Morgunblaðið - 11.05.2005, Side 26

Morgunblaðið - 11.05.2005, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN F erð mín til Færeyja í síðasta mánuði reyndist mér ákaf- lega drjúg, bæði sem andlegt vítamín og ekki hvað síst sem innblástur fyrir skriftir eins og einhverjir lesendur hafa væntanlega tekið eftir. Meg- intilgangur þessarar heimsóknar minnar til eyjanna átján var að dæma í hljómsveitarkeppni þar í landi, Prix Föroyar en eins og oft vill verða í svona ferðalögum græddi ég heilmikið aukreitis. En þessi mikla og nánast knýj- andi þörf fyrir að koma öllum þeim vangaveltum og álitsmálum sem ég sankaði að mér þarna úti á framfæri hefur eiginlega komið sjálfum mér á óvart. Vinnutörnin hérna heima var enda orðin býsna löng og lýjandi – eins og gengur – og var því líkt og að ferskur og kröftugur gustur léki um heilann á mér þessa fimm daga sem ég var þarna úti. Allan tímann drakk maður í sig upplýs- ingar og kom ég því stútfullur til baka. Baráttan fyrir heilnæmu tónlist- arlífi hérlendis hefur lengi verið miðlæg í mínu starfi en það kemur þó fyrir að maður gleymir sér ... gleymir að líta upp ef svo má segja. Ferðin til Færeyja var því eins og að fiskurinn kæmist loks upp úr vatninu. Því þegar hann kemst upp úr því, þá verður hann fyrst var við það. Ég fékk því „tvo fyrir einn þarna úti“. Innsýn í færeyskt tón- listarlíf um leið og maður gat speglað íslenskt tónlistarlíf í því færeyska og velt því fyrir sér í nýju ljósi. Tónlistin er frekar mikið hita- mál þarna úti og í samanburðinum er eins og ekkert sé að gerast hér heima. Eins og allir séu sáttir, fólk hætt að kippa sér upp við sýru- kennda raftónlist eða bölmóðslegt dauðarokk og þjóðin stendur þétt við bakið á framsæknu tónlist- arfólki eins og Mugison og Björk (eða það er a.m.k. myndin sem við viljum gefa út á við). Í Færeyjum er engin raftónlist- arsena, rappsena, harðkjarnasena eða teknósena. Nokkrir eldhugar berjast af veikum mætti við það að kynna landa sína fyrir þessu, en fólk virðist daufheyrast. En hvernig stendur á því að all- ar þessar senur þrífast hérlendis? Stærðarmunurinn á þessum tveimur löndum er ekki það mikill. Er það hin bísperrta sjálfstæð- isímynd Íslendinga sem gerir þeim kleift að halda uppi jafn öflugu tón- listarlífi og raun ber vitni, eitthvað sem Færeyingana sárlega skortir? Maður getur ekki annað, þegar maður er þarna úti, en orðið var við sjálfstæðisbaráttuna sem í gangi er. Stundum finnst manni þó að hún, líkt og tónlistarbaráttan, sé háð fyrir daufum eyrum. Fær- eyingar eru ekki enn komnir að 1918, svo ég grípi til líkinga við ís- lensku sjálfstæðisbaráttuna. Sú barátta er iðulega notuð sem eins konar líkan af sjálfstæðissinnum þarna úti sem líta auk þess til Ís- lands sem lands sem gæti hjálpað til í baráttunni. Nema hvað! Íslensk stjórnvöld hafa hins veg- ar staðið sig skammarlega í þess- um efnum, svo skammarlega reyndar að það er grátlegt. Full- kominn heigulsháttur og ekkert annað. Dönsk áhrif liggja semsagt eins og slikja yfir öllu þarna úti og ráð að rifja upp sögu úr ferðalaginu sem segir margt um stöðu mála. Svo bar til að ég og fleiri Íslend- ingar sem voru í svipuðum erinda- gjörðum þáðum boð um að mæta á tónleika í Fuglafjörð, sem haldnir voru í Mentanarhúsinu þar (sjá dóm um tónleikana í Morgun- blaðinu í gær). Þar voru sam- ankomnir blaðamenn frá hinum og þessum Norðurlöndum og var hersingunni boðið í mat og drykk áður en tónleikarnir hófust. Sat ég til borðs með Íslendingunum, framkvæmdastjóra Ment- anarhússins og tveimur Dönum. Voru þeir æði fúllyndir og svöruðu spurningum okkar og almennu kurteisishjali af fálæti og hroka. Pældum við samt lítið í þessu. Þegar tónleikarnir hófust hlupu Íslendingarnir óðar inn í salinn, orðnir uppveðraðir og einkar áhugasamir yfir „færeyskum tón- leik“. Danirnir sátu hins vegar sem fastast inni í herberginu, sötruðu bjór, og höfðu augsýnilega ekki minnsta áhuga á að berja hljómsveitirnar augum. Þegar leið á kvöldið sprakk svo einn Íslendinganna á limminu, gekk upp að Dönunum og jós yfir þá skömmum sem þeir sátu þegj- andi undir. Spurði þá hvort að þeir skömmuðust sín ekki, það væri verið að bjóða þeim alla þessa leið, gefa þeim mat og drykk og þetta væru þakkirnar. „Það finnst öllum hér þið vera leiðinleg og uppskrúfuð og þið ætt- uð að skammast ykkar!“ voru loka- orðin. Daginn eftir hitti sami Íslend- ingur Danina á nýjan leik og notaði hann þá tækifærið og impraði frekar á skilaboðunum sem hann hafði fært þeim daginn áður. Þessi hrokaháttur gerði einnig vart við sig síðast þegar ég var þarna. Í samræðum mínum við nokkra Dani fann ég að þeir litu niður á Færeyinga. Þetta kom manni hreinlega í opna skjöldu, enda er ég Íslendingur og hef aldr- ei þurft að skrifa „via danmark“ á póstkortin mín. Já, frelsið er ynd- islegt eins og Nýdönsk kvað hér um árið. Það er því skrítið að horfa upp á stöðuna hjá náfrændum sín- um en eiginlega enn skrítnara að finna að öllum virðist fjandans sama hér á landi. Mér finnst því að Ísland, Fær- eyjar og Grænland ættu að stofna með sér bandalag, Gríseyjar, og eignast yfirráðin yfir gervöllu Norður-Atlantshafi og láta þar með nýlenduherrana flakka í eitt skipti fyrir öll. Og hananú. Frjálsar Færeyjar! Ísland – Færeyjar – Danmörk Er það hin bísperrta sjálfstæðisímynd Íslendinga sem gerir þeim kleift að halda uppi jafn öflugu tónlistarlífi og raun ber vitni? VIÐHORF Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Mikilvægi náttúrunnar Náttúran og ferðaþjónustan eru samofnar víðast hvar í heiminum og er Ísland þar engin undantekning. Komið hefur fram í könnunum Ferðamálaráðs þegar okkar erlendu gestir eru spurðir hvað það var sem vakti forvitni þeirra á Íslandi að svar um áttatíu prósenta þeirra, er Íslensk náttúra. Það er því engin furða að náttúra okkar og umhverf- ismál eru okkur hugleikin sem störf- um í eða við íslenska ferðaþjónustu. Ferðamálaráð hefur unnið mark- visst að umhverfismálum síðasta áratuginn. Árið 1995 var ráðinn um- hverfisfulltrúi til Ferðamálaráðs og hefur viðkomandi haft með höndum fræðslu til ferðaþjónustuaðila og umsjón með þeim framkvæmdum sem Ferðamálaráð hefur staðið að á áningarstöðum víða um land. Þessar framkvæmdir hafa verið unnar í samvinnu við heimamenn viðkom- andi svæða, Vegagerðina, Nátt- úruvernd (nú Umhverfisstofnun) sem og aðra hagsmunaaðila á við- komandi svæði. Þá hefur Ferða- málaráð veitt umhverfisverðlaun ár- lega frá 1995 til þess rekstrar- eða þjónustuaðila sem hefur þótt skara fram úr hvað varðar ábyrga stefnu í umhverfismálum. En það er ekki nóg að byggja upp áningarstaði eða leggja göngustíga. Rekstararaðilar sem og allir sem að greininni koma og reyndar sem flestir þurfa að sýna ábyrgð gagnvart umhverfinu þannig að komandi kynslóðir fái að njóta þeirrar náttúrufegurðar sem við höfum fengið að dreypa á með okkar skilningarvitum. Ferðaþjónustan er í eðli sínu nokkuð mengandi atvinnugrein en á sama tíma mjög háð umhverfi og náttúru. Af þeirri ástæðu hefur ferðaþjónustan lagt sífellt meiri áherslu á umhverfismálin í sinni starfsemi til að viðhalda gæðum og möguleikum starfseminnar til fram- tíðar. Í því skyni hefur verið lögð mikil áhersla á sjálfbæra þróun í ferðaþjónustunni. Íslenskir ferða- þjónustuaðilar hafa í auknum mæli sýnt málinu áhuga og eru nú æ fleiri rekstraraðilar farnir að leita til þriðja aðila um umhverfisvottun. Þessi þróun hefur verið nokkuð hröð á síðustu árum og eru nú 39 rekstraraðilar komnir í vottunar- ferli hér á landi, þar af hafa 9 aðilar fengið vottun, 32 af þessum aðilum vinna undir merkjum Green Globe 21, 2 með Norræna Svaninn, 4 með Bláfánann og 1 hefur verið vottaður samkvæmt ISO 14001 staðlinum. Hvað er umhverfisvottun? En hvað er umhverfisvottun? Í stuttu máli er umhverfisvottun stað- festing á að tiltekin starfsemi taki mið af staðfestri um- hverfisstefnu og vinni í öllu eftir henni. Það er svo utanaðkomandi og óháður vottunar- aðili sem tekur út og staðfestir hvort unnið hefur verið eftir þeirri stefnu. En þar sem ferðaþjónustan er mjög háð huglægu mati ferðafólks er mikilvægt að heildar- ímynd áhrifasvæðis starfseminnar sé trú- verðug, það er ekki nóg að einn rekstraraðili á viðkomandi svæði sýni ábyrgð ef allir sem í kringum hann eru huga lítt að þessum mál- um. En sem betur fer hafa íslensk sveitarfélög sýnt málinu áhuga og á síðustu tveimur árum hafa 5 sveit- arfélög á Snæfellsnesi og Þjóðgarð- urinn Snæfellsjökull sameinast um markvissa uppbyggingu á umhverf- isstefnu og hafa sótt um að fá vottun frá Green Globe 21, sem sjálfbært samfélag. Vitað er um nokkur sveit- arfélög og jafnvel landshluta sem fylgjast grannt með þessu verkefni Snæfellinga. Eftirtektarverður árangur Það sem er áhugavert við þá þró- un sem er að eiga sér stað hér á landi er að það virðist vera að flestir séu samstiga og skiptir þá einu hvort átt er við einstaka rekstr- araðila, hagsmunasamtök eða op- inbera aðila. Enda er eftir því tekið erlendis hvað hér er að gerast í þessum málaflokki og er farið að leita í smiðju okkar um hvernig unn- ið sé að þessum málum og er það vel. Umhverfisvottun í ferðaþjónustu Elías Bj. Gíslason og Valur Þór Hilmarsson fjalla um umhverf- isvottun í ferðaþjónustu ’Ferðaþjónustan er íeðli sínu nokkuð meng- andi atvinnugrein en á sama tíma mjög háð um- hverfi og náttúru.‘ Elías Bj. Gíslason Báðir starfa hjá Ferðamálaráði Ís- lands, Elías, forstöðumaður upplýs- inga- og þróunarsviðs, Valur, um- hverfisfulltrúi. Valur Þór Hilmarsson Í SAMKOMULAGI ríkisins og Reykjavíkurborgar frá 27. apríl 2004 er heimilað 30 þúsund fermetra bygg- ingarmagn á svæði Um- ferðarmiðstöðvarinnar, þar af muni borgin út- hluta Landspítala – há- skólasjúkrahúsi og stofnunum Háskóla Ís- lands, sem tengdar eru spítalanum 23 þúsund fermetrum. Síðan segir orðrétt í 1. grein sam- komulagsins: „Auk þess samþykkja samningsaðilar að borg- inni sé heimilt að úthluta allt að 7 þúsund fer- metrum til uppbygg- ingar miðbæjarstarfsemi í samræmi við deiliskipulag svæðisins. Fjögurra manna samvinnunefnd Reykjavík- urborgar, LSH, HÍ og eigenda Um- ferðarmiðstöðvar Íslands skal vinna sameiginlega deiliskipulagstillögu svæðisins sem lögð skal fyrir skipu- lags- og byggingarnefnd.“ Ekki gert ráð fyrir bensínstöð Gert var umhverfismat á færslu Hringbrautar í mars 2003 og önnuðust Línuhönnun fyrir hönd Vegagerð- arinnar og Reykjavíkurborg fram- kvæmd umhverfismatsins. Í ítarlegri skýrslu vegna umhverfismatsins er hvergi rætt um bensínstöð innan lóðar Landspítala – háskólasjúkrahúss, enda aldrei verið gert ráð fyrir slíkri starf- semi þar. Skipulagsstofnun féllst á flutning Hringbrautar á þeim for- sendum í júní 2003. Í kaupsamningi Reykjavíkurborgar og Kers hf. frá 17. desember sl. er rætt um að vegna fyrirhugaðs tónlistar- og ráðstefnuhúss þurfi bensín- og þjón- ustustöð í eigu Kers hf. á Geirsgötu 19 að víkja. Við kaupin á þessari eign heit- ir borgin því að úthluta Keri hf. 4 þús- und fermetra lóð sem leigulóð á svo- kölluðum Umferðarmiðstöðvarreit til a.m.k. 40 ára. Á lóðinni skuli vera heimilt að reisa allt að eitt þúsund fer- metra bensín- og þjón- ustustöð. Drög að áðurnefndum kaupsamningi voru sam- þykkt á fundi borgar- ráðs 16. desember sl. Svo virðist sem borg- arráðsmenn hafi al- mennt ekki gert sér grein fyrir því að með samþykkt sinni á kaup- samningsdrögunum hafi þeir verið að þverbrjóta samkomulag borg- arinnar við heilbrigðisyf- irvöld um samráð við LSH um skipulag Umferðarmiðstöðv- arreitsins. Yfirvöld LSH hafa andmælt þessu enda er verið að skerða hagsmuni heil- brigðisþjónustunnar á svæðinu og þar með hagsmuni sjúklinga og almenn- ings. Auk þess liggur í augum uppi að menn skipuleggja ekki sjúkrahús og bensínstöð hlið við hlið eins og erlendi gestafyrirlesarinn á aðalfundi LSH, Susan Frampton, benti á þegar hún var spurð um málið. En á aðalfund- inum kynnti hún hugmyndafræði um rekstur sjúkrahúsa, þannig að þau séu sem best fyrir sjúklinga. Yfir 100 sjúkrahús hafa tileinkað sér þessa hugmyndafræði, sem meðal annars er lýst í bók Framptons um „Sjúklingana í fyrirrúmi“ eða „Putting Patients First“. Þó að varaáheyrnarfulltrúi F-listans í borgarráði hafi ekki bókað um bens- ínstöðvarmálið á borgarráðsfundinum 16. desember sl. tel ég það algerlega nauðsynlegt að endurskoða samþykkt borgarráðs um bensínstöð á Landspít- alalóðinni í ljósi hagsmuna þeirrar sjúkrahúss- og háskólastarfsemi sem fram á að fara á svæðinu og áforma um samfellt vísinda- og þekkingarþorp á svæðinu milli LSH og Háskóla Ís- lands. Borgaryfirvöld verða einfald- lega að bæta ráð sitt í þessu máli og ná samkomulagi við Ker hf. um aðra og heppilegri lóð en Landspítalalóðina undir bensínstöð. Samþykkt borgarstjórnar Að ósk undirritaðs var staðsetning bensínstöðvar á Landspítalalóðinni rædd utan dagskrár á fundi borg- arstjórnar 3. maí sl., þar sem hann lagði fram svohljóðandi tillögu ásamt borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins: „Með samkomulagi ríkis og borgar frá 27. apríl 2004 er heitið samstarfi við yfirvöld LSH um skipulag Landspít- alalóðarinnar og næsta nágrennis. Forráðamenn LSH fullyrða að með fyrirhugaðri uppsetningu bens- ínstöðvar á núverandi lóð Umferð- armiðstöðvarinnar sé ekki staðið við þetta samkomulag. Hvatt er til þess að borgaryfirvöld fylgi í hvívetna ákvæði samkomulagsins um samráð við LSH um notkun og uppbyggingu á svæð- inu.“ Tillagan var samþykkt samhljóða með þeirri orðalagsbreytingu að sam- ráð skyldi haft við heilbrigðisyfirvöld um notkun og uppbyggingu svæðisins. Um bensínstöð á Landspítalalóð Ólafur F. Magnússon fjallar um skipulag Landspítalalóðar ’Með samkomulagi rík-is og borgar frá 27. apríl 2004 er heitið samstarfi við yfirvöld LSH um skipulag Landspít- alalóðarinnar.‘ Ólafur F. Magnússon Höfundur er oddviti F-listans í borgarstjórn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.