Morgunblaðið - 30.09.2005, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 39
MINNINGAR
✝ Guðrún Einars-dóttir fæddist í
Jötu í Hrunamanna-
hreppi 23. júní 1909.
Hún andaðist á líkn-
ardeild Landakots-
spítala 20. septem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Einar
Símonarson bóndi
og smiður, f. 1863, d.
1932, og Elísabet
Þorsteinsdóttir ljós-
móðir, f. 1872, d.
1915. Systkini Guð-
rúnar eru Sigrún, f. 1907, Þor-
steinn, f. 1911, og Gróa, f. 1913.
Þau eru öll látin.
Hinn 9. júlí 1932 giftist Guðrún
Erlingi Jónssyni húsgagnabólstr-
arameistara, f. 6. desember 1901,
d. 25. desember 1969. Hann var
sonur Jóns Kristjánssonar verka-
manns, f. 1863, d. 1930, og Odd-
nýjar Erlingsdóttur húsmóður, f.
1870, d. 1933. Guðrún og Erlingur
eignuðust þrjú börn, þau eru: 1)
Elísabet einsöngvari, f. 1940, maki
Atli Ásbergsson efnaverkfræðing-
ur, f. 1938. Þeirra dætur eru: a)
Anna Rún, f. 1969, maki Agnar
Sturla Helgason, f. 1968. Eiga þau
tvö börn. b) Hrafnhildur, f. 1975.
2) Hörður félagsfræðingur, f.
1947, fyrri kona hans var Magda-
lena Schram blaðamaður, f. 1948,
d. 1993. Þeirra dætur eru: a) Halla,
f. 1977, maki Arnar Orri Bjarna-
son, f. 1974, þau eiga
eina dóttur. b) Katr-
ín, f. 1979. c) Guð-
rún, f. 1984. Seinni
kona Harðar er
Erna J. Sigmunds-
dóttir markaðs-
stjóri, f. 1959, dóttir
þeirra er Hildur, f.
1996. Dóttir Ernu er
Birgitta Gröndal, f.
1979. 3) Oddi Erl-
ingsson sálfræðing-
ur, f. 1950, maki Sig-
urborg E. Billich
lífeindafræðingur, f.
1951. Þeirra synir eru: a) Karl Er-
lingur, f. 1983. b) Kjartan, f. 1990.
Guðrún ólst upp á Berghyl í
Hrunamannahreppi en fluttist á
unglingsárum til Reykjavíkur. Þar
vann hún ýmis störf, en stundaði
jafnframt nám við Ingimarsskóla
og sótti námskeið í ensku og
þýsku.
Guðrún og Erlingur hófu bú-
skap á Baldursgötu 30 í Reykjavík,
þar sem þau ráku einnig vinnu-
stofu og húsgagnaverslun um ára-
bil. Árið 1949 fluttu þau á Hofteig
30 í Reykjavík, þar sem Guðrún
bjó til æviloka. Um 1960 hóf Guð-
rún rekstur sérverslunar með
barnarúm og dýnur á Skólavörðu-
stíg 22. Við þessa verslun starfaði
hún í rúm 30 ár.
Útför Guðrúnar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Að lifa hartnær heila öld er meira
en flestum okkar er gefið. Því til við-
bótar að halda sæmilegri heilsu,
ríkri kímnigáfu og jákvæðri afstöðu
til lífsins allt til hinstu stundar á fyr-
ir fæstum okkar að liggja. Það varð
hlutskipti tengdamóður minnar,
Guðrúnar Einarsdóttur, sem lést 20.
september sl. 96 ára að aldri. Ævi
Dúnu, eins og hún var oftast kölluð,
svipaði að mörgu leyti til persóna úr
skáldsögum stórskálda frá fyrri-
hluta síðustu aldar. Ung missti hún
móður sína og var send í fóstur til
sér ókunnugra, sem reyndust henni
vel, til 15 ára aldurs. Þá lá leið henn-
ar til Reykjavíkur þar sem hún vann
fyrir sér í vist eins og tíðkaðist hjá
ungum stúlkum úr sveitinni á þeim
tíma. Seinna giftist hún og eignaðist
börn og átti síðar sinn starfsframa.
Hún varð snemma ekkja og þá
reyndi á dugnað hennar og þraut-
seigju við að aðstoða börnin sín til
mennta. Það eru aðrir sem segja þá
sögu betur en ég, en mig langar að
minnast þeirra ára sem ég þekkti
hana.
Ég sá hana fyrst á Grenimelnum
heima hjá Herði fyrir tíu árum. Hún
droppaði inn, átti leið framhjá á
gömlu Toyotunni sinni, þá 86 ára
gömul. Við tókum tal saman og þessi
yndislega hlýlega kona hafði frá
mörgu að segja. Það kom mér svolít-
ið á óvart að hún skildi vera akandi
en það var henni hjartans mál. Bíll-
inn veitti henni þann munað að vera
sjálfstæð og ekki upp á aðra komin
við innkaup og daglegt amstur. Ég
kynntist því betur síðar hversu mik-
ilvægt sjálfstæðið var henni. Það
leið ekki á löngu þar til henni fannst
tímabært að endurnýja bílinn og fá
sér nýrri Toyotu og það gerði hún.
Hún keyrði fram yfir nírætt eða þar
til hún var ekki lengur viss um ör-
yggi samborgara sinna þegar hún
var undir stýri.
Dúna hafði gaman af að taka á
móti gestum. Hennar einstaka
kímnigáfa, áhugi á þjóðfélagsmálum
og lífinu og tilverunni almennt gerði
það að verkum að það var alltaf
gestkvæmt hjá henni. Þó allir henn-
ar gömlu vinir væru löngu fallnir frá
héldu börn þeirra tryggð við hana.
Hún sagði skemmtilega frá og hafði
ákveðnar skoðanir á hlutunum. Af-
staða hennar til manna og málefna
einkenndist af jákvæðni og mann-
gæsku öðru fremur. Jafnvel þó að
hún væri á öndverðum meiði, þá
tókst henni alltaf að koma auga á
eitthvað jákvætt. Af því má draga
mikinn lærdóm.
Stjúpdætur mínar áttu mikla vin-
konu í ömmu sinni og þótti afar
vænt um hana. Þær leituðu mikið til
hennar og hún tók þátt í gleði þeirra
og sorgum. Hún hló með þeim, hrós-
aði þeim og hvatti þær til dáða með
sinni einskæru jákvæðni og hlýju.
Þegar þær eignuðust nýja kærasta
var amma þeirra sú sem fyrst fékk
að vita um þá og þeir fljótlega
dregnir í kaffi til hennar. Þrátt fyrir
að segja megi að eftir 96 ár sé mann-
eskjan södd lífdaga, þá hafa stelp-
urnar misst mikið.
Dúna var mjög hagmælt og gerði
mikið af góðum vísum. Undir lokin
orti hún ljóð þar sem hún býður
dauðann velkominn og kveðst vera
tilbúin að fylgja honum. Hún velti
því stundum fyrir sér hvers vegna
hún lifði svona lengi, það væri löngu
kominn tími á sig. Ég sagði við hana
að fyrir það væri ég afar þakklát því
annars hefði ég ekki náð að kynnast
henni. Og það eru orð að sönnu. Að
kynnast konu með hennar lundarfar
og afstöðu til lífsins gerði þá sem á
vegi hennar urðu ríkari í anda og
vonandi að svolítið betri manneskj-
um. Ég kveð Dúnu með þakklæti
fyrir þann tíma sem ég átti með
henni. Hvíl þú í friði, kæra vina.
Erna J. Sigmundsdóttir.
Amma Dúna.
Á bakvið í búðinni að spila svarta-
pétur og drekka malt.
Amma á gráu Mözdunni og amma
á rauðu Toyotunni.
Amma sem átti húsráð við öllum
praktískum vandamálum.
Amma sem sagðist aldrei geta
gert neitt fyrir okkur en gerði allt
fyrir okkur.
Amma að bæta gallabuxurnar
okkar á eldgömlu grænu saumavél-
inni.
Stóru hendurnar sem héldu í
fótla.
Hlátursköst yfir engu sérstöku.
Amma reddari sem gat lagað allt
með brúnu límbandi.
Sögurnar úr sveitinni.
Bæjarferð með ömmu. Amma að
prútta í Kolaportinu.
Amma bissnesskona og töffari.
Gula eldhúsborðið. Kaffi og klein-
ur. Allar samræðurnar um lífið,
dauðann, ástina og draumaprinsana,
skólann eða bara veðrið.
Amma í Blómavali í klukkutíma
að velja vönd.
Amma og vélin. Amma að tæta.
Matur hjá ömmu. Gúllas, carbon-
are, kjöt í káli, aspassúpa, ís með
jarðarberjum úr dós, brauð í ofni,
veisluhlaðborð og alltaf nóg til
frammi. Amma á leiðinni í boð með
plastpoka á hausnum og fínu skóna í
poka.
Amma og jólin. Að steikja rjúpur
og gera fullkomna rjúpusósu. Í jóla-
stressi að finna gjafir handa öllum.
Að taka pakkana upp varlega til að
eyðileggja ekki pappírinn og slauf-
urnar. Að kenna okkur að dansa
charleston.
Amma alltaf jákvæða.
Amma sem var aldrei hrædd og
leiddist aldrei.
Amma sem þoldi ekki sól en elsk-
aði logn með úða.
Amma fárveik á spítalanum en
ennþá að fá hlátursköst og fara með
vísur.
Amma sem var algjört bíó og al-
veg milljón.
Amma hjartahlýja sem hugsaði
alltaf vel um aðra.
Takk fyrir allt, elsku hjartans
amma. Fyrir allt sem þú kenndir
okkur og allt sem þú gafst okkur.
Fyrir að vera ekki bara amma held-
ur líka vinkona. Fyrir að vera okkur
fyrirmynd.
Við munum alltaf sakna þín.
Þínar
Halla, Katrín og Guðrún.
Elsku amma Dúna. Ég sá þig síð-
ast þegar ég kom við hjá þér á spít-
alanum til að kveðja þig áður en ég
fór út á völl. Þú varst nú vön að gera
við mig samning um að við myndum
hittast hressar og kátar er ég kæmi
heim aftur. Við vorum búnar að
framlengja þennan ágætis samning
þó nokkrum sinnum en núna þver-
tókstu fyrir allar samningaviðræður
og ég kvaddi þig með vonina í far-
teskinu. Það eru svo óendanlega
margar minningar sem koma upp í
huga mér núna, elsku amma mín.
Ég man hvernig þú yljaðir mér á
„pótlunum“ og sendir mig inn í
draumalandið. Ég minnist skelfi-
legu rauðklæddu verunnar sem birt-
ist á jólum í fullum skrúða, meira að
segja með grímu. Það voru líka ófá-
ar stundirnar sem ég fékk að dvelja
hjá þér í barnarúmabúðinni. Mér
fannst alltaf ægilega gaman og
spennandi að fá að vera með full-
orðna fólkinu á síðkvöldum í kjall-
aranum á Hofteigi, þar sem óhugn-
anlega stóra tætingsvélin reif í sig
ullina af áfergju með tilheyrandi
skruðningum. Stóru fjölskylduboðin
með gæðagúllasi úr pottinum fína á
kertinu eru afar minnisstæð. Í hvert
sinn sem ég sé bílstjóra með hatt,
verður mér hugsað til þín. Bíllinn
þinn var þér afar kær og þeyttist þú
um bæinn til 92 ára aldurs. Þú varst
alltaf svo sjálfstæð og bíllinn veitti
þér frelsi, þótt rigning, dimma eða
of mikil sól settu stundum strik í
reikninginn.
Það var alltaf svo mikið líf í kring-
um þig og gestagangurinn á Hof-
teigi gífurlegur. Ég gleymi því aldr-
ei er þú sagðir: „Ég bara skil ekkert
í því hvernig fólk getur látið sér leið-
ast, ég bara kann það ekki!“
Þú áttir ávallt nýbakaðar pönnu-
kökur enda ókrýndur meistari í
pönnukökubakstri. Leiftursnöggt
snerirðu þeim við á sjóðheitri pönn-
unni með berum fingurgómunum.
Laugardagslærið með ykkur ömm-
unum. Það var svo yndislegt að hitt-
ast og spjalla, enda varstu alltaf svo
vel með á nótunum. Fylgdist vel
með öllu í lífi ættingja og vina,
stjórnmálum og öðrum hita- og
heimsmálum yfirhöfuð.
Þú varst líka búin að forvitnast
mikið um stóra daginn sem bíður
mín á næsta ári, en fyrir þann dag-
inn tókst okkur að gera sérstakan
samning.
Elsku amma, þín verður sárt
saknað en ég veit að afi, aðrir ætt-
ingjar og hópur vina hafa tekið vel á
móti þér. Þú ert alveg milljón!
Sjáumst.
Þín
Hrafnhildur.
Kynni mín af Guðrúnu Einars-
dóttur hófust fyrir 15 árum þegar ég
kynntist dótturdóttur hennar, Önnu
Rún, sem nú er eiginkona mín. Inn-
an fjölskyldunnar var Guðrún aldrei
kölluð annað en Dúna, oftast amma
Dúna, og undir því nafni mun ég
ávallt minnast hennar.
Dúna var afar hógvær og þolin-
móð að eðlisfari. Hún var lítið gefin
fyrir að láta á sér bera, en hafði
sterka réttlætiskennd og gat verið
röggsöm og staðföst þegar á þurfti
að halda.Yfir henni var mikil reisn.
Dúna var af þeirri kynslóð Íslend-
inga sem hvorki kvartaði undan
mótlæti í lífinu né hreykti sér af vel-
gengni. Hún tók á uppákomum lífs-
ins með jafnaðargeði og rík kímni-
gáfa gerði henni kleift að finna fljótt
fyndnar hliðar á flestum málum.
Frjótt andríki Dúnu birtist einmitt
oft best í gegnum kímnigáfuna, sem
var beitt og kaldhæðin á köflum, en
beindist fyrst og fremst að henni
sjálfri og þeim sem máttu við því og
jafnvel áttu það skilið. Gagnvart
þeim sem minna máttu sín var Dúna
einstaklega hjálpleg og gjafmild.
Hún hætti að keyra bílinn sinn 92
ára, en margar ökuferðir Dúnu á
síðustu árum beindust að því að
sinna fólki (oft mun yngra en hún
sjálf) sem henni þótti vænt um og
þurfti á aðstoð að halda. Gestrisnin
á Hofteignum var mikil. Það var
sama hvað fyrirvari var stuttur þeg-
ar Dúna var heimsótt, henni tókst
alltaf að töfra fram fullt borð af
kræsingum á augabragði. Aldrei fór
maður svangur frá slíkri heimsókn.
Fátt kom Dúnu úr jafnvægi og
eru til margar skemmtilegar sögur
sem lýsa vel æðruleysi hennar og
styrk þegar hætta var á ferðum.
Eina nótt vaknaði hún við undarleg
hljóð sem komu úr stofunni á Hoft-
eignum. Þegar Dúna fór fram til að
kanna hvað væri þar á seyði sá hún
ungan innbrotsþjóf, sem komist
hafði inn um svalahurð og var að
taka niður málverk. Hvernig brást
áttræða konan við þessari nætur-
innrás á heimili sitt? „Ég sagði hon-
um bara að koma sér burt,“ sagði
Dúna, sem hann reyndar gerði,
snarlega. Eftir á sá hún spaugilega
hlið á þessari atburðarás, sem hefði
getað endað verr, og lýsti svo sposk
á svipinn áhyggjum sínum um að
hafa ef til vill verið of harkaleg við
innbrotsþjófinn, sem hún ályktaði
að hlyti að hafa átt bágt.
Dúna fylgdist betur með fréttum
en nokkur annar sem ég hef kynnst
og oft heyrðum við fréttirnar fyrst
hjá henni. Hún fylgdist vel með
stjórnmálum á Íslandi og erlendis
og hafði oft sterkar og vel ígrund-
aðar skoðanir á málefnum líðandi
stundar. Víst er að ég á eftir að
sakna þess að geta ekki kíkt inn til
Dúnu til að fá nýjustu fréttir af at-
burðum dagsins og til að ræða á
gagnrýninn hátt um misvitur útspil
þeirra sem móta atburðarásina í
stjórnmálalífi landsins.
Snemma á síðasta ári vorum við
hjónin og börn okkar svo heppin að
fá að flytja inn í íbúð í húsi ömmu
Dúnu á Hofteignum.Eins og gilti um
flesta aðra atburði í lífi Dúnu, tók
hún því raski sem óhjákvæmilega
fylgir ungri fjölskyldu með tvö börn
með miklu jafnaðargeði og kvartaði
aldrei þótt tilefnin hafi líklega verið
mörg. Bæði við hjónin og ekki síður
börn okkar, Atli Snorri og Guðrún
Diljá, nutu þess að hafa langömmu
sem nágranna. Nábýlið við Dúnu
gerði okkur ljóst hversu mikið börn
geta farið á mis við í fjölskyldu-
mynstri nútíma samfélags. Í dag
umgangast börn mest foreldra sína
og systkini, sem lítinn tíma hafa til
að sinna þeim.Á meðan dvelja elstu
meðlimir fjölskyldunnar annars
staðar, stundum þjáðir af einmana-
leika, og oftast viljugir og áhuga-
samir um að umgangast yngstu
kynslóðina meira. Dóttir okkar,
Guðrún Diljá, þurfti enga hvatningu
til að notfæra sér nálægðina við
langömmu Dúnu. Nánast á hverjum
degi eftir leikskólann fór hún inn til
Dúnu, þar sem hún ýmist söng
langa efnisskrá vísna og leikskóla-
laga, spilaði við langömmu sína eða
spjallaði við hana um ýmis hugðar-
efni. Sonur okkar, Atli Snorri, naut
þess einnig að búa í sama húsi og
langamma. Sérstaklega fannst hon-
um gott að leggja sig í sófanum hjá
henni eftir skóla, og ekki var það
verra að langamma Dúna bauð alltaf
upp á mjólk og eitthvert góðgæti
með. Þessi samskipti hafa verið og
verða ómetanleg fyrir börn okkar og
ég held að Dúna hafi líka haft
ánægju af þeim. Ég veit að Anna
Rún, konan mín, metur mikils þann
fjársjóð minninga sem hún hefur
eignast eftir samverustundirnar
með ömmu sinni á Hofteignum.
Það er alltaf erfitt að kveðja ást-
vini og söknuður er óhjákvæmilegur
þegar svona þróttmikil kona á í hlut,
sem skipaði svo mikilvægan sess í
fjölskyldu sinni og virtist, alveg
fram á það síðasta, vera ónæm fyrir
framgangi tímans. Ég þykist þó
vera viss um að Dúna hafi skilið við
okkur sátt við langa og farsæla ævi
sína og stolt af myndarlegum hópi
afkomenda. Það voru mikil forrétt-
indi að hafa fengið að kynnast Guð-
rúnu Einarsdóttur. Blessuð sé
minning hennar.
Agnar Helgason.
Fölnar rós og bliknar blað
á birkigreinum.
Húmar eins og haustar að
í hjartans leynum.
(Kristján Jónsson.)
Þetta vísukorn sem heitir
„Haust“ á vel við nú þegar hún
Dúna, þessi yndislega kona, er fallin
frá. Kynni mín af henni hófust fyrir
u.þ.b. 42 árum. Þá var fyrrverandi
tengdamóðir mín, sem ég reyndar
aldrei kynntist neitt, nýlega látin, en
þær voru æskuvinkonur. Þó ég hefði
verið hennar tengdadóttir hefði hún
ekki getað komið betur fram við
mig, börnin mín og barnabörn. Hún
hreinlega tók að sér hlutverkið.
Lífið hennar Dúnu minnar var
ekki alltaf dans á rósum, en að gef-
ast upp var ekki til í hennar orða-
bók. Hún hafði alltaf tíma og nennu
til að hafa samband og heyra hvort
ekki væri allt í lagi og hvort við
hefðum það ekki bara gott. Aldrei
gleymdi hún jólum eða öðrum tylli-
dögum hjá mér og börnunum, frek-
ar en sínum eigin börnum og barna-
börnum. Ég veit að margir aðrir
hafa þessa sögu að segja, því hún lét
sig svo margt varða og mættu fleiri
taka hana sér til fyrirmyndar.
Alltaf var jafn gaman og lær-
dómsríkt að koma á Hofteiginn og
hefðu þær stundir mátt vera fleiri,
en engum getur maður kennt um
það nema sjálfum sér. Aldrei vant-
aði umræðuefni og þá ekki veitingar
því gestrisin var hún með afbrigð-
um.
Nú í seinni tíð barst umræðan oft
að fæðingarsveit hennar, sem var
Hrunamannahreppur, og ekki
skemmdi það fyrir að við hérna á
Rauðalæknum þekkjum svolítið til
þar og gátum því bæði fræðst af
henni og dáðst saman að fegurð
þessa svæðis.
Við Árni, Nína Þóra, Sigurjón
Rúnar og fjölskyldur þeirra kveðj-
um okkar góðu vinkonu og óskum
henni góðrar ferðar á nýjar slóðir.
Kæru vinir, Betta, Hörður, Oddi
og fjölskyldur, ykkar söknuður er
mestur, en minningarnar lifa áfram.
Unnbjörg Eygló Sigurjónsdóttir.
GUÐRÚN
EINARSDÓTTIR
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með
bilum - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virð-
ingu sína án þess að það sé gert
með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Minningar-
greinar