Morgunblaðið - 04.09.2005, Síða 38
38 SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Erlendur Krist-ján Vigfússon
fæddist í Hrísnesi í
Barðastrandar-
hreppi 24. septem-
ber 1926. Hann lést
á Landspítalanum
við Hringbraut að-
faranótt 11. ágúst
síðastliðins. For-
eldrar hans voru
hjónin í Hrísnesi,
Vigfús Vigfússon,
óðalsbóndi á ættar-
jörð sinni, f. 5. apríl
1888, d. 13. maí
1940, og kona hans Guðbjörg Guð-
mundsdóttir frá Hamri í sömu
sveit, f. 31. júlí 1892, d. 23. júní
1974. Systkini Erlends eru Guð-
mundur Björgvin, f. 14. september
1915, d. 12. janúar 1983, Vigfús, f.
23. mars 1917, d. 6. desember 1979,
með Goðafossi), og Guðmunda
Þórdís Ólafsdóttir frá Flateyri, f.
29. mars 1910, d. 9. ágúst 2004.
Börn Erlends og Jóhönnu eru: 1)
Vigfús, tæknifræðingur, f. 26.
febrúar 1955. 2) Björk, námsráð-
gjafi, f. 2. mars 1958. 3) Sigurður,
kerfisfræðingur, f. 18. maí 1960. 4)
Guðmundur, sjómaður, f. 22. októ-
ber 1962. 5) Guðbjörg, forstöðu-
maður, f. 20. mars 1965. Barna-
börnin eru 14 og barnabarna-
börnin eru orðin sex talsins.
Erlendur starfaði í upphafi við
sveitastörf og vegavinnu, síðar
ýmsa verkamannavinnu og raf-
lagnir í Reykjavík. Síðan starfaði
hann sem verkstjóri hjá Garð-
yrkjudeild Reykjavíkurborgar í
mörg ár, allt til starfsloka sinna.
Útför Erlends fór fram í kyrrþey
skv. hans ósk hinn 22. ágúst síðast-
liðinn.
Þuríður Steinunn, f.
22. september 1918,
Kristín Guðmunda, f.
21. mars 1920, d. 15.
september 2000,
Guðný Jóhanna, f. 11.
ágúst 1922, d. 31. júlí
1997, Valgerður
Helga, f. 3. október
1923, Hannes Ár-
mann, f. 4. janúar
1928, Halldór Stefán,
f. 11. september 1929,
og Hilmar Sigurvin,
f. 14. desember 1936.
Erlendur kvæntist
í Reykjavík hinn 8. janúar 1955 Jó-
hönnu Soffíu Sigurðardóttur, f. 21.
september 1929 á Flateyri við Ön-
undarfjörð. Foreldrar hennar voru
Sigurður Jóhann Oddsson (af
Zoëgaætt), bryti, f. 4. nóvember
1903, d. 11. nóvember 1944 (fórst
Faðir minn fæddist í Hrísnesi í
Barðastrandarhreppi og var sjöunda
barn í röð tíu systkina. Bærinn í
Hrísnesi var þá torfbær en síðar
byggði afi járnklætt timburhús í ná-
grenninu. Pabbi nefndi oft að gamli
bærinn hefði verið hlýrri en sá nýi, en
hins vegar lak hann. Skólaganga
pabba var í farskóla og ekki var hún
löng. Vigfús afi fór í róður á bát sín-
um, Haka, í maí 1940 og veiktist af
lungnabólgu, en fór samt í ferð til
Patreksfjarðar, m.a. til þess að sækja
fermingarföt á pabba. Afi lagðist svo
fárveikur þannig að Þuríður systir
pabba þurfti að fara með hann í
kirkju til þess að fermast. Afi dó svo
aðeins 52 ára að aldri. Nokkrum ár-
um síðar, þegar pabbi var 19 ára brá
amma búi og flutti með nokkrum
börnum sínum suður.
Pabbi átti rauðbrúnt verkamanna-
reiðhjól, sem var notað til ferða í og
úr vinnu auk fleiri ferða. Ég veit að
hann tók þátt í starfi róttæklinga á
þessum árum, man óljóst eftir fund-
um í MÍR í Tjarnargötu og aldrei
mátti missa úr kröfugöngu. Við feðg-
arnir gengum saman í Hvalfjarðar-
göngu árið 1962. Þetta var tveggja
daga ferð frá Hvítanesi í Hvalfirði.
Áð var við réttir á Kjalarnesi og svo
gengið síðasta spölinn. Birtist mynd í
Þjóðviljanum heitnum af okkur,
pabbi með mótmælaspjald með text-
anum „Engar erlendar herstöðvar á
Íslandi“ og kassamyndavél á magan-
um.
Helsta áhugamál pabba var stang-
veiði. Oft var farið í Elliðavatn og eitt
sinn þegar ég hef verið sjö til átta ára
hjólaði hann með mig þangað upp-
eftir til veiða og til baka aftur, ég sitj-
andi á stýrinu. Vegir voru þá slæmir.
Þetta lét pabbi sig hafa eftir fullan
vinnudag. Einnig var farið í sjóbirt-
ingsveiði í Ölfusinu. Berjaferðir til
búbótar voru farnar síðsumars,
stundum voru farnar nokkurra daga
ferðir í nágrenni æskuslóðanna með
vinum og venslafólki. Rjúpnaveiðar
stundaði hann á haustin og var fyrsta
skotvopnið eins skots riffill.
Árið 1974 flutti fjölskyldan, þá sjö
manna, í Rjúpufell og var því ein af
frumbyggjum Fellahverfis.
Skemmtilegast fannst pabba að
ferðast um landið sitt, en af útlöndum
stóðu Noregur og Færeyjar uppúr.
Síðustu árin sótti pabbi félagsstörf
og spilamennsku í Gerðubergi og
ýmsar ferðir voru líka farnar. Hann
las bækur, helst þjóðlegan fróðleik
og ævisögur. Pabbi undi sér ávallt vel
í félagsskap venslafólks en heima hjá
sér með fjölskyldu sinni virtist hann
una sér best. Pabbi var mikill barna-
kall og stundum var munnharpan
tekin fram og spilað á hana og börn-
um hossað. Einnig átti hann til að
vera stríðinn og gat skellt fram göml-
um gátum í röðum ef sá gállinn var á
honum. Það var ánægjuleg stund,
sem við nokkrir synir og tengdasynir
áttum saman á Þjóðminjasafninu
enduropnuðu síðastliðið haust, en
þangað fórum við með pabba í tilefni
78 ára afmælis hans. Einnig var gam-
an að upplifa hversu hress hann var í
50 ára afmæli mínu í febrúar sl. Í
sumar fór hann svo aftur til veiða
ERLENDUR KRISTJÁN
VIGFÚSSON
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Sverrir
Einarsson
Bryndís
Valbjarnardóttir
Oddur
Bragason
Guðmundur
Þór Gíslason
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, systir og amma,
UNNUR EINARSDÓTTIR,
Nesbala 70,
Seltjarnarnesi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 25. ágúst sl.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 6. september kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast Unnar, er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins.
Sigurður K. Brynjólfsson,
Einar Sigurðsson, Jarþrúður Guðnadóttir,
Auður G. Sigurðardóttir, Tryggvi Svansson,
Guðrún Einarsdóttir
og barnabörn.
Hjartans kveðjur og þakkir sendum við öllum
þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR HALLGRÍMSDÓTTUR
frá Skálanesi,
til heimilis á Suðurgötu 14,
Keflavík.
Hallgrímur Már Einarsson, Steinunn Eldjárnsdóttir,
Guðmundur Örn Einarsson, Jóhanna Sv. Guðmundsdóttir,
Einar Valur Einarsson, Mariena Margrét Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MAREN NÍELSDÓTTIR KIERNAN,
lést á dvalarheimilinu Hrafnistu Reykjavík föstu-
daginn 26. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 7. september kl. 15.00.
Edward, Erla, Elsa, Stella, Jóhann, Victor Pétur,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Útför systur okkar,
ÞYRI ÞORLÁKSDÓTTUR MYERS,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 6. septem-
ber kl. 11.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Styrk,
samtök krabbameinssjúklinga, í síma 540 1990.
Ingi Sörensen,
Nanna Þorláksdóttir,
Helgi Þorláksson,
Ragnheiður Kristjana Þorláksdóttir.
Elskulegur sonur okkar, bróðir og barnabarn,
SINDRI SNÆR SIGURJÓNSSON
Þingási 7,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring-
braut miðvikudaginn 31. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Lágafellskirkju í Mosfells-
bæ fimmtudaginn 8. september kl. 11.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim, sem vilja minnast
Sindra Snæs, er bent á minningarsjóð sem stofnaður hefur verið í hans
nafni og mun verða ráðstafað úr til Barnaspítala Hringsins.
Reiknisnúmer 0115-05-070603 og kennitala 210204-2370.
Sigurjón Ólafsson, Ingibjörg Betty Bustillo,
Karen Erla Kristófersdóttir,
Steinar Frank Sigurjónsson,
Sigurður Ýmir Sigurjónsson,
Ólafur Árnason, Arnfríður Helga Valdimarsdóttir,
Friðbjörn Berg.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
ÞORSTEINN LÚÐVÍK ÞORSTEINSSON,
Hagatúni 12,
Höfn, Hornafirði,
lést á hjúkrunardeild Heilbrigðisstofnunar Suð-
Austurlands miðvikudaginn 31. ágúst.
Innilegar þakkir fær starfsfólk HSSA fyrir góða
umönnun og hlýhug.
Útför hans verður gerð frá Kálfafellsstaðakirkju þriðjudaginn 6. september
kl. 14.00.
Olga Meckle,
Emil Reynir Þorsteinsson, Lene Brouw Jörgensen,
Ari Þorsteinn Þorsteinsson, María Gísladóttir,
Anna Erla Þorsteinsdóttir, Ólafur Vilhjálmsson
og barnabörn.
Móðir okkar, systir og mágkona,
HUGRÚN KRISTINSDÓTTIR,
Hrafnistu Reykjavík,
lést á Landspítala Fossvogi föstudaginn 2. sept-
ember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Þorsteinn Briem,
Emil Kristinn Briem,
Stefán Berg Rafnsson,
Sigurður Hilmar Hansen,
Jórunn Kristinsdóttir,
Sigurlaug Kristinsdóttir, Einar Eggertsson.