Morgunblaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hún á afmæli á morgun HALLDÓR Ásgríms- son forsætisráðherra segist fagna þeirri nið- urstöðu umboðsmanns Alþingis að engar for- sendur séu fyrir því að embættið taki til athug- unar þau atriði sem stjórnarandstaðan hafi farið mikið um á undan- förnum mánuðum, varð- andi einkavæðingu rík- isbankanna. „Það er alveg ljóst að álit ríkisendurskoðanda stendur óhaggað, þ.e. að ég hafi ver- ið hæfur til þess að fjalla um þessi mál á vettvangi ráðherranefndarinn- ar. Mér finnst að stjórnarandstaðan eigi að vera ánægð með þessa nið- urstöðu líka og vonast eftir því að þeir geti beint kröftum sínum að því sem lýtur að framtíð- inni.“ Aðspurður segist Halldór ekki líta á það sem svo að í spurning- um umboðsmanns Al- þingis felist ákveðin gagnrýni á hvernig hafi verið staðið að einkavæðingarferlinu. „Þessar reglur voru settar árið 1996 og menn hafa lært heil- mikið á þessum tíma. Ég er þeirrar skoðun- ar að einkavæðing Símans hafi tekist mjög vel og ég hef í embætti forsætisráðherra ekki feng- ið miklar athugasemdir við það. Við lögðum mikið upp úr því að það væri vandað til þess á allan hátt og ég tel að það hafi tekist. Við höfum í fram- haldinu af því verið að líta á þessa reynslu og fara yfir málið í ljósi þess, þannig að við erum vel undir það búnir að svara þessum spurningum umboðsmanns og getum gert það til- tölulega fljótlega,“ segir Halldór og bætir því við að það verði fyrir til- settan tíma. Engar athugasemdir við spurningar umboðsmanns Auk þess kveðst Halldór engar at- hugasemdir hafa við spurningar um- boðsmanns Alþingis sem muni fá svör við spurningunum á undan öðr- um. Aðspurður segir hann að spurn- ingunni varðandi vanhæfi sitt hafi verið svarað fyrir fullt og allt. „Alþingi hefur tvær eftirlitsstofn- anir og stjórnarandstaðan hefur leit- að bæði til ríkisendurskoðanda og umboðsmanns Alþingis um þetta sama mál og farið afskaplega mikinn með margvíslegar fullyrðingar. Ég vona að það sé mál að linni,“ segir Halldór. Halldór Ásgrímsson fagnar niðurstöðu umboðsmanns Alþingis Halldór Ásgrímsson Eftir Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is Telur enga gagnrýni felast í spurningum umboðsmanns FORMENN stjórnarandstöðu- flokkanna á Alþingi eru ánægðir með að umboðsmaður Alþingis skuli hefja úttekt á stöðu mála og vinnubrögðum er tengjast einka- væðingarferlinu. Þeir segja um- boðsmann í bréfi sínu, sem greint var frá í Morgunblaðinu í gær, spyrja Halldór Ásgrímsson for- sætisráðherra lykilspurninga en hefðu viljað sjá skoðun umboðs- manns á hæfi ráðherrans í að taka þátt í einkavæðingu bankanna. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, kveðst fagna út- tektinni. „Umboðsmaður sér greinilega ástæðu til að afla viðamikilla upp- lýsinga um hvernig að þessu er staðið, og þær snúa auðvitað að framkvæmdinni hingað til, og spyr í raun og veru allra lykilspurning- anna sem þarf að spyrja. Það er að segja um þessa lögformlegu eða stjórnsýslulega stöðu einkavæðing- arnefndar og ráðherranefndar um einkavæðingu. Hann spyr hvort til standi að setja lög um þessa fram- kvæmd og hann spyr um hvernig farið hafi verið með möguleg van- hæfistilvik,“ segir Steingrímur og bætir því við að umboðsmaður Al- þingis gefi fyllilega til kynna að hann kunni að aðhafast frekar í málinu. Grunsemdir hafa vaknað „Fyrir mitt leyti les ég út úr við- brögðum umboðsmanns verulega gagnrýni á framkvæmdina. Ég held að það sé erfitt að túlka ákvörðun hans um að aðhafast ekki öðruvísi en svo að það hljóti að hafa vaknað grunsemdir um að þarna sé ýmsum hlutum ábóta- vant.“ Steingrímur segir að hann hefði helst kosið að umboðsmaður Al- þingis hefði tekið málið í heild sinni og þar með talið það sem varðar mögulegt vanhæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra. Mikilvægar spurningar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, kveðst vera tiltölulega sátt við nið- urstöðu umboðsmanns Alþingis. „Auðvitað hefði ég kosið að hann tæki til skoðunar hæfi Halldórs Ásgrímssonar í málinu, en átti allt eins von á því að hann myndi ekki gera það enda langt um liðið. Þetta er auðvitað alfarið hans ákvörðun og ég beygi mig undir hana.“ Hún telur mikilvægt að umboðs- maður Alþingis sendi spurningar er varða einkavæðingarferlið til forsætisráðuneytisins, og þær reglur sem hafa gilt um það. „Hann spyr um lagarammann og hvort það standi til að setja um þetta lög, og vísar til þess að rík- isendurskoðandi hafi m.a. bent á að þetta væri nokkuð óljóst, þessi verka-, ábyrgðar og valdaskipting milli einkavæðingarnefndar og framkvæmdanefndar um einka- væðingu. Hann spyr líka hvaða hæfisreglur hafi gilt og með hvaða hætti menn hafi gert grein fyrir hæfi sínu ef þeir hafi talið að van- hæfisástæður kynnu að vera fyrir hendi.“ Ingibjörg segist hafa verið lengi þeirra skoðunar að sérkennilegt væri að ekki væri til lagarammi um einkavæðingu. Sú einkavæðing sem þegar hafi átt sér stað hafi verið gerð á grundvelli verklags- reglna sem voru samþykktar í rík- isstjórn en eigi sér ekki lagastoð. Þarna hafi miklir hagsmunir verið á ferðinni og því mikilvægt að allt ferlið væri gagnsætt og hægt að staðreyna það. Klaufalegt hjá ráðherra Guðjón A. Kristjánsson, formað- ur Frjálslynda flokksins, kveðst ekki vera ósáttur við að umboðs- maður Alþingis spyrji forsætis- ráðuneytið um þær reglur er varði einkavæðingarferlið, hverjar þær séu og hvort menn hyggist breyta þeim í framtíðinni eða setja þær í ákveðnari farveg. Það sé af hinu góða. „Ég verð hinsvegar að segja al- veg eins og er að mér hefur fundist að þetta hafi verið afar klaufalegt hjá núverandi forsætisráðherra að vera þátttakandi í þessu ferli,“ segir Guðjón. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna segja umboðsmann Alþingis spyrja lykilspurninga um sölu ríkisbankanna Hefðu viljað sjá skoðun á hæfi forsætisráðherra Guðjón A. Kristjánsson Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Steingrímur J. Sigfússon Formaður VG segist sjá gagnrýni hjá umboðsmanni FÉLAGSMÁLA- og fjármálaráð- herra hafi komist að samkomulagi um niðurgreiðslu vaxtakostnaðar vegna byggingar fjögur hundruð leiguíbúða á ári næstu fjögur árin, en íbúðirnar eru einkum ætlaðar fé- lagasamtökum og sveitarfélögum. Árni Magnússon, félagsmálaráð- herra, segir að þetta sé framhald á samkomulagi sem gert hafi milli fé- lagsmála- og fjármálaráðherra fyrir fimm árum. Það samkomulag hafi verið tvíþætt og falið í sér annars vegar vaxtaniðurgreiðslur gagnvart almennum leiguíbúðarlánum og hins vegar gagnvart félagslegum leigu- íbúðarlánum. Samkomulagið nú feli í sér framhald á samningnum vegna félagslegra leiguíbúða, en þau lán hafi verið veitt með 3,5% vöxtum. Fyrst og fremst sé horft til félaga- samtaka og sveitarfélaga og slíkra aðila sem geti sótt um lán hvað þetta snerti. „Byggingarfélög námsmanna hafa verið að nýta þetta mjög mikið og þar er fyrirsjáanleg mikil þörf fram- undan vitum við,“ sagði Árni. Hann sagði að það væri ekki síst af þeim sökum sem þeir hefðu ákveðið að framlengja þennan lánaflokk. Þeir voni að þetta svari þeirri þörf sem sé fyrir hendi í stórum dráttum segir hann jafnframt aðspurður. „Við erum að koma til móts við þessi félög með sama hætti og áður. Þetta er út af fyrir sig tímabundin afgreiðsla í hvert skipti. Fyrra sam- komulagið var að renna út og okkur fannst ástæða að minnsta kosti um sinn að framlengja það og tryggja að þessi félög njóti sömu kjara og und- anfarin ár,“ sagði Árni einnig. Lánin verða áfram veitt með 3,5% vöxtum og bætir ríkissjóður muninn á vöxtunum og á almennum vöxtum íbúðalána eins og þeir eru hverju sinni, en þeir eru nú 4,15% eins og kunnugt er. Fer uppgjör vegna þessa fram í lok hvers árs og er áætl- að að árlegur vaxtamunur nemi um 33 milljónum króna miðað við 4,15% vexti og 16,2 milljóna króna meðal- lán vegna hverrar íbúðar. Samkomulag félags- og fjármálaráðherra Vextir áfram niður- greiddir vegna fé- lagslegra leiguíbúða ALÞJÓÐAMÁLASTOFNUN Há- skóla Íslands og Háskólinn í Beirút í Líbanon standa saman að þriggja daga ráðstefnu um Ísland og Líb- anon og áhrif Evrópusambandsins á þessi lönd. Ráðstefnan fer fram í Beirút dagana 30. september til 2. október. Tilgangurinn er að efla skilning og samskipti á milli land- anna og á milli íslenskra og líbanskra fræðimanna og skoða hvað er líkt og hvað ólíkt með löndunum sem standa hvort sínum megin við ESB. Fjórir íslenskir fræðimenn halda erindi, Davíð Þór Björgvinsson, dómari hjá Mannréttindadómstól Evrópu, Baldur Þórhallsson, dósent í stjórnmálafræði við HÍ, Guðmund- ur Hálfdánarson, prófessor í sagn- fræði við HÍ, og Ólafur Ísleifsson, lektor við HR. Ráðstefna í Beirút um Ísland og Líbanon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.