Morgunblaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 18
Á ljóðsins vængjum, Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
Tónleikar í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
laugardaginn 7. maí kl. 17:00
Efnisskráin er lög við ljóð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi.
Með kórnum syngja óperusöngkonurnar Alda Ingibergsdóttir og
Hulda Björk Garðarsdóttir.
Gestakór er Karlakórinn Þrestir, Hafnarfirði.
Karlakór Akureyrar - Geysir
ÚRSLIT í alþjóðlegu hugmynda-
samkeppninni um skipulag mið-
bæjarins á Akureyri verða gerð
kunn í dag, laugardag. Dagskráin
fer fram á Hólum, húsi Mennta-
skólans á Akureyri, og hefst kl.
15. Eins og áður hefur komið
fram var þátttaka í samkeppninni
gríðarleg en alls bárust 151 til-
laga frá 35 löndum. Til stóð að
kynna niðurstöðurnar á sum-
ardaginn fyrsta sl. en vegna þess
hversu margar tillögur bárust
varð að fresta því til dagsins í
dag.
Sjálfseignarstofnunin „Akureyri
í öndvegi“ stendur að samkeppn-
inni, sem haldin er í samstarfi við
Arkitektafélag Íslands. Það var
hins vegar Ragnar Sverrisson,
kaupmaður í JMJ og formaður
Kaupmannafélags Akureyrar, sem
hleypti verkinu af stað fyrir um
einu ári. Hann fékk til liðs við sig
hóp manna úr atvinnulífinu, sem
saman mynduðu stýrihóp og fljót-
lega var gerður samningur við
ráðgjafarfyrirtækið Alta um að
hafa yfirumsjón með verkefninu.
Jafnframt var gerður samningur
við Akureyrarbæ um fjölþætta
aðkomu að verkefninu.
Ragnar var að vonum ánægður
með þá miklu þátttöku sem varð í
samkeppninni og hann sagði ekki
síður merkilegt að tillögurnar
skyldu koma frá þetta mörgum
löndum. „Ég gerði mér vonir um
að 30–40 tillögur bærust í sam-
keppnina en að þær skuli vera yf-
ir 150 talsins er eitthvað sem
menn eiga erfitt með að skilja.
Ég geri mér því vonir um að
þetta verkefni eigi eftir að leiða
til þess að fólk hætti að tala illa
um miðbæinn eða niður til hans.
Jafnframt geri ég mér vonir um
að þetta framtak eigi eftir að
gera miðbæinn sólríkari,
skemmtilegri og öðruvísi í fram-
tíðinni,“ sagði Ragnar.
Í september sl. var haldið íbúa-
þing á Akureyri, þar sem fólki
gafst tækifæri á að koma með sín-
ar tillögur varðandi skipulag mið-
bæjarins. Alls tóku um 1.600
manns þátt í íbúaþinginu, eða um
10% bæjarbúa. Ragnar sagði að
þessi mikla þátttaka bæjarbúa
hefði vakið gríðarlega athygli hjá
þeim sem þátt tóku í samkeppn-
inni. Einnig hefði frábær vinna og
uppsetning keppninnar hjá starfs-
fólki Alta skipt miklu máli. „Það
er nýjung að vinna þetta með
þessum hætti en er greinilega
eitthvað sem virkar vel.“
Verðlaunafé í samkeppninni er
samtals 86.000 evrur, eða rúmar 7
milljónir króna, auk þess sem
gert er ráð fyrir að Akureyri í
öndvegi kaupi einstakar hug-
myndir fyrir 8.600 evrur í viðbót
og eignist þannig afnotarétt af
viðkomandi lausnum.
Ragnar sagði að síðastliðið ár
hefði vissulega verið annasamt en
virkilega skemmtilegt. „Það hefur
verið gaman að vinna með öllu
þessu fólki, sem hefur verið sam-
stiga frá upphafi. Ég vona að
stýrihópurinn eigi eftir að halda
áfram að styðja bæjarfélagið til
enn frekari góðra verka í framtíð-
inni.“
Varðandi framhald málsins
sagðist Ragnar gera sér vonir um
að bæjaryfirvöld tækju nú við
keflinu og héldu verkinu áfram.
„Þetta er aðeins byrjunin á því
verki að gera miðbæinn meira að-
laðandi.“
Kristján Þór Júlíusson, bæj-
arstjóri á Akureyri, var formaður
dómnefndar í samkeppninni en
aðrir í nefndinni voru Árni Ólafs-
son arkitekt, Hlín Sverrisdóttir,
skipulagsfræðingur og landslags-
arkitekt, Pétur H. Ármannsson
arkitekt og Þorvaldur Þor-
steinsson, forseti Bandalags ís-
lenskra listamanna.
Að lokinni verðlaunaafhendingu
í dag verður opnuð sýning á öllum
tillögum þátttakenda að Gler-
árgötu 36. Sýningin verður opin í
dag frá kl. 16.30–18.00, á morgun
frá 10–18 og um næstu helgi og
mánudaginn 16. maí frá kl. 13–17.
Ragnar sagðist skora á íbúa bæj-
arins að skoða sýninguna og
kanna hvort einhverjar þær til-
lögur sem það lagði til málanna,
hafi skilað sér alla leið.
Komið að úrslitastund í hugmynda-
samkeppni um skipulag miðbæjarins
Miðbærinn verði sólríkari,
skemmtilegri og öðruvísi
Morgunblaðið/Kristján
Sveittur Síðastliðið ár hefur verið annasamt hjá Ragnari Sverrissyni
kaupmanni. Hann hefur þó gefið sér tíma til að sinna líkamsræktinni og
eftir góðan árangur Liverpool í meistaradeildinni í fótbolta fannst Ragnari
við hæfi að mæta í búningi félagsins í ræktina.
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is
Karlakór Eyjafjarðar lýkur vetr-
arstarfi sínu með vortónleikum í
Laugarborg, Eyjafjarðarsveit í
kvöld kl. 20.30. Kanadíska sópr-
ansöngkonan Mary Lou Fallis
kemur fram á tónleikum þar á
morgun, sunnudag, klukkan 20.
Að venju verður hljómsveit
Karlakórsins með á tónleikunum
auk einleikara en það er fastur
liður að taka nokkur hljómsveit-
arlög á hverjum tónleikum.
Fimm einsöngvarar koma fram.
Kanadíska sópransöngkonan
Mary Lou Fallis er hér á landi í
tilefni af 50 ára afmæli Kópa-
vogsbæjar og eru tónleikarnir
haldnir í samvinnu við Salinn og
kanadíska sendiráðið. Með henni
í för er kanadíski píanóleikarinn
og tónskáldið Peter Tiefenbach
en saman flytja þau kabarettinn
„Prímadonnu“, eins konar óp-
eruskopleik sem Mary Lou
samdi og hefur flutt víða um
heim.
Tónleikar í Laugarborg
18 LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | Fjórar stúlkur í loka-
áfanga textílnáms í Fjölbrautaskóla
Suðurlands héldu sýningu á nokkr-
um verka sinna á dögunum. Sýn-
ingin var hluti af námi þeirra en
markmið áfangans eru að nem-
endur kynnist markaðssetningu
textílvara og að þeir öðlist reynslu
af ferlinu frá hugmynd til raun-
verulegrar atvinnusköpunar.
Stúlkurnar sýndu hvernig verk
þeirra urðu til frá hugmynd að
veruleika og var ekki annað séð en
vel hefði til tekist. Um var að ræða
teikningar og myndir af verkunum
sem voru sýnd fullbúin.
Hrafnhildur Guðgeirsdóttir
sýndi húfu og vettlinga sem hún
hafði hannað og saumað, Lilja
Björg Rúnarsdóttir sýndi tösku
með mismunandi útfærslu og
nefndi Fronta-taska einnig sýndi
hún módelkápu sem hún hafði
hannað og saumað. Olesya Anna
Baldvinsson sýndi mismunandi
kjóla og hún býður viðskiptavinum
upp á „vaxtarlagsgreiningu“ og
hönnun ásamt saumaskap út frá
henni. Jóhanna Elva Guðmunds-
dóttir sýndi mismunandi möguleika
við gerð gjafateppa sem tækifær-
isgjafa þar sem skrifuð voru skila-
boð til viðkomandi. Allar voru
stúlkurnar með markaðskönnun
þar sem gestir svöruðu spurningum
varðandi vörurnar.
Textílnemendur í
FSu með sýningu
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Sýning Hrafnhildur Guðgeirsdóttir, Lilja Björg Rúnarsdóttir, Helga Jó-
hannesdóttir kennari, Jórunn Elva Guðmundsdóttir og Olesya Anna Bald-
vinsson á sýningarsvæðinu í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi.
Austur-Flói | „Ég er
með hestadellu og mig
langar að gera þetta
fyrir þjóðina mína,“
sagði listakonan Sigríð-
ur Kristjánsdóttir á
Grund í Villingaholts-
hreppi um þá fyr-
irætlan sína að skera út
íslenska hestinn í öllum
gangtegundum en hún
hefur þegar skorið út
einn hest, töltarann. Sá
hestur hefur fylgt henni
á öllum hennar sýn-
ingum og er orðinn vel þekktur
enda einstök listasmíð.
Það er ekki ofsagt að fólk laðist
að hestinum þar sem hann stendur
svo fagurlega er hann gjörður. Tölt-
arinn hennar Siggu hefur farið í
dóm eins og um alvöruhest væri að
ræða og fengið fullnaðareinkunn og
þykir alveg réttur. „Þorkell Bjarna-
son hrossaræktarráðunautur,
þekktur hestamaður og dómari hef-
ur, hefur metið hann og líka dýra-
læknar og segja þeir allir hestinn al-
veg réttan, með alla vöðva rétta og
líka æðar,“ segir Sigga og er ánægð
með gripinn enda ekki óeðlilegt því
yfir honum er ákveðin tign.
Hún sótti um listamannalaun til
þess að geta einbeitt sér að þessu
verki að skera út hestinn í öllum
gangtegundum og vonast til að fá
jákvæð svör. „Þetta er svo stórt
verkefni að það verður ekki gert í
íhlaupum og ef mér tekst þetta þá
vil ég að gripirnir verði allir saman í
hóp og sýndir sem hópur en ekki
seldir einn og einn,“ segir Sigga og
greinilegt er að hún sér hópinn fyrir
sér fullbúinn og segir það ekki fjarri
lagi að tala um hópreið þegar þeir
færu á milli sýningarstaða á öllum
gangi. „Þetta er draumurinn en mig
vantar bara einhvern styrk til að ég
geti fengið mér aðstoð við heim-
ilishaldið. Ég yrði hamingjusöm ef
ég gæti einbeitt mér alfarið að
þessu frá morgni til kvölds,“ sagði
Sigga á Grund þar sem hún var
stödd á vinnustofu sinni með tölt-
arann í seilingarfjarlægð uppi í
hillu.
Útskurður Sigga á Grund á vinnu-
stofunni með töltarann sinn.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Dreymir um að takast á við
stórt tréskurðarverkefni
Eftir Sigurð Jónsson
Í hers höndum | Hörður Geirsson
safnvörður og Jón Hjaltason sagn-
fræðingur halda ljósmyndafyr-
irlestur í Minjasafninu á Akureyri
um hernám Akureyrar og Eyja-
fjarðar á morgun, sunnudaginn 8.
maí, kl. 14. Þeir munu í máli og
myndum gefa innsýn í líf hermanna
á stríðsárunum. Sýndar verða ljós-
myndir sem margar hverjar hafa
ekki komið áður fyrir sjónir almenn-
ings. Einnig verða til sýnis munir frá
hermönnum.
EKIÐ var á níu ára gamla stúlku sem
var á reiðhjóli við hringtorg á Hörg-
árbraut á Akureyri á fimmtudag.
Ekki er talið að stúlkan hafi meiðst al-
varlega en hún kvartaði undan
eymslum í baki og var flutt til skoð-
unar á slysadeild. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu var stúlkan að fara yf-
ir gangbraut þegar bifreið sem var á
leið út af hringtorginu ók á hana.
Ekið á
stúlku á
reiðhjóli
Selfoss | Nýtt merki Heil-
brigðisstofnunar Suður-
lands var kynnt nýlega á
málþingi um heilbrigð-
isþjónustuna á Suðurlandi.
Einnig var kynnt ný
skammstöfun, HSu, á
nafni stofnunarinnar.
Í hinu nýja merki er skírskotað til
heilsugæslu og spítala með kross-
inum í merkinu og hjartað
undirstrikar þá mannlegu
hlýju og væntumþykju sem
einkennir starfsemina. Bláu
táknin stefna öll inn að
miðju, kjarnanum sem
myndar Heilbrigðisstofnun
Suðurlands. Höfundur nýja merk-
isins er PR almannatengsl & útlits-
hönnun ehf. í Reykjavík.
Nýtt merki HSu kynnt