Morgunblaðið - 02.10.2005, Page 50

Morgunblaðið - 02.10.2005, Page 50
50 SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Fólk heldur að það þekki þig vel, en satt best að segja er ýmislegt í þínu fari sem þú vilt halda leyndu fyrir öðr- um. Kannski siglir þú undir fölsku flaggi í dag. Ó, er það ekki? Kannski er tími til kominn. Naut (20. apríl - 20. maí)  Hlutirnir fara hægt af stað en nautið lifnar fljótt við þegar einhver veitir því samkeppni. Ein leið til þess að forðast innkaup af gáleysi er að muna hversu sársaukafullt það er að borga eitthvað sem maður man ekki eftir því að eiga. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Ástvinur stjórnar tvíburanum eins og brúðu – eða það heldur hann. Það er auðveldara að fá sínu framgengt þegar maður lætur aðra halda að eitthvað sé þeirra hugmynd. Sniðugi tvíburi. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú átt þér draum. Manst’ekki? Svo margir hafa sagt þér að hann sé ómögulegur, að kannski ertu búinn að gleyma honum. Hvað er þetta (meðal- mennsku) fólk að fást við þessa dag- ana? Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ljónið þarf ekki að reyna að vera mikilvægt til þess að láta eitthvað ein- stakt gerast. Það skiptir máli og mun skipta enn meira máli er það áttar sig á því hvað er mikilvægt; lítil, mikilvæg, ekta augnablik með ástvinum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Meyjan er hógværðin uppmáluð út á við. En sálin er strípalingur sem baðar sig allsnakinn í sólskininu. Hún er hamingjusöm þótt það sé ekki í tísku núna og kærir sig kollótta um hver veit það. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Voginni bregður í brún þegar óvænt snurða hleypur á þráðinn í peninga- málum. Settu háa upphæð í veskið og láttu eins og þú eigir peninga, til þess að snúa þróuninni við. Samband við naut kemur ekki að sök. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Sporðdrekinn býr yfir einbeitni, metn- aði og orku, en er hann í rétta dress- inu? Líklega ekki. Það er kominn tími til að kaupa sér valdsmannsleg jakka- föt. Kannski eru þau á útsölu. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Bogmanninum liggur svo á að komast á næsta áfangastað, að hann má varla vera að því að pakka nauðsynjum sem tilheyra atvinnumanninum; eyrum sem hlusta, augum sem þekkja lygar og kímni sem nístir í gegnum merg og bein. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Steingeitin fer yfir strikið en lendir samt standandi. Hvernig stendur á því að ef einhver annar gerir það sama, lendir hann í fangelsi? Það er ekki hvað maður gerir sem gildir, heldur hver maður er. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Gamli, góði dýrlingurinn vatnsberinn. Hann er svo upptekinn við að sinna öðrum að hann man ekki hvað hann ætlar að gera sjálfur. Annaðhvort leys- ast hlutirnir á listanum hans sjálfkrafa eða falla í gleymsku. Eins gott. Hann vill að aðrir þarfnist sín. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Varðandi vandamál í ástalífinu: Ann- aðhvort hefur þú hugsað of mikið eða of lítið um það. Einbeittu þér að einhverju öðru, eins og til dæmis hæfileikum þín- um, og vandinn gufar hreinlega upp. Stjörnuspá Holiday Mathis Skorturinn á nákvæmum afstöðum í himingeimnum í dag er eins og lognið á undan storminum. Líta má á þetta sem tímabil endurstillingar – tækifæri til þess að nota orku vogarinnar til þess að ná jafnvægi áður en allt kemst í uppnám í næstu viku. Mars er í afturábakgír og komið að skuldadögunum. Sudoku © Puzzles by Pappocom Lausn síðustu gátu Þrautin felst í því að fylla út í reit- ina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 lak, 8 dugn- aðurinn, 9 vel látinn, 10 ferskur, 11 móka, 13 sár, 15 málms, 18 skýla, 21 kjökur, 22 upplýsa, 23 hæðin, 24 óhemja. Lóðrétt | 2 skærur, 3 þekkja, 4 furða, 5 heið- ursmerkjum, 6 álít, 7 tölustafur, 12 tunga, 14 muldur, 15 ávaxtasafi, 16 þor, 17 slark, 18 herða- skjólið, 19 eðlinu, 20 fífl. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 bílar, 4 förla, 7 vélar, 8 öngul, 9 tál, 11 lóan, 13 grær, 14 álaga, 15 hörð, 17 treg, 20 bik, 22 molla, 23 nú- tíð, 24 rugla, 25 rúðan. Lóðrétt: 1 búvél, 2 lalla, 3 rýrt, 4 fjöl, 5 rígur, 6 aular, 10 ábati, 12 náð, 13 gat, 15 hímir, 16 róleg, 18 ritað, 19 gæðin, 20 baga, 21 knár. Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn 10.október verður haldinn hátíðlegur hérá landi með fjölbreyttri og skemmti-legri dagskrá dagana 4.–10. október næstkomandi. Guðbjörg Daníelsdóttir, sálfræð- ingur hjá Geðhjálp, er verkefnisstjóri dagskrár- innar, en hún segir þema dagsins í ár vera „And- leg og líkamleg heilsa yfir æviskeiðið“. „Þetta er fyrst og fremst gert til að vekja athygli á því að tengslin á milli andlegrar og líkamlegrar heilsu eru órjúfanleg. Hreyfing hefur góð áhrif á geðið og geðheilsan hefur áhrif á líkamann. Streita og kvíði geta til dæmis brotið niður ónæmiskerfi lík- amans. Þetta virkar sem sagt í báðar áttir og við viljum minna á hversu áríðandi er að sinna and- legu heilsunni, ekki síður en þeirri líkamlegu. Við byrjum á þriðjudaginn með fimm fræðslu- erindum um geðheilsu í Gerðubergi sem hafa yfirskriftina „Að vera manneskja“. Á föstudeg- inum verður svo Ráðstefna um geðheilbrigðismál á Hótel Loftleiðum. En aðaldagurinn hjá okkur er laugardagurinn 8. október, en þá ætlum við að minna rækilega á það að með því að synda, ganga og hlaupa, höfum við góð áhrif á geðið. Við ætlum sem sagt að vera með Geðhlaup í Nauthólsvík klukkan ellefu og Geðsund klukkutíma síðar, en þá ætlar Benedikt S. Lafleur sjósundkappi að leiðbeina byrjendum og sýna hvernig virkja má lífsorkuna í sjálfum sér og þeir sem treysta sér fara þá í sjóinn og synda. Klukkan eitt verður svo Geðganga þar sem gengið verður afturábak niður Laugaveginn. Okkur finnst mjög táknrænt að ganga afturábak, því þegar fólk byrjar í geðrækt þá er það svolítið eins og að ganga afturábak. Sumum finnst líka glíman við geðsjúkdóma og glíman við kerfið vera eins og afturábak ganga. Auðvitað verður líka gengið áfram, en það þarf að hafa svolítið meira fyrir því að ganga aftur- ábak. Þessi ganga endar í Ráðhúsinu þar sem verður dagskrá með listamönnum á öllum aldri með vísan í geðheilbrigði á öllum skeiðum ævinn- ar. Unglingahljómsveitin Mania Locos mun stíga á stokk, Raggi Bjarna tekur lagið og Gerðuberg- skórinn sem samanstendur af fólki á aldrinum sjötíu til níutíu ára ætlar líka að syngja, svo fátt eitt sé nefnt. Á sunnudeginum verður sérstök messa í tilefni dagsins í Háskólakapellunni og einnig verður skákhátíð í Ráðhúsinu þar sem bæði verður fjöltefli og hraðskákmót. Á mánu- deginum verða opin hús um allan bæ, stofn- fundur félags námsmanna með geðraskanir við Háskóla Íslands og Kynningarfundur hjá sam- tökunum fyrir ungt fólk með þunglyndi. Og það verður frítt fyrir alla í Hreyfingu, Faxfeni 14 í til- efni dagsins.“ Nánari dagskrá má nálgast á www.gedhjalp.is. Geðrækt |Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn haldinn hátíðlegur Geðhlaup og geðsund í sjónum  Guðbjörg Daníels- dóttir fæddist í Reykja- vík árið 1968. Hún er stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík, lauk B.A. námi í sál- fræði frá Háskóla Ís- lands, lauk masters- námi í sálfræði frá Boston College 1995 og einnig réttindanámi í sálfræði frá Háskóla Ís- lands. Hún er með kennsluréttindi frá Háskóla Íslands og hefur starfað við kennslu og rannsóknir en undan- farin tvö ár hefur hún starfað sem sálfræðing- ur hjá Geðhjálp. Guðbjörg er gift og á þrjár dætur.  „Hjáverk í amstri daga“, opin list- munasýning Einars Árnasonar. Grand Hótel Reykjavík | Hverfisráð Laugardals býður eldri borgurum í Laugardal til íbúaþings mánudaginn 3. október kl. 12.30–16.30. Gerum gott hverfi betra. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er opið öllum. Betri stofa og Lista- smiðja kl. 9–16. Fastir liðir eins og venjulega. Tölvunámskeið hefst 22. okt. Skráning stendur yfir á framsagnarnámskeið. Gönguferð „Út í bláinn“ alla laugardaga kl. 10. Kvenfélag Garðabæjar | Fyrsti fé- lagsfundur vetrarins verður haldinn á Garðaholti þriðjudaginn 4. október og hefst kl. 19.30. Konur munið að skrá ykkur á fundinn. Stjórnin. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höfuð- borgarsvæðinu | Guðsþjónusta á vegum Laugarneskirkju í Rauða salnum kl. 13. Vesturgata 7 | Félagsmiðstöðin verður 16 ára 3. október, af því til- efni verður gestum og velunnurum boðið í morgunkaffi kl. 9–10.30. Sig- urgeir Björgvinsson leikur á flygil- inn. Kl. 10 flytur séra Hjálmar Jóns- son dómkirkjuprestur afmælisávarp. Kirkjustarf Árbæjarkirkja | Fundir æskulýðs- félagsins alla sunnudaga kl. 17– 18.30. Unglingar á aldrinum 13–15 ára eru boðnir velkomnir. Grafarvogskirkja | Námskeiðið „Að búa einn/ein“ hefst í Grafarvogs- kirkju þriðjudaginn 4. okt. kl. 20. Námskeiðið stendur í átta vikur og er ætlað þeim sem gengið hafa í gegnum skilnað nýlega. Safnaðarfélag Grafarvogskirkju | heldur haustfund sinn í safnaðarsal kirkjunnar mánudaginn 3. okt. kl. 20. Jóhanna Kristjónsdóttir, rithöf- undur og blaðamaður, sem dvalið hefur langdvölum í Mið-Austur- löndum, segir frá lífi kvenna þar. Kaffiveitingar og fyrirspurnir. Mæt- um vel og tökum með okkur gesti. Hjallakirkja | Æskulýðsfélag fyrir 9. og 10. bekk er með fundi á sunnu- dögum kl. 20–21.30. Félagsstarf Bólstaðarhlíð 43 | Haustfagnaður- inn verður fimmtudaginn 20. okt. kl. 17. Veisluhlaðborð frá Lárusi Lofts- syni. Egill Ólafsson syngur við undir- leik Jónasar Þóris. Hjördís Geirs og Siffi sjá um dansinn. Skráning í síma 535 2760 sem fyrst. Breiðfirðingabúð | Fundur verður haldinn 3. október kl. 20. Gestur fundarins verður Þórhallur Guð- mundsson miðill. Gestir velkomnir. Breiðfirðingafélagið | Félagsvist, fyrsti spiladagur vetrarins verður í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, sunnudaginn 2. október kl. 14. Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er öllum opið kl. 9–16. Fastir liðir eins og venjulega. Aðstaða til frjálsrar hópamyndunar. Postulínsnámskeið hefst 7. okt. kl. 9. Framsögn mánu- daga kl. 13.30. Skráning í Biblíuhóp stendur yfir. Sími: 588 9533. Félag eldri borgara, Kópavogi, ferðanefnd | Haustlitaferðin sem felld var niður fimmtudaginn 29. sept. vegna veðurs verður farin mánudaginn 3. okt. Lagt af stað frá Gullsmára kl. 13.15 og Gjábakka kl. 13.30 Ferðaáætlun óbreytt. Kaffi- hlaðborð í Skessubrunni og dansað á eftir. Skráningar frá 29 sept. gilda. Hringt verður í þá sem skráðu sig. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20. Hljómsveitin Klassík leikur. Fundur um nýja leiðakerfið með forráða- mönnum Strætó verður í Stang- arhyl 4, miðvikudaginn 5. október kl. 15. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 13–16 Staðurogstund http://www.mbl.is/sos ÚT ER komin hjá Bókaútgáfunni Hól- um bókin Myndlist á Akureyri að fornu og nýju eftir Valgarð Stefánsson. Í bókinni dregur höfundurinn upp mynd af listalífi Akureyringa frá upphafi fram á 21. öld. Fjallar hann um alla þá listamenn sem mótað hafa listasögu bæjarins og einstaka viðburði, á borð við fyrstu málverkasýninguna. Einnig er fjallað um Myndlistarfélag Akureyr- ar, Myndlistarskólann, Gilfélagið og Listasafnið. Bókin er 192 blaðsíður að lengd og prýdd fjölda ljósmynda af málverkum og listamönnum. Listasaga Akureyrar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.