Morgunblaðið - 30.09.2005, Page 51
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
halda aukatónleika Ant-
ony and The Johnsons 11.
desember næstkomandi.
Í fréttatilkynningu seg-
ir að þegar Antony var
tjáð að selst hefði upp á
fyrri tónleikana á aðeins
sjö mínútum, hafi hann
orðið mjög undrandi og
glaður.
Antony hafði gert ráð
fyrir að enda tónleikaferð
sína hér en þegar hann
heyrði af viðbrögðunum
ákvað hann að halda eina
aukatónleika daginn eftir.
Enn er um takmarkað
magn miða að ræða á tón-
leikana í Fríkirkjunni en
þar verða sæti fyrir alla
tónleikagesti. Kirkjunni er
skipt í fjögur svæði en
þrjú verðsvæði.
Miðasala hefst miðviku-
daginn 5. október kl. 10 á
midi.is og í verslun Skíf-
unnar á Laugavegi.
Aukatónleikar Antony
and The Johnsons
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Antony and the Johnsons.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 51
MENNING
TÓNLIST
Geisladiskur
Guðjón Baldursson – Plokkfiskur
Plokkfiskur, sönglög handa íslenskri al-
þýðu eftir Guðjón Baldursson. Guðjón
semur öll lög, en þeir Guðjón og Hlynur
Þorsteinsson semja texta ýmist einir eða
í samvinnu. Guðjón syngur, en hljóðfæra-
leik annast Óskar Einarsson, sem leikur
á orgel og píanó, Sigurgeir Sigmundsson,
sem leikur á gítar, Jóhann Ásmundsson,
sem leikur á bassa, og Sigurður Flosa-
son, sem leikur á klarinett og saxófón.
Plokktónar gefur út.
ÞEIR skipta örugglega tugum ef
ekki hundruðum sem semja lög í
frístundum hér á landi og sem bet-
ur fer láta margir það eftir sér að
gefa lögin út – það er til lítils að
semja fyrir
skúffuna.
Guðjón Bald-
ursson er
einn slíkra
einyrkja sem
tók sig til og
sendi frá sér
disk fyrir stuttu, Plokkfisk þann
sem hér er tekinn til kosta.
Spilamennska á Plokkfiski er öll
fyrsta flokks, sérstaklega píanó- og
orgelleikur, en rafgítar er líka
frísklega spilaður. Útsetningar
þykja mér líka vel heppnaðar, á
þeim þekkilegur blær, sveiflan
mjúk og rokkið snarpt. Platan er
býsna fjölbreytt og víða brugðið á
leik eins og í Verðbréfasalanum,
sem er blúsgrunnað rokk með góð-
um gítar- og orgelleik, eða í Magn-
euvísum með suðrænu kassagít-
arkryddi.
Helsti galli hennar er aftur á
móti söngur Guðjóns sem er bragð-
daufur, karakter- og tilþrifalaus.
Hann er ekki með slæma rödd í
sjálfu sér, en skortir þá tækni sem
þarf til að glíma við snúnar laglín-
ur.
Lögin á plötunni eru prýðileg, lít-
ið að gerast í þeim sumum reyndar,
en Guðjón kann sitthvað fyrir sér í
lagasmíðum. Sönglínur eru stund-
um stirðar, en góður söngvari hefði
væntanlega unnið betur úr þeim.
Textar eru líka góðir alla jafna,
sumir þunnildi en meira kjöt á
beinunum í öðrum, nefni sem dæmi
textann við Bjart framundan, sem
mér þykir heldur innihaldsrýr þótt
hann sé fallegur.
Árni Matthíasson
Sveiflan
mjúk og
rokkið
snarpt
MJÖG stutt er í að leikari verði ráð-
inn til að fara með hlutverk James
Bond í nýrri kvikmynd um kvenna-
gullið og njósnara hennar hátignar.
Þessu heldur bandaríska kvik-
myndablaðið Variety fram. Þar
segir að leikprufum fyrir hlut-
verkið ljúki í vikunni og komi þrír
lítt þekktir leikarar til greina. Sá
fjórði sem talinn er geta hreppt
hnossið sló í gegn í sjónvarpsþátt-
unum Bráðavaktin, sem sýndir eru
á RÚV.
Þeir sem koma til greina eru:
Daniel Craig, sem lék í kvikmynd-
inni Layer Cake og Sylviu á móti
Gwyneth Paltrow, Henry Cavill,
sem leikið hefur í myndinni Hell-
raiser: Hellbound og ástralski leik-
arinn Sam Worthington, sem lík-
lega er þekktastur fyrir hlutverk
sitt í kvikmyndinni Hart’s War.
Goran Visnjic er sennilega þekkt-
astur fjórmenninganna, en hann
leikur lækni frá Balkanskaga í sjón-
varpsþáttaröðinni Bráðavaktinni.
Margir leikarar hafa verið orð-
aðir við hlutverk James Bonds, þar
á meðal Ewan McGregor, Jude
Law, Hugh Jackman, Clive Owen
og Dougray Scott.
Þegar vali á leikurum lýkur verð-
ur hægt að hefja tökur á nýjustu
kvikmyndinni um James Bond. Mun
hún heita Casino Royale og vera
byggð á fyrstu bók Ian Flemings
um ævintýri njósnarans. Fyrir-
hugað er að frumsýna myndina á
næsta ári en hún verður 21. kvik-
myndin um kvennagullið og njósn-
arann.
Nýr Bond í vikulokin?
Reuters
Daniel Craig er einn af þeim sem koma til greina í hlutverk Bonds.