Morgunblaðið - 04.09.2005, Síða 21

Morgunblaðið - 04.09.2005, Síða 21
við Sunnfjord er í gömlu uppgerðu vöruhúsi. Þetta bæjarstæði er afar fallegt, umkringt háum fjöllum við fjörðinn. Norræna listamannamið- stöðin stendur uppi á Dalsåsen og þar geta listamenn sótt um dvöl og vinnuaðstöðu í umhverfi sem vafalít- ið vekur innblástur. Elísabet Gunn- arsdóttir veitir miðstöðinni forstöðu. Tungumálið á þessum slóðum er engin syngjandi norska eins og við eigum oftar að venjast, heldur mis- munandi strandamállýskur, oft með hörðu r-i eins og í íslensku og hljóm- fallið ekki ósvipað. Blæbrigðin eru einnig fleiri en í bókmálinu og hlutir hafa kyn en ekki bara fólk. Hann báturinn og hún áin. Nýnorskan sem svo er nefnd er ritmálið sem sameina átti mállýskurnar og kom fyrst fram um miðja nítjándu öld. Nýnorskan lifir ágætu lífi í Sogni og fjörðum, t.d. í dagblöðum, en hefur samt átt undir högg að sækja, sérstaklega þar sem svo virðist sem yngri kynslóðir telji óþarft að læra tvö ritmál og halli sér frekar að bókmálinu í rituðu máli þótt mállýskurnar lifi í talmálinu. Sognamálið sem mállýskurnar á þessum slóðum eru stundum kallað- ar er misskiljanlegt eftir framburði og talhraða en líklega skiljanlegra fyrir marga Íslendinga en söng- norskan sem svo má kalla. „Vöfflur eru nú bara vöfflur,“ seg- ir húsfreyjan í Terdalen á kjarnyrtu Sognamáli þegar nýbökuðum vöffl- um með sultu og sýrðum rjóma (rømme) er hrósað. Hún minnir á ís- lenskar starfssystur sínar sem aldrei var hrósað en töfruðu fram kræsing- ar handa gestum samhliða annarri erfiðisvinnu eins og ekkert væri sjálfsagðara og gerðu lítið úr öllu saman. Að vernda vitana Á margan annan hátt eru Norð- menn og Íslendingar líkir án þess að ætlunin sé að alhæfa nokkuð um heilar þjóðir en kaldhæðni og kímni- gáfa er svipuð hjá Íslendingum og Norðmönnunum, a.m.k. á vestur- ströndinni. Framkvæmdagleði eiga þeir líka sameiginlega, líkt og Stein og Sigurbjörg sem kynntust fyrir fimm árum innan sameiginlegs ESB-verkefnis og komust að því að þau deildu sama áhuganum á að varðveita menningararfinn. Stein var þá og er enn formaður Norska vitafélagsins og hjá honum fékk Sigurbjörg hugmyndina að stofnun Íslenska vitafélagsins sem hún veitir formennsku. Félögin vinna að varðveislu vita og að auk- inni þekkingu á vitum og sögu þeirra. Í Noregi eru nú margir vitar nýttir sem ferðamannastaðir. Stað- arhaldarar leigja þá af ríkinu sem á alla vita í Noregi, ólíkt því sem gerist á Íslandi þar sem margar vitajarðir hafa verið seldar. Einn þessara vita er Stabben sem stendur á kletti úti í miðju hafi og er enginn hægðarleikur að nálgast. Stabben er áfangastaður ferða- manna sem vilja eitthvað alveg sér- stakt og eru tilbúnir að borga fyrir það. Ein gistinótt fyrir tvo kostar sem samsvarar 20 þúsund íslenskum krónum en þá er hvorki matur né ferðir til og frá vitanum innifalið. Stein Malkenes segir að gisting í Stabben-vita eigi að vera dýr og fín. Markmiðið sé að ferðamaðurinn fái eitthvað sem hann fær hvergi annars staðar en þurfi að borga aðeins meira fyrir það. Ekki er hægt að leigja sér bát út í Stabben því brimið getur brotið hann í sprek og því nauðsynlegt að borga eins og fyrir leigubíl langa leið. En í staðinn upplifir ferðamað- urinn nokkuð einstakt; að horfa út á haf í allar áttir – alveg í friði. Þetta var reyndar hversdagslegt fyrir vita- verðina sem þarna bjuggu til ársins 1975 með þrjú börn og kemur ekki á óvart að foreldrarnir hafi haft börnin í bandi til að koma í veg fyrir að þau féllu í sjóinn! Út um gluggann á Stabben-vita sést farkosturinn, hinn rúmlega sjö- tugi bátur Atløy. Báturinn hefur ver- ið notaður til farþega-, vöru- og póst- flutninga og sinnt sínu hlutverki vel. Nú er svo komið að stofnað hefur verið vinafélag um rekstur hans og gamlir sjómenn sem komnir eru á eftirlaun mynda áhöfnina sem gefur vinnu sína. „Það er nú farið að slá í bæði bát og áhöfn,“ segir einn þeirra hlæjandi. Svipuð leið á Íslandi Samvinnuverkefninu Knörrinn – hafið – síldin var fyrst hrint af stað á síðasta ári þegar Stein og fleiri Norðmenn komu til Íslands með tvo norska síldarbáta og sjósettu þá frá Seyðisfirði. Sjávarútvegsráðherra Norðmanna, Svein Ludvigsen, fól Stein Malkenes að koma með hug- myndir að samvinnuverkefni þjóð- anna þar sem byggt væri á sameig- inlegum arfi. Í kjölfarið hefur verið unnið að því að byggja upp heild- stæða ferðaþjónustu á þessum slóð- um í Noregi og markmiðið er að gera slíkt hið sama á Íslandi. Búist er við að fyrstu ferðamannahóparnir innan þessa verkefnis komi til Noregs næsta vor. Markaðssetningin á sögu- legu ferðamannastöðunum á Íslandi er aðeins skemmra á veg komin en Sigurbjörg segir að síðsumars á næsta ári eigi hún að verða langt komin. Á Íslandi verða helstu ferða- mannastaðirnir Landnámsbærinn í Aðalstræti í Reykjavík og viðkomu- staðir Ingólfs á Íslandi, Reykholt þar sem Snorri skrifaði Heims- kringlu, Ísafjörður, Siglufjörður, Akureyri og Seyðisfjörður með sína norsku sögu og Síldarminjasafnið á Siglufirði svo nokkrir séu nefndir. Ýmsa staði og viðburði er hægt að tengja við samskipti þjóðanna eins og t.d. opnun garðs þar sem talið er að Gulaþingið í Sogns- og fjarðar- fylki hafi verið stofnað árið 900 en talið er að það hafi verið fyrirmynd Alþingis Íslendinga sem stofnað var 930. Á þessu ári var einnig gefin út á norsku í Noregi bókin Ingólfr eftir þrjá sagnfræðinga, Íslendinginn Jón Viðar Sigurðsson, fræðimann við Óslóarháskóla, og Norðmennina Berit Gjerland og Gaute Losnegård. Ætlunin er að bókin komi einnig út á íslensku en í henni er fjallað um sam- skipti þjóðanna frá upphafi. Á ferðalagi um vesturströnd Nor- egs vekur athygli að það er eins og alls staðar séu hús, og alls staðar búi fólk. Norðmenn hafa vissulega rekið mikla byggðastefnu en nú virðist gæta þeirrar tilhneigingar að fólk vilji snúa aftur heim til átthaganna. Fyrrverandi fréttaritari hins norska TV2 greindi frá því að hann væri aft- ur kominn heim til Rognaldsvåg sem er eitt af ótal litlum þorpum úti við ströndina og í norska skerjagarðin- um, eftir að hafa búið í helstu stór- borgum heims. Nútímatækni gerir fólki vissulega kleift að vinna fjölbreyttari vinnu þótt í mesta dreifbýlinu sé og tölvu- fyrirtæki þar sem margt ungt fólk vinnur hefur t.d. verið stofnað í Dale. Í Florø, sem er annað stærsta byggðarlagið í fylkinu, búa nú marg- ir Hollendingar sem hafa flúið þrengslaþéttbýlið. Kyrrð og ró, gott pláss og útsýni heillar marga og á vesturströnd Noregs er nóg af því. menningararfinn steingerdur@mbl.is Ljósmyndir/Steingerður Kalvåg er lítið, fallegt þorp með stóra síldarsögu og vaxandi ferðaþjónustu. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 2005 21 ítar skóli ólafs gauks 30ára Innritun hefst á morgun og fer fram daglega kl. 14.00–17.00 í skólanum, Síðumúla 17, símar 588-3730 eða 588-3630, fax: 588-3731, tölvupóstur: ol- gaukur@islandia.is Heimasíða: www.gitarskoli-olgauks.is Skólinn á 30 ára afmæli um þessar mundir og á þessum tímamótum verður gerð sú breyting á kynningu þess námsefnis, sem í boði er, að skipta því til hagræðis í þrjá flokka sem kenndir eru við liti fremur en músikalskt innihald. Þannig eru GULU námskeiðin fyrir byrjendur og þá sem aðeins hafa spilað áður, RAUÐU námskeiðin fyrir þá sem vilja læra hefðbundinn gítarleik eftir nótum, BLÁU námskeiðin fyrir þá sem vilja kynna sér popp og/eða jazz gítar. SÉRNÁMSKEIÐIN, svo sem tónfræði-, tónsmíða-, rafbassa og sjáfsnám, fá engan einkennislit en geta þó verið mjög litskrúðugur lærdómur GULU NÁMSKEIÐIN BLÁU NÁMSKEIÐIN RAUÐU NÁMSKEIÐIN SÉRNÁMSKEIÐ FYRSTA ÞREP Undirstöðuatriði nótnalesturs fyrir byrjendur lærð með því að leika léttar laglínur á gítarinn o.m.fl. Forstig tónfræði. Próf. Geisladiskur með heimaæfingum fylgir. ANNAÐ ÞREP Framhald Fyrsta þreps, leikin þekkt smálög eftir nótum, framhald tónfræði- og tónheyrnarkennslu. Próf. Geisladiskur með heimaæfingum fylgir. ÞRIÐJA ÞREP Beint framhald Annars þreps. Verkefnin þyngjast smátt og smátt. Framhald tónfræði- og tónheyrnarkennslu. Próf. FJÓRÐA ÞREP Beint framhald Þriðja þreps. Bæði smálög og hefðbundið gítar- kennsluefni eftir þekkt tónskáld. Tónfræði, tónheyrn, tekur tvær annir. Próf. FIMMTA ÞREP Beint framhald Fjórða þreps. Leikið námsefni verður fjölbreyttara. Tónfræði, tónheyrn. Tekur tvær annir. Próf. TÓNSMÍÐAR Byrjunarkennsla á hagnýtum atriðum varðandi tónsmíðar. Einhver undirstaða nauðsynleg. Einka- tímar eftir samkomulagi. TÓNFRÆÐI – TÓNHEYRN Innifalin í námi þar sem það á við. RAFBASSI Kennsla á rafbassa eftir samkomulagi. SJÁLFSNÁM Námskeið fyrir byrj- endur á tveim geisladiskum og bók. Til- valið fyrir þá sem vegna búsetu eða af öðrum ástæðum geta ekki sótt tíma í skólanum en langar að kynnast gít- arnum. Sent í póstkröfu, greitt með korti eða millifært fyrirfram. Hægt að fá leigða HEIMAGÍTARA kr. 3500 á önn 588-3630 588-3730 FORÞREP FULLORÐINNA Byrj- endakennsla, undirstaða, léttur undirleikur við alþekkt lög. Geisladiskur með æfingum fylgir. FORÞREP UNGLINGA Byrjenda- kennsla, sama og Forþrep fullorðinna. Geisladiskur með æfingum fylgir. LÍTIÐ FORÞREP Spennandi, styttra, ódýrara námskeið fyrir börn 8-10 ára. Geisladiskur með heimaæfingum fylgir. FRAMHALDSFORÞREP Skemmtilegt námskeið í beinu framhaldi af Forþrepi. Geisladiskur með æfingum fylgir. FORÞREP – PLOKK Mjög áhugavert námskeið. Kenndur svonefndur „plokk“- ásláttur eftir auðveldum aðferðum. Fyrir þá sem lokið hafa Forþrepi eða Fram- haldsforþrepi /eða hafa leikið eitthvað áður. Geisladiskur fylgir. TÓMSTUNDAGÍTAR Byrjenda- kennsla (sama og Forþrep fullorðinna en styttra) í samvinnu við Mími-sí- menntun og innritað þar (sími 588- 7222). Geisladiskur fylgir. ÞVERGRIP Á námskeiðinu eru kennd öll höfuðatriði þvergripanna og hvernig samhengi þeirra er háttað. Aðeins eru notuð þvergrip í námskeiðinu og þarf því töluverða ástundun. Ekki ráðlegt nema fyrir þá sem hafa mikinn áhuga og nokkurn undirbúning, t.d. ekki minna en FRAMHALDSFORÞREP eða þó nokkra heimaspilun. Geisladiskur fylgir. MIÐÞREP – RITMAGÍTAR Beint framhald FORÞREPS-ÞVERGRIPA. Haldið áfram með ritmagítar, bæði hvað varðar hljóma og hina fjölbreyttu áslátt- armöguleika, svo sem í sveitatónlist, blús, poppi, latin, funki og jazzi. TAB aðferðin kynnt. Geisladiskur fylgir. SÓLÓGÍTAR – 1. ÞREP Byrjunar- kennsla í sólóleik á rafmagnsgítar. TABLATURE kerfið og nótur. Geisla- diskur með æfingum. SÓLÓGÍTAR – 2. ÞREP Beint fram- hald. TAB og nótur. Geisladiskur. SÓLÓGÍTAR – 3. ÞREP Beint fram- hald. Aðeins eftir nótum. Geisladiskur. ww w.g itar sko li-o lga uks .is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.