Morgunblaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FRÁ ÞVÍ að Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði ákæru Ríkis- saksóknara til Hæstaréttar hefur verið rekið eitt mesta áróðursstríð sem sögur fara af í fjölmiðlum landsins. Engu eirt til að koma höggi á andstæðinginn. Og and- stæðingar Baugsveldis eru alls staðar. Sem góður og gegn viðskiptavinur Bónuss í gegnum árin hef ég fylgst með um- ræðunni eins og kost- ur er. Og sem áhuga- maður um viðskipti og fylgismaður um frjálsa verslun hef ég fylgst með frá byrjun með velgegni Bónus/ Baugsfeðga. Allt frá fyrsta degi hef ég dáðst að frumlegum og skemmtilegum við- skiptaháttum feðg- anna. Hvernig þeim tókst að lækka vöruverðið til hagsbóta fyrir fólk eins og mig. Brjóta á bak heild- söluveldið í Félagi stórkaupmanna og svo framvegis. Yfirlýsingar frá Neytendasamtökunum, félaga Jó- hannesi Gunnarssyni, um að með tilkomu Bónus hefðu lífskjör fólks í landinu gjörbreyst eru mér ógleym- anlegar. Feðgar sem áttu ekki krónu fengu sína birgja til að hjálpa sér af stað. Bandaríski draumurinn. Síðan eftir sem árin liðu stækkaði draumurinn. Opnun stærstu heild- sölu landsins, Aðfanga, var stórt skref hjá feðgunum. Í stað þess að þurfa að versla við heildsölu útí bæ sem stanslaust var að okra á þeim var bara verslað við Aðföng. Enda rekin með hagnaði frá fyrsta degi. Ógleymanlegt er síðan þegar hluta- bréfamarkaðurinn hófst og feðg- arnir mættir. Fjárfestingabanki at- vinnulífsins keyptur í félagi við aðra stórjöfra og seldur síðan áfram. Síð- an er Baugur stofnaður með fjár- festum eins og lífeyrissjóðunum. Hagkaup tekur saman við ævintýrið og svo mætti lengi telja. Frjálsræði viðskiptanna í algleymi þökk sé frjálshyggjunni. Feðgarnir fyrstir til að nýta sér hana. Umræðan. Það sem ég velti fyrir mér þessa dagana er hvers vegna í ósköpunum er nú svo komið fyrir feðgunum eins og raun ber vitni? Það er dómstólanna að dæma um sekt og sakleysi. Það er ekki al- mennings. Hvernig bregðast feðg- arnir við ef lögreglan stoppar þá fyrir of hraðan akstur? Telja feðg- arnir sig komna yfir lög og reglur? Ætla þeir með auð sínum að hafa áhrif á þjóðfélagsumræðuna eins og þeim sýnist? Sök bítur sekan, það fer ekki á milli mála. Og þessa dagana get ég ekki annað en vor- kennt starfsfólki Stöðvar 2 með Sig- mund og Eddu í broddi fylkingar sem segja fréttir af Baugi. Út yfir allt tók þó þegar fréttamaður, Sölvi Tryggvason, kom með og birti netpóst frá Jónínu til Jóhannesar á þeim tíma sem skiln- aður þeirra átti sér stað. Að jafn virt fólk og Sigmundur og Edda skuli ekki skammast sín að taka þátt í þessu. Allir sem hafa skilið vita hvernig er að ganga í gegnum ferlið. Fréttablaðið með hin virta fjölmiðlamann Kára Jónasson er notað á sama hátt. Allt birt þó að allir viti að brotin séu lög með hverri birtingu. Það er leiðinlegt til þess að vita hvernig Kári ætlar að enda sinn starfsferil sem fjölmiðla- maður. Og hvar stendur umræðan nú? Hvað hefur áunnist með látunum? Fjárfestingin Og Vodafone er rúin trausti þar sem fram hefur komið að gögnin eru frá þeim. Fréttastofa Stöðvar 2 minnir á Dallas þar sem Jock og JR eru gjörsamlega búnir að misnota starfsfólkið. Fréttablað- ið er orðið eldsmatur samkvæmt húsverðinum í einu húsfélaganna þar sem fólk er orðið leitt á lítilfjör- legri fréttamennsku Kára. Dómsmálið stendur enn og fer ekki. Með umræðunni hefur sak- sóknari fengið frí. Feðgar ráða ekki við hann þar sem hann tjáir sig ekki. Sendir fulltrúa sinn, Arnar Jensson, til að útskýra málin í fjöl- miðlum fyrir sauðsvörtum almúg- anum sem skilur ekkert í neinu lengur. Það fer ekki á milli mála að mínu mati að saksóknari fer ekki með fleipur. Hreinsþáttur. Og svo er það hann Hreinn. Fundurinn í London þar sem hann hitti Davíð er á hreinu. Davíð heldur greinilega að hann sé að tala við vin og segir honum greinilega frá Jóni Gerald. Í fram- haldi af því við komu sína til Reykjavikur fer fram heildar endurskoðun á öllu bókhaldi Baugs. Og JR/Jón Ásgeir gerir upp Visa- skuldina og fleira er lagfært. Þetta hefur komið fram. Á þessum tíma er Tryggvi Jónsson, lærður endur- skoðandinn, forstjóri og gerir ekk- ert í bókhaldinu sem var greinilega áfátt. Svo heldur Hreinn því fram að Davíð sé vondi maðurinn þegar hann er að hjálpa honum. Mogginn. Síðustu daga hefur komið fram að Styrmir er með gögn sem bera þess vitni að meira er gruggugt á seyði í rekstri Baugs. Jónína hefur skammað Styrmi fyrir að birta ekki gögnin. Ákærur sak- sóknara eru bara toppurinn á ísjak- anum. Ég bið samt Mbl. að fara ekki á sama plan og 365 fjölmiðlar. Það er rétt hjá Styrmi að þó and- stæðingurinn fari niður í ræsið þurfum við ekki að fylgja honum. Jónína. Ingibjörg systir Jónínu skrifar sl. mánudag í Mbl. Ég verð að taka undir með henni, hún má vera stolt af systur sinni. Án fólks eins og Jónínu væri mannlífið fá- tæklegra. Það hefur sýnt sig að Jónína hefur á réttu að standa í mörgu. Og ég er klár á því að hún fær gott fylgi í prófkjöri D-listans. Að endingu vil ég benda feðgum á að samkvæmt heimasíðu Baugs eru starfsmenn 52 þús. Ábyrgð stjórn- enda er mikil á stóru heimili. Er svona umræða til að auka traust starfsmanna til stjórnar? Baugskómedían Haukur Þorvaldsson fjallar um Baugsmálið ’Ábyrgð stjórnenda ermikil á stóru heimili. Er svona umræða til að auka traust starfs- manna til stjórnar?‘ Haukur Þorvaldsson Höfundur er sölumaður. ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Kríuhólar Til sölu 3ja herbergja íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi með fallegu útsýni yfir borgina. Húsið hefur verið klætt að utan og lítur vel út. Bílskúr, 26 fm, fylgir íbúðinni. Laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings. Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali 533 4200 eða 892 0667 Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200 Allar nánari upplýsingar í síma 533 4200 eða 892 0667 ÁRIÐ 2004 gaf Þjóðkirkjan út Stefnu og starfsáætlanir Þjóðkirkj- unnar 2004–2010. Þar var m.a. lagt til að veturinn 2005– 2006 væri lögð sérstök áhersla á heimilið og heimilisuppeldið. Í vet- ur verður því athygli beint að heimilinu og uppeldishlutverki þess. Margvíslegar að- stæður og áhrif sem höfð eru á börn í sam- tímanum hjálpast að við að ræna börnin bernskunni. Bæði bisk- up og forsætisráðherra minntu á mikilvægi heimilisuppeldisins fyrir börnin í áramótaávörpum sín- um.. Með þessu var ekki verið að gera lítið úr því uppeldi sem börn hljóta á leikskólum og í skólum, heldur minna á að ábyrgðin hvílir fyrst og fremst á foreldrunum og þeirra uppeldisáhrif vega þyngst. Í drögum að fjölskyldustefnu Þjóð- kirkjunnar segir: „Skylda Þjóðkirkj- unnar gagnvart fjölskyldunni er tví- þætt: annars vegar á kirkjan að vera bandamaður fjölskyldunnar í því sem lýtur að ytri búnaði, hagsæld fjölskyldunnar. Í því felst stöðug áminning til yfirvalda um að skapa fjölskyldunni ákjósanlegar ytri að- stæður. Hins vegar vill kirkjan byggja upp og styðja innri gerð fjöl- skyldunnar, farsæld hennar, svo að sem flestir megi njóta heilsteypts fjölskyldulífs.“ Á þessu hausti verður gert átak undir kjörorðinu „verndum bernskuna!“ með samstarfi Þjóð- kirkjunnar, forsætis- ráðuneytisins, umboðs- manns barna, Vel- ferðarsjóðs barna og annarra. Okkur hér í Hallgrímskirkju langar að taka þátt í þessu átaksverkefni með því að bjóða foreldrum upp á dagskrá með fyrir- lestrum um uppeldis- mál laugardaginn 1. október næst- komandi. Dagskráin hefst kl. 11.00 og lýkur kl. 15.00. Boðið verður upp á léttan hádegisverð fyrir þá sem það kjósa. Allir foreldrar, hvar sem þeir búa, eru velkomnir og er þátt- taka án endurgjalds. Börn eru vel- komin og verður haft ofan af fyrir þeim meðan á erindunum stendur. Fyrsta erindið hefst kl.11.00 og mun Elínborg Bárðardóttir læknir tala um efnið „Er kominn tími á fjöl- skylduna.“ Kl. 13.00 talar dr. Sigrún Júlíusdóttir um efnið „Tíðarandi og tilfinningatengsl“ og kl. 14.00 mun dr. Sigrún Aðalbjarnardóttir flytja erindi sem hún nefnir „Ræðum sam- an: Uppeldisaðferðir foreldra og vel- ferð barna og unglinga.“ Þátttaka er ókeypis. Kirkjan hefur að sjálfsögðu einnig og ekki síður áhuga á að styðja við foreldra í trúarlegu upp- eldi heimilanna. Áætlað er að um það verði dagskrá eftir áramót. Um aldir hafa bænir með börnum verið grundvöllur trúarlegs uppeldis og hafa konurnar, mæður og ömmur, haft þar mest áhrif, þótt áhrif feðr- anna í þessum efnum fari vaxandi. Enn er þessi hefð ríkjandi á fjölda heimila. Kannanir sýna að bænirnar fylgja börnunum langt fram á full- orðinsár og jafnvel til hárrar elli. Jafnframt opna þær leið fyrir trúar- leg áhrif og þekkingu síðar á ævinni. Nánari upplýsingar má fá hjá undir- rituðum. Fjölskyldan í fyrirrúmi – barnanna vegna Sigurður Pálsson fjallar um fjölskylduráðstefnu sem hefst á morgun ’Kannanir sýna aðbænirnar fylgja börn- unum langt fram á full- orðinsár og jafnvel til hárrar elli. ‘ Sigurður Pálsson Höfundur er sóknarprestur í Hallgrímskirkju. Fréttasíminn 904 1100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.