Morgunblaðið - 30.09.2005, Side 33

Morgunblaðið - 30.09.2005, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 33 UMRÆÐAN BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Íslenska sjónvarpsfélagið (=Síminn) Ármúla 25 108 Reykjavík Í DAG barst mér í hendur reikn- ingur yðar vegna áskriftar minnar að ADSL-sjónvarpi fyrir sept- embermánuð. Það vakti athygli mína, að reikningsupphæðin hafði hækkað í 1.885 kr., en var 1.695 kr. fyrir síðasta áskriftartímabil. Þó að bréf yðar sé póststimplað 27. sept- ember sl., er gjalddagi samkvæmt reikningnum tilgreindur hinn 20. september sl. Þegar reikningurinn var skoð- aður nánar, kom í ljós, að hækkun þessi stafaði af því, að nú hafði bætzt við svokallað útskriftargjald að upphæð 190 kr. Þessa nýju gjaldtöku, sem sam- svarar rúmlega 11% hækkun á sjónvarpsgjaldinu, tel ég algjörlega óheimila og mótmæli henni. Óska ég þess vegna eftir því, að þér staðfestið það við mig (með nýjum reikningi eða með öðrum hætti), að þér fallið frá gjaldtöku þessari. Berist mér ekki slík staðfesting fyrir hinn 1. október nk. segi ég hér með upp nefndri áskrift að ADSL-sjónvarpi hjá yður vegna brostinnar forsendu fyrir áskrift- inni. Mér þykir ljóst, að þessi gjald- tökutilraun er gerð að fordæmi nokkurra annarra fyrirtækja, eink- um stórfyrirtækja með áskrift al- mennings að þjónustu sinni. Þessi gjaldtaka í formi svokallaðra seð- ilgjalda er löglaus, enda er þessum fyrirtækjum samkvæmt lögum skylt að senda viðskiptavinum sín- um reikninga um viðskiptin án sér- staks aukakostnaðar. Gjaldtakan fer fram í skjóli þess, að um til- tölulega lágar upphæðir er að ræða fyrir hvern einstakling, svo að kostnaður einstaklinganna við að leita réttar síns verður úr hófi mið- að við hagsmuni þá, sem í húfi eru. Hins vegar skiptir þessi ólöglega gjaldtaka milljörðum á ári hverju, þegar hún safnast saman í fjár- hirzlum stórfyrirtækjanna. Er því orðið tímabært, að almenningur taki sig saman og hætti að láta fé- fletta sig með þessum hætti. Reykjavík, 28. september 2005, HÖRÐUR EINARSSON, Seljugerði 9, 108 Reykjavík. Opið bréf Frá Herði Einarssyni: Í NÝÚTKOMNUM Vogum, mál- gagni sjálfstæðismanna í Kópavogi, segir Gunnsteinn Sigurðsson, bæj- arfulltrúi og formaður skipulags- nefndar, að „Tuttugu íbúar voru ósáttir við skipulagið á Kópavogs- túni“. Það er ótrúlegt að lesa slíkar rangfærslur eftir formann skipu- lagsnefndar og óvenjulegt að snúið sé út úr staðreyndum með svo ósvífnum hætti. Athugasemdir og ábendingar um skipulagið voru lögð fram á fundi skipulagsnefndar 20. september. Er þar um fjölda ábendinga og at- hugasemda að ræða. Rétt um 90 íbú- ar skrifuðu undir áskorun á aðal- fundi íbúasamtaka Vesturbæjar, 23. ágúst síðastliðinn, um að lengja frest til þess að gera athugasemdir fram yfir boðað íbúaþing vegna ónógrar kynningar. Sú beiðni var felld af meirihlutanum í skipulagsnefnd. 25 starfsmenn leikskólans á svæð- inu mótmæla hugmyndum í skipu- laginu, og er stór hluti þeirra íbúar bæjarins. Auk þess bárust einstök bréf frá 38 íbúum í næsta nágrenni. Þar fyrir utan eru athugasemdir frá stjórnendum Landspítala – há- skólasjúkrahús og Endurhæfingu ehf. sem reka starfsemi á svæðinu. Hvernig hægt er að halda því fram að þetta séu „liðlega 20 at- hugasemdir“ er algerlega óskilj- anlegt. Það er Gunnsteini Sigurðssyni sem formanni skipulagsnefndar ekki sæmandi að hafa í frammi slíkan málflutning og hann ætti að sjá sóma sinn í því að biðja íbúa Kópa- vogs afsökunar. FLOSI EIRÍKSSON, bæjarfulltrúi í Kópavogi. Röng og blekkjandi ummæli Frá Flosa Eiríkssyni: REYKJAVÍK, 27. september, 2005. Styrmir minn! Eins og þú veist hef ég keypt Moggann minn daglega í áratugi. Segja má að sérhver brún liðinna daga hafi verið nátengd Mogganum. Mogginn hefur því gefið mér dags- nesti undanfarinna áratuga – með að- skildum myndum – bæði tímanna og mannanna. Mogginn hefur líka gefið mér pólitískar myndir – myndir, sem ýmist hafa fallið að mínum – eða ekki. Ég hef brugðist við þeim bæði í hljóði og skrifum. Oftast í hljóði. Og eitt hefur mér ávallt fundist vera á hreinu – hingað til: Með eða á móti Mogg- anum hef ég alltaf getað treyst hon- um. Svo hefur mér fundist. Stundum hef ég mátt þola Mogganum óþægi- legustu andhverfu skoðana minna, eins og til dæmis varðandi ESB-aðild, gagnagrunns- og fjölmiðlamálið. En oftar hef ég þó fundið klára samleið með kratískum viðhorfum Moggans í grundvallar velferðar- og öðrum mannúðarmálum. En nú sýnast mér komin óvænt tímamót. Tímamót til- finninga og trúnaðar. Tímamót sakn- aðar og jafnvel sorgar. Því mér finnst ég hafa misst vin. Mér finnst ég hafa misst Moggann minn. Og þú, Styrmir minn, þú átt þarna sök í máli. Þú hef- ur sýnilega átt þátt í því að nota Moggann minn til að leggja fólk og fyrirtæki í einelti. Það er mér al- gjörlega óskiljanlegt. Þú, sem prédik- ar svo oft gott siðferði handa okkur hinum. Þú, sem hefur viljað vera góði tóngjafinn í íslensku þjóðlífi. En mis- notar svo sjálfur Moggann minn á nornafundum með frænda mínum og Kjartani, til að fá útrás fyrir illan ásetning ad modum Jónínu Ben. Hvað hefur eiginlega komið fyrir ykkur? Og eigendur Moggans blessa svo ósómann í stað þess að syrgja með þér. Mér hefur þótt afskaplega vænt um Moggann minn – allt frá bernsku. Og því hef ég getað fyr- irgefið honum margt. En Mogginn minn er nú kominn í hlutverk, sem ég sætti mig ekki við. Og því neyðist ég nú til að láta leiðir okkar skilja. Ég get ekki styrkt ykkur og Moggann í ljótri aðför að fólki og félögum, sem þið flokkið sem óvini ykkar. Þess vegna segi ég hér með upp áskrift minni að Morgunblaðinu – frá og með dagsetningu þessa bréfs. Með þökk fyrir allt gamalt og gott. GUNNAR INGI GUNNARSSON læknir. Opið bréf til ritstjóra Morgunblaðsins Frá Gunnari Inga Gunnarssyni:                                                  !  ! "             # $   %% $!   #    & ' ()* +)** ' ()* +),* ' ()* +))* ' ()* +)+*

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.