Morgunblaðið - 04.09.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 2005 41
HUGVEKJA
Fyrir ekki löngu ritaðimaður nokkur grein-arkorn í Morgunblaðið,þar sem hann fann aðþví, að ekki mætti
klappa fyrir tónlist í Skálholts-
kirkju. Taldi hann þetta undar-
legt, m.a. í ljósi þess að hægt væri
að öðlast trú og gleði með því að
hlusta á músík. Sagt hafi verið
um Mozart að almættið talaði í
gegnum hann, slíkar væru tón-
smíðar hans, og Bach hefði auk-
inheldur samið meistaraverk sín
öll Guði til dýrðar.
Þessi athugasemd var engin
nýlunda, margir höfðu áður bent
á þetta sama og ekki verið par
ánægðir með þessar hömlur. Og
áfram mun þetta sennilega heyr-
ast, af og til.
Ef litið er í Biblíuna, sést, að
þar eru ritningarstaðir, sem tala
á jákvæðum nótum um lófaklapp.
Í Davíðssálmi 47:2 segir t.d.:
„Klappið saman lófum, allar þjóð-
ir, fagnið fyrir Guði með gleði-
ópi.“ Og í Davíðssálmi 98:5–9 er
þetta: „Leikið fyrir Drottni á
gígju, á gígju með lofsöngshljómi,
með lúðrum og básúnuhljómi, lát-
ið gleðióp gjalla fyrir konung-
inum Drottni. Hafið drynji og allt
sem í því er, heimurinn og þeir
sem í honum lifa. Fljótin skulu
klappa lof í lófa, fjöllin fagna öll
saman fyrir Drottni sem kemur
til að dæma jörðina. Hann dæmir
heiminn með réttlæti og þjóð-
irnar með réttvísi.“ Og hjá Jesaja
55:12 er ritað: „Já, með gleði
skuluð þér út fara, og í friði burt
leiddir verða. Fjöll og hálsar
skulu hefja upp fagnaðarsöng fyr-
ir yður, og öll tré merkurinnar
klappa lof í lófa.“
Í Síðari konungabókinni (11:12)
má lesa, að þetta hafi einnig verið
siður við krýningarathafnir: „Þá
leiddi hann konungsson fram og
setti á hann kórónuna og hring-
ana. Tóku þeir hann til konungs
og smurðu hann, klöppuðu lófum
saman og hrópuðu: „Konung-
urinn lifi!““
En í heilagri ritningu sjást
einnig dæmi um hið gagnstæða,
þ.e.a.s. að lófatak tjái háð eða
spott. Í Jobsbók (27:23) segir t.d.:
„[…] þá skella menn saman lófum
yfir honum og blístra hann burt
frá bústað hans.“ Og í Harm-
ljóðunum (2:15): „Yfir þér skelltu
lófum saman allir þeir er um veg-
inn fóru, blístruðu og skóku höf-
uðið yfir dótturinni Jerúsalem:
Er þetta borgin, hin alfagra, unun
allrar jarðarinnar?“ Og í Nahúm
(3:19): „Engin svíun fæst við
meini þínu, sár þitt er ólæknandi.
Allir þeir sem heyra fregnina um
þig, klappa lof í lófa, því að hver
er sá, að eigi hafi vonska þín
gengið yfir hann án afláts?“
Eflaust hefur þetta neikvæða
birtingarform haft áhrif til þess
að letja fremur en hvetja til brúk-
unar lófataks í guðshúsum krist-
inna síðar, og e.t.v. fleira lagst
þar á árar, eins og hugmyndir eða
fullyrðingar um að þess lags há-
vaði fældi guðdóminn í burtu.
Einnig er sennilegt, að drjúgur
samsláttur handa í ýmsum frum-
stæðum trúarbrögðum sem urðu
á vegi kristninnar hafi lagt sitt á
vogarskálina. Þessu fylgdi gjarn-
an blístur, sem í þjóðtrúnni var
tónlist hins illa.
Nú er það reyndar svo, að víða
er klapp leyft í söfnuðum um
heim allan, og m.a. hér á landi. Í
röðum baptista og hvítasunnu-
manna er þetta t.d. mikilvægur
partur helgihaldsins, en í öðrum
trúfélögum sumum með öllu
bannað. Sænska kirkjan var á
móti þessu í eina tíð, en leyfir nú
– aðallega ef um tónleika er að
ræða, vel að merkja. Lítil ástæða
er nefnilega til að vera að klappa
fyrir messunum, enda eru þær
sungnar Guði til dýrðar en ekki
mönnum. Ekki er mér kunnugt
um hvernig á þessu er tekið ann-
ars staðar á Norðurlöndum.
Í upphafi var minnst á Skál-
holtskirkju. En hún er ekki ein á
báti þar. Ástæðan fyrir þessu
ósamræmi er sú, að yfirstjórn
þjóðkirkjunnar hefur aldrei tekið
af skarið með dómi af eða á, held-
ur leyft þessu að fljóta dálítið. Í
hirðisbréfi Péturs Sigurgeirs-
sonar biskups til presta og safn-
aða á Íslandi, frá árinu 1986, segir
t.d. um þetta:
Framkoma og umgengni fólks í kirkju
verður að vera í fullu samræmi við frið-
helgi hennar. Álitamál er, hvort við
hæfi sé að klappa í kirkju […] Lengst
af hefur sá siður ekki viðgengist, og
kann því að særa trúartilfinningu þess
fólks, sem best rækir kirkju sína. Verð-
ur því að taka á því máli með allri gát.
Bann við lófaklappi í kirkju getur ekki
orðið algild regla, heldur verður að
taka tillit til staðbundinna óska og
veita leyfi, ef sóknarprestur og sóknar-
nefnd verða á eitt sátt um það.
Vera má, að þetta sé einmitt
besta leiðin, að fara hinn gullna
meðalveg, líta á aðstæður hverju
sinni, í stað þess að loka alfarið á
möguleikann á slíku.
Þarfir og viðhorf okkar sem
kristin heitum eru stundum gjör-
ólík. Í Afríku t.d. og meðal
blökkumanna í N-Ameríku fellur
ríkjandi menning og sönghefð af-
ar vel að lófataki, og það er vel.
Annars staðar eru aðstæður aðr-
ar og óhentugri, kannski á skjön
við það sem fyrir er. Við þetta er
einfaldlega ekkert að athuga.
Enda sagði meistarinn okkur
forðum að vera eitt, en hann bað
okkur aldrei um að vera eins.
Sjálfur er ég hlynntur því að
klappað sé í ákveðnum athöfnum,
einkum ef börn eiga hlut að máli.
Það er fátt ömurlegra en köld
þögnin og fálætið í laun, eftir að
þau eru búin að syngja eða leika
eitthvað í hinu mikla guðshúsi,
hafandi æft vel og lengi og gert
allt með prýði og sóma.
En hinu má samt aldrei
gleyma, að kyrrðin og friðurinn
eiga líka að eiga heima í þessum
musterum, og ríkja þar oftar en
ekki. Enda eru þau fyrst og síðast
heilagur griðastaður, vígð orð-
unum dýrmætu: „Komið til mín
öll þið sem erfiðið og þunga eruð
hlaðin og ég mun veita yður
hvíld.“
Má klappa?
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Eitt er það sem alltaf
annað veifið er í um-
ræðu fólks á meðal, og
það er hvort lófaklapp í
kirkju sé góður hlutur
eða vondur, sæmandi
eða hreint guðlast.
Sigurður Ægisson velt-
ir því máli fyrir sér í
pistli dagsins.
Ljósmynd/ Sigurður Ægisson
Toyota Landcruiser '87. Ekinn
250 þús. km. Þarfnast smávægi-
legrar lagfæringar. Tilboð óskast.
Upplýsingar í s. 899 7415.
Til sölu VW Passat station,
árg. '99, ekinn 123 þús., álfelgur,
nýjar bremsur, sk. '06. Góður bíl.
Verð 850 þús. Áhv. 720 þús.
Upplýsingar í síma 669 1195.
Nissan árg. '94 ek. 125 þús. km.
Nissan Micra ´94 silfurgrá 5
d.beinsk,ek. aðeins 125 þ, góður
bíll,álfelgur, negld dekk á felgum
fylgja,verð 190 þús. S. 898 7270.
Góður bíll á góðu verði!
Til sölu Skoda Felicia árg. '99. Ek-
inn 66.000 km. Uppl. 868 4901.
Einn splunkunýr
Ford Mustang, Premium +
aukahlutir, árgerð 2005.
Verð áður 3.990 þús.
Nú 3.500 þús., staðgreitt.
Upplýsingar í síma 864 1202
á kvöldin.
BÍLAR SEM BORGA SIG
FLJÓTT!
3 stk. "fjarska fallegar" 30 - 37
manna rútur. Í toppformi á frá-
bæru verði. Ferðaþjónusta er
vaxandi atvinnugrein. Uppl. í síma
894 6868.
Árg. '98, ek. 115 þús. km. Niss-
an Almera '98 árgerð, 5 dyra með
álfelgum og CD. Í mjög góðu
standi, algjör gullmoli! Ekinn 115
þús. Verð 500 þús. Upplýsingar
í síma 864 5644.
18 fm bílskúr í Árbæ til sölu.
Skúrinn ca 10 ára án rafmagns
og hita. Tilvalinn sem geymsla
fyrir húsvagninn o.fl. Verð 1.3 m.
Sími 894 6868.
Jeppar
Chevrolet Trailblazer árg. 2004,
ekinn 45 þús. Einn með öllu, V8.
7 manna. Uppl. í síma 825 6144.
Fellihýsi
Tilboð óskast í Palomino Must-
ang, árg. 2003. Vel með farinn,
sólarsella, loftnet, ísskápur, heitt
vatn, wc, fortjald, utanáliggjandi
sturta, góðar græjur.
Upplýsingar í síma 869 2024.
Húsviðhald
Lyftuþjónusta Hágmarksþjónusta
á lágmarksverði. Áratuga reynsla.
Sérfræðiþjónusta fyrir LM og
H&S lyftur, s. 588 8180,
f. 588 9180, orms@simnet.is
Heilsárshús
Annað heimili norðanlands. Er
draumurinn að eignast annað
heimili norðanlands? Ef svo er
skoðaðu þá heimasíðu mína
simnet.is/swany því draumahúsið
er til sölu með fallegum húsgögn-
um.
Kerrur
Skoðaðu úrvalið hjá:
Bæjardekk Mosfellsbæ, 566 8188
Hyrnan Borgarnesi, 430 5565
Gúmmíbátaþjónustan Ísafirði,
470 0836
Bílaþjónustan Vogum, 424 6664
Brenderup 3205 S. Öflug heimili-
skerra. Pallmál: 204x142x35 cm,
heildarþ. 750 kg. Verð kr. 130.000
m/vsk.
Sími 421 4037
lyfta@lyfta.is
www.lyfta.is
Varahlutir
Jeppapartasala Þórðar,
Tangarhöfða 2, sími 587 5058
Nýlega rifnir Patrol '95. Legacy
'90-'99, Grand Vitara '00, Kia
Sportage '02, Pajero V6 92', Terr-
ano II '99, Cherokee '93, Nissan
P/up '93, Vitara '89-'97, Impreza
'97, Isuzu pickup '91 o.fl.
569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Nýlegar 15" flottar álfelgur með
nýjum heilsársdekkjum, 215/80/
15. Passar t.d undir Suzuki Vitara,
Kia, Ferosa og Lödu Sport.
Verð 65 þúsund kr.
Upplýsingar í síma 868 0465.
Hjólbarðar
SAAB 95 til sölu Til sölu SAAB
95 station, árgerð 2000, ekinn
129.800 km. Reyklaus bíll.
Einn eigandi. Þjónustubók.
Engin skipti. Verð kr. 1.650.000.
Upplýsingar í síma 893 6741.
Bílar
VW Passat, árg. '99, ek. 87 þús.
km. Til sölu fallegur, góður og vel
með farinn bíll. Ný tímareim o.fl.
Vetrar- & sumardekk fylgja.
Möguleg skipti á ódýrari.
Verð 730 þús. Uppl. í s. 694 1883.
Hjólhýsi/Sumarbústaður 40 fer-
metrar. Rúmgóð stofa, eldhús,
barnah., hjónah., snyrting og sér-
bað. Hús með öllu á frábæru
verði. Til afgreiðslu á höfuðborg-
arsvæðinu. Myndir fáanlegar
með tölvupósti. Sími 893 6020 milli
kl. 13 og 17 alla daga.
Hjólhýsi
Námskeið
Námskeið í tréskurði. Kennsla
hefst í sept.-okt. Örfá pláss laus.
Tréskurðarstofa Friðgeirs,
sími 896 6775.
Smáauglýsingar
sími 569 1100