 stig.
Gengisvísitala krónunnar lækkaði
um 0,56% í gær og hækkaði geng-
ið sem því nemur. Lokagengi krón-
unnar gagnvart dollar var 60,5 kr.
Lokagengi evru var 77,95 kr. Við-
skipti með gjaldeyri á millibanka-
markaði námu 6,2 milljörðum
króna.
Úrvalsvísitala hækk-
aði um 1,04%
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
GUNNLAUGUR Árnason hefur
verið ráðinn ritstjóri Við-
skiptablaðsins frá næstu mán-
aðamótum. Mun hann móta rit-
stjórnarstefnu Viðskiptablaðsins,
stjórna fréttaflutningi þess og
þróa blaðið samhliða nýrri þjón-
ustu við áskrifendur.
Gunnlaugur hefur starfað sem
blaðamaður Reuters-frétta-
samsteypunnar í London frá árinu
2001 og hefur hann sérhæft sig í
fjármálafréttum. Þá annaðist
hann um tíma almennar fréttir,
viðskipta- og stjórnmálafréttir frá
Íslandi fyrir skrifstofu Reuters í
Stokkhólmi.
Áður sinnti hann blaðamennsku
í lausamennsku samhliða námi í
Bretlandi, þar á meðal á bresku
dagblöðunum The Guardian og
The Independent og hjá BBC
Radio 4. Hefur Gunnlaugur jafn-
framt unnið á tímaritum og blöð-
um í Bandaríkjunum, jafnt sem
blaðamaður og ljósmyndari.
Hann hefur BA-gráðu í blaða-
mennsku, heimildaljósmyndun og
fjölmiðlafræðum frá Fylk-
isháskólum Kaliforníu í San
Francisco og Sonoma auk meist-
aragráðu í alþjóðlegri blaða-
mennsku frá Westminst-
er-háskólanum í London sem
hann lauk árið 1991.
Gunnlaugur segir þetta nýja
verkefni vera spennandi enda er
mikið að gerast í íslensku við-
skiptalífi um þessar mundir að
hans sögn.
Maki Gunnlaugs er Svava Krist-
jánsdóttir, endurskoðandi hjá
breska fjárfestingafyrirtækinu
Marble Bar Asset Management í
London.
Jónas Haraldsson, sem gegnt
hefur starfi ritstjóra frá áramót-
um, tekur við starfi fréttastjóra
Viðskiptablaðsins þegar Gunn-
laugur kemur til starfa í maí.
Gunnlaugur
Árnason ritstýrir
Viðskiptablaðinu
./ '0 *12-
. 0 *12-
3 '# 0 *12-
3* 2-
0 *12-
* 2-
4 $ 2-
5 *1+ 3, 2-
5# *2-
$ 4 $2-
& 2-
6 " 12-
7 2 "2- 7 ** " -2-
8* 2-
!
"
#
* 4 $2-
930 $2-
9 1" 2-
: 2-
%
" * 2-
;<2 "2-
742-
7 * = 7** $'-
7#*-2 )2-2-
> ) #2-
?*#2-
@ * !7
2-
$!%
& '
.** 2-
$A)" " 2- $%4 $2- >
2-
& (
BCAD
7%
'-'
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
3 )
) '-'
! !
! ! !
! !
! !
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
E!FG
!
E!FG
EFG
E!FG
E FG
EFG
EFG
!
EFG
E! FG
E FG
!
EFG
EFG
E!
FG
!
!
!
!
!
!
!
!
EFG
!
!
!
!
!
!
!
9$ '1
$
>%$ H
5 *17
- - -
-
-
- -
- !
- -
- !
-
-
!
!
-
!
!
!
!
-
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
?1%+,- -
.>9-I.2* * "#$
'1
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
!
.>9-!J' * 2-#*2* " -.>9-!7)$ " ) --2* -.>9-!?-) ' *" # *= -
STJÓRN bresku verslunarkeðj-
unnar Somerfield hefur ákveðið
að hefja viðræður við þá sem lýst
hafa yfir áhuga á að kaupa keðj-
una. Vill stjórnin þannig leitast
við að hækka verðið á keðjunni
áður en hún opnar bókhald sitt
fyrir tilboðsgjöfum.
Stjórn Somerfield hafnaði til-
boði Baugs í febrúar sem hljóðaði
upp á 190 pens í hvern hlut. Í
breskum dagblöðum í gær er talið
líklegt að Baugur muni leggja
fram nýtt tilboð upp á 205 pens í
hlut og jafna þannig tilboð Ro-
berts Tchenguiz. Auk þess eru
bræðurnir Ian og Richard Liv-
ingstone sagðir hafa boðið 190
pens í hlut en þeir muni einnig
hækka tilboð sitt til jafns við aðra.
Bresk blöð telja að með viðræðum
við þessa aðila muni stjórn
Somerfield takast að ná verðinu
upp í allt að 210 pens á hlut. Í Fin-
ancial Times er þó leitt að því lík-
um í gær að nýtt tilboð Baugs
gæti orðið á bilinu 210–220 pens á
hlut.
Samkvæmt heimildum The
Times er ekki útilokað að fleiri
muni blanda sér í slaginn um
Somerfield. Stjórn Somerfield
mun líklega eiga fundi með til-
boðsgjöfum í næstu viku.
Markaðsvirði Somerfield er nú
um 1,1 milljarður punda eða tæp-
ir 126 milljarðar króna. The Indi-
pendent heldur því fram í gær að
kapphlaupið um verslunarkeðj-
una muni þrýsta kaupverðinu upp
í 1,5 milljarða punda eða meira.
Gengi bréfa Somerfield hækkaði
um 1,1% strax og opnað var fyrir
viðskipti með bréfin í gærmorg-
un. Hefur gengi bréfanna hækkað
um 34% undanfarið ár. Lokagengi
bréfanna í gær var 213,5 pens og
hækkaði það um 1,79% í gær.
Kapphlaupið
um Somerfield
heldur áfram
HAGNAÐUR af rekstri samstæðu
Sláturfélags Suðurlands var 101,5
milljónir króna á árinu 2004 en 37,5
milljóna króna
tap var árið áð-
ur. Hafa skal í
huga að til sam-
stæðunnar telst
nú Reykjagarð-
ur en í saman-
burðarfjárhæðum ársins 2003 er
eingöngu Sláturfélag Suðurlands
svf.
Rekstrartekjur samstæðu Slátur-
félagsins á árinu 2004 voru 4.445
milljónir en 3.496 milljónir árið áð-
ur. Velta samstæðunnar jókst því
um 27,1% og er aukningin að
stórum hluta til komin vegna inn-
komu dótturfélags í samstæðuupp-
gjörið, að því er segir í tilkynningu.
Rekstrarhagnaður ársins án fjár-
magnsliða var 99 milljónir en 55
milljónir árið áður. Þá var tap af
rekstri hlutdeildarfélaga var 17,1
mkr. en 57,4 mkr. tap árið áður.
SS skilar
hagnaði
CVC á Íslandi ehf. skilaði 34,8 millj-
óna dollara hagnaði á árinu 2004. Það
svarar til rúmlega tveggja milljarða í
íslenskum krónum. Til samanburðar
var tap á árinu 2003 sem nam 6,8
milljónum dollara eða um 400 millj-
ónum króna.
Á árinu 2004 var hlutabréfaeign fé-
lagins í Og fjarskiptum hf. seld og er
hagnaður af þeirri sölu færður í
rekstrarreikning félagsins á árinu
2004. Í tilkynningu segir að félagið
hafi á árinu unnið áfram að uppbygg-
ingu dótturfélaga í fjarskiptarekstri í
nokkrum löndum utan Íslands. Starf-
semin feli meðal annars í sér eign og
rekstur sæstrengs á milli Evrópu og
N-Ameríku ásamt lendingarstöðvum.
Heildareignir félagsins jukust um
30,4 milljónir dollara á milli ára, eða
1,8 milljarða króna. Eigið fé jókst um
16,6 milljónir dollara, eða um 1 millj-
arð króna, frá fyrra ári.
Tveggja
milljarða
hagnaður
CVC
HAGNAÐUR af rekstri Íslenskra
aðalverktaka nam á árinu 2004 352
milljónum króna. Til samanburðar
var 662 millj-
óna króna
hagnaður af
árinu áður.
Rekstrar-
tekjur sam-
stæðu Ís-
lenskra aðalverktaka (ÍAV) námu
8.749 milljónum króna á árinu 2004
en árið áður námu þær 7.747 millj-
ónum. Er það aukning um einn
milljarð króna eða 13%. Hagnaður
fyrir fjármagnsliði og afskriftir,
EBITDA, var 817 milljónir króna í
samanburði við 632 milljónir árið
2003.
Vel gekk að afla félaginu nýrra
verkefna á árinu, segir í tilkynn-
ingu frá félaginu. Talsverð aukning
var á íbúðabyggingum félagsins og
gekk sala íbúða vel á árinu 2004.
Félaginu gekk einnig vel að afla
verka á tilboðsmarkaði og batnaði
verkefnastaða félagins milli ára.
Stjórnendur ÍAV sjá jafnframt
veruleg tækifæri á næstu árum en
félagið hefur yfir að ráða fjölda lóða
undir íbúðir.
Aukin velta
og minni
hagnaður ÍAV
ESKJA hf. var rekin með 179 millj-
óna króna hagnaði á árinu 2004 en
árið áður var hagnaðurinn 346
milljónir króna. Niðurstaða ársins
er undir áætlunum félagsins og
helgast það af minni kolmunnaveiði
seinni hluta ársins, styrkingu krón-
unnar og kostnaðarauka vegna
samruna við Hólma. Gjaldfærsla
vegna hlutdeildar í afkomu Íshafs
hf. vegur einnig þungt.
Rekstrartekjur Eskju námu
3.015 milljónum árið 2004 og dróg-
ust saman um rösk 3% en rekstr-
argjöld námu 2.285 milljónum.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði var 730 milljónir, eða
24% af rekstrartekjum en var 27%
árið áður. Fjármagnsliðir voru já-
kvæðir um 122 milljónir en hlut-
deild Eskju í rekstrarafkomu hlut-
deildarfélaga var neikvæð um 111
milljónir. Skýrist það af hlutdeild
félagsins í tapi Íshafs hf., sem
Eskja á ríflega 34% hlut í.
Á árinu 2004 sameinaðist Eskja
Hólma ehf. sem var þá eini eigandi
Eskju. Við samrunann jukust
skuldir Eskju um ríflega 2 milljarða
og eigið fé félagsins lækkað um
tæplega 1.1 milljarð. Eiginfjárstað-
an lækkaði úr 30.8% í 14,6% við
samrunann.
Eskja undir áætlunum
Undir áætlunum Hagnaður af rekstri Eskju var 179 milljónir.
Morgunblaðið/Sverrir
ALLT útlit er fyrir að nafn danska
bjórframleiðandans Carlsberg verði
ekki á keppnistreyjum breska meist-
aradeildarliðsins Liverpool á næsta
keppnistímabili í ensku knattspyrn-
unni. Frá þessu er greint í frétt á vef-
miðli danska blaðsins Jyllands-Post-
en. Þar segir að ekkert fyrirtæki hafi
verið styrktaraðili sama liðsins í
ensku meistaradeildinni lengur en
Carlsberg.
Fram kemur í fréttinni að áætlað
sé að Carlsberg hafi greitt um 70
milljónir danskra króna á ári til Liv-
erpool, jafnvirði um 700 milljóna ís-
lenskra króna. Stjórnendur fyrirtæk-
isins telji hins vegar að þeir fái ekki
nóg fyrir þá peninga. Þá segir að tals-
maður Carlsberg hafi ekki viljað tjá
sig um fréttina. Í breskum fjölmiðlum
sé hins vegar þegar farið að tala um
að suður-kóreski raftækjarisinn LB
Electronics muni taka við af Carls-
berg sem aðalstyrktaraðili Liverpool.
Carlsberg hættir að styðja
við bakið á Liverpool
Reuters
Carlsberg ei meir Steven Gerrard,
fyrirliði Liverpool, verður líklega
ekki nema út þessa leiktíð með
Carlsberg á treyjunni.
♦♦♦
♦♦♦
; $ K
7LM
F
F
>7A
N.O
F
F
C.C 6&O
F
F
5O
;
F
F
BCAO NP:
F
F