Morgunblaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 49 MENNING Félagsstarf Aflagrandi 40 | Bingó alla föstudaga kl. 14. Baðstofan er opin frá kl. 9–13 í dag. Sparikaffi kl. 15. Söngur og sam- vera, Arnbjörg við píanóið frá kl. 15.30. Endurvekjum sönggleðina, syngjum saman við undirleik. Ath. frjáls spilamennska alla daga, allir hjartanlega velkomnir. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, hárgreiðsla, fótaaðgerð, frjálst að spila í sal. FEBÁ, Álftanesi | FEBÁ-stafgangan. Gengið frá íþróttahúsinu mánudaga, miðvikudaga og föstudaga, mæting kl. 10 f.h. Athugið breyttan tíma. Guðrún, sími 565 1831. Haukshús kl. 13–16. Handverksklúbbur æfir munsturgerð og málar hús á grjót. Farið í grjótleið- angur um nesið, með Auði, ef veður leyfir. Kaffi að hætti FEBÁ. Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé- lagsvist verður spiluð í kvöld í Gjá- bakka kl. 20.30. Brids í Gjábakka í dag kl. 13.15. Félag eldri borgara, Reykjavík | Skemmtikvöld verður í kvöld, föstu- dag, 30. sept., kl. 20 í Stangarhyl 4, skemmtiatriði: m.a. lesin gamansaga, leiklestur, almennur söngur, gaman- þáttur, lagagetraun, dans o.fl. Skrán- ing í síma 588 2111. Félagsmiðstöðin, Gullsmára 13 | Gleðigjafarnir í Gullsmára. Eldri borg- arar safnast saman í Félagsheimilinu Gullsmára 13, Kópavogi, á föstudag kl. 14 og syngja saman hress og fögur ljóð og lög. Stjórnandi Guðmundur Magnússon. Kaffi og heimabakað meðlæti fáanlegt. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Fé- lagsvist í Garðabergi kl. 13 á vegum FEBG og FAG. Slökunarjóga og teygj- ur kl. 10.30 í Kirkjuhvoli, badminton kl. 13.10 í Mýri og Bútasaumur kl. 13.30 í Kirkjuhvoli. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. rósamálun. Kl. 10.30 létt ganga um nágrennið. Frá hádegi spilasalur opinn. „Hjáverk í amstri daga“, listmunasýning Einars Árnasonar, stendur yfir. Vetrardag- skráin komin. Allar uppl. á staðnum og í síma 575 7700. www gerduberg.is. Furugerði 1 | Í dag kl. 9 aðstoð við böðun. Smíðar og útskurður, enn eru laus pláss. Kl. 14.15 kemur Aðalheiður Þorsteinsdóttir og verður við píanóið fram að kaffi. Allir velkomnir. Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dag- blöðin, útskurður, baðþjónusta, fóta- aðgerð (annan hvern föstudag), hár- greiðsla. Kl. 10 pútt. Kl. 11 spurt og spjallað. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 13 bókabíll. Kl. 15 kaffi. Kl. 14 bingó. Al- menn handavinna er að byrja, verður á mánudögum og þriðjudögum frá kl. 9–16.30 og föstudögum kl. 9–12.30. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9. Leikfimi í Bjarkarhúsinu kl. 11.30. Tréútskurður í gamla Lækjarskóla kl. 13. Brids kl. 13. Hvassaleiti 56–58 | Frjáls aðgangur að opinni vinnustofu kl. 9–12, postu- línsmálning. Bíó kl. 13.30, kaffi og meðlæti í hléi. Böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir, s. 588 2320. Hársnyrting, s. 517 3005. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er opið öllum. Betri stofa og Listasmiðja kl. 9–16. Fastir liðir eins og venjulega. Tölvunámskeið hefst 22. okt. Skrán- ing stendur yfir á framsagnar- námskeið. Gönguferð „Út í bláinn“ alla laugardaga kl. 10. Sendum tölvubréf með haustdagskrá; asdis.skula- dottir@reykjavik.is – 568 3132. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Leikfimi kl. 11. „Opið hús“, spilað á spil kl. 13. Kaffiveitingar. Norðurbrún 1, | Kl. 9–12 myndlist, opin hárgreiðslustofa, kl. 14 leikfimi. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14.30 hannyrðir. Kl. 11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 13.30–14.30 sungið við undirleik Sigurgeirs. Kl. 14.30–16 dansað við lagaval Sigvalda. Gott með kaffinu. Kl. 14.30–16 dansað í Aðalsal. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9–12.30. Leirmótun kl. 9–13. Morgun- stund kl. 9.30–10. Leikfimi kl. 10–11. Leirmótun kl. 13–17. Hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofan opnar. Bingó kl. 13.30. Kirkjustarf Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn í dag kl. 10–12. Allir velkomnir. Hallgrímskirkja | Opið hús fyrir aldr- aða alla þriðjudaga og föstudaga kl. 11–14. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Kirkja unga fólksins: Samkoma hefst klukk- an 20. Bænastund fyrir ungu kynslóð- ina byrjar klukkan 19 og verður út kvöldið. Ruth Guðmundsdóttir talar. Lofgjörð og fyrirbæn. www.filo.is. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Al- þjóðleg bænastund kl. 12–13 og kl 19– 20 sem ber yfirskriftina „Biðjum og föstum fyrir ungu kynslóðinni“. Allir velkomnir. Þýdd hafa verið þau spá- dómsorð sem töluð hafa verið yfir þessa kynslóð, ef þú vilt nálgast þau hafðu þá samband með tölvupósti á filadelfia@gospel.is. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Það er varla hægt að ímyndasér annað – eftir að hafaskoðað tillögur að nýja Tón- listarhúsinu – að um það muni ríkja sátt. Tónlistarfólk mun sjá, að þörf- um þess um tónleikaaðstöðu verður fullnægt. Tónleikasalirnir tveir, fyrir 1.800 manns og 450 manns, verða glæsilegir. Það sem deilt hef- ur verið um, minni salur, sem tæki um 200 manns í sæti, verður til staðar í húsinu. Þau salarkynni eru kynnt sem fundaraðstaða, en fram kom á kynningarfundi um húsið í síðustu viku, að þar verður hljóm- burður fyrsta flokks, og sniðinn að þörfum tónlistarinnar. Þetta er grundvallaratriði sem engin ástæða er til að draga í efa að verði framfylgt. Að auki eru til hér sér- hönnuð tónlistarhús og tónleikasal- ir sem henta tónleikum af þessari stærðargráðu, Ýmir í Skógarhlíð, Salurinn í Kópavogi og Hásalir í Hafnarfirði, allt miklu meira en boðleg húsakynni til tónlistarflutn- ings, þótt tónlistarmenn hafi stund- um hneigst til þess að gera lítið úr gildi þeirra í viðleitni sinni við að þrýsta á um byggingu Tónlistar- hússins. Hvað óperuflutning áhrærir er ljóst að Tónlistarhúsið verður ekki heimili óperureksturs með öllu því sem slíkt batterí þarfnast. Íslenska óperan afþakkaði á sínum tíma boð um að vera með í byggingu hússins, og þótt nýir ráðamenn þar hafi skipt um skoðun og lýst eindregn- um áhuga á að fá inni í húsinu virð- ast þær óskir því miður hafa komið of seint, eða alltént ekki notið hljómgrunns þeirra sem um véla. Engu að síður verður hægt að flytja óperur í konsertuppfærslum í Tónlistarhúsinu og jafnvel með nokkru meiri viðbúnaði. Það er málamiðlun sem sátt verður að nást um. Húsnæðisvanda Íslensku óp- erunnar þarf að leysa á annan hátt.    Svona standa málin, og úr þessuer rétt að fara að einbeita sér að þeirri starfsemi sem á að vera í húsinu. Portus-hópurinn, sem átti verð- launatillöguna að Tónlistarhúsinu, lagði fram með tillögum sínum ít- arlegar hugmyndir að tónleika- dagskrá hússins; eins konar sýnis- horn af því sem þar gæti gerst. Vladimir Ashkenazy verður list- rænn stjórnandi tónlistardagskrár- innar, að minnsta kosti fyrst um sinn, en honum til fulltingis verður umboðsskrifstofa hans, Harrison – Parrott í London. Tillaga þeirra að dagskrá var með ólíkindum glæsi- leg; heimsfrægir listamenn í bland við Íslendinga, íslensk tónlist og er- lend, létt tónlist, klassísk, djass, óperutónlist, rokk, tilraunatónlist; litlir tónleikar og stórtónleikar; allt sem nöfnum tjáir að nefna.    Spurningin sem er ósvarað erhvernig til muni takast með svo metnaðarfulla dagskrá, hvort hún muni bera sig í ekki stærra samfélagi. Reynsla annarra þjóða hefur verið sú, að með nýjum og góðum húsum til tónlistarflutnings hefur áhugi almennings á tónleika- sókn aukist. Nærtækasta dæmið er nýja óperuhúsið í Kaupmannahöfn, en talsvert löngu áður en það var vígt, í byrjun þessa árs, var þegar orðið uppselt á alla viðburði í hús- inu langt fram á haust. Það vakti athygli, að það voru ekki bara Dan- ir sem höfðu bókað sig langt fram í tímann, heldur líka útlendingar. Staðreyndin er nefnilega sú, að það er til fólk út um allan heim sem hef- ur þau fjárráð og þann áhuga, að það getur leyft sér að ferðast til annarra landa, gagngert til að hlusta á áhugaverða tónlist í fyrsta flokks tónlistarhúsum. Á baksíðu Morgunblaðsins í gær var greint frá því að íslenskur prófessor hefði séð 600 óperuuppfærslur víðs veg- ar um heim, og þar af komið á milli 150 og 200 sinnum í Metropolitan- óperuna. Við vitum líka að erlendir gestir koma hingað gagngert til að sækja tónleika á Listahátíð og við önnur tækifæri, og það jafnvel í nokkrum mæli. Það má búast við því að nýtt Tón- listarhúsi auki enn áhuga útlend- inga á að koma hingað í menn- ingarreisur, þótt sá fjöldi verði tæpast það mikill að skipti sköpum um rekstur hússins. En með þeim áhuga sem hér er fyrir, og þeim líkum sem benda til þess að fleiri muni vilja njóta tónlistar í nýju húsi, en sækja allajafna tónleika, er von til að hægt verði að halda úti jafn glæsilegri tónlistardagskrá og Portus-hópurinn hefur gert til- lögur að; tónlistardagskrá, sem myndi sæma hvaða tónlistarhöll heims sem er – og gott betur en það. Hvað má bjóða ykkur að hlusta á? ’Það er til fólk út umallan heim sem hefur þau fjárráð og þann áhuga, að það getur leyft sér að ferðast til annarra landa, gagngert til að hlusta á áhuga- verða tónlist í fyrsta flokks tónlistarhúsum.‘ AF LISTUM Bergþóra Jónsdóttir „Reynsla annarra þjóða hefur verið sú – að með nýjum og góðum húsum til tónlistarflutnings, hefur áhugi almennings á tónleikasókn aukist.“ begga@mbl.is NOKKRAR aukasýningar eru fyrirhugaðar á einleiknum „Al- veg brilljant skilnaður“ sem sýndur hefur verið í Borgar- leikhúsinu að undanförnu. Aðstandendur segja það til marks um vinsældir sýning- arinnar að unnt hafi verið að sýna hana á mánudögum. Fyrsta mánudagssýningin, sem auglýst var, seldist upp á örfáum klukkutímum, segir í kynningu. Sérstakar aukasýningar verða kl. 16 laugardagana 1. október og 8. október. Aukasýningar á Alveg brillj- ant skilnaði HÁTT í níu hundruð ungmenni frá 19 stöðum á landinu taka þátt í 24. landsmóti Samtaka íslenskra skóla- lúðrasveita (SÍSL) um helgina. Mót- ið fer nú fram á Akranesi, en það var haldið í fyrsta sinn á Seltjarnarnesi árið 1969. Mótið verður formlega sett í dag við stjórnsýsluhúsið á Akranesi kl. 16. Í lok mótsins munu allir þátttak- endurnir leika saman í einni risa- stórri skólalúðrasveit og mun lúðra- þyturinn næsta víst berast um allan Skagann. Elstu ungmennin verða með tón- leikadagskrá í Íþróttahúsinu við Vesturgötu í dag milli klukkan 18.30 og 20.30. Á laugardag munu skóla- hljómsveitir spila víðsvegar um bæ- inn. Um kvöldið verður svonefnt Jagúarball þar sem félagar úr Lúðrasveit æskunnar spila og end- urtaka tónleika sem hópurinn hélt 18. september sl. Á landsmótinu munu allar hljóm- sveitirnar taka þátt í stóru nám- skeiði sem ber nafnið „Skapandi tón- listarmiðlun“. Leiðbeinendur á námskeiðinu verða Sigrún Sævars- dóttir-Griffiths og Paul Griffiths. Á námskeiðinu verður samið stórt tón- verk sem frumflutt verður við móts- slit og munu öll ungmennin taka þátt í flutningi verksins. Mótsslitin verða í Íþróttahúsinu við Vesturgötu kl. 14 á sunnudeginum. 900 ungmenni á landsmóti lúðrasveita MEÐVITUNDIN er það sem gerir okkur að því sem við erum. Fyrirlestraröðin Veit efnið af andanum? verður haldin í húsa- kynnum Háskóla Íslands alla laugardaga frá 1. október til 12. nóv- ember. Þar verður leitast við að varpa ljósi á þetta marg- slungna og sam- mannlega fyrir- bæri með aðferðum meðal annars heimspeki, sálar- fræði og gervi- greindar- og tölv- unarfræða. Þýski heimspek- ingurinn Thomas Metzinger ríður á vaðið hinn 1. októ- ber en hann hefur unnið að því að brúa bilið á milli hug- og raunvísinda og mun ræða þá kenningu sína að sjálfið sem slíkt sé ekki til. Í kjölfarið fylgir Anil K. Seth, sem mun ræða tilurð og þróun meðvitundar undir for- merkjum taugalíffræðilegs darwinisma (Neural Darwinism), Kamilla Rún Jóhannsdóttir mun fjalla um það hvaða forsendur þurfa að vera til staðar til þess að tölvur öðlist meðvitund og Hauk- ur Ingi Jónasson mun leitast við að skýra það út frá forsendum sál- greiningarinnar hvernig meðvit- undin rís upp úr hvatalífi líkam- ans. Kristinn R. Þórisson kemur til með að greina meðvitund í mönn- um og vélum út frá sjónarhóli gervi- greindar, Björn Þorsteinsson ræðir gagnsemi fyrir- bærafræðinnar í rannsóknum á mannlegri vitund og loks mun Ólafur Páll Jónsson velta upp og ræða ýmis vandamál og spurningar sem kvikna í ljósi þeirra fyrirlestra sem á undan eru komnir. Að loknum fyrirlestri Ólafs taka við einstakar þverfaglegar pall- borðsumræður. Fyrirlestraröðin er tileinkuð minningu Þorsteins Gylfasonar. Fyrirlestrarnir eru sjálfstæðir. Þeir hefjast allir klukkan 14, að- gangur er ókeypis og öllum heim- ill. Fyrirlestrar um meðvitundina www.medvitund.hi.is. DAGBÓK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.