Morgunblaðið - 30.09.2005, Síða 25

Morgunblaðið - 30.09.2005, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 25 UMRÆÐAN Í ERINDI sínu á stúdentadag- inn sagði Sigursteinn Másson að ,,skeytingarleysi um andlega líðan, kröfuharka og jafnvel mannfjand- samleg framkoma á köflum skuli einkum fyrirfinnast í deildum eins og læknisfræði og sálfræði“. Sig- ursteinn sagði einnig að á ári hverju bærust hryllingssögur af framkomu gagnvart nýnemum í þessum deildum. Auk þess að stunda almenna mannfjandsemi stærðu kennarar sig af því hve margir féllu í kúrsum hjá þeim. Ætla mætti af þessum ummælum og fjölmiðlaumfjöllun um hana að háskólanám í sálfræði og lækn- isfræði væri mikil ógn við geð- heilsu íslenskra ungmenna. Hér verður fjallað um hvort þessi gíf- uryrði eigi við rök að styðjast. Rangtúlkun á rannsóknum Sigursteinn vísar í breska rann- sókn þar sem fram kom að 25% breskra háskólanema væru haldin geðsjúkdómi og að þeir væru tíð- ari hjá háskólanemum en öðrum. Hann hélt því fram að þessar töl- ur mætti yfirfæra á íslenska há- skólanema og því ættu 1000–2000 nemar í Háskóla Íslands við geð- ræna röskun að stríða. Í skýrslu sem breska geðlækningafélagið gaf út (og Sigursteinn vísar reyndar sjálfur í) má finna yfirlit yfir fjölda rann- sókna á geðheilsu háskólanema. Í téðri skýrslu er skýrt tekið fram að ekki sé hægt að fullyrða að fleiri breskir há- skólanemar séu haldnir geðrösk- unum en jafnaldrar þeirra. Enn fremur kemur þar fram að tíðni alvarlegra geð- sjúkdóma og sjálfs- víga er minni á með- al háskólanema í Bretlandi og Bandaríkjunum en á meðal jafnaldra þeirra almennt. Í ljósi þess að tíðni geðraskana er ekki hærri á meðal háskólanema en jafnaldra þeirra og að fjórð- ungur fólks glímir á einhverjum tímapunti á lífsleiðinni við geð- ræna erfiðleika er fjarstæða að halda því fram að fjórðungur há- skólanema sé haldinn geðröskun. Hér er alls ekki verið að gera lítið úr þeim þjáningum sem geð- raskanir valda né heldur er því haldið fram að háskólinn geti ekki búið betur að nemendum með geð- raskanir. Umræða um geðraskanir nemenda og úrræði til handa þeim er jákvæð. Til þess að hún geri einhverjum gott þarf slík umræða að vera málefnaleg og yfirveguð. Nemendur telja kennara í sál- fræðiskor afar vinsamlega Sigursteinn sagði að árlega ber- ist margar hryllingssögur um framkomu kennara gagnvart nem- endum í ofangreindum deildum. Þrátt fyrir þennan fjölda hryll- ingssagna, væri ekkert gert vegna sjálfstæðis deildanna. Staðreyndin er hins vegar sú að ef nemendum þykir á einhvern hátt brotið á rétti sínum geta þeir leitað til nemendaráðgjafa, skorar- og deildarfulltrúa nemenda, nem- endafélaga, skorarformanna, deildarforseta og rektors, að ógleymdri réttindaskrifstofu Stúd- entaráðs. Er það virkilega svo að allt þetta fólk fylgist aðgerð- arlaust með á meðan geðheilsu fjölda nemenda er stefnt í voða? Varhugavert er að alhæfa um allt háskólasamfélagið út frá sögu- sögnum eða erkidæmum. Aftur á móti fyrirfinnast gögn sem eru mun traustari til að alhæfa um reynslu nemenda. Í öllum nám- skeiðum háskólans taka nemendur þátt í svokölluðum kennslukönn- unum, þar sem þeir geta metið viðmót kennara, gæði kennslu, námsefnis og svo framvegis. Við könnuðum hvernig síðasta kennslukönnun kom út í stóru fyrsta árs námskeiði í sálfræði, þar sem ætla mætti að mann- fjandsemin og hrokinn væri hvað mestur. Nýnemar áttu að gefa við- móti kennara einkunn á fimm punkta mælistiku þar sem einn merkir að kennarar séu miður vin- samlegir en fimm að kennarar séu afar vinsamlegir. Meðaltal sál- fræðiskorar var rúmir fjórir af fimm. Því er eðlilegt að spyrja sig hvort ástandið geti verið eins hræðilegt og Sigursteinn lýsir því, þegar mikill meirihluti nemenda heldur fram hinu gagnstæða. Góður háskóli gerir kröfur Rétt er hjá Sigursteini að í há- skóla eru mun meiri kröfur gerðar en í framhaldsskóla og álag á ný- nema því mikið. Ef Háskóli Ís- lands vill njóta virðingar í al- þjóðlegu háskólasamfélagi sem og á vinnumarkaði þarf að setja markið hátt og gera ýtrustu kröf- ur til nemenda. Margt hefur verið gert á síð- ustu árum í sálfræðiskor og í há- skólanum almennt til að auðvelda nýnemum lífið. Hér mætti nefna aðgang að aðstoðarkennurum, viðtalstíma kennara og sérstakt fyrsta árs námskeið um akadem- ísk vinnubrögð. Stúdentaráð, nemendafélög og námsráðgjöf vinna einnig gott starf við að huga að hagsmunum og velferð nemenda. Nýnemar geta sótt námskeið í tímastjórnun og náms- tækni auk þess sem háskólanem- ar sem stríða við geðræna erf- iðleika geta sótt meðferð til langs eða skamms tíma hjá sérfræð- ingum námsráðgjafar. Þó náminu fylgi álag er nemendum hjálpað að takast á við álagið á faglegan og fjölbreyttan hátt. Mannfjandsamleg gagnrýni Ljóst má telja að það er sárt fyrir kennara, sem hafa gert að ævistarfi sínu að miðla þekkingu til annarra, að vera ásakaðir um að stefna geðheilsu nemenda í voða með hroka og fjandsemi. Auk þess sem Sigursteinn Más- son nefnir hvorki rök né tæk gögn aðdróttunum sínum til stuðnings, getur seint talist nær- gætið að ásaka náungann um að hafa andlega niðurbrotsstarfsemi að aðalstarfi. Einhverjir myndu jafnvel líta á slíkar ásakanir sem mannfjandsamlega framkomu. Mannfjandsamleg framkoma gagnvart háskólakennurum Andri Fannar Guðmundsson og Kjartan Smári Höskuldsson fjalla um mannfjandsamlega gagnrýni ’Ætla mætti af þess-um ummælum og fjöl- miðlaumfjöllun um þau að háskólanám í sálfræði og lækn- isfræði væri mikil ógn við geðheilsu ís- lenskra ungmenna. ‘Andri Fannar Guðmundsson Andri Fannar er verkefnastjóri. Kjartan Smári er ráðgjafi. Kjartan Smári Höskuldsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.