Morgunblaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 1
Mögnu› tilbo› á
n‡jum vörum
Falleg saga
sérstæðs manns
Hilmir Snær í einleiknum Ég er
mín eigin kona | Menning
Bílar og Íþróttir í dag
Bílar | Íslenskur ferðabíll Reynsluakstur Lítil aukning í hlut-
falli dísilbíla Graversen meistari Íþróttir | Þórður á heimleið frá
Stoke Birgir Leifur setur markið hátt Sterkt lið Pólverja
STOFNAÐ 1913 264. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
BIRGIR Ísleifur Gunnarsson, for-
maður bankastjórnar Seðlabanka Ís-
lands, tilkynnti á blaðamannafundi í
gær að stýrivextir bankans yrðu
hækkaðir um 0,75 prósentustig. Þar
með verða þeir 10,25% en hækkunin
tekur gildi 4. október nk.
Í máli Birgis kom fram að ójafn-
vægi í þjóðarbúskapnum hefur auk-
ist síðan síðast var tilkynnt um
hækkun stýrivaxta í júní sl. og að það
sé nú mun meira en um langt skeið.
Aðstæður séu áþekkar því sem var á
árunum 1999 til 2000 en ójafnvægið
jafnvel meira nú.
Verðbólga í september var 4,8% á
ársgrundvelli og að sögn Birgis eru
verðbólguhorfur til næstu tveggja
ára óviðunandi en verðbólguhorfur
til næsta árs hafa versnað frá því
fyrr á þessu ári. Verðbólgumarkmið
Seðlabankans er 2,5% og eru efri
þolmörk þess við 4% en í máli Birgis
kom fram að verði ekkert aðhafst
muni verðbólgumarkmiðið ekki nást
fyrr en árið 2008.
Það er Seðlabankanum afar mik-
ilvægt að njóta trúverðugleika og
sagði Birgir að með því að hækka
stýrivexti svo mikið sem raun ber
vitni takist vonandi að sannfæra þá
sem efast um getu bankans til þess
að halda verðlaginu í skefjum um að
honum sé full alvara með að halda
verðbólgu sem næst verðbólgumark-
miðinu. Hann boðaði aukið aðhald í
peningastefnunni og gaf sterklega í
skyn að til þess að framfylgja því
markmiði myndi bankinn hækka
vexti enn meira ef nauðsyn krefði.
Hann gagnrýndi aðila sem hafa
leitt að því getum að bankinn muni
draga úr aðhaldi sínu á næsta ári og
nefndi þar sérstaklega greiningar-
deildir bankanna. Hann segir þessar
væntingar vera óraunsæjar og tefja
þær að hans sögn fyrir miðlun pen-
ingastefnunnar.
Aukið aðhald boðað
í peningastefnunni
Morgunblaðið/RAX
Birgir Ísleifur Gunnarsson tilkynnti um hækkun stýrivaxta og fór yfir ástandið í þjóðarbúskapnum.
Stýrivextir
hækka um 0,75
prósentustig
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
Tíunda hækkun | Miðopna
MARGIR ölvinir eiga að sögn danska
dagblaðsins Jyllandsposten við þann
vanda að stríða að þegar setan á
kránni er orðin löng er oft erfitt,
vegna verkfalla í raddböndum og
fleiri líffærum, að panta meira þegar
kollan er tóm. En þýskir uppfinn-
ingamenn hafa fundið lausn.
Þeir Andreas Butz við háskólann í
München og Michael Schmitz við há-
skólann í Saar hafa hannað glasa-
mottu sem gerð er úr málmplötu og
er hún klædd pappír að ofanverðu. Á
milli laga er skynjari sem mælir
þyngdina á bjórglasinu og innihald-
inu. Þegar ákveðinni lágmarksþyngd
er náð sendir búnaðurinn frá sér raf-
eindaboð í borðtölvu á barnum. Fær
barþjónninn þar boð um að fylla und-
ireins kolluna hjá umræddum gesti
áður en neyðarástand skapast.
Sírennsli
á kránni
BÓLUEFNI er orðið ódýrara og
aðgengilegra en áður gerðist en
samt skortir mikið á að nóg sé gert
af því að bólusetja börn og barns-
hafandi konur í þróunarlöndunum,
að sögn Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna, UNICEF. Yfir 70%
barna í heiminum hafa síðan 1990
verið bólusett reglulega ár hvert
gegn sjúkdómum eins og misling-
um, flensublóðfíkils-lungnabólgu,
kíghósta og stífkrampa. En millj-
ónir barna deyja enn ár hvert af
völdum sjúkdóma sem hægt er að
verjast með bólusetningu.
Ný skýrsla frá Barnahjálpinni
var kynnt í gær. „Áætlað er að
bólusetning komi nú þegar í veg
fyrir dauðsföll um tveggja millj-
óna barna undir fimm ára aldri,“
segir bandarískur yfirmaður
UNICEF, Ann M. Veneman. Seg-
ir hún að bólusetning sé áhrifarík-
asta og ódýrasta aðferð sem vitað
sé um til að bjarga lífi barna. Um
27 milljónir barna og 40 milljónir
þungaðra kvenna eru ekki bólu-
settar og í 41 landi er minna bólu-
sett en fyrir áratug. Um 10,6 millj-
ónir barna undir fimm ára aldri
deyja ár hvert í heiminum og er
talið að koma mætti í veg fyrir 1,4
milljónir umræddra dauðsfalla
með einfaldri bólusetningu.
Sums staðar hefur samt náðst
góður árangur í fátækum löndum,
árið 2003 voru um 84% barna í
Eþíópíu bólusett en hlutfallið var
aðeins 18% árið 1990. Einnig hefur
bólusetningum fjölgað mikið í Úg-
anda og Níger. Dauðsföllum
vegna mislinga hefur fækkað um
nær helming í heiminum á síðustu
fimm árum.
Hægt að bjarga
yfir milljón börnum
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Reuters
SEÐLABANKINN hefur ekki önn-
ur ráð en að hækka stýrivexti til að
bregðast við sívaxandi verðbólgu,
að mati þeirra Grétars Þorsteins-
sonar, forseta Alþýðusambands Ís-
lands, og Hannesar G. Sigurðs-
sonar, aðstoðarframkvæmdastjóra
Samtaka atvinnulífsins.
Hannes segir að svo virðist sem
Seðlabankinn sé einn á báti í barátt-
unni gegn verðbólgu. Önnur hag-
stjórnartæki virki ekki með pen-
ingamálastefnu bankans. Hann
leggur m.a. til að reynt verði að
draga úr miklum lánveitingum á
íbúðalánamarkaði.
Grétar segir að verkalýðshreyf-
ingin og fleiri hafi gagnrýnt stjórn-
völd fyrir hvernig haldið hafi verið
á málunum. Þar sé að finna umtals-
verðan hluta skýringa á þróun
verðbólgunnar.
Seðlabankinn einn á báti
RAGNHEIÐUR Ragnarsdóttir
sundkona, sem býr í bænum Oxn-
ard í um 40 km fjarlægð frá Los
Angeles, sagðist í gær hafa orðið
mjög vör við áhrif skógarelda sem
þar geisa, þegar hún ók í átt að Los
Angeles. Við heimili hennar gætir
þó ekki nema lítils öskufalls.
„Þegar við keyrðum aðeins í suð-
urátt var eins og öskunni snjóaði af
himnum,“ sagði hún. „Mörgum göt-
um hefur verið lokað og fólki hefur
verið ráðlagt að vera innandyra.
Þegar við keyrðum sunnar var
ástandið orðið þannig að það var
ekki hægt að vera úti.“
Mörg hundruð manns hafa orðið
að flýja heimili sín vegna eldanna,
sem kviknuðu á miðvikudag
skammt frá Chatsworth í San Fern-
ando-dalnum, um 50 km frá mið-
borg Los Angeles. Um þrjú þúsund
slökkviliðsmenn börðust við eldana
í gær.
Reuters
Unnið að slökkvistörfum skammt
sunnan við Los Angeles í gær.
„Öskunni
snjóaði af
himnum“