Morgunblaðið - 11.05.2005, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SAMEIGINLEG FORSJÁ
Reynslan af sameiginlegri forsjá er
góð og þess vegna á að lögfesta hana
sem meginreglu. Þetta segir í loka-
skýrslu forsjárnefndar sem hefur
verið skilað til dómsmálaráðuneyt-
isins. Því til stuðnings er bent á að
foreldrar semji æ oftar um sameig-
inlega forsjá.
Leyfa mótframboð
Þing Egyptalands samþykkti í gær
tillögu um breytingu á stjórnarskrá
til að gera kleift að fleiri en einn fram-
bjóðandi geti boðið sig fram til for-
seta. Ýmis skilyrði eru sett fyrir
framboði og segja stjórnarandstæð-
ingar að um sýndarmennsku sé að
ræða. Hosni Mubarak forseti og
menn hans séu í reynd staðráðnir í að
afsala sér ekki völdum í kosningum.
180 skip í sumar
180 skemmtiferðaskip koma við á
Íslandi í sumar. Oftast hafa þau við-
komu í 2–5 höfnum á landinu en
stoppa venjulega aðeins í einn dag á
hverjum stað. Markaðs- og hags-
munasamtökin Cruise Iceland vinna
að því að fá erlend skemmtiferðaskip
til að sigla umhverfis Ísland yfir sum-
arið.
Bush fagnað í Tbilisi
George W. Bush Bandaríkjaforseti
ávarpaði tugþúsundir fagnandi
Georgíumanna á útifundi í höf-
uðborginni Tbilisi í gær. Sagði Bush
að Georgíumenn hefðu með „rósa-
byltingunni“ sýnt heimsbyggðinni að
staðföst þjóð gæti risið upp gegn kúg-
un og sigrað án blóðsúthellinga.
Sérsveitin á Akureyri efld
Sérsveit lögreglunnar á Akureyri
verður efld í sumar þegar fjórir sér-
sveitarmenn verða leystir undan föst-
um vöktum og settir í almenna lög-
gæslu og sérstök verkefni. Mennirnir
munu hafa aðsetur á Akureyri en
sinna verkefnum bæði á Norður- og
Austurlandi.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
NÁM í kvikmyndafræðum hefst við
Háskóla Íslands í haust en Samskip
ætla að kosta stöðu kennara. Þetta
er í fyrsta sinn sem boðið verður upp
á kvikmyndafræði sem sjálfstæða
námsgrein á Íslandi en til að byrja
með verður hún kennd sem 30 ein-
inga aukafag á BA-stigi. Vonir
standa til að á næstu árum verði
hægt að þróa kvikmyndafræði sem
nám til MA-gráðu.
Guðni Elísson, dósent við hugvís-
indadeild, segir að námið hefjist í
haust en að nýi kennarinn starfi frá
og með 1. janúar. Guðni hefur kennt
nokkur námskeið um kvikmyndir við
hugvísindadeild og segir að þau hafi
verið gríðarlega vinsæl. „Kvikmynd-
ir eru eitt áhrifamesta listform nú-
tímans og kannski það listform sem
varðar t.d. flesta Íslendinga. Það
vantar kannski svolítið á að bæta
kvikmyndalæsið hér á landi og færa
frekari stoðir undir kvikmyndakúlt-
úrinn. Íslenski kvikmyndakúltúrinn
er afskaplega einhæfur,“ segir Guðni
og bætir við að íslenskar kvikmyndir
séu heldur mótaðar af Hollywood.
„Kvikmyndafræðin hjálpa okkur að
greina þennan bandaríska kvik-
myndakúltúr en einnig að hleypa inn
öðrum straumum.“
Guðni segir stuðning Samskipa að
mörgu leyti sérstakan enda sé þetta í
fyrsta sinn sem fyrirtæki styrki nám
í hugvísindadeild. Venjulega horfi
fyrirtækin til raunvísinda og mennt-
unar sem er góð fyrir núverandi eða
tilvonandi starfskrafta fyrirtækisins.
„Þarna er bara hrein og bein áhersla
á að færa frekari stoðir undir ís-
lenskt menningarlíf,“ segir Guðni. Í
kvikmyndafræðunum verða nokkur
áherslusvið eins og kvikmyndir þjóð-
landa, kvikmyndagreinar og kvik-
myndahöfundar.
Samskip styrkja nám í
kvikmyndafræðum við HÍ
Fyrsta sinn sem fyr-
irtæki styrkir nám við
hugvísindadeild
EFTA-ríkin og fulltrúar Taílands
hófu í gær fríverslunarviðræður í
Þjóðmenningarhúsinu. Að sögn
Önnu Jóhannsdóttur, hjá við-
skiptaskrifstofu utanríkisráðuneyt-
isins, eru hingað komnir á fimmta
tug Taílendinga til viðræðna um
hugsanlegan fríverslunarsamning
en fyrir sendinefnd þeirra fer
Krirk-krai Jirapaet, vararáðherra
landsins. Um 30 fulltrúar EFTA-
ríkjanna taka þátt í viðræðulot-
unni sem hófst í gær, sem fyrr
segir, og lýkur á morgun. Viðræð-
urnar fara fram í utanríkisráðu-
neytinu.
Að sögn Önnu funda EFTA-
ríkin til skiptis í því ríki sem sam-
ið er við hverju sinni og á skrif-
stofum EFTA í Genf. Þá hafi einn-
ig verið breytt út af venjunni og
fundað í einhverju EFTA-landanna
líkt og nú. Íslendingar hafi ákveð-
ið að bjóða sendinefndum hingað
til lands til fyrstu lotu viðræðna,
en reiknað er með að 12–18 mán-
uði taki að ljúka samningum og er
næsti fundur áformaður í sept-
ember í Taílandi. Anna segir
stefnt að því að ljúka viðræðum
við Taílendinga fyrir ráðherra-
fund EFTA sem haldinn verður á
Íslandi næsta vor. Ísland er aðili
að fjórtán fríverslunarsamningum
sem EFTA-löndin hafa gert við
önnur ríki. Þá eru nokkrir samn-
ingar í bígerð, m.a. við S-Kóreu,
auk Taílands. Að sögn Önnu eru
talsverð viðskipti milli Taílands og
Íslands, auk þess sem íslenskir að-
ilar eru áhugasamir um fjárfest-
ingar þar í landi, m.a. á sviði sjáv-
arútvegs. Háir tollar eru á
sjávarafurðum inn til Taílands.
Fríverslunarsamningar EFTA
ná m.a. til fjárfestinga, þjónustu-
viðskipta, hugverkaréttar og vöru-
viðskipta.
Fyrsta lota fríverslunarviðræðna
EFTA-ríkjanna og Taílands haldin í Reykjavík
Stefnt að samkomulagi næsta vor
Morgunblaðið/Eyþór
Fríverslunarviðræður fulltrúa EFTA-landanna og Taílands í Reykjavík standa til morguns.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi í gær 19 ára pilt í árs fang-
elsi fyrir fjölda fíkniefna- og þjófn-
aðarbrota. Fullnustu refsing-
arinnar var frestað í þrjú ár til að
stuðla að því að ákærði gæti náð
tökum á fíkniefnavanda sínum.
Pilturinn lýsti því fyrir dómi að
brot hans tengdust fíkniefnavanda
hans. Hefði hann farið í meðferð og
stundað vinnu um skeið og ekki
neytt fíkniefna. Af hálfu ákæru-
valds var frásögn hans ekki dregin
í efa. Þætti því rétt að leitast við að
bregða ekki fæti fyrir hann í þeirri
von að slíkt gæti stuðlað að því að
hann næði tökum á vanda sínum.
Brotin framdi pilturinn árin 2003
og 2004. Í tveimur reyndist hann
með fíkniefni í fórum sínum. Eitt
brotanna snerist um eignarspjöll en
átta vörðuðu þjófnað eða tilraunir
til þjófnaðar. Meðal annars fór
hann í heimildarleysi inn í fimm bif-
reiðar og íbúðarhúsnæði og nam á
brott verðmæti. Með nokkrum brot-
anna rauf pilturinn skilorð dóms
frá í fyrravor. Sveinn Sigurkarls-
son héraðsdómari dæmdi málið.
Sækjandi var Arnþrúður Þórarins-
dóttir fulltrúi.
Tólf mánaða
fangelsi fyrir
þjófnaði
ENDURKRÖFUR á tjónvalda í um-
ferðinni á síðasta ári námu 48 millj-
ónum króna og í langflestum til-
vikum var ástæðan ölvunarakstur,
eða 74%. Hæsta krafan nam 2,5
milljónum króna og alls var 21
krafa hálf milljón kr. eða meira.
Tryggingafélög eiga endur-
kröfurétt á hendur þeim sem valda
tjóni af ásetningi eða stórkostlegu
gáleysi. Slíkum málum fjölgaði
milli áranna 2003 og 2004 úr 117,
þar af 104 samþykkt, í 158, þar af
140 samþykkt. Auk ölvunaraksturs,
sem var ástæða endurkröfu í 106
tilvikum af 140, var lyfjaneysla
ástæða í 12 tilvikum. Í 16 málum
voru ökumenn endurkrafðir sökum
ökuréttindaleysis. Í tilvikunum 140
voru 111 karlar krafðir um
greiðslur en 29 konur, eða 21%.
Hlutur kvenna hefur farið nokkuð
vaxandi síðustu ár. Þannig var þátt-
ur kvenna 14% en þó 27% árið 2003.
Ölvunarakstur al-
gengasta ástæða
endurkrafna
ÍBÚAR sem búa í nágrenni við
hinn svokallaða Bílanaustsreit við
Borgartún í Reykjavík mótmæla
fram komnum breytingartillögum
um aðal- og deiliskipulag fyrir
reitinn, og afhentu fulltrúar íbú-
anna skipulagsyfirvöldum undir-
skriftalista 3–400 íbúa í gær. Und-
irskriftunum var safnað frá íbúum
í húsum í næsta nágrenni við reit-
inn.
Á Bílanaustsreitnum er gert ráð
fyrir blöndu af íbúðarbyggð og
verslunar- og þjónustuhúsnæði, og
á hæsta byggingin að vera 12 hæð-
ir, en aðrar nokkru lægri. Íbúar
mótmæla þeim skipulagshugmynd-
um sem hafa verið kynntar, og í
bréfi sem fylgdi undirskriftalist-
unum kemur fram að þeir séu
ósáttir við m.a. hæð húsanna á
reitnum sem komi til með að
skyggja á útsýni þeirra.
Í bréfinu er bent á að íbúar í
húsum við Sóltún, Mánatún og
Borgartún hafi greitt fyrir útsýnið
þegar húsnæði var keypt, og t.d.
hafi íbúð á 6. hæð í Mánatúni 2
verið 3,5 milljónum króna dýrari
en sambærileg íbúð á annarri hæð.
Nú eigi að byggja hærri hús fyrir
framan, og væntanlega verði þar
greitt hærra verð eftir því sem út-
sýnið er meira.
„Þá er verið að selja sama út-
sýnið aftur. Þetta skyggir á húsin
sem fyrir eru, og tekur hið dýra
útsýni frá þeim. […] Hér er klár-
lega um eignaupptöku að ræða.
Þetta er skaðabótaskylt, sam-
kvæmt skipulags- og byggingalög-
um og munu íbúarnir á Kirkju-
túnsreitnum nýta sér þann rétt,“
segir í bréfi íbúanna til skipulags-
yfirvalda. Auk þessa benda íbú-
arnir á að reiknað sé með of þéttri
byggð á Bílanaustsreitnum, og þar
sé ekki farið eftir ákvæðum um að
nýbyggingar falli að þeirri byggð
sem fyrir er. Auknum íbúafjölda
fylgi meiri umferð, og ekki bæti úr
skák að gert sé ráð fyrir nýrri
akstursleið á teikningum þar sem
tillögur að deiliskipulagi geri ein-
göngu ráð fyrir bílastæðum.
Íbúar mótmæla skipulagi
á Bílanaustsreitnum
Morgunblaðið/Golli
Salvör Jónsdóttir, sviðsstjóri skipulags- og byggingasviðs Reykjavík-
urborgar (t.h.), tók við undirskriftalistunum af þeim Bruno Hjaltested,
Magnúsi Jónssyni, Jóni Þór Jóhannssyni og Bárði Hafsteinssyni.
SAMÞYKKT var á ríkisstjórn-
arfundi í gær að kaupa gjöf frá ís-
lensku þjóðinni til norsku þjóð-
arinnar í tilefni af aldarafmæli
endurreisnar norska konungsdæm-
isins.
Gjöfin verður afhent í opinberri
heimsókn Halldórs Ásgrímssonar
forsætisráðherra til Noregs um
næstu helgi en samkvæmt upplýs-
ingum Steingríms Ólafssonar, upp-
lýsingafulltrúa forsætisráðuneyt-
isins, verður ekki gefið upp hver
gjöfin er fyrr en hún verður afhent.
Gjöfin verður
leyndarmál
SAMÞYKKT var á ríkisstjórn-
arfundi í gær að verða við ósk
Steinunnar Þórarinsdóttur mynd-
höggvara um styrk til gerðar minn-
isvarða um breska sjómenn í Vík í
Mýrdal og Hull í Bretlandi.
Borgarstjórnin í Hull hefur
styrkt verkefnið um tæpar fimm
milljónir íslenskra króna og sam-
þykkti ríkisstjórnin að styrkja það
um eina milljón króna sem tekin
verður af sameiginlegu ráðstöf-
unarfé. Listaverkin á að afhjúpa ár-
ið 2006 en þá verða þrjátíu ár frá
lokum þorskastríðsins.
Minnisvarðar
í Vík og Hull
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 26
Fréttaskýring 8 Umræðan 23/27
Viðskipti 14 Bréf 27
Erlent 16/17 Minningar 28/33
Minn staður 18 Myndasögur 36
Höfuðborgin 19 Dagbók 36/38
Akureyri 19 Staður og stund 37
Suðurnes 20 Leikhús 40
Landið 20 Bíó 42/45
Daglegt líf 21 Ljósvakamiðlar 46
Menning 22 Veður 47
Forystugrein 24 Staksteinar 47
* * *