Morgunblaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LY
F
29
50
6
09
/2
00
5
www.lyfja.is
- Lifið heil
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni -
Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði -
Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi -
Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr reykingum.
Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því
hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar um notkun í fylgi-
seðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt
er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings
ef þörf er á frekari upplýsingumumlyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins,
nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota
Nicorette nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf nema að ráði læknis. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Geymið fylgiseðilinn.
Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
Nýtt í Lyfju
Nicorette Freshmint 210 stk.
20% afsláttur í september
LÁTTU REYKLAUSA DRAUMINN
RÆTAST
AFSLÁTTURINN GILDIR AF FRESHMINT 210 STK. 2 MG og 4 MG.
Ríkisútvarpið
hefur ráðið til sín
Jóhönnu Vil-
hjálmsdóttur til
starfa við nýjan
þátt Sjónvarps-
ins, sem kemur í
stað Kastljóss, en
þar er um að
ræða nokkra um-
breytingu á hinu
gamla Kastljósi.
Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri
Kastljóss, staðfestir þetta, en Jó-
hanna mun starfa við dagskrárgerð
við hlið fleiri kollega sinna. Auk Jó-
hönnu og Þórhalls, verða í starfsliði
þáttarins þau Kristján Krist-
jánsson, Sigmar Guðmundsson,
Þóra Tómasdóttir, Ragnhildur
Steinunn Jónsdóttir, Eyrún Magn-
úsdóttir og Jónatan Garðarsson, en
Egill Eðvarðsson er framleiðslu-
stjóri þáttanna. „Þetta er sterkur
hópur fólks og stórt verkefni sem
við erum að takast á við,“ segir
Þórhallur.
Jóhanna til RÚV
Jóhanna
Vilhjálmsdóttir
ÞÓRIR Guð-
mundsson, yf-
irmaður út-
breiðslusviðs
Rauða krossins,
hefur verið ráð-
inn sem vara-
fréttastjóri
Stöðvar tvö og
lætur því af
starfi hjá RKÍ
eftir tæplega
áratug í starfi. Fram kemur á
heimasíðu Rauða krossins að Þórir
sinnir áfram starfi sínu þar í októ-
ber, samhliða starfinu á Stöð 2.
Þ́órir aftur til
Stöðvar 2
Þórir
Guðmundsson
NAUÐSYNLEGT er að auka sjálf-
stæði heimilislækna og stuðla að vali
og fjölbreytileika í grunnþjónustu
við sjúklinga til að tryggja hag
þeirra og heimilislækna, segir meðal
annars í niðurstöðum skýrslu sem
unnin hefur verið á vegum Lækna-
félags Íslands og kynnt verður og
rædd á aðalfundi félagsins í dag.
Samkvæmt niðurstöðum skýrsl-
unnar verður þetta aðeins gert með
samningi um sjálfstætt starfandi
heimilislækna sem dragi úr þeirri
miðstýringu sem nú ríki í kerfinu.
Sigurbjörn Sveinsson, formaður
Læknafélags Íslands, sagði í samtali
við Morgunblaðið að starfshópur
hefði verið settur á laggirnar á síð-
asta aðalfundi Læknafélagsins undir
forystu Elínborgar Bárðardóttur,
formanns Félags íslenskra heimilis-
lækna. Tilgangurinn væri að reyna
að endurreisa sjálfstæðan heimilis-
læknarekstur og benda á að það
kynnu að vera aðrir möguleikar en
heilsugæslustöðvarnar í þessum efn-
um, að minnsta kosti hér í þéttbýl-
inu.
Sigurbjörn benti á að þetta hefði
verið reynt bæði í heilsugæslunni í
Lágmúla og nú síðast í Salastöðinni,
en það væri í of litlum mæli og að
margra mati mætti reksturinn vera
enn sjálfstæðari og óháðari ríkinu en
hann væri.
Hann bætti því við að það kerfi
sem gilt hefði um heimilislækna
hefði ekki verið leyft að þróast. Þeir
hefðu ekki fengið að endurnýja sig
og samningur þeirra hefði ekki verið
færður í nútímalegt horf. Þannig
hefði ekki verið grundvöllur til þess
að vera með mikinn samrekstur og
fjölþættari starfsemi en grunnlækn-
ingar.
Í skýrslunni segir að baráttan hafi
snúist um „að fá ríkisvaldið til að
skilja að til að ná markmiðum um öfl-
uga grunnþjónustu þarf að efla
starfsumhverfi heimilislækna. Það
verður hins vegar aðeins gert með
því að bæta kjör heimilislækna og
starfsumhverfi til jafns við aðra sér-
greinalækna.“
Fram kemur að athyglisvert sé að
hjá nágrannaþjóðum okkar byggist
kerfið meira á sjálfstætt starfandi
heimilislæknum og að þróunin virð-
ist vera í þá átt. Bent er á að starf-
semi sjálfstætt starfandi heimilis-
lækna geti verið staðsett hvar sem er
og að skjólstæðingar geti valið sér
lækni svo lengi sem listi læknisins sé
opinn, tengsl þeirra haldist svo lengi
sem skjólstæðingurinn óski og rofni
ekki þótt hann flytjist á milli íbúðar-
hverfa.
Fram kemur einnig að þrennt
þurfi að koma til uppbyggingar sjálf-
stætt starfandi heimilislækna. Í
fyrsta lagi vilja og framkvæmd ráð-
herra heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins. Í öðru lagi þurfi að
gera nýjan samning við sjálfstætt
starfandi heimilislækna og í þriðja
lagi verði að skilgreina fjölda heim-
ilislækna á Íslandi og sé það samn-
ingsatriði milli ráðuneytisins og
Læknafélags Íslands.
„Vilji er allt sem þarf“
„Samkvæmt viljayfirlýsingu ráð-
herra frá nóvember 2002 virtist
samningur um sjálfstætt starfandi
heimilislækna vera í höfn en því mið-
ur hefur enn ekki verið sest að samn-
ingaborðinu. Eins og greint er frá í 9.
kafla í þessari skýrslu liggur fyrir að
samkvæmt núgildandi löggjöf hefur
heilbrigðisráðherra víðtækar heim-
ildir til að haga almennri læknisþjón-
ustu heimilislækna með ýmsu móti –
vilji er allt sem þarf,“ segir einnig.
Stuðlað verði að fjöl-
breytileika í þjónustu
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
Skýrsla kynnt á aðalfundi Læknafélags Íslands í dag
MARGT manna samfagnaði Huldu
Valtýsdóttur, stjórnarmanni Árvak-
urs hf., útgáfufélags Morgunblaðs-
ins, fyrrverandi blaðamanni á
Morgunblaðinu, og formanni Skóg-
ræktarfélags Íslands þegar hún
fagnaði áttatíu ára afmæli sínu á
Kjarvalsstöðum í gær.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
borgarstjóri Reykjavíkur, þakkaði
Huldu störf hennar í þágu Reykja-
víkurborgar. Hulda var borg-
arfulltrúi um tíma og fyrsti formað-
ur menningarmálanefndar
borgarinnar. Þá þökkuðu Magnús
Jóhannesson, formaður Skógrækt-
arfélags Íslands, og Sigurður Blön-
dal, fyrrum skógræktarstjóri,
Huldu fyrir afar mikið starf hennar
í þágu skógræktar, og þar flutti
Sigurður Pálsson, skáld og for-
svarsmaður Yrkju, Huldu ljóð í til-
efni dagsins. Styrmir Gunnarsson
ritstjóri ávarpaði Huldu fyrir hönd
Morgunblaðsins, og margir fleiri
tóku til máls.
Á myndinni, sem tekin var í af-
mælisveislunni, er Hulda umkringd
leikurum sem heiðruðu hana með
atriði úr Dýrunum í Hálsaskógi, en
Hulda þýddi þetta sívinsæla verk
Thorbjörns Egners á íslensku. Á
myndinni eru f.v.: Þröstur Leó
Gunnarsson, Atli Rafn Sigurðarson,
Hulda Valtýsdóttir og Ragnheiður
Steindórsdóttir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hulda Valtýsdóttir áttræð
KONA slapp með minniháttar
meiðsl þegar fólksbíll hennar valt á
veginum um Mikladal, milli Pat-
reksfjarðar og Tálknafjarðar í gær-
morgun. Bíllinn er talinn ónýtur.
Verið er að leggja bundið slitlag
á veginn og er talið að konan hafi
misst stjórn á bíl sínum í lausri möl-
inni. Konan var ein í bílnum. Hún
var flutt á heilsugæslustöðina á
Patreksfirði til aðhlynningar.
Missti stjórn á
bílnum í lausamöl
LOFTSLAG og lífríki norðurheim-
skautsins er nú að fara í gegnum afar
hraðar og mögulega varanlegar
breytingar, ef marka má nýja
skýrslu sem stofnun um mat á lofts-
lagsáhrifum á norðurheimskauts-
svæðunum (ACIA) hefur skilað til
þjóðanna átta sem liggja að norður-
heimskautinu. Samkvæmt skýrsl-
unni bráðnar ís afar hratt og er
mögulegt að allur hafís verði horfinn
á sumrin einhvern tímann á árunum
2060–2100. Fréttavefur BBC greinir
frá þessu.
Í skýrslu ACIA, sem verður birt í
næstu viku, eru einnig viðraðar
áhyggjur af aukinni útfjólublárri
geislun, sem er afleiðing rýrnandi
ósonlags. Þá segir í skýrslunni að
næstu ár muni verða erfið fyrir vist-
kerfi norðurheimskautssvæðanna og
þær þjóðir sem þau byggja.
Það var norðurheimskautsráðið
sem bað um skýrsluna, en sæti í því
eiga Kanada, Danmörk, Finnland,
Ísland, Noregur, Rússland, Svíþjóð
og Bandaríkin.
Norðurheimskautið hlýnar enn
GANGI hugmyndir sænska fyr-
irtækisins Foxguard eftir verða
áfengismælar eða svokallaðir alkó-
lásar komnir í fyrstu bifreiðar at-
vinnubílstjóra hér á landi innan
fárra mánaða en fyrirtækið vinnur
nú hörðum höndum að því að kynna
vöruna. Kjartan Jónsson, talsmaður
Foxguard á Íslandi, segir alkólása
verða staðalbúnað í einkabílum í
framtíðinni en fyrirtækið einblíni á
atvinnubílstjóra, fyrirtæki með bíla-
flota og sveitarfélög sem kaupi til að
mynda skólaakstur. Alkólásinn virk-
ar þannig að ökumaðurinn verður að
blása í lítið tæki á stærð við farsíma
áður en hægt er að setja bifreiðina í
gang, og ekki er hægt að gangsetja
hana ef áfengismagn öndunarsýnis-
ins er of hátt.
Alkólásinn er þróaður í samvinnu
við breska fyrirtækið Lion en það
hefur séð sænsku lögreglunni fyrir
áfengismælum í áraraðir. Tækið er
þráðlaust og lítið fer fyrir því, ein-
ingu er komið fyrir undir mælaborð
bílsins og sendir alkólásinn boð í það
eftir að sýnið hefur verið gefið. Að-
eins tekur nokkrar sekúndur að fá
niðurstöðuna en hægt er að geyma
allt að fjögur þúsund niðurstöður í
tækinu. Kjartan segir flutningafyr-
irtæki hafa tekið því fagnandi og
auglýsa nú örugga og trygga flutn-
inga með áfengismæli í bílum sínum.
Morgunblaðið/Kristinn
Jón Kjartansson, starfsmaður
Foxguard, sýnir virkni mælisins.
Áfengis-
mælir fyrir
atvinnu-
bílstjóra