Morgunblaðið - 04.09.2005, Síða 23

Morgunblaðið - 04.09.2005, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 2005 23 Stóra sviðið: Halldór í Hollywood Túskildingsóperan Virkjunin Átta konur Ragnarök 2010 Kassinn Pétur Gautur Metamorphosis – ljóð á hreyfingu Vorblót Vesturports Kassinn er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Landsbankans Smíðaverkstæðið Frelsi Eldhús eftir máli Sumardagur Dauðir hundar Leikhúsloftið/ Leikhúskjallarinn: Eru jólasveinar til? Gestasýningar: RAMT-leikhúsið í Moskvu: Kirsuberjagarðurinn Að eilífu Konunglegi ballettinn í Kaupmannahöfn: Klippimyndir Vesturport: Brim Sumaróperan: Galdraskyttan Frá fyrra leikári: Klaufar og kóngsdætur – barnaleiksýning ársins 2005 Edith Piaf Koddamaðurinn Rambó 7 Dómsalurinn: Réttarhöld í allan vetur! Leikhúskjallarinn: Suðupottur menningar Þjóðleikhúsið – leikhúsið þitt! Gildir á fimm sýningar Þegar löngunin grípur þig! Verð: 10.500 kr. Opið kort Gildir á fimm sýningar Þitt sæti! Verð: 10.500 kr. Áskriftarkort á Stóra sviðið Gildir á sex sýningar Frábær kjör! Verð: 10.500 kr. Áskriftarkort á minni sviðini Gæsaveiðin er komin vel afstað og margir hófu veið-ar strax 20. ágúst en aðrirfara síðar eins og gengur. Ekki fer miklum sögum af stórveiði enda viðhorf óðum að breytast hvað það snertir og magn er ekki sama og gæði í skotveiðitúrum. Veðurfarið þessa síðustu daga ágústmánaðar og framan af septem- ber hefur mikið að segja um hvernig gæsaveiðarnar ganga, ef veður er milt heldur grágæsin sig að miklu leyti á úthögum og berjamó og sækir ekki á ræktað land fyrr en nætur- frost fella ber og annan gróður. Kuldakastið undanfarna daga getur því haft áhrif á hversu mikið grágæs- in kemur á tún og kornakra næstu daga og vikur. Heiðagæsin heldur sig hins vegar til fjalla eins lengi og stætt er en hverfur síðan beint til Bretlandseyja þegar herðir að og er yfirleitt horfin af landinu fyrir lok september og jafnvel fyrr ef haustið er kalt á hálendinu. Þó sést alltaf eitthvað af heiðagæs á láglendi og fyrir kemur að heiðagæsir og grá- gæsir blandast í hópum og veiði- menn kannast örugglega við að hafa fengið báðar tegundir á sama stað, jafnvel á sama morgninum. Gæsastofnarnir sem veitt er úr hérlendis eru fjórir, grágæs, heiða- gæs, blesgæs og helsingi. Aðalveiði- stofnarnir eru tveir þeir fyrsttöldu en þeir síðarnefndu eru umferðar- fuglar vor og haust á Íslandi og eiga varpstöðvar sínar á Grænlandi. Dr. Arnór Þórir Sigfússon, fugla- fræðingur á Verkfræðistofu Sigurð- ar Thoroddsen, hefur stundað rann- sóknir á íslensku gæsastofnunum frá því árið 1993. Hann stundaði rann- sóknir sínar fyrst á vegum Veiði- stjóraembættisins en frá 1995–2000 starfaði hann hjá Náttúrufræði- stofnun en hefur síðan unnið að rannsóknunum á eigin vegum og er hafsjór af fróðleik um gæsastofnana. Grágæsastofninn vantalinn „Grágæsastofninn hefur verið vantalinn um allt að því helming en þrátt fyrir það er veiðiálagið á stofn- inn alveg í efstu mörkum og full ástæða til að hvetja veiðimenn til að gæta hófs í veiðum á grágæsinni,“ segir Arnór. „Hefðbundnar talningar á grá- gæsastofninum hafa farið fram um miðjan nóvember í Bretlandi og að- ferðin er fólgin í því að telja gæsirnar þegar þær koma í náttstað. Útkoman úr þessum talningum hefur verið um 80 þúsund fuglar en það fær ekki staðist þar sem staðfestar magntölur um veiði hérlendis eru 35–40 þúsund fuglar og í Bretlandi 20–25 þúsund til viðbótar. Það var því augljóst að skekkja væri í talningunum og nú er álitið að stofninn sé um helmingi stærri, eða allt að 150–160 þúsund fuglar. Þrátt fyrir þetta er veiðiálag- ið í efstu mörkum og það þurfa ekki að koma nema tvö til þrjú slæm varpár í röð til að veiðiálagið hafi veruleg áhrif á stofnstærðina. Síð- ustu tvö ár hafa hinsvegar verið ein- staklega góð og ungafjöldi sem komst á legg í fyrra var meiri en ég hef séð síðan ég hóf að fylgjast með gæsastofnunum. En það er stað- reynd að stærstur hluti dauðsfalla fullorðinna gæsa er af völdum veiða svo veiðiálagið segir fljótt til sín ef dregur úr nýliðun í stofninum. “ Arnór Þórir segir að fréttir um að fjöldi gæsa hafi vetursetu á eyjum við Noregsstrendur séu orðum auknar. „Þetta eru ekki nema um 3–5 þúsund fuglar og hefur ekki mik- il áhrif á áætlaða stofnstærðina.“ Í haust verður hafður annar hátt- ur á við gæsatalningar í Bretlandi og talið tvisvar og fer seinni talningin fram í desember. „Það hefur sýnt sig að grágæsin er hér fram eftir öllu hausti ef tíð er góð og mér taldist svo til í fyrrahaust að helgina sem talið var í Bretlandi voru ennþá um 20 þúsund gæsir ófarnar af landi brott sem hefur auð- vitað áhrif á niðurstöðurnar.“ Arnór Þórir segir að blesgæsa- stofninn eigi verulega undir högg að sækja af náttúrulegum orsökum og megi lítt við veiði meðan svo er. „Það hefur orðið alger viðkomubrestur í stofninum síðustu ár og fullorðni fuglinn er að koma ungalaus af varp- stöðvunum á Grænlandi. Menn hafa talið að orsökina sé að finna í því að blesgæsin fari halloka í samkeppni við kanadagæs sem hefur verið að fjölga sér á Grænlandi. En meðan stofninn er í þessu ástandi er rétt að hlífa honum svo ekki gangi um of á fullorðna varpfugla.“ Heiðagæsin þolir aukið veiðiálag Veiðar hér á Íslandi á blesgæs hafa verið um 3 þúsund fuglar á haustin og veiðimenn tala gjarnan um að blesgæsin sé hvað auðveldust bráð af gæsategundum; hún sýni minnsta tortryggni við tálfugla og sömu hópar komi jafnvel aftur á sömu staðina þrátt fyrir að skotnir hafi verið fuglar úr hópnum. Bles- gæsin ætti því að njóta vafans um af- komuna og fá að fara hér um á haust- in sem mest óáreitt. „Heiðagæsastofninn er geysilega stór, um 230 þúsund fuglar eru taldir í Bretlandi á haustin, og þar er taln- ingin nokkuð nákvæm. Heiðagæsin heldur sig að mestu við sjávarsíðuna í Bretlandi og því auðveldara að telja hana og það er meira veitt af henni þar en grágæsinni. Þetta er alveg öf- ugt við veiðitölur hér á Íslandi en lík- lega eru ekki veiddar nema um 12–16 þúsund heiðagæsir árlega hérlendis. Þessi stofn þolir alveg meiri veiðar og mætti beina álaginu meira að heiðagæsinni og draga úr sókninni í grágæsina. Það er kannski ekki mjög auðvelt að breyta þessu þar sem talsvert auðveldara er að eiga við grágæsina a.m.k. hvað aðstæður varðar; menn vilja frekar stunda veiðarnar á láglendinu sem næst byggð fremur en sækja inn á hálend- ið eftir heiðagæsinni,“ segir Arnór Þórir. Aðspurður hvort hann stundi sjálfur fuglaveiðar segir Arnór svo vera. „Ég fer þó ekki á gæs fyrr en nokkuð er liðið á september en ástæðan er bara sú að ég er yfirleitt bundinn við vinnu fram að þeim tíma. Ég fer nú reyndar sjálfur að- eins til grágæsaveiða en veiði mjög hóflega, aðeins nóg fyrir mig og mína og oft læt ég einn veiðitúr nægja.“ Hann segir það fara mjög vel sam- an að vera fuglafræðingur og veiði- maður. „Það er engin mótsögn í því,“ bætir hann við með áherslu. Rannsóknir sínar á gæsastofnin- um stundar hann ennþá og hvetur veiðimenn til að senda sér vængi af veiddum fuglum til aldursgreining- ar. „Ég geri þetta núna á eigin veg- um og er aðallega að fylgjast með hlutfalli unga í veiddum fuglum. Veiðimenn geta haft samband við mig í síma 894-9960 eftir upplýsing- um um hvert þeir eiga að senda mér vængina,“ segir hann. SKOTVEIÐAR | GRÁGÆSASTOFNINN VANTALINN UM ALLT AÐ ÞVÍ HELMING Veiðimenn gæti hófs við grágæsaveiðar Ljósmynd/Jón Sigurðsson Þrátt fyrir að margt bendi til þess að grágæsastofninn hafi verið vantalinn um allt að því helming er full ástæða til að hvetja veiðimenn til að gæta hófs við veiðarnar í haust. Eftir Hávar Sigurjónsson havar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.