Morgunblaðið - 04.09.2005, Side 46
46 SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Í dag kl. 16 nokkur sæti laus
13. sýn. fim. 8/9 kl. 19 nokkur sæti laus
14. sýn. laug. 10/9 kl. 16 nokkur sæti laus
Pakkið á móti
Örfáar aukasýningar:
Fös 9.sept kl. 20
Lau 10. sept kl. 20
Fös 16. sept kl. 20
Lau 17. sept kl. 20
Áskriftar-
kortasala
stendur
yfir
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
ENDURNÝJUN ÁSKRIFTARKORTA HAFIN
Nýja svið / Litla svið
HÖRÐUR TORFA LENGI LIFI
Ýmsir listamenn leika lög eftir Hörð í tilefni
60 ára afmælis listamannsins
Lau 10/9 kl. 21
REYKJAVIK DANCE FESTIVAL
Nútímadanshátíð 1.-4. September
Í dag kl 14 Heima er best - Barnasýning kr. 800
Í kvöld Kl 20 Who is the horse, Love story
Almennt miðaverð kr 2000KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Í dag kl 14,
Su 11/9 kl 14,
Su 18/9 kl 14,
Lau 24/9 kl. 14, Su 25/9 kl. 14
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Fi 8/9 kl. 20, Fö 9/9 kl 20, Lau 10/9 kl 20,
Su 11/9 kl 20 - UPPSELT, Fi 15/9 kl. 20
ENDURNÝJUN ÁSKRIFTARKORTA HAFIN!
Sala nýrra áskriftarkorta hófst laugardaginn 3. september - Það borgar sig að vera áskrifandi -
KYNNING LEIKÁRSINS
Leikur, söngur, dans og léttar veigar
Su 11/9 kl 20 - Opið hús og allir velkomnir
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20:00 Klaufar og kóngsdætur sun. 4/9 kl. 14:00,
sun. 18/9 kl. 14:00, sun. 25/9 kl. 14:00. Edith Piaf sun. 18/9, fim. 22/9,
fös. 23/9, lau. 24/9. Kirsuberjagarðurinn – gestasýning fim. 8/9, fös.
9/9. Að eilífu – gestasýning lau. 10/9, sun. 11/9. SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ
KL. 20:00 Rambó 7 fös. 11/9, lau. 12/9. LITLA SVIÐIÐ KL. 20:00
Koddamaðurinn fim. 8/9, fös. 9/9, lau. 10/9, sun. 11/9.
Miðasalan er opin kl. 12:30-18:00 mánudaga og þriðjudaga.
Aðra daga kl.12:30- 20:00. Símapantanir frá kl. 10:00 virka daga.
midasala@leikhusid.is. Sími 551-1200. Miðasala á netinu:
www.leikhusid.is
Klaufar og kóngsdætur Edith PiafRambó 7
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
Laugarnestanga 70, 105 Rvík.
www.lso.is - lso@lso.is
Þriðjudagstónleikar
6. september kl. 20.30
Kvöldstund með
Fritz Kreisler
Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari og
Lincoln Mayorga píanóleikari
flytja verk og útsetningar
þessa ástsæla Vínarbúa.
Síðustu tónleikar sumarsins.
1.-4. SEPTEMBER
NÁNARI DAGSKRÁ: WWW.DANCEFESTIVAL.IS
REYKJAVÍK DANCE FESTIVAL
NÚTÍMADANSHÁTIÐ 2005 Who is the horse
Höfundar: Nadia Banine og Fred Gehrig
Dansarar: Nadia Banine og Fred Gehrig
Lovestory
Höfundur: Steinunn Ketilsdóttir
Dansarar: Steinunn Ketilsd. og Brian Gerke
Í BORGARLEIKHÚSINU
SUNNUDAGUR
4. sept.
BARNASÝNING Kl. 14.00
MIÐAVERÐ: 800 KR.
Heima er best
Danshöfundur: Ólöf Ingólfsdóttir
Dansarar: Guðrún Óskarsdóttir,
Lovísa Gunnarsdóttir og
Ólöf Ingólfsdóttir
SUNNUDAGUR
4. sept.
TVÖ VERK Kl. 20.00 VERÐ: 2.000 KR.
LOKADAGU
R
HÁTÍÐARIN
NAR
Bandaríski píanóleikarinnLincoln Mayorga er velþekktur vestan hafs. Hróð-
ur hans hefur líka borist hingað til
Evrópu, og þegar Fílharmóníu-
sveitin í Moskvu hélt sína fyrstu al-
amerísku tónleika í þíðunni árið
1988, var hann valinn til að vera
einleikari með hljómsveitinni.
Undanfarin ár hefur hann leikið
víða um Evrópu og í Rússlandi og
haldið tónleika í yfir 200 borgum í
Norður-Ameríku.
Lincoln hefur einnig sérstakan
áhuga á að leika léttari tónlist og
djass og var nýverið gestur þáttar-
ins Piano Jazz í Bandaríska ríkis-
útvarpinu, NPR. Hann var um ára-
bil píanóleikari Walt Disney
stúdíósins í Hollywood og lék meðal
annars í bíómyndunum Rósinni,
Harold & Maude og Splash, og í
sjónvarpsþáttunum Húsinu á slétt-
unni og Dallas. Hann var líka í hópi
þeirra sem sömdu tónlist fyrir þætt-
ina vinsælu, Fame. Hann hefur leik-
ið með tónlistarmönnum á borð við
Quincy Jones og Barböru Streis-
and.
En því er ég að rekja frægðar-
feril þessa manns; jú, hann er nú
hingað kominn og heldur tvenna
tónleika í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar. Í dag kl. 17 efnir hann
til tónleika sem hann kallar New
York Gershwins, en þar ætlar hann
að leika verk eftir Gershwin og
samferðarmenn hans og vini í New
York á árunum uppúr þarsíðustu
aldamótum. Á þriðjudagskvöld kl.
20.30 leikur hann með Hlíf Sigur-
jónsdóttur fiðluleikara í dagskrá
sem tileinkuð er verkum fiðlusnill-
ingsins Kreislers. „Við Hlíf ætlum
að spila bæði orginal verk eftir
Kreisler, og verk sem hann samdi í
anda genginna meistara og svo út-
setningar sem hann gerði fyrir
fiðlu og píanó á verkum annarra, –
til dæmis Brahms, Sarasate og Alb-
eniz.
Þessir tónleikar sýna því fjöl-
breytnina í verkum Kreislers, og ég
get sagt þér, að þótt verkin séu
smá, þá eru þau gríðarlega erfið í
flutningi.
Á tónleikunum í dag ætla ég hinsvegar að kynna Gershwin og
tónlistina í kringum hann í New
York á þriðja áratug tuttugustu
aldarinnar. Gershwin átti marga
góða vini í tónlistinni, og þeir urðu
nú ekki allir jafnfrægir og hann,
þótt þeir væru vissulega fínir tón-
listarmenn. Margir þeirra höfðu
áhrif á hann og til sumra þeirra má
rekja ýmislegt í Gershwin-stílnum
og því tónmáli sem varð svo vinsælt
á þeim árum.“
Lincoln Mayorga ætlar ekki bara
að spila, því milli verka ætlar hann
að segja sögur af Gershwin, – bæði
sögulegar frásagnir og skemmti-
sögur af Gershwin og þessu áhuga-
verða tímabili tónlistarsögunnar,
sem oft er kennt við Tin Pan Alley.
George Gershwin var eitt merk-
asta tónskáld Tin Pan Alley hóps-
ins, en nafngiftin á við um þá laga-
smiði og nótnaútgefendur sem nutu
hvað mestra vinsælda í New York í
lok nítjándu aldar og í byrjun þeirr-
ar tuttugustu, allt fram að krepp-
unni miklu, þegar plötur og útvarp-
ið leystu útgáfu stakra dægurlaga á
nótum af hólmi. Hver kannast ekki
við lög eins og Swanee og I got
Rhythm, bæði eftir Gershwin, Alex-
anders Ragtime Band eftir Irving
Berlin, og Shine on Harvest Moon,
eftir Noruh Bayes. Þetta eru senni-
lega vinsælustu lög Tin Pan Alley
tímans.
Lincoln Mayorgas ætlar að leikasyrpu af vinsælustu dægur-
lögum Gershwins frá þessum tíma,
en líka fleira, eins og Þrjár litlar
prelúdíur, sem eru sannköluð gleði-
verk, Impromtu í tveimur tónteg-
undum, Göngutúr með hund í
bandi, og Rialto Ripples; píanó-
músík úr Porgy og Bess.
Áhrif Gershwins á önnur tón-
skáld voru mikil, ekki síður í Evr-
ópu en vestan hafs. Á tónleikunum
sýnir Lincoln Mayorgas dæmi um
áhrif frá Gershwin og samtíma-
mönnum hans á franska tónskáldið
Debussy, og leikur bæði Claire de
lune og Golliwoggs Cake Walk, en
Debussy, Ravel og fleiri evrópsk
tónskáld höfðu þó líka áhrif á stíl
Gershwins. Tónleikarnir í dag
verða því með sögulegu ívafi, sem
ætti að vekja sérstakan áhuga
þeirra sem hafa áhuga á því tíma-
bili þegar dægurtónlistin var að
fæðast austur í henni Ameríku.
Gershwin og Kreisler
í Sigurjónssafni
’Gershwin átti margagóða vini í tónlistinni,
[…] og til sumra þeirra
má rekja ýmislegt í
Gershwin-stílnum.‘
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
Morgunblaðið/Ásdís
Lincoln Mayorgas píanóleikari spilaði í Húsinu á sléttunni og Dallas.
begga@mbl.is
ÚT er komin hjá
Máli og Menn-
ingu bókin
Krónprins-
essan eftir
danska rithöf-
undinn Hanne-
Vibeke Holst í
þýðingu Hall-
dóru Jóns-
dóttur.
Hanne-
Vibeke er, eins og segir í tilkynningu,
einn af vinsælli höfundum Danmerk-
ur. Þekktust er hún fyrir bókaröð sína
um blaðakonuna Theresu Skårup
sem selst hefur í hundruðum þús-
unda eintaka.
Krónprinsessan er spennandi
skáldsaga, segir í tilkynningu, og
segir frá Charlotte Damgaard sem
tekur við stöðu umhverfisráðherra.
Fylgst er með níu mánaða tímabili í
Lífi Charlotte og skyggnst á bakvið
tjöldin í heimi stjórnmálanna þar sem
launráð eru brugguð.
Hanne-Vibeke Holst er væntanleg
á Bókmenntahátíð sem fram fer í
september.
Spennusaga
Fréttasíminn
904 1100
Fáðu úrslitin
send í símann þinn