Morgunblaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 14 ára
Verðið á karlhórum hefur lækkað
töluvert fyrir evrópskar konur!
Sprenghlægileg gamanmynd!
Sýnd kl 4 í þrívíddSýnd kl. 10
Sýnd kl. 8
Göldrótt gamanmynd!
Göldrótt
gamanmynd!
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
VARÚÐ: Þú gætir
farið úr kjálkaliðum
af hlátri
Night Watch is F***ING COOL!
Quentin Tarantino
i t t i I !
ti r ti
Sýnd kl. 8 og 10.30 b.i. 16 ára
Ó.H´T RÁS 2
Sýnd kl 4
Sími 564 0000í i
Miða sala opn ar kl. 15.15i l l. .
Sýnd kl. 4 og 6 íslenskt tal
BETRA SEINT EN ALDREI
kl. 4, 6, 8 og 10
HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES CRAVEN
LEIKSTJÓRA SCREAM MYNDANNA.
Óbeint framhald af
þáttaröðinni Jesú og
Jósefína sem var sýnd
við miklar vinsældir
á Stöð 2 síðustu jól.
Í þessari mynd fylgjumst við
áfram með tímafl akki Jósefínu
og þeim ævintýrum sem
hún lendir í þegar hún
fl akkar aftur í miðaldir!
HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES
CRAVEN LEIKSTJÓRA SCREAM
MYNDANNA.
Sýnd kl. 6, 8, 10 og 12 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 6
Skemmtilega ævintýramynd
með íslensku tali.
Í þessari mynd fylgjumst við áfram með tímafl akki
Jósefínu og þeim ævintýrum sem hún lendir í
þegar hún fl akkar aftur í miðaldir!
POWER
SÝNIN
G KL.
12 Á M
IÐNÆT
TI
Skemmtilega ævintýramynd
með íslensku tali.
RACHEL
McADAMS
CILLIAN
MURPHY
RACHEL
McADAMS
CILLIAN
MURPHY
VJV, Topp5.is
VJV, Topp5.is
Miðaverð 450 kr.
Alþjóðlega kvikmyndahá-tíðin í Reykjavík hófst ígær eins og alþjóð veiten á henni mun kenna
ýmissa kvikmyndagrasa.
Í kvöld og á föstudaginn eftir
viku verður undir miðnætti efnt til
kvikmyndaveislna sem helgaðar
eru „költ-myndum“. Á vef hátíð-
arinnar er sagt að hér sé um að
ræða hvers kyns hrollvekjur sem
eiga sér stóran og dyggan aðdá-
endahóp en hljóta jafnan takmark-
aða náð fyrir augum sjálfskipaðra
menningarvita sem telja slík verk
tilheyra „óæðri enda“ kvikmynda-
listarinnar.
Á morgun munu uppvakningar
og keðjusagarmorðingjar leggja
undir sig hið virðulega og sögu-
fræga kvikmyndahús Tjarnarbíó en
þá verður dagskráin helguð hroll-
vekjum.
Páll Óskar sýningarstjóri
Það er tónlistarmaðurinn og
kvikmyndaáhugamaðurinn Páll
Óskar Hjálmtýsson sem rennur á
vaðið og sýnir myndirnar Night of
the Living Dead og Texas Chain-
saw Massacre af 8mm filmum úr
einkasafni sínu.
Aðspurður um kveikjuna á áhuga
hans á hrollvekjum segir Páll Ósk-
ar að hana sé líklega finna aftur í
barnæsku.
„Þegar ég var krakki sökkti ég
mér ofan í Grimms-ævintýri og
sögur H.C. Andersen. Þegar ég var
svo tólf ára horfði ég á tuttugu
mínútna búta úr Carrie og The Ex-
orcist á svona Super 8mm formi en
þannig horfði fólk á myndir áður
en VHS video kom til sögunnar og
ég sá það strax að það er ekkert
voðalega langur vegur á milli
Grimms-ævintýranna og hryllings-
mynda.“
Persónur af holdi og blóði
Páll Óskar segist hafa fengið
bakteríuna um leið og fóstrað hana
í gegnum árin. Spurður hvort að
sérstakir persónuleikar sæki í
þessar hryllingsmyndir segir Páll
Óskar að hann hafi á lífsleiðinni
kynnst ólíkasta og ótrúlegasta fólki
sem deili þessum áhuga með hon-
um.
„Enda er hægt að sækja svo
margt í þær og mikla lífsspeki.“
Um myndirnar tvær sem sýndar
verða segir Páll Óskar að þær séu í
raun fremstar meðal jafningja.
Fyrir utan að vera algjör klassík
eigi þær líka svo margt sameig-
inlegt.
„Þær eru báðar gerðar fyrir utan
Hollywood af sjálfstæðum kvik-
myndagerðarmönnum og báðar
þessar myndir breyttu frásagn-
artækninni, öllu því sem við áttum
að venjast frá hryllingsmyndum á
þessum tíma. Svo skiptir sköpum
að persónurnar eru af holdi og
blóði og bregðast við eins og við
myndum sjálf gera ef hinir dauðu
myndu rísa úr gröfum sínum og
byrja að éta okkur.“
Höfn í Hornafirði
Um áhrifamátt þessara mynda á
kvikmyndaiðnaðinn allan vill Páll
Óskar meina að hann verði seint
ofmetinn.
„Báðar þessar myndir eru sann-
arlega óháðar myndir sem nutu
gríðarlegrar velgengni að þá blésu
þær þrótti og bjartsýni í brjóst
sjálfstæðra kvikmyndagerð-
armanna. Night of the Living Dead
frá 1968 var upphafið að byltingu í
sjálfstæðri kvikmyndagerð og
margir sjálfstæðir kvikmyndagerð-
armenn – sem voru ekkert endilega
að gera hryllingsmyndir – öðluðust
kjark til að gera fína og flotta bíó-
mynd í fullri lengd fyrir mjög lítinn
pening. Night of the Living Dead
var gerð af áhugaauglýsingaleik-
stjórum og áhugaleikurum í Pitt-
sburgh og það er eins og að gríð-
arlega vinsæl hryllingsmynd kæmi
allt í einu frá Höfn í Hornafirði.“
Miðnætursnarl og bílabíó
Hryllingskvöldið hefst klukkan
23 en áður en fyrsta mynd kvölds-
ins hefst, heldur Páll Óskar smá
tölu.
„Það verður mikið stuð og
stemmning og svo verður boðið
upp á miðnætursnarl að hætti
gömlu bílabíóanna. Myndirnar
verða sýndar á filmu, beint af
negatívunum, þannig að það verða
upprunalegar rispur með og allt og
svo er ég búinn að klippa fyrir
framan og aftan auglýsingar og
sýnishorn frá öðrum bíómyndum
frá þessum tíma þegar myndirnar
voru sýndar í lok sjöunda áratug-
arins og í byrjun þess áttunda.“
Helgina eftir, föstudaginn 7.
október, verður heimildarmyndin
Midnight Movies: From the Marg-
in to the Mainstream sýnd, en hún
fjallar um miðnæturmyndir sem í
dag teljast sígildar. Leikstjórinn
Stuart Samuels verður viðstaddur
frumsýninguna. Þá verður súrreal-
íska martröðin Eraserhead eftir
David Lynch einnig sýnd.
Kvikmyndir | Páll Óskar stýrir hrollvekjukvöldi í Tjarnarbíói – keðjusagir og uppvakningar
Upphafið að
byltingu
Morgunblaðið/Kristinn
Páll Óskar er mikill áhugamaður um hrollvekjur ýmiss konar.
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
Miðnæturbíó í Tjarnarbíó hefst í
kvöld kl. 23. Sýndar verða mynd-
irnrar Night of the Living Dead og
Texas Chainsaw Massacre. Miða-
verð er 1.000 krónur.