Morgunblaðið - 07.05.2005, Page 2
2 LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.plusferdir.is
N E T
Hlí›asmára 15 • 201 Kópavogur • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is
á Elimar í 7 nætur.á Pil Lari Playa í 7 nætur.
Verð frá35.800 kr.*
Portúgal 13. júní, 11. júlí og 1. ágúst
48.200 kr. ef 2 ferðast saman.
Verð frá34.930 kr.*
Mallorca 1. júní, 13. júlí og 10. ágúst
46.730 kr. ef 2 ferðast saman.
á Santa Clara í 7 nætur.
Verð frá 39.560 kr.*
Costa del Sol
9. júní, 7. júlí og 18. ágúst
49.830 kr. ef 2 ferðast saman.
á Res Madrid í 7 nætur.
Verð frá 46.620 kr.*
Feneyska Rivieran
1. júní, 6. júlí og 17. ágúst
63.620 kr. ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting, fararstjórn erlendis og flugvallarskattar.
*Verðdæmi miðast við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja - 11 ára, ferðist saman.
BLAIR STOKKAR UPP
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, tilkynnti í gær ýmsar
breytingar á stjórninni og þá
kannski helsta, að John Reid, sem
verið hefur heilbrigðisráðherra,
muni leysa Geoff Hoon af hólmi sem
varnarmálaráðherra. Talið er, að
Gordon Brown fjármálaráðherra
muni taka við af Blair ekki síðar en á
miðju kjörtímabili. Michael Howard,
leiðtogi Íhaldsflokksins, tilkynnti í
gær, að hann hygðist segja af sér á
næstunni.
Mikil fjölgun atvinnuleyfa
Atvinnuleysi fer hratt minnkandi
og um leið framboð á lausum störf-
um, segir forstjóri Vinnumálastofn-
unar. Illa gengur að fá Íslendinga til
starfa við stóriðjuframkvæmdir á
Reyðarfirði. Það má gera ráð fyrir
að gefa þurfi út 1.200-1.800 ný at-
vinnuleyfi í ár og framan af næsta
ári.
Allsherjarnefnd klofnaði
Allsherjarnefnd klofnaði í afstöðu
sinni til frumvarps um afnám fyrn-
ingarfrests á kynferðisbrotum gegn
börnum. Frumvarpið var afgreitt út
úr nefndinni í gær. Meirihluti nefnd-
arinnar vildi heldur að fyrning-
arfrestur hæfist ekki fyrr en við 18
ára aldur í stað 14 ára eins og nú er.
Framkvæmdir hefjast í vor
Framkvæmdir við Háskólatorg
Háskóla Íslands (HÍ) hefjast í vor en
gert er ráð fyrir að kostnaður við
byggingu þess nemi 1.600 milljónum
króna. Happdrætti HÍ fjármagnar
hluta framkvæmdanna en há-
skólasjóður Eimskipafélagsins legg-
ur til 600 milljónir. Þá ætlar HÍ að
selja fasteignir sínar við Aragötu og
Oddagötu.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Forystugrein 26
Úr verinu 11 Umræðan 28/29
Viðskipti 12 Minningar 30/35
Erlent 14/15 Kirkjustarf 35/36
Minn staður 12 Myndasögur 40
Höfuðborgin 17 Dagbók 40/43
Akureyri 18 Víkverji 40
Árborg 18 Velvakandi 41
Suðurnes 19 Staður og stund 42
Landið 19 Leikhús 44
Menning 20/21,44/49 Ljósvakamiðlar 50
Daglegt líf 22/23 Staksteinar 51
Ferðalög 24/25 Veður 51
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
NÝJU dagblaði,
Blaðinu, var dreift í
hús og fyrirtæki á
höfuðborgarsvæðinu
í gær. Að sögn Karls
Garðarssonar, rit-
stjóra Blaðsins, kem-
ur það út í 80 þúsund
eintökum og er dreift
með Íslandspósti. Til
stendur að stækka
dreifingarsvæðið og
senda blaðið á
Reykjanes, Akranes,
Árborgarsvæðið og
hugsanlega á Akur-
eyri.
Karl segir að áherslur Blaðsins
verði að flytja stuttar fréttir af öllu
sem snertir daglegt
líf fólks án allrar æsi-
fréttamennsku.
„Við höfum fengið
frábærar viðtökur,
bæði frá auglýsend-
um og frá almenn-
ingi. Við fengum eig-
inlega miklu betri
viðtökur en við höfð-
um þorað að vona,“
segir Karl.
Fyrsta tölublað
Blaðsins var 40 blað-
síður. Stjórnarfor-
maður Blaðsins er
Sigurður G. Guðjóns-
son og auglýsingastjóri er Steinar
Kári Ragnarsson.
Blaðið kom út í fyrsta sinn í gær
„Höfum fengið frá-
bærar viðtökur“
ÞETTA var hrikaleg lífsreynsla,
sérstaklega þegar maður veit til
þess að maðurinn lét lífið,“ sagði
Stefán Sæbjörnsson, 33 ára vegfar-
andi sem lagði sig í hættu við að
bjarga karlmanni út úr bifreið sem
lent hafði utan vegar við Breið-
holtsbraut í gær. Talið er að öku-
maðurinn hafi fengið aðsvif við
stýrið en hann lést á sjúkrahúsi
skömmu eftir komu þangað. Stefán
sá aðdraganda þess að maðurinn
missti stjórn á bíl sínum sem hafn-
aði úti á sinufláka og er talið að gló-
andi heitt púströrið hafi kveikt í
sinunni undir bílnum. Skömmu síð-
ar kviknaði í sjálfum bílnum.
Litlu mátti muna að bifreið hins
látna lenti framan á bíl Stefáns en
hann sá fljótt hvers kyns var og
stöðvaði bíl sinn til að athuga um
manninn. Á vettvang komu einnig
aðrir vegfarendur sem hjálpuðust
að við björgunaraðgerðir áður en
lögregla og sjúkralið komu.
„Við drógum manninn um tvo
metra frá bílnum og ég hóf hjarta-
hnoð,“ sagði Stefán. „En síðan
nálgaðist eldurinn meir og meir. Af
hræðslu við að bíllinn spryngi bár-
um við manninn um 15 metra til
viðbótar og reyndum að halda lífg-
unartilraunum áfram. Þá var bíll-
inn orðinn algerlega alelda. Fljót-
lega kom enn einn vegfarandinn
sem beitti blástursmeðferð og upp
úr því var lögreglan komin á stað-
inn og hélt lífgunartilraunum
áfram.“
Þegar Stefán kom að bílnum var
kviknað í sinunni undir honum og
reyndi hann að trampa eldinn niður
um leið og hann var að losa öku-
manninn úr bílstjórasætinu. Lög-
reglan segir mennina hafa brugðist
hárrétt við aðstæðum.
Stefán fór á skyndihjálparnám-
skeið á sínum tíma, en hann var
skáti í mörg ár. „Maður þarf samt
greinilega að hressa upp á kunn-
áttuna,“ sagði hann.
Vegfarendur sýndu snarræði við bílslys í Víðidal
„Hrikaleg lífsreynsla“
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
ÓHÆTT er að segja að stemmningin
hafi verið mögnuð á Ingólfstorgi í
gær þegar fjöldi fólks lyfti rauðum
spjöldum gegn ofbeldi. Fundurinn
var fyrst og fremst táknrænn. Tón-
list var leikin þegar spjöldin voru
hafin á loft og fólk þagði í þrjár mín-
útur. Sams konar fundur var hald-
inn á Akureyri nýverið en það er
hópurinn Birting – ungt fólk gegn
ofbeldi sem stóð að báðum fund-
unum. Tryggvi Aðalbjörnsson er í
Menntaskólanum á Akureyri en að
hans sögn hófst mikil umræða þar í
kjölfar frétta af ofbeldi tengdu fíkni-
efnum á Akureyri. „Ég held að það
hafi fyllt mælinn hjá öllum í sam-
félaginu, ekki bara okkur. Þetta
gekk mjög vel á Akureyri svo við
ákváðum að það þyrfti að gera það
sama hér fyrir sunnan og það tókst
vel til þótt það hefðu kannski mátt
vera fleiri,“ segir Tryggvi og bætir
við að aðalmarkmiðið sé að sýna
samstöðu gegn hvers konar ofbeldi.
Tryggvi segir að Birting sam-
anstandi af ungu fólki úr Mennta-
skólanum á Akureyri og úr Verk-
menntaskólanum á Akureyri. „Við
komum alls staðar af á landinu. Við
vorum sjö sem byrjuðum í þessu en
nú höfum við fengið fullt af fólki til
liðs við okkur og fengið frábærar
viðtökur.“
Tryggvi segir að ólíkar stjórn-
málahreyfingar og trúflokkar hafi
tekið mjög vel í málið og að alls stað-
ar hafi hópurinn fengið góðan stuðn-
ing. „Við ætlum að fylgja þessu eftir.
Á Akureyri var haldinn borg-
arafundur þar sem komu fram
margar hugmyndir að úrlausnum og
vonandi getum við fylgt þessu eftir
hér í Reykjavík líka,“ segir Tryggvi
en honum finnst ólíklegt að hóp-
urinn standi að útifundum á fleiri
stöðum á landinu enda prófin að
nálgast hjá framhaldsskólanemum.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Allmargir alþingismenn gáfu sér tíma frá þingstörfum og sýndu samstöðu með fundarmönnum á útifundinum.
Rautt spjald gegn ofbeldi
STÚLKAN sem
beið bana í um-
ferðarslysi á
Breiðholtsbraut í
Víðidal á fimmtu-
dagsmorgun hét
Lovísa Rut
Bjargmundsdótt-
ir. Hún var 19
ára, fædd 13.
september 1985. Hún var til heimilis
í Hraunbæ 84 í Reykjavík.
Lést í bílslysi
SÉRA Hans Markús Hafsteinsson
sóknarprestur í Garðasókn hefur
áfrýjað niðurstöðu úrskurðarnefndar
þjóðkirkjunnar sem telur í nýlegum
úrskurði sínum óhjákvæmilegt að
leggja til við biskup Íslands að sr.
Hans Markús verði fluttur til í starfi.
Í fréttatilkynningu frá stuðnings-
mönnum sr. Hans Markúsar segir að
hann hafi tekið áskorun stuðnings-
mannanna um að áfrýja úrskurðin-
um.
„Deilan í Garðasókn hefur ekki
verið neinum til framdráttar og von-
um við að hún leysist á allra næstu
vikum. Sóknarbörn hafa liðið fyrir
það ástand sem hefur ríkt í Garða-
sókn en þau sár munu gróa. Vonandi
mun kirkjan ná að draga fram lær-
dóm af þessari deilu sem kemur í veg
fyrir að slíkt ástand endurtaki sig
annarsstaðar,“ segir í tilkynningunni.
Sr. Hans
Markús áfrýj-
ar úrskurði
um tilflutning
ROSKINN maður lést á Landspít-
alanum eftir að hafa fengið aðsvif
undir stýri á bíl sínum á Breiðholts-
braut í gærmorgun. Óhappið átti
sér stað skammt frá hesthúsahverf-
inu í Víðidal og varð aðeins vestar á
brautinni en þar sem bifreið valt út
af á fimmtudag með þeim afleið-
ingum að stúlka beið bana.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust á slysadeild lést maðurinn,
sem var um sextugt, skömmu eftir
komuna þangað. Andlát hans er
ekki talið hafa verið af völdum
meiðsla vegna óhappsins.
Við útafaksturinn kviknaði bæði í
bílnum og sinu í kringum hann en
slökkviliðsmenn réðu niðurlögum
eldanna.
Lenti utan
vegar eftir að-
svif undir stýri
♦♦♦