Morgunblaðið - 02.10.2005, Side 33

Morgunblaðið - 02.10.2005, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2005 33 arbræður líka orðið að þola vegna rannsóknar í Svíþjóð á hlutabréfaviðskiptum þeirra. Þeir komu með glæsilegum hætti út úr þeirri rann- sókn. Eimskipafélagið hefur líka orðið að þola húsleit vegna kæru frá samkeppnisaðila. Það eru m.ö.o. sjö fyrirtæki, sem vitað er um að hafa orðið að þola húsleit yfirvalda á síðustu árum. Kannski eru þau fleiri án þess að það hafi vitnast. Þetta er hlutverk þeirra eftirlitsstofn- ana, sem settar hafa verið upp skv. lögum frá Alþingi Íslendinga. Þetta er þáttur í starfi þeirra. Þetta er gert í öllum nálægum löndum og þykir nú orðið ekki tiltökumál. Væntanlega vill þjóðin, að þessar stofnanir sinni verkefnum sínum?! Þessum aðgerðum eftirlitsstofnana hefur ver- ið misjafnlega tekið af forráðamönnum þeirra fyrirtækja, sem hlut eiga að máli. En þeir mega ekki gleyma því, að þeir eru ekki hafnir yfir lög- in. Þótt fyrirtækin séu stór og veiti mörgu fólki atvinnu verða þau að lúta íslenzkum lögum. Þótt eigendur þeirra séu auðugir á íslenzkan mæli- kvarða og nú orðið jafnvel á alþjóðlegan mæli- kvarða þýðir það ekki að þeir séu hafnir yfir lögin. Í einu þessara tilvika hefur sú eitraða blanda orðið til, sem upp kom í Geirfinnsmálinu og Haf- skipsmálinu, þegar viðskiptahagsmunir, stjórn- málahagsmunir og fjölmiðlar koma saman í einn stóran grautarpott, sem hrært er í frá degi til dags. Það var hætta á því að þetta gerðist líka varðandi rannsóknina á olíufélögunum en það varð ekki. Það er enginn munur á því, hvernig staðið hefur verið að rannsókn á málefnum Baugs og málum olíufélaganna. Forráðamenn Baugs hafa haldið því fram, að pólitískar ástæður hafi legið að baki húsleit og rannsókn á viðskiptaháttum fyrirtækisins en eftir atburði síðustu daga ætti öllum að vera ljóst, að þar var „lítill Lands- símamaður“ á ferð, sem raunar hefur legið fyrir frá upphafi. Forráðamenn olíufélaganna hafa áreiðanlega velt því fyrir sér hvað hafi hrundið rannsókn á málefnum olíufélaganna af stað en á þessari stundu er ekki vitað hvort þar var líka „lítill Landssímamaður“ á ferð. Kannski verður það einhvern tíma upplýst. Forráðamenn Baugs telja bersýnilega að „litli Landssímamaðurinn“ hafi notið stuðnings úr öðrum áttum í þeirra máli. Skyldi „litli Landssímamaðurinn“ – ef hann var á ferð í máli olíufélaganna – hafa notið stuðnings úr einhverri átt? En segjum sem svo að „litlir Landssíma- menn“ hafi verið á ferð í þessum málum báðum – er það eitthvað ljótt? Ekki er það svo að mati Bandaríkjamanna, sem annaðhvort eru búnir að setja lög til þess að verja stöðu „lítilla Lands- símamanna“ þar í landi eða eru að íhuga að setja slík lög. Það er kannski kominn tími til að ræða hvort tilefni sé til að setja slík lög á Íslandi og tryggja stöðu „lítilla Landssímamanna“? Þá þurfa þeir ekki að örvænta um sinn hag eins og nýleg dæmi eru um. Þá þurfa þeir ekki að velta því fyrir sér hvort þeir eigi að þora að tala við nafn- greinda lögfræðinga af ótta við að á milli þeirra og stórfyrirtækja, sem hlut eiga að máli séu hagsmunatengsl, sem geri það að verkum, að fyrir þá verði ekki unnið af heilindum. Er þetta ekki kjörið málefni fyrir núverandi og fyrrverandi formenn Samfylkingarinnar, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Össur Skarphéðinsson, til þess að taka upp á Alþingi og bera fram til sigurs? Ekki verður því trúað að þau Össur og Ingibjörg Sólrún vilji ekki tryggja stöðu „lítilla Landssímamanna“ í okkar þjóðfélagi. Í ljósi þess að það sama, sem gengið hefur yf- ir forráðamenn Baugs snýr að forráðamönnum annarra stórra fyrirtækja á Íslandi má spyrja hvers vegna þjóðfélagið er hvað eftir annað sett á annan endann vegna þess, að sama máls- meðferð er í gangi varðandi Baug og önnur fyr- irtæki. Af hverju er ekki allt á öðrum endanum yfir því, að það er verið að rannsaka málefni ol- íufélaganna hjá efnahagsbrotadeild ríkislög- reglustjóra? Svarið er einfalt. Forráðamenn Baugs hafa keypt fjölmiðla, marga fjölmiðla, og þeir hafa kosið að beita þeim til þess að draga athyglina frá kjarna málsins, efnisatriðum ákærunnar, sem á þessari stundu er að vísu í þeirri stöðu að henni hefur verið vísað frá dómi. Og þeir hafa fengið starfsmenn þessara fjöl- miðla til að taka þátt í þeim leik. Undanfarna daga hafa tveir aðilar hvatt til þess, að opinber rannsókn fari fram á aðdrag- anda að kæru „litla Landssímamannsins“ í Baugsmálinu. Þetta er þau Margrét Frímanns- dóttir og Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs. Tillögur þeirra hafa komið fram í kjölfar þess, að upplýst hafi verið að ritstjóri Morg- unblaðsins hafi rétt þessum „litla Landssíma- manni“ hjálparhönd við að fá lögfræðing til starfa fyrir sig. Morgunblaðið hefur fagnað því, að þessi til- laga er fram komin. Blaðið hefur hvatt til þess að slík rannsókn fari fram. Slík rannsókn mundi leiða sannleikann í ljós. Það er alveg augljóst að forráðamenn Baugs telja sig ranglæti beitta. Og þeir sem upplifa umhverfi sitt þannig verða reiðir. En úr því að þeir eru svo sannfærðir um sakleysi sitt má spyrja hvers vegna þeim er ekki annt um að efnislegur dómur falli. Þegar ákærurnar í Baugsmálinu eru lesnar er alveg ljóst, að það liggur ekkert beint við að hin- ir ákærðu verði sakfelldir. Hvers vegna má þá ekki fá efnislegan dóm? Ekki þurfa þeir að ótt- ast að málsvörnin verði ekki nægilega sterk. Þeir eru með marga helztu lögfræðinga landsins í vinnu fyrir sig. Og ekki þurfa þeir að óttast að málsvörn þeirra komist ekki til skila til almenn- ings. Morgunblaðið hefur sýnt þeim þá sann- girni að birta orðrétt hvern einasta staf í máls- vörn þeirra, sem þeir hafa sent frá sér, og er eini fjölmiðillinn, sem það hefur gert. Lærum af reynslunni Við skulum læra af reynslunni. Látum Baugsmálið ekki verða að nýju Geir- finnsmáli eða nýju Hafskipsmáli. Látum Baugs- málið ekki skapa neikvætt og eitrað andrúms- loft í kringum okkur. Látum Baugsmálið ekki verða til þess að góðir vinir og kunningjar verði að óvinum. Látum Baugsmálin ekki verða til þess að hugarórar verði að veruleika í hugum fólks. Það koma fleiri mál á eftir Baugsmálinu. Mál- efni olíufélaganna eru á næsta leiti. Hverjir hafa áhuga á sams konar umræðum um þau? Það er athyglisvert að upplifa að hinn þögli meirihluti Íslendinga, bóndinn á Barða- strönd, sjómaðurinn á Reyðarfirði, kennarinn í Kópavogi, allir þeir og margir fleiri sjá þess- ar umræður í skýru ljósi. Yfir ritstjóra þessa blaðs hafa dembst á undanförnum dögum sím- hringingar og tölvupóstar og boðskapurinn er alltaf sá sami; ekki birta það, sem þú hefur undir höndum. Ekki detta í sama forarpytt og aðrir. Við viljum ekki meira af þessum um- ræðum. Þetta eru góð ráð og þetta eru heilbrigðar ráðleggingar. Þetta fólk sér þessar umræður í skýrara ljósi en gáfumennirnir í landinu, rithöf- undarnir, háskólakennararnir, fræðimennirnir og allir þeir. Það er ástæða til að hlusta á þetta fólk og það eiga fleiri að gera en Morgunblaðsmenn. Morgunblaðið/RAX Vetur og haust mætast. Það er kannski kominn tími til að ræða hvort tilefni sé til að setja slík lög á Íslandi og tryggja stöðu „lítilla Lands- símamanna“? Þá þurfa þeir ekki að örvænta um sinn hag eins og nýleg dæmi eru um.... Er þetta ekki kjörið málefni fyrir núver- andi og fyrrverandi formenn Samfylk- ingarinnar, Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur og Öss- ur Skarphéðinsson, til þess að taka upp á Alþingi og bera fram til sigurs? Laugardagur 1. október

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.