Morgunblaðið - 04.09.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 2005 37
AUÐLESIÐ EFNI
ÁSTANDIÐ á leik-skólum Reykjavíkur
er víða mjög erfitt vegna þess hversu
erfitt er að fá starfsfólk til vinnu á
þeim. Þá hefur einnig reynst erfitt að
manna stöður á Frístunda-heimilum
ÍTR.
Stjórnendur leik-skóla eru gramir yfir
því að missa starfs-fólk yfir í betur
launuð störf. Þeir segja nauðsynlegt
að hækka laun starfs-fólks leik-skóla
svo þau verði samkeppnis-hæf. „Fólk
getur bara ekki leyft sér þann munað
að vinna þessa vinnu, sem gefur því
þó svo mikið,“ sagði Guðrún María
Harðar-dóttir, leikskóla-stjóri á
Granda-borg.
Margir leik-skólar boða nú skerta
þjónustu. Meðal annars fækkar
tímunum sem börnin geta verið á
þeim. Foreldrar hafa miklar áhyggjur af
þessu ástandi. Margir þeirra eru
gramir í garð stjórnmála-manna þar
sem ekki hefur verið vilji meðal þeirra
til að bæta laun starf-sfólks leik-skóla.
Erfitt að fá
starfsfólk
á leikskóla
Morgunblaðið/Jim Smart
Erfitt er að fá starfsfólk á leikskóla um þessar mundir.
BREIÐABLIK tryggði sér
Íslands-meistara-titil kvenna í
knattspyrnu í 15. skipti og í
fyrsta sinn í fjögur ár með
sigri á ÍA á Akranesi, 5:1, á
miðvikudags-kvöldið.
Blika-konum var spáð þriðja
sæti deildarinnar í upphafi
móts en þær hafa nú tryggt
sér titilinn þegar ein umferð
er eftir auk þess sem þær
mæta KR í úrslita-leik
bikar-keppninnar.
„Mér fannst bara gott að
vera spáð þriðja sætinu en
þetta var nú bara spá. Ég
gerði lítið úr væntingum fyrir
sumarið og vil frekar vinna
með þá hugsun að þú sért
aldrei öruggur með sigur.
Svoleiðis er fót-boltinn og
það er það skemmtilega við
hann. Við vissum að á góðum
degi gætum við unnið öll liðin
og það hafa verið margir
góðir dagar hjá okkur í
sumar. Þetta hefur verið mjög
gott sumar en það eru tveir
leikir eftir og við ætlum að
vinna þá líka,“ sagði Úlfar
Hinriks-son þjálfari
Breiða-bliks.
Leikurinn við ÍA var ekki
meðal bestu leikja
Breiða-bliks í sumar.
Skaga-stúlkur áttu fyrsta færi
leiksins áður en Guðlaug
Jónsdóttir skoraði fyrsta
markið og Ólína G.
Viðars-dóttir bætti við
tveimur fyrir hlé. Aðeins voru
liðnar tvær mínútur af síðari
hálf-leik þegar Guðlaug bætti
við öðru marki sínu en með
mikilli baráttu tókst Önnu
Þorsteins-dóttur að minnka
muninn fyrir ÍA á 54. mínútu.
Síðan leið og beið og Blikar
fengu nokkur ágæt færi áður
en Inga Birna Friðjóns-dóttir
innsiglaði 5:1 sigur
Breiða-bliks.
Blika-konur Íslands-meistarar í 15. skipti
Morgunblaðið/ÞÖK
Blika-konur fagna meistara-titlinum eftir sigurinn.
MORGUN-BLAÐIÐ tók viðtal við
Glanna glæp í tilefni af því að
Lati-bær var frumsýndur í
Sjón-varpinu á föstu-daginn. Glanni er
höfuð-óvinur Íþrótta-álfsins og stefnir
að því að bola honum burt úr bænum.
Glanna finnst best að liggja bara í leti
og leggja sig oft á dag.
Versti glæpurinn hans var þegar
hann batt Baldur bæjar-stjóra og lét
hann hanga yfir hákarla-búri. „Það var
samt kannski ekki alveg búr, heldur
meira svona krukka. Síðan gat ég
reyndar ekki fengið hákarl, því þeir
voru svo dýrir, þannig að ég fékk
gull-fisk. En þessi gull-fiskur var í
mjög vondu skapi og ef bæjar-stjórinn
hefði dottið í krukkuna hefði verið
gull-fiska-lykt af honum – að eilífu!
Muahahaha! En þetta tókst ekki
alveg því að Íþrótta-skopparinn
bjargaði honum á síðustu stundu,“
segir Glanni glæpur.
Glanni glæpur, Solla stirða og
Íþrótta-álfurinn.
Lati-bær
byrjaði í
sjón-varpinu
ÓTTAST er að þúsundir
manna hafi farist af völdum
felli-bylsins Katrínar á
mánu-daginn var.
Felli-bylurinn geisaði þá í
ríkjunum Louisiana og
Mississippi í
Banda-ríkjunum.
Ástandið var verst í
borginni New Orleans vegna
flóða sem fylgdu óveðrinu.
Stór hluti borgarinnar er
undir sjávar-máli og
flóðvarnar-garðar hennar
brustu. Um 80%
borgarinnar voru undir vatni,
allt að sex metra djúpu.
Skortur var á mat og
drykkjar-vatni í New
Orleans. Borgin var
rafmagns-laus. Vopnaðir
glæpa-hópar rændu og
rupluðu. Her-menn voru því
sendir til borgarinnar.
George W. Bush, forseti
Banda-ríkjanna, var
gagnrýndur fyrir að bregðast
of seint við ástandinu.
Forsetinn fór á
hamfara-svæðið á
föstudag. Hann sagði að
fyrstu viðbrögð yfir-valda við
ham-förunum hefðu ekki
verið viðunandi.
Forsetinn sagði að allt
yrði gert til að bjarga
nauð-stöddu fólki í New
Orleans.
Sameinuðu þjóðirnar
buðu Banda-ríkjunum
aðstoð við björgunar-starfið.
Embættis-maður
sam-takanna sagði að
felli-bylurinn Katrín væri
með skaðlegustu
náttúru-hamförum í sögu
mannkynsins.
Mikil neyð í New Orleans
AP
Öldruðum íbúa New Orleans hjálpað á flóða-svæðinu.
stoð-tækja. Hann segir verkina hafa
minnkað mikið. Nú er verið að smíða
á hann gervi-fætur.
Björn segir allt of marga bíla í
umferðinni og marga öku-menn afar
tillits-lausa. Þá segir hann oft svínað
á strætis-vagna-stjórum.
André Bachmann, starfs-bróðir
Björns, hélt í gærkvöld
styrktar-tónleika fyrir Björn á
Broadway, þar sem fram komu helstu
tónlistar-menn landsins.
BJÖRN Hafsteins-son, vagn-stjóri hjá
Strætó bs., er mjög von-góður um
framtíðina, þó hann hafi misst báða
fætur sína þegar vöru-bíll ók á
strætis-vagn hans.
Björn var að keyra yfir á grænu ljósi
þegar vöru-bíllinn keyrði inn í hliðina á
strætis-vagninum. Björn kastaðist 20
metra út úr vagninum við áreksturinn.
Hann segist heppinn að hafa ekki
hlotið höfuð-högg þegar hann lenti.
Hann var stór-slasaður og fólk kom til
að aðstoða hann, en hann vildi enga
aðstoð.
Nú liggur Björn á bæklunar-deild
Land-spítalans og mun bráðum fara í
endur-hæfingu þar sem hann mun
læra aftur að ganga með aðstoð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björn Hafsteinsson strætó-bílstjóri
tekur fóta-missinum af æðruleysi.
Missti fætur í árekstri