Morgunblaðið - 30.09.2005, Side 47

Morgunblaðið - 30.09.2005, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 47 DAGBÓK Árnaðheilla dagbók@mbl.is Ráðstefna Gjörgæslu- og svæfingar-hjúkrunarfræðinga verður haldin ámorgun að Hörgatúni 2, Garðabæ.Dagskrá dagsins er þétt skipuð fjöl- breyttum erindum um rannsóknir og framfarir á ýmsum sviðum hjúkrunar. Þar verða flutt erindi á borð við „Hjartaverndandi áhrif innöndunar- svæfingalyfja“, „Illkynja háhiti“ og „Hugmynda- fræði gjörgæsluhjúkrunar“. Erindin flytja ís- lenskir fagaðilar auk þess að ráðstefnuna heimsækja Norðmennirnir Anna Bågenholm og Torvind Næsheim frá Tromsö. Fyrsta erindi ráðstefnunnar flytur Margrét Felixdóttir. Erindið fjallar um afleiðingar hita- taps í svæfingu en fyrirlesturinn byggir Margrét á niðurstöðum rannsóknar sem hún vann í tengslum við lokaritgerð BS-náms síns við Há- skóla Íslands í vor: „Í heiladingli er hitaviðbragðs- þröskuldur sem veldur því að stjórnkerfi líkamans bregst við hitabreytingu innan við 0,2°C við eðli- legar kringumstæður. Svæfingalyf geta lækkað þennan þröskuld tvítugfalt. Þau valda flutningi á hita frá innri líffærum til útlægra vefja og húðar, útiloka meðvituð varnarviðbrögð, hægja á efna- skiptum, seinka varnarviðbrögðum heiladinguls og hindra skjálfta,“ útskýrir Margrét. „Aðrir þættir sem hafa áhrif á hitatap eru meðal annars berskjölduð líkamssvæði, líkamsmassi og heilsu- far sjúklings, kaldur sótthreinsunarvökvi og ef kaldur vökvi eða blóð er gefið í æð.“ Af getur hlotist væg ofkæling, þar sem líkams- hiti fer niður í 32–35°C og getur slíkt haft töluverð neikvæð áhrif á sjúklinginn. „Ofkæling eykur t.d. hættu á alvarlegum breytingum á hjarta- og æða- kerfi, veldur hömlum á storkuþáttum og eykur hættu á auknu blóðtapi. Æðasamdráttur sem verður í kjölfar kælingar leiðir til minna flæðis súrefnis til vefja sem minnkar viðnám við sýking- um og dregur úr störfum ónæmiskerfisins. Þann- ig getur lækkun á líkamshita um 1,5°C aukið kostnað sjúklings um 150–450 þús. krónur, að ótöldum auknum óþægindum.“ Margrét segir að á 9. áratugnum hafi heilbrigð- isstarfsmenn farið að huga betur að hindrun hita- taps og rannsóknum á afleiðingum þess. „Sem betur fer hafa orðið miklar framfarir þó enn megi ýmislegt betur fara. Mikilvægt er því að fræða starfsfólk svo það sé betur meðvitað um mikilvægi þess að viðhalda eðlilegum líkamshita í svæfingu. Engin ein hjúkrunarmeðferð er fullnægjandi ein og sér til að koma í veg fyrir óviljandi hitatap hjá sjúklingi og til að ná sem mestum árangri er áhrifaríkast að sameina mismunandi hitameð- ferðir. Að viðhalda eðlilegu hitastigi í svæfingu er einn af mikilvægum þáttum í starfi svæfinga- hjúkrunarfræðinga þar sem þeir bera ábyrgð á að forgangsraða, fyrirbyggja fylgikvilla og setja í gang nauðsynlegar hjúkrunaraðgerðir, bæði fyrir, í og eftir svæfingu og skurðaðgerð.“ Hjúkrun | Niðurstöður rannsóknar á hitatapi í svæfingu ræddar í erindi á ráðstefnu Gjörgæslu- og svæfingahjúkrun  Margrét Felixdóttir er fædd 14. október 1953. Hún lauk námi frá Hjúkrunarskóla Íslands 1976, svæfingahjúkr- unarfræð. frá Nýja Hjúkrunarsk. 1983. Hún þreytti Ameríska hjúkrunarprófið 1993 og BS í hjúkrun frá HÍ 2005. Margrét starfaði á gjörgæslud. Bsp. 1977–1981, svæfingad. Bsp. 1983–1992. Í St. Agnes Medical Center, Fresno, CA, 1993– 1995. Síðan þá hefur hún starfað á svæfinga- deild LSH í Fossvogi. Börn Margrétar eru Signý íslenskufræðingur fædd 1976 og Felix fæddur 1995. H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9 H V E R A F O L D 1 - 3 , G R A F A R V O G I • S Í M I 5 7 7 4 9 4 9 NÝJAR VÖRUR Dýravernd ÉG hef mikinn áhuga á dýravernd en mér finnst það vera málaflokkur sem alltof lítið er fjallað um. Og ég veit ekki hvernig þessum málum er almennt háttað hér á landi. Eru dýraverndunarsamtökin á Íslandi nógu virk? Fyrir 2–3 árum sendi ég fyrir- spurn á dyravernd@dyravernd.is og spurðist fyrir um íslenska kvikmynd sem sýnd var í sjónvarpinu, myndin gerðist í Tyrklandi og þar var sýnt er naut var aflífað með því að skera það á háls. Og tók það nokkurn tíma. Mér skilst að þegar flutt er í nýtt hús í Tyrklandi þá sé þetta venja. Svarið var svona frá dýraverndunar- samtökunum „Spurðu hann (hér kom gælunafn leikarans) um þetta“ . Þetta virtist ekki skipta miklu máli. Ég veit að það er erfitt að breyta sið- um og venjum í öðrum löndum, en er ekki hægt að senda mótmæli? Og er við sjáum illa farið með dýr, eigum við ekki að láta í okkur heyra? Er samvinna á milli dýraverndunar- samtaka hér og samtaka í öðrum löndum? Er það rétt að í sumum löndum (t.d. Norðurlöndunum) séu músl- ímskir slátrarar sem aflífa dýr á þann hátt sem trúarbrögðin segja til um? Og eru þá dýralæknar sem fylgjast með að það sé gert á sem kvalaminnstan hátt? Er það gert á Íslandi? Sá spyr sem ekki veit. Ef einhver ykkar eru fróðari en ég þá vinsamlegast látið í ykkur heyra. Dýravinur. Hulduslóð og friðland EFTIR að hafa lesið sögurnar Hulduslóð og friðland eftir Lisu Marklund hugsa ég til unga fólksins. Ungt fólk lendir oft í vanda, ástin getur stundum snúist í andhverfu sína, ekki eru allir góðir. Þegar ást- vinur á í hlut er erfiðast að koma auga á hið vonda og sá sem verður fyrir því fer að ásaka sjálfan sig og líður illa þótt hann sé saklaus. Í bókinni Friðland kemur fram að örlögin ráðast inn í líf okkar og með því að missa aldrei sjálfstraustið er hægt að bregðast við og snúa illum örlögum til góðs. Það gæti styrkt fólk að vita að það stendur ekki eitt. Hugsandi húsmóðir. Einhliða málflutningur Í MÍNU ungdæmi var sungin vísa sem hljóðaði eitthvað á þessa leið: Allir með strætó, allir með strætó, enginn með Steindóri, því hann er svo mikill svindlari. Mér datt þetta vísubrot í hug eftir að hafa hlustað á Útvarp Sögu sem mér finnst vera komið með Baugsmálið of mikið á heilann. Fólk verður leitt á einhliða málflutningi. En það er bót í máli að Sigmund er kominn aftur á Mogg- ann með sitt frábæra spaug. Guðrún Magnúsdóttir. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 1. Rf3 d5 2. d4 c6 3. c4 e6 4. Rc3 dxc4 5. a4 Bb4 6. e3 b5 7. Bd2 Db6 8. axb5 cxb5 9. Re5 Rf6 10. b3 Rd5 11. Rxb5 c3 12. Rxc3 Rxc3 13. Dc2 Rc6 14. Bxc3 Rxe5 15. dxe5 Bb7 16. Bc4 Bxg2 17. Hg1 Be4 18. Dxe4 Bxc3+ 19. Ke2 0–0 Staðan kom upp í Evrópukeppni tafl- félaga sem lauk fyrir skömmu St. Vin- cent í Ítalíu. Stefan Bromberger (2.491) hafði hvítt gegn Christian Cacco (2.348). 20. Hxg7+! Kxg7 21. Hg1+ Kh8 22. Bd3 f5 23. exf6 Dc7 23. … Hf7 hefði ekki gengið upp vegna þess að þá yrði hrókurinn á a8 óvaldaður. 24. Hg7 Dxg7 25. fxg7+ Kxg7 26. Dxe6 Bf6 27. Dg4+ Kf7 28. Dd7+ og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. 50 ÁRA afmæli. 2.október nk.verður fimmtug Ragnheiður Ingimundardóttir, bóndi og húsfreyja á Hrófá. Af því tilefni tekur hún á móti gestum á heimili sínu laugardaginn 1. október eftir kl. 17. Allir vinir og vandamenn hjartanlega velkomnir. Brúðkaup | Gefin voru saman 16. júlí sl. af sr. Bjarna Karlssyni þau Unnur Mjöll S. Leifsdóttir og Einar Þór Gústafsson. Brúðkaup | Gefin voru saman í Kópa- vogskirkju af sr. Ægi Fr. Sigurgeirs- syni þau Lísa Björk Ingólfsdóttir og Gunnar Waage. Heimili þeirra er við Borgarholtsbraut 72, Kópavogi. Bikarinn. Norður ♠Á73 ♥D765 ♦KG ♣K832 Vestur Austur ♠D1092 ♠86 ♥G8 ♥94 ♦ÁD862 ♦1097543 ♣Á5 ♣974 Suður ♠KG54 ♥ÁK1032 ♦– ♣DG106 Suður spilar sex hjörtu og fær út tígulás. Þótt útspilið sé sagnhafa hagstætt, kemur tígulkóngurinn að litlu gagni og leysir ekki vandann í spaðalitnum. Þar verður að svína gosanum, en sú svíning gengur ekki, eins og sjá má. Spilið er frá úrslitaleik bikarkeppn- innar á sunnudaginn. Ásgeir Ásbjörns- son, liðsmaður Grants Thorntons, var í sæti sagnhafa og honum hugnaðist ekki spaðasvíniningin. Ástæðan var sú að Eyktarmaðurinn Aðalsteinn Jörgensen hafði doblað opnun suðurs á einu hjarta í upphafi sagna. Sem benti til að hann ætti lengd í spaða og drottninguna með. Ásgeir reyndi því að leggja snöru fyr- ir Aðalstein. Hann tók tvisvar tromp og spilaði svo laufgosa að heiman, eins og hann ætlaði að svína fyrir drottninguna. Ef vestur lætur lítið lauf í slaginn, fer sagnhafi inn á blindan á spaðaás, tekur tígulkóng og sendir vestur inn á lauf- ásinn. Vestur verður þá að spila spaða upp í gaffalinn eða tígli í tvöfalda eyðu. En Aðalsteinn hafði engan áhuga á slíkum málalokum – hann rauk strax upp með laufásinn og spilaði meira laufi. Og tryggði sér þannig slag á spaðadrottningu í lokin. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 60 ÁRA afmæli. Í dag, 30. septem-ber, verður sextugur Guð- mundur Ágúst Aðalsteinsson. Hann og eiginkona hans, Margrét Guðlaugs- dóttir, eru stödd í Kaupmannahöfn, Hótel Opera, Tordenskjoldsgade 15, s. 0045 3347 8300.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.