Morgunblaðið - 02.10.2005, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2005 27
HRETIÐ undanfarna daga á norð-
anverðu landinu hefur orðið til þess
að menn velta fyrir sér hegðun gæsa
á næstunni. Mun hún fara fyrr á vetr-
arstöðvarnar vegna þess arna eða
bíður hún átekta um sinn, nánast
einsog í voninni um að slakni á kuld-
anum og áfram verði jafnmilt og ver-
ið hefur undanfarin ár.
Veiðimenn á Vestfjörðum og
Norðurlandi hafa þurft að bregðast
við snjónum með því að útbúa sig á
annan hátt þar sem lítið gagn er í því
að klæðast brúnum, gulum og græn-
um felulitum þegar snjór er yfir öllu.
Einn stakk upp á því að fá sér hvítan
málningargalla og sagði það hafa gef-
ið ágæta raun. Hvítt plast, t.d. rúllu-
baggaplast en nóg er til af því, ætti að
gera sama gagn því tilgangurinn er
auðvitað sá að fela sig og verða sam-
litur umhverfinu. En það er lítið
gagn í því að fela sig ef engin er gæs-
in og spurningin stendur hvort hún
láti snjóinn lítið á sig fá eða ekki.
Menn hafa látið sér detta í hug að
gæsin hópist fyrr en ella á Suður-
landið og þar verði krökkt af gæs nú í
október, gæsir sem annars hefðu
dvalið lengur á Norðurlandinu.
Kornið sem liggur óskorið á ökrum
Norðlendinga gæti einnig freistað
gæsanna ef ekki gerir frost. Hlýindi
með tilheyrandi hláku yrðu svo til
þess að gæsirnar hefðu úr nógu að
moða þar sem eru mörg hundruð
hektarar af óskornu liggjandi korni
um allt Norðurlandið. Bændur eru
líklega mátulega hrifnir af því að
hafa ræktað korn með ærinni fyrir-
höfn og sjá það svo verða að gæsa-
fóðri.
Rúllubaggar og kistur
Benedikt Ragnarsson verslunar-
stjóri í Útivist og veiði í Reykjavík
segir að líklegt sé að gæsirnar hópist
á Suðurlandið á næstunni. „En ef það
hlánar fljótlega fyrir norðan verður
veisla hjá gæsunum og veiðimenn
ættu að gera það gott.“
Aðspurður segir Benedikt að mikil
sala hafi verið í haust á alls kyns bún-
aði til skotveiða. „Það er greinilega
mikill áhugi á þessu sporti og margir
nýir að koma inn í þetta. Við höfum
verið að selja mikið af byrgjum og
felubúnaði til gæsaveiða sem nær
mönnum upp úr skurðunum. Þetta
eru t.d.byrgi sem líta út eins og rúllu-
baggar og tvær skyttur geta setið
þægilega inn í. Þarna láta menn fara
vel um sig með kaffibrúsann og jafn-
vel lítinn gashitara á köldum morgni.
Eins manns byrgi, kisturnar, sem
menn liggja í á jörðinni og setja hálm
og gras utan á undir sérstakar teygj-
ur hafa einnig reynst mjög vel og að-
alkosturinn er að menn geta staðsett
sig þannig að þeir fá gæsirnar beint
yfir sig. Nú þurfa gæsaskyttur ekki
að liggja í skurðum í vöðlunum í vatni
upp að mitti heldur í hlýjum útivist-
argalla og veiða samt betur,“ segir
Benedikt.
Hann bætir því við að það sé
greinilega kominn hugur í rjúpna-
skyttur því margir séu farnir að
leggja leið sína í búðina til að skoða
hvað sé á boðstólum af varningi til
rjúpnaveiða. „Það verður mikil skot-
hríð á fjöllum fyrstu dagana í rjúpna-
veiðinni.“
Í Sjóbúðinni á Akureyri varð Ár-
mann Pétur Ævarsson fyrir svörum.
„Það hefur verið talsverð sala í
byssum og felubyrgjum til gæsa-
veiða í haust. Það er greinilegt að ný-
ir menn eru að koma inn í þetta og
mikill áhugi á skotveiðum. Maður
heyrir það líka á mönnum að mikil
eftirvænting er eftir rjúpnaveiðinni,
þar verða áreiðanlega margir á ferð.“
Ármann kveðst ekki vilja segja til
um hvað hretið hafi mikil áhrif á
gæsaveiðina. „Ég hef heyrt af veiði-
mönnum sem hafa verið að gera það
ágætt undanfarna daga þrátt fyrir
snjóinn. Það er ennþá talsvert af gæs
hér á Norðurlandinu þó óvíst sé hvað
hún verði hér lengi ef snjóinn tekur
ekki upp.“
Ákveðin svæði hafa gefið minna í ár
Kjartan Ingi Lorentz í Veiðibúð-
inni Hlað í Reykjavík segist hafa
fundið fyrir mikilli nýliðun í hópi
skotveiðimanna. „Þetta er greinilega
sterkur árgangur sem er að koma
inn,“ segir hann. „Við höfum verið að
selja mikið af fatnaði, gervigæsum og
byssum til manna sem eru að stíga
fyrstu skrefin í veiðunum. Hinir sem
lengra eru komnir eru líka að bæta
við sig búnaði enda er þetta græju-
sport. Felubyrgi af ýmsum tegund-
um hafa selst vel í haust en þó eru
líka margir veiðimenn sem vilja
stunda veiðarnar á hefðbundinn hátt
og liggja fyrir gæsinni á náttúruleg-
um felustöðum. Því er þó ekki að
neita að það fer betur um menn í felu-
byrgjunum, bæði hlýrra og þurrara.“
Kjartan segist merkja af samræð-
um við veiðimenn víða um land að
ákveðin svæði hafi gefið minna af
fugli en undanfarin ár. „Það er t.d.
greinilegt að heiðagæsin hélt sig
meira á austanverðu landinu og hefð-
bundin veiðisvæði á Norðvesturlandi
gáfu minna en undanfarin ár. Þetta
getur stafað af því að þessi svæði eru
þurrari og fuglinn leitar annað. Hret-
ið undanfarna daga hefur síðan haft
áhrif á grágæsina og hún er að flytja
sig þessa dagana af Norðurlandinu
suður yfir heiðar.“
Þrátt fyrir þetta segir Kjartan að
menn hafi verið að veiða ágætlega en
það sé með veiðar eins og annað að
þeir sem stunda veiðarnar fá meira
en hinir sem heima sitja. „Ég heyri
ekki annað en menn séu nokkuð sátt-
ir þrátt fyrir ótíðina fyrir norðan. Í
heildina er nóg af fugli því varp tókst
vel bæði hjá grágæsinni og heiða-
gæsinni en það er aftur meiri spurn-
ing með blesgæsina og helsingjann.
Endurnar náðu líka góðu varpi þann-
ig að þetta eru sterkir stofnar sem
verið er að veiða úr.“
Ætla að gæta hófs við veiðarnar
Kjartan kveðst merkja mjög
ákveðinn tón í veiðimönnum varð-
andi rjúpnaveiðina framundan. „Það
er greinilegt að menn ætla að gæta
hófs við veiðarnar og tryggja að þeir
geti veitt rjúpur um ókomin ár. Menn
eru almennt mjög sammála um að
skjóta bara fyrir sig en ekki fyrir
Siggu frænku líka og fara þannig að
tilmælum umhverfisráðherra um
veiðimagnið. Þetta eru ekki síður
menn sem veiddu áður ógrynni af
rjúpum en þeir sem minna veiddu.
En það er mikil eftirvænting og
spenna í veiðimönnum um að komast
til rjúpnaveiða á nýjan leik.“
Skotveiði | Margir nýir veiðimenn að koma inn í sportið
Erum að ná mönnum
upp úr skurðunum
Veiðimenn geta nú setið inni í gerviheyrúllu, haft það notalegt með kaffibolla og
gashitara meðan beðið er eftir gæsunum.
Eftir Hávar Sigurjónsson
havar@mbl.is
ENSKA ER OKKAR MÁL
Talnámskeið að hefjast - 5 vikur
Frá byrjendum til framhalds - aukaorðaforði og sjálfstraust
Vertu velkomin í heimsókn og ráðgjöf
Hringdu í síma 588 0303 • FAXAFENI 8 • www.enskuskolinn.is
Einnig:
• Skrifhópar - bæta við færni í enskri ritun.
• Umræðuhópar fyrir framhaldsnemendur - Viðskiptaenska umræðuhópar.
• Símsvörun (2 skipti), TOEFL (3 skipti).
• Barnanámskeið (5-12 ára) og 8.-10. bekk - 5 vikur.
FRÉTTIR
Kaaber og Sigþór A. Heimisson sem
leika í sýningunni en leikstjóri er
Valgeir Skagfjörð. Sl. miðvikudag
voru þeir félagar á Hólmavík og
sýndu fyrir alla nemendur og starfs-
fólk grunnskólans þar, við góðar
undirtektir.
Hólmavík | Stoppleikhópurinn er á
ferðalagi í grunnskóla landsins með
leiksýningu um Hrafnkelssögu
freysgoða. Eins og sjá má spila
hefndir og hetjudáðir stórt hlutverk
í þeirri sögu eins öðrum Íslend-
ingasögum. Það eru þeir Eggert A.
Morgunblaðið/Kristín Einarsdóttir
Sýna Hrafnkelssögu
freysgoða í grunnskólum
Fjarðabyggð | Á föstudag hófst 15.
landsmót Samfés í Fjarðarbyggð. Í
fréttatilkynningu segir að á mótið
mæti fulltrúar unglingaráða flestra
félagsmiðstöðva á landinu, með því
markmiði að hittast, kynnast öðrum
unglingum alls staðar að af landinu
og til að vinna í mismunandi smiðjum
í einn dag. Smiðjurnar eru tuttugu
talsins í ár og er efni þeirra mjög
fjölbreytt. Sem dæmi um smiðjur
eru matarsmiðja, tónlistarsmiðja,
íþróttasmiðja, áskorunarsmiðja, kaj-
aksmiðja, danssmiðja, golfsmiðja,
hestasmiðja o.fl. o.fl.
Í ár eru um 300 þátttakendur á
landsmótinu frá 60 félagsmiðstöðv-
um um allt land. Dagskráin hófst á
föstudagskvöld með setningarat-
höfn, m.a. tónlistatriðum og ávörp-
um.
Hafsteinn Snæland, fram-
kvæmdastjóri Samfés, segir að
landsmótið sé mjög gott dæmi um
heilbrigða skemmtun unglinga á Ís-
landi. „Samfés leggur mikið í að
skipuleggja þennan atburð ár hvert
þar sem hann er flaggskip atburða
vetrarins. Unglingarnir sem mæta á
þennan atburð fara til síns heima
með aukinn kraft og vonandi þekk-
ingu úr smiðjunum sem þau geta
miðlað til jafningja sinna heima,“
segir Hafsteinn. Mótinu lýkur í dag.
Landsmót
Samfés í
Fjarða-
byggð
ÍRANSKI kvikmyndaleikstjórinn
Abbas Kiarostami heldur námskeið
á mánudag, þar sem hann miðlar
reynslu sinni af kvikmyndagerð. Hér
er ekki um lítinn feng að ræða, enda
er Kiarostami af mörgum talinn einn
besti kvikmyndagerðarmaður sam-
tímans. Hann hefur þrisvar verið til-
nefndur til gullpálmans í Cannes, og
fékk hann árið 1997 fyrir myndina
Keimur af kirsuberjum auk þess
sem breska dagblaðið The Guardian
útnefndi Kiarostami sjötta besta nú-
lifandi kvikmyndagerðarmann
heimsins.
Heimildarmynd Kiarostamis, 10
on Ten, frá árinu 2004 verður sýnd í
upphafi námskeiðsins og síðan rædd.
10 on Ten fjallar um sögu og gerð
kvikmyndarinnar Tíu, frá árinu
2002.
Námskeiðið fer fram mánudaginn,
3. október í hátíðarsal Háskóla Ís-
lands frá kl. 13–17. Skráningargjald
er kr. 5000 og fer skráningin fram á
heimasíðu hátíðarinnar, www.film-
fest.is.
Enn laus sæti
á masterclass
Kiarostamis
UM helgina hefur staðið yfir
á Seyðisfirði Íslandsmót
Íþróttasambands fatlaðra í
boccia, einstaklingskeppni á
vegum Íþróttafélaganna Vilj-
ans á Seyðisfirði og Örvars á
Egilsstöðum. Þetta er í
fyrsta skiptið sem mótið er
haldið á Austurlandi.
Boccia gengur í stuttu
máli út á það að leikið er
með 6 boltum. Þeir eru hafð-
ir í sitt hvorum lit, t.d. þrír
bláir og þrír rauðir. Síðan er
einn aukabolti hvítur. Hvíta
boltanum er fyrst kastað
fram á völlinn og er mark-
miðið að hitta sem næst hon-
um með hinum boltunum.
Það lið sem hefur fleiri bolta
og nær þeim hvíta fær flest
stig. Keppendur, sem eru um
160 talsins koma af öllu land-
inu.
160 keppend-
ur taka þátt í
Íslandsmótinu
í boccia
RANGT var farið með skulda-
lækkun hjá Þórshafnarhreppi í
blaðinu í gær í frétt um sölu á fé-
lagslegu húsnæði. Skuldirnar lækk-
uðu um 110 milljónir við söluna en
ekki um 10 milljónir eins og sagði í
fréttinni. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
110 milljóna lækkun