Morgunblaðið - 30.09.2005, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 57
KRINGLANÁLFABAKKI
Með Steve Carell úr “Anchorman”
og “Bruce Almighty”Með Steve Carell úr “Anchorman” og
“Bruce Almighty”
D.V.
S.V. MBL
kvikmyndir.is
V.J.V. TOPP5.IS
R.H.R. MÁLIÐ
A.G. Blaðið
Frábær rómantísk gamanmynd sem steinliggur
fyrir stefnumótið. Með þeim stórgóða
John Cusack og hinni fallegu Diane Lane.
Erfi ðasta brellan er að fá þá til að staldra við.
VARÚÐ: Þú gætir farið úr
kjálkaliðum af hlátri
VARÚÐ: Þú gætir farið úr
kjálkaliðum af hlátri
GOAL! kl. 5.30 - 8 - 10.30
GOAL! VIP kl. 5.30 - 8 - 10.30
MUST LOVE DOGS kl. 3.50 - 6 - 8.15 - 10.30
THE 40 YEAR OLD... kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára.
VALIANT m/Ísl tal. kl. 3.40
SKY HIGH kl. 3.50 - 6
CHARLIE AND THE ... kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30
STRÁKARNIR OKKAR kl. 8 - 10.30 B.i. 16 ára.
RACING STRIPES m/Ísl tal. kl. 3.30
GOAL! kl. 5.45 - 8.15 - 10.45
THE CAVE kl. 10.30 B.i. 16 ára
VALIANT m/Ísl tali kl. 3.40 - 6
VALIANT m/ensku tali kl. 8
CHARLIE AND THE... kl. 3.40 - 6 - 8.15
SKY HIGH kl. 3.50
STRÁKARNIR OKKAR kl. 10.30 B.i. 14 ára
Diane Lane John Cusack
FRUMSÝND Í DAG! FRUMSÝND Í DAG!
Kalli og sælgætisgerðin
ÍSLENSKA hljómsveitin Without
Gravity, sem áður gekk undir nafninu
Tenderfoot, er hætt störfum. Árni
Benediktsson, umboðsmaður sveit-
arinnar, vill þó ekki útiloka að sveitin
komi saman aftur. „Without Gravity
er hópur einstaklinga sem kemur
reglulega saman og vinnur að tónlist
en núna ætla þeir að prófa að vinna
hver í sínu lagi.“
Fyrsta hljómplata sveitarinnar
Tenderfoot kom út hjá Smekkleysu
seint á síðasta ári en platan kom einn-
ig út í Englandi, Bandaríkjunum og í
Japan á vegum breska hljómplötufyr-
irtækisins One Little Indian. Fékk
platan víðast hvar ágæta dóma og
skipaði sveitin sér í framvarðasveit ís-
lenskra hljómsveita erlendis.
Hljómsveitin var nýkomin úr árang-
ursríkri kynningarferð í Bandaríkj-
unum þegar ákveðið var að slíta sam-
starfinu. Þar lék sveitin meðal annars
á útvarpsstöðvum, á CMJ-tónlistarhá-
tíðinni og á iTunes Sessions USA en
platan hefur hingað til selst vel á
iTunes.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Without Gravity
Without
Gravity
hætt
Eftir helgi kemur útgeisladiskurinn ThankGod for Silence meðhljómsveitinni Sign.
Platan er þriðja breiðskífa hljóm-
sveitarinnar en áður hefur Sign
sent frá sér Vindar og breytingar
(2001) og Fyrir ofan himininn
(2002). Í framhaldinu tóku við ým-
is verkefni eins og segir í frétta-
tilkynningu, auk þess sem manna-
breytingar urðu á sveitinni. Sign
skipa nú Zólberg sem syngur og
leikur á gítar, Addi G. sem einnig
leikur á gítar, Silli sem spilar á
bassa og Egill Örn sem trommar.
Hljómsveitin hefur unnið að
gerð Thank God for Silence með
hléum í tvö ár en nú í sumar barst
henni liðsstyrkur þegar upp-
tökustjórinn Mark Plati frá New
York kom til að vinna að þriggja
laga kynningardiski með þeim.
Mark hefur unnið með fjölda lista-
manna allt frá Prince til Phillip
Glass, David Bowie, Bee Gees, Al
Green, Nina Hagen, New Order
og Suzanne Vega svo fáeinir séu
nefndir. Mark tók vin sinn og gít-
aristann Earl Slick með sér, en
Slick hefur meðal annars unnið
með David Bowie í rúm 20 ár með
hléum og spilaði inn á Milk & Ho-
ney með John Lennon. Lögin sem
þeir unnu með Sign enduðu öll á
plötunni en þar á meðal er „A
Little Bit“ sem nú er í spilun á
Rás 2, XFM og X-inu.
Reið en sæt plata
Egill Örn trommari Sign segir
að nýja platan sé í sjálfu sér bara
rokkplata.
„Hún er bæði reið og sæt. Við
vorum búnir að taka upp allt efnið
þegar þeir Slick og Plati komu og
þá tókum við þrjú lög upp aftur.
Ef ég ætti að taka til eitt sem þeir
aðstoðuðu okkur sérstaklega við,
var það að þeir kenndu okkur að
koma tónlistinni betur til skila.“
Það eru bræðurnir Zólberg og
Egill sem gefa plötuna út hjá
R&R Music sem var í eigu föður
þeirra og trommuleikarans Rafns
Jónssonar heitins.
„Við gefum þetta út sjálfir
vegna þess að við getum það og
svo viljum við náttúrlega halda
uppi merki föður okkar. Það er svo
Sena sem dreifir plötunni. Það
hefðum við ekki getað gert sjálfir
– ekki nógu góðir sölumenn til
þess.“
Metnaðarfull hljómsveit
Fimmtudaginn 6. október held-
ur hljómsveitin í tónleikaferð sem
telur heila tíu staði víðsvegar um
landið. Aðspurður hvort hljóm-
sveitin sé orðin metnaðarfyllri en
hún hefur verið segir Egill að þeir
hafi alltaf verið metnaðarfullir.
„Það má hins vegar vera að við
höfum ekki haft nægilegan tíma
fram að þessu, né þroska til að
taka á málunum af fullum styrk.
Auk þess höfum við lítið spilað úti
á landi svo að við hlökkum mikið
til. Það er mjög gaman að koma
inn í nýtt umhverfi og spila fyrir
nýja áhorfendur. Fólk úti á landi
tekur manni öðruvísi en í bænum.
Allir vita af tónleikunum og hvar
þeir eru og fólk mætir með því
hugarfari að það sé að fara á tón-
leika og skemmta sér. Við bræð-
urnir erum báðir utan af landi og
við munum hvað okkur fannst
þetta gaman þegar bönd komu í
bæinn.“
En hvað með útlönd?
„Eru ekki allar hljómsveitir
eitthvað að þreifa fyrir sér í út-
löndum? Ég held samt að við séum
ekkert meira að því en aðrir. Við
byrjum hér og sjáum svo hvað
gerist.“
Tónlist | Hljómsveitin Sign sendir frá sér nýja plötu
Þögnin er gulls ígildi
Hljómsveitin Sign sendir nú frá sér sína þriðju breiðskífu.
Fimmtudaginn 6. október:
Selfoss Fjölbrautaskóli Suður-
lands ásamt Love Taken Away, kl.
20
Föstudagurinn 7. október :
Rás 2 í beinni í Popplandi, kl.
15.10.
Laugardaginn 8. október:
Reykjavík Gaukur á Stöng fyrir
alla aldurshópa, kl. 17.
Reykjavík Gaukur á Stöng ásamt
Dualsmile og Hot Damn, kl. 23.30.
Sunnudagurinn 9. október:
Ísafjörður, Menntaskólinn ásamt
Lack of Talent, kl. 20.
Mánudagur 10. október:
Sauðárkrókur, Friður ásamt
Cram, kl. 18.30.
Þriðjudagur 11. október:
Akureyri, Húsið ásamt Stillbirth,
Atrum, Amore morte o.fl.
Miðvikudagur 12. október:
Egilsstöðum, Menntaskólinn, kl.
20.
Fimmtudagur 13. október:
Eiðar, Grunnskólinn á Eiðum há-
degistónleikar
Höfn á Hornafirði ásamt Modis, kl.
20.
Mánudagurinn 17. október:
Hafnafjörður, Öldutúnsskóli.
Föstudagurinn 21. október:
Iceland Airwaves, Kerrang! Kvöld
í Loftkastalanum.
Tónlist | Rás 2 rokkar hringinn með Sign
Á vegum úti