Morgunblaðið - 07.05.2005, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2005 23
DAGLEGT LÍF
Ársfundur Samvinnulífeyrissjóðsins
verður haldinn 27. maí, kl. 17:00, á Grand hóteli í Reykjavík
Upplýsingar um starfsemina 2004
Meginniðurstöður ársreiknings í milljónum króna
S a m t r y g g i n g a r d e i l d i r
Stigadeild Aldursháð deild Séreignardeild
Efnahagsreikningur 31.12.2004 31.12.2003 31.12.2004 31.12.2003 31.12.2004 31.12.2003
Verðbréf með breytilegum tekjum 7.028 4.825 733 407 477 282
Verðbréf með föstum tekjum 10.699 8.885 1.115 749 681 519
Veðlán 2.223 3.477 232 293 141 203
Aðrar fjárfestingar 292 314 30 26 19 18
20.242 17.501 2.110 1.475 1.288 1.022
Kröfur 125 121 13 10 8 7
Annað 436 178 45 15 28 10
Skuldir -11 -11 -1 -1 -1 -1
Eignir samtals 20.792 17.789 2.167 1.499 1.323 1.039
Eignir sjóðsins eru ávaxtaðar sameiginlega en hér er þeim skipt á deildir í hlutfalli við hreina eign deildanna.
Í árslok 2004 var hrein eign sjóðsins 24.282 milljónir króna en var 20.327 milljónir króna í lok 2003.
Yfirlit um breytingar á hreinni eign 2004 2003 2004 2003 2004 2003
Iðgjöld 346 347 357 338 109 123
Lífeyrir -862 -805 -9 -5 -34 -24
Fjárfestingartekjur 3.564 2.450 340 182 219 135
Fjárfestingargjöld -22 -23 -5 -2 -2 -2
Rekstrarkostnaður -23 -24 -14 -11 -7 -5
Hækkun á hreinni eign á árinu 3.003 1.945 668 502 284 227
Hrein eign frá fyrra ári 17.789 15.844 1.499 997 1.039 812
Hrein eign til greiðslu lífeyris 20.792 17.789 2.167 1.499 1.323 1.039
Samtals jókst hrein eign sjóðsins um 3.955 milljónir króna á árinu 2004 en um 2.675 milljónir króna árið 2003.
Heildariðgjöld ársins 2004 voru 812 milljónir króna en 808 milljónir króna árið 2003.
Lífeyrisskuldbindingar skv. úttekt tryggingarfræðings
31.12.2004 31.12.2003 31.12.2004 31.12.2003 31.12.2004 31.12.2003
Eignir umfram áfallnar skuldbindingar 114 -95 366 321
Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum 0,5% -0,5% 19,5% 24,3%
Eignir umfram heildarskuldbindingar -1.060 -1.012 550 610
Í hlutfalli af heildarskuldbindingum -4,0% -4,1% 6,9% 8,6%
2004 2003
Ellilífeyrir 69,3% 68,5%
Örorkulífeyrir 15,8% 15,9%
Makalífeyrir 14,2% 14,9%
Barnalífeyrir 0,7% 0,7%
100,0% 100,0%
2004 2003 2004 2003 2004 2003
Hrein raunávöxtun (ársgrundvöllur) 15,5% 12,2%
Hrein raunávöxtun (5 ára meðaltal) 6,1% 5,6%
Hrein raunávöxtun (10 ára meðaltal) 7,9% 6,8%
Eignir í íslenskum krónum 89,7% 97,3%
Eignir í erlendum gjaldmiðlum 10,3% 2,7%
Fjöldi sjóðfélaga sem greiddi iðgjald á árinu 1.206 1.331 3.254 3.297 3.231 3.641
Fjöldi lífeyrisþega 2.673 2.632 78 21 66 24
Kostnaður sem hlutfall af eignum 0,20% 0,21%
Heildarfjöldi greiðandi sjóðfélaga á árinu 2004: 4.460, þar af 3.231 í séreignardeild.
Skipting lífeyris í samtryggingardeildum
Kennitölur
Spurning
Lesandi hringdi og vildi vita hvort blý í
kristalsglösum væri skaðlegt heilsu manna.
Svar
Í gegnum tíðina hefur það verið álitið gæða-
merki fyrir kristalsglös að þau innihaldi blýox-
íð að lágmarki 24%, að sögn Sesselju Maríu
Sveinsdóttur, matvælafræðings á Umhverf-
isstofnun.
„Nú er það hins vegar svo að meira er vitað
um blý en áður og veldur þetta neytendum
áhyggjum. Blý í of miklu magni getur haft
skaðleg áhrif á taugakerfi og meltingarveg.
Auk þess getur það leitt til blóðleysis. Fóstur
og lítil börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir
blýi. Hámarksgildi eru til fyrir blý í ákveðnum
matvælum og hámarksflæði hefur verið sett
fyrir blý úr leirhlutum, sem ætlað er að snerta
matvæli, en engar reglur hafa verið settar um
blý, sem má flæða úr kristalsglösum.
Ekki geyma matvæli í kristalsskálum
Hins vegar má benda á hina almennu reglu
um umbúðir, ílát og áhöld, sem ætlað er að
snerta matvæli. Þar er kveðið á um að efni og
hlutir, sem ætlað er að snerta matvæli, skuli
framleidd samkvæmt viðurkenndum fram-
leiðsluháttum þannig að við eðlilega eða fyr-
irsjáanlega notkun flæði ekki úr þeim efni í svo
miklum mæli að heilsu manna kunni að stafa
hætta af eða það valdi óviðunandi breytingum
á efnasambandi matvæla eða raski skynræn-
um eiginleikum þeirra.
Samkvæmt upplýsingum, sem stofnunin
hefur kynnt sér, er mælt með því að krist-
alsglös eða kristalsflöskur séu ekki notuð til
þess að geyma vín eða önnur matvæli. Blý get-
ur flætt úr glasinu/flöskunni yfir í matvælin,
sérstaklega ef matvæli eru geymd í lengri
tíma. Hins vegar er í lagi að nota kristalsglös,
sem innihalda blý, til þess að drekka vín með
einstökum máltíðum þar sem vínið er þá í
stuttan tíma í glasinu og því lítil hætta á að blý
flæði úr glasinu yfir í vínið,“ segir Sesselja.
SPURT OG SVARAÐ UM NEYTENDAMÁL
Óráðlegt að geyma vín í kristalsflöskum
Morgunblaðið/Golli
Blý getur flætt í matvælin ef þau eru geymd
í kristalsglösum í langan tíma.
SÚKKULAÐI er ekki bara gott
á bragðið, það getur líka
reynst fyrirbyggjandi gegn
brjóstakrabbameini, sam-
kvæmt bandarískri rannsókn.
Efni í kakóbaunum, prosyan-
idin, getur haft þessi áhrif, að
því er vísindamenn við George-
town-háskóla í Bandaríkjunum
hafa ályktað og greint er frá á
vef Aftenposten.
Vísindamennirnir telja að
prosyanidin hindri að brjósta-
krabbameinsfrumur fjölgi sér.
Lengi hefur verið vitað að
kakóbaunir eru ein af þeim
fæðutegundum sem innihalda
andoxunarefni sem geta varið
líkamann t.d. fyrir hjarta-
vandamálum og krabbameini.
Vísindamennirnir vita þó
ekki af hverju prosyanidin
virkar eins og raun ber vitni.
„Við getum ekki slegið því
föstu að súkkulaði hindri vöxt
krabbameinsfrumna eða hvort
súkkulaði hafi áhrif á mismun-
andi hluta frumnanna. Það ætl-
um við nú að rannsaka,“ segir
Robert B. Dickson, forsvars-
maður rannsóknarinnar.
Morgunblaðið/Kristinn
Súkku-
laði
gegn
krabba-
meini
HEILSA
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson