Morgunblaðið - 30.09.2005, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Tímaritið
Lifun fylgir
Morgunblaðinu
á morgun
fyrir fagurkera á öllum aldri
ÖFL á kínverska þinginu beita sér nú
fyrir því að dauðarefsingar fyrir al-
varleg efnahagsleg lögbrot verði af-
numdar í tengslum við endurskoðun á
refsilöggjöfinni sem á að ljúka fyrir
árið 2008. Enginn gerir ráð fyrir því
að dauðarefsingar verði afnumdar al-
gerlega í Kína en landið hefur oft
sætt gagnrýni vestrænna ríkja fyrir
ákvæðin sem heimila dauðadóma fyr-
ir efnahagsleg lögbrot. Til að mynda
fyrir spillingu og fjárdrátt undan rík-
isstofnunum eða fyrirtækjum í eigu
ríkisins. Jafnvel Bandaríkin, sem
beita dauðarefsingum í sérlega alvar-
legum ofbeldismálum, hafa gagnrýnt
Kína fyrir að dæma menn til dauða
fyrir efnahagsleg lögbrot.
Umræðan hófst vegna þess að
mörg vestræn ríki hafa neitað að
framselja kínverska borgara, sem
hafa flúið frá Kína og eru eftirlýstir
þar fyrir efnahagsleg lögbrot. Kína
hefur gert framsalssamninga við
fleiri en 20 ríki en afbrotamennirnir
dvelja í öðrum löndum, svo sem
Bandaríkjunum, Kanada og Japan.
Mörg þeirra vilja ekki gera framsals-
samning við Kína vegna ótta við, að
kínverskir dómstólar dæmi mennina
til dauða fyrir efnahagsleg lögbrot, að
sögn lagaprófessorsins Chu Huaizhi
við Peking-háskóla.
Nú eru um það bil 4.000 fyrrver-
andi kínverskir embættismenn í öðr-
um löndum eftir að hafa flúið þangað.
Þeir eru grunaðir um spillingu og
fjárdrátt að andvirði alls um 3.000
milljarða króna. Nánast enginn er
framseldur eða sóttur til saka.
„Hefðum við ekki þennan mögu-
leika á dauðarefsingu fyrir slík lög-
brot væru mörg landanna, þar sem
afbrotamennirnir dvelja núna, vilj-
ugri til að gera framsalssamninga við
Kína. Og það myndi líka koma í veg
fyrir að margir embættismenn flýðu
til útlanda,“ sagði lagaprófessorinn
og kvaðst telja þetta vandamál í Kína.
Efnahagslegum lögbrotum
bætt við árið 1997
Þegar kínverska refsilöggjöfin var
endurskoðuð árið 1997, var 40 lög-
brotum bætt við listann yfir lögbrot
sem geta varðað dauðarefsingu. Alls
eru 68 lögbrot á listanum og rúmur
helmingurinn er af efnahagslegum
toga.
„Þróunin er sú í heiminum að verið
er að afnema dauðarefsingar og Kína
ætti að slást í hópinn,“ sagði Chen
Xingliang, aðstoðarforseti lagadeild-
ar Peking-háskóla.
Kínverskir lögspekingar eru þegar
á einu máli um að Kínverjar þurfi að
afnema dauðarefsingar þegar fram
líða stundir en fyrsta skrefið í þá átt
sé að afnema slíkar refsingar fyrir
efnahagsleg lögbrot.
„Í nútímasamfélagi getum við ekki
verið þekkt fyrir að heimila dauða-
dóma fyrir lögbrot sem ekki eru of-
beldisglæpir,“ sagði Zhao Bingzhi,
við Alþýðuháskólann. „Og næsta
skrefið ætti að vera að afnema dauða-
refsingar fyrir lögbrot sem valda ekki
beinlínis dauða.“
Milliganga um vændi í hagn-
aðarskyni er á meðal þeirra lögbrota
sem geta varðað dauðarefsingu.
„En lokamarkmiðið hlýtur að vera
að afnema dauðarefsingar í Kína,“
Zhao prófessor.
Frá 1997 hefur litlu verið breytt
hvað dauðadóma varðar. Æðstu dóm-
stólar 34 héraða og stórborga geta
kveðið upp dauðadóma, ekki lægri
dómsstig, en nú þarf hæstiréttur
Kína að staðfesta þá. Tæpt ár er síð-
an sú breyting var gerð.
Ætla ekki að afnema
dauðarefsingar
Forsætisráðherra Kína, Wen
Jiabao, sagði á blaðamannafundi fyrr
á árinu að kínversk stjórnvöld hygð-
ust ekki afnema dauðarefsingar.
„Rúmur helmingur ríkja heims
heimilar dauðarefsingar, en við þurf-
um að gera allt sem við getum til að
tryggja að enginn saklaus maður sé
tekinn af lífi,“ sagði hann.
Í því sambandi þarf að hafa í huga
að á síðustu árum hafa átt sér stað
mörg dómsmorð í landinu.
Ekki liggja fyrir opinberar tölur
um aftökur í Kína en vestrænir heim-
ildarmenn áætla þær um 3.000 á ári.
Stjórnvöld í Kína ætla að endurskoða hegningarlög sem kveða á um að hægt sé að dæma menn
til dauða fyrir ofbeldisglæpi og efnahagsleg lögbrot, skrifar Niels Peter Arskog, fréttaritari í
Peking. Kína, fjölmennasta ríki heims, er nú það land sem tekur flesta afbrotamenn af lífi.
Leggja til að lög um dauðarefs-
ingar verði endurskoðuð í Kína
Kínverjar leiddir til aftöku. Algengt er, að hún sé opinber og eigi þá að
vera öðrum víti til varnaðar.
’Næsta skrefið ætti aðvera að afnema dauða-
refsingar fyrir lögbrot
sem valda ekki beinlínis
dauða.‘
Bogota. AP. | Ný lög í Kólombíu gera
hjónum kleift að skilja á einni
klukkustund og verður kostnaður
við það innan við 1.000 ísl. kr.
Lögin voru afgreidd frá þinginu í
júlí og ætlar forseti landsins, Al-
varo Uribe, að undirrita þau á
næstunni. Manuel Cuello, yfirmað-
ur kólombísku hagstofunnar, sagði,
að tilgangurinn með lögunum væri
að gera fólki lífið léttara, losa það
við mikinn lögfræðikostnað og
skriffinnsku.
Cuello sagði, að lögin hefðu verið
svar við miklum fjölda skiln-
aðarmála, meira en einni milljón,
sem safnast hefði upp hjá dóm-
stólum í landinu. Er kaþólska kirkj-
an andvíg lögunum og telur, að þau
muni ýta undir upplausn fjöl-
skyldna og alls samfélagsins.
Hraðsoðinn
skilnaður
Minneapolis. AFP. | Frá og með gær-
deginum mátti ekki selja aðra dísil-
olíu í Minnesotaríki í Bandaríkj-
unum en þá, sem er að hluta unnin
úr sojabaunum. Er tilgangurinn sá
að draga úr eftirspurn eftir venju-
legri dísilolíu.
Minnesota er fyrst til að setja lög
um notkun dísilolíu, sem unnin er
úr olíu og fitu, sem fellur til í land-
búnaði, en á síðustu þremur árum
hefur olíuverð vestra hækkað um
80%. Undirritaði George W. Bush
forseti nýlega lög um skattaívilnun
til að greiða fyrir notkun „lífrænu“
dísilolíunnar en hún er nú seld á
200 bensínstöðvum í Minnesota.
Embættismaður í Minnesota, seg-
ir, að Bandaríkjamenn séu nú að
gjalda þess að hafa ekki skattlagt
bensínið með líkum hætti og Evr-
ópumenn. Vegna þess standi Evr-
ópumenn nú miklu framar í rann-
sóknum á nýjum orkugjöfum.
Sojabaunaolía
á bílinn