Morgunblaðið - 04.09.2005, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 2005 53
PRUFUR fyrir American Idol í
Memphis Tennessee, sem áttu að
vera á mánudaginn næsta, hafa
verið blásnar af vegna neyðar-
ástandsins við Mexíkóflóa. Tals-
maður Fox-sjónvarpsstöðvarinnar,
sem framleiðir þættina, segir að
ákveðið hafi verið að hætta al-
gjörlega við áheyrnarprufurnar,
svo borgaryfirvöld geti „einbeitt
sér að því að tryggja öryggi fórn-
arlambanna“. Næsta þáttaröð Am-
erican Idol hefst í janúar 2006.
Reuters
Carrie Underwood sigraði í síðustu
Idol-keppni.
Hætt við
Idol-prufur
vestra
ÍSLENSKA tilraunahreyfimyndin
Þröng sýn hlaut um síðustu helgi
fyrstu verðlaun í flokknum „Ný
form“ á alþjóðlegu stúdentakvik-
myndahátíðinni Karlovy Vary í
Tékklandi. Þessi kvikmyndahátið er
haldin af FAMU – Kvikmynda og
sjónvarpsskóla leiklistarskólans í
Prag en hann er einn elsti kvik-
myndaskóli í Evrópu, stofnaður 1947
og er hátíðin tengd hinni þekktu
kvikmyndahátíð Karlovy Vary.
Í umsögn dómnefndar um verð-
launaverkið sagði: „Tæknilega fram-
úrskarandi og fallegt en umfram allt
ótrúlega þroskað og næmt kvik-
myndaverk frá svo ungum manni.
Þetta er leikstjóri til að fylgjast með
í framtíðinni.“
Þröng sýn var jafnframt í keppni
á Norrænu kvikmyndahátíð ung-
menna sem haldin var í Tromsö fyrr
í sumar. Þar hlaut Þröng sýn verð-
laun fyrir bestu kvikmyndatónlist-
ina.
Þröng sýn er 20 mínútur að lengd
og segir sögu Arons sem er ungur
maður sem hefur áhyggjur af sam-
skiptum fólks og stöðu mannsins í
nútíma þjóðfélagi. Hann ákveður að
framkvæma tilraun og fylgjast með
viðbrögðum fólks við henni.
Guðmundur Arnar Guðmundsson,
annar tveggja leikstjóra mynd-
arinnar, segir að verðlaunin séu mik-
il og góð viðurkenning fyrir það fólk
sem stóð að kvikmyndinni. „Þetta er
stór og viðurkennd hátíð í þessum
geira og þetta mun án efa auðvelda
okkur inngöngu á fleiri hátíðir auk
þess sem verðlaunin auðvelda okkar
næstu skref í kvikmyndagerðinni.“
„Þröng sýn“ er tilraunamynd og
það endurspeglast í framleiðsluað-
ferð hennar. Myndin var fyrst tekin
upp með leikurum á stafrænt mynd-
band. Síðan var hún prentuð út,
ramma fyrir ramma, og almenningi
boðið að draga upp sína mynd eftir
þessum römmum. Yfir 1.350 manns
tóku þátt og drógu í gegn sína mynd
sem síðan voru skannaðar. Bak-
grunnar og önnur hreyfimyndagerð
var unnin af hópi ungra listamanna í
Reykjavík undir stjórn þeirra Guð-
mundar Arnar Guðmundssonar og
Þórgnýs Thoroddsen sem eru í senn
leikstjórar og framleiðendur
Þröngrar sýnar. Myndin er þeirra
fyrsta hreyfimynd. Tónlist mynd-
arinnar og hljóðvinnsla mynd-
arinnar var í höndum Guðmundar
Steins Gunnarssonar, Hallvarðs Ás-
geirsonar og Páls Ívans Pálssonar.
Meðframleiðandi myndarinnar er
CAOZ hf. og myndin var framleidd
með stuðningi frá Kvikmynda-
miðstöð Íslands, Reykjavíkurborg
og átaksins Ungt fólk í Evrópu.
Kvikmyndir | Íslendingar hljóta verðlaun
Sigruðu í Prag og Tromsö
Úr kvikmyndinni Þröng sýn.
KRINGLAN AKUREYRI KEFLAVÍK
6
DUKES OF HAZZARD kl. 8 - 10
RACING STRIPES m/ísl.tali. kl. 2 - 4 - 6
HERBIE FULLY LOADED kl. 6 - 8
MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 2 - 4
SKELETON KEY kl. 10
DÝRLEGT GRÍN
OG GAMAN OG
FRÁBÆR
SKEMMTUN
FYRIR ALLA.
DÝRIN TALA OG ÞAÐ MEÐ STÆL.
SEBRAHESTUR ER ÁKVEÐINN AÐ
GERAST VEÐHLAUPA HESTUR
HVAÐ SEM TAUTAR. FRÁBÆR
DÝRLEGT GRÍN OG GAMAN OG FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR ALLA. DÝRIN TALA OG ÞAÐ
MEÐ STÆL. SEBRAHESTUR ER ÁKVEÐINN AÐ GERAST VEÐHLAUPAHESTUR HVAÐ SEM
TAUTAR.
SÝND BÆÐI
MEÐ ENSKU
OG
ÍSLENSKU
TALI
SÝND MEÐ ENSKU TALI
THE ISLAND kl. 8 - 10.30 B.i. 16 ára.
THE ISLAND VIP kl. 3.30
MADAGASCAR m/ensku tali kl. 6
MADAGASCAR m/ísl.tali kl. 2 - 4
DUKES OF HAZZARD kl. 6 - 8 - 10
RACING STRIPES m/ísl.tali. kl. 2 - 4
HERBIE FULLY LOADED kl. 4
MADAGASCAR kl. 2
BÍTLABÆRINN KEFLAVÍK kl. 6
HOSTAGE kl. 8 - 10
NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA ÍSLENSKA
DRAUMSINS OG MAÐUR EINS OG ÉG
S.V. / Mbl.. . / l.
HÁDEGISBÍÓ AR MYNDIR KL. 12 UM HELGAR Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
DUKES OF HAZZARD kl. 6.30 - 8.30 - 10.40
RACING STRIPES m/ísl.tali kl. 12 - 2.10 - 4.20 - 6
HERBIE FULLY... kl. 12 - 2.10 - 4.20 - 6.30 - 8.30
DECK DOGZ kl. 8.30 - 10.30
MADAGASCAR m/ísl.tali kl. 12 - 2 - 4
BATMAN BEGINS kl.10.30 B.i. 12 ára.
HANN ER RÖNG HESTATEGUND... EN MEÐ RÉTTU SAMBÖNDIN! ... I !