Morgunblaðið - 18.11.2005, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
4
9
1
5
SUMARLJÓS OG SVO KEMUR NÓTTIN
EFTIR JÓN KALMAN STEFÁNSSON
5-STJÖRNUBÓK
„... HRÍFANDI FYNDIN ... SUMARLJÓS OG
SVO KEMUR NÓTTIN ER FRÁBÆRLEGA
VEL STÍLUÐ BÓK. ... ÞVÍ SKÁLD ER JÓN
KALMAN, GLIMRANDI SKÁLD.“
„ÞETTA ER FYNDIN BÓK
OG SKRINGILEG EN SAMT
DJÚP OG SÁR“
Páll Baldvin Baldvinsson, DV
Þórunn Hrefna Sigurjóns-
dóttir, Rás 1
FRÉTTIR „ÝKTAR“
Bayan Baqer Solagh, innanrík-
isráðherra Íraks, sagði í gær að full-
yrðingar um að fangar stjórnvalda
hefðu sætt pyntingum og verið svelt-
ir í Bagdad væru „ýkjur“. Solagh
sætir gagnrýni vegna meintra pynt-
inga, sem vakið hafa hörð viðbrögð.
Flaugavarnir til Póllands?
Fulltrúar Bandaríkjastjórnar
hafa átt viðræður við stjórnvöld í
Póllandi og fleiri Evrópuríkjum um
að komið verði þar upp varnarkerfi
gegn langdrægum eldflaugum.
Friðargæsluliðar heim
Ákveðið hefur verið að kalla heim
íslensku friðargæsluliðana sem verið
hafa við störf í norðurhluta Afganist-
ans. Kom það fram í máli Geirs H.
Haarde utanríkisráðherra á Alþingi
í gær. Er það gert vegna vaxandi
spennu milli afganskra stríðsherra
en ráðist hefur verið á hjálparliða
óháðra samtaka.
Uppbygging á Akureyri
Tillögur um uppbyggingu mið-
bæjar Akureyrar hafa verið lagðar
fram af stýrihópi verkefnisins Ak-
ureyri í öndvegi en miklar breyt-
ingar eru fyrirhugaðar. Meðal ann-
ars er gert ráð fyrir fjölskyldu- og
skemmtigarði þar sem nú er Ak-
ureyrarvöllur og umfangsmikilli
íbúðarbyggð á miðbæjarsvæðinu.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Minningar 44/50
Viðskipti 16 Skák 56
Erlent 18/20 Brids 56
Minn staður 22 Myndasögur 54
Höfuðborgin 24 Dagbók 54/57
Akureyri 26 Staður og stund 55
Suðurnes 26 Af listum 59
Landið 26 Leikhús 658
Menning 32/33 Bíó 62/65
Umræðan 36/43 Ljósvakamiðlar 66
Bréf 43 Veður 67
Forystugrein 34 Staksteinar 67
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu fylgir
auglýsingablað frá Soldis, einnig
fylgir bæklingur frá Betra baki.
Silkitré & silkiblóm
Laugavegi 63, Vitastígsmegin soldis@soldis.is sími 551 2040
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
HÖNNUNARSÝNINGIN Hús og
híbýli var opnuð formlega í nýrri við-
byggingu Laugardalshallar í gærdag
en sýningin mun standa fram á
sunnudag. Almenningi gefst kostur á
að skoða sýninguna á laugardag og
sunnudag. Þar munu framleiðendur,
hönnuðir, verslanir og heildsalar
sýna vörur sínar. IceXpo er fram-
kvæmdaraðili og segir Dagmar Har-
aldsdóttir, framkvæmdastjóri sýn-
ingarinnar, gærdaginn hafa heppnast
með eindæmum vel.
Á sama tíma voru settir Hönn-
unardagar en það er Hönnunarvett-
vangur sem stendur fyrir þeim. Í til-
efni af þeim verður fyrirlestraröð í
Laugardalshöll í dag þar sem yf-
irskriftin er „hönnun/viðskipti/
innblástur“ en það verða innlendir
sem erlendir hönnuðir sem munu
miðla af reynslu sinni. Þá verða einn-
ig veitt hönnunarverðlaun fyrir fram-
úrskarandi árangur á sviði hönnunar
á árinu.
Sýningin verður opin um helgina
frá 11 til 18 og kostar þúsund krónur
inn. Börn tólf ára og yngri fá ókeypis.
Hönnunarsýning í nýrri viðbyggingu Laugardalshallar
Morgunblaðið/Sverrir
Dagmar Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri sýningarinnar Húsa og híbýla,
sýnir Steinunni Valdísi Óskarsdóttur borgarstjóra og Valgerði Sverris-
dóttur viðskiptaráðherra forláta fótanuddtæki og virðist þeim skemmt.
Hönnun og híbýli kynnt
á Hönnunardögum
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
þann úrskurð Héraðsdóms Reykja-
víkur að rúmlega þrítugur Albani
sæti gæsluvarðhaldi til 5. desem-
ber, en grísk lögregluyfirvöld hafa
farið fram á að hann verði fram-
seldur til Grikklands vegna morðs
sem talið er að hann hafi framið þar
í landi.
Úrskurður um gæsluvarðhald
var kveðinn upp í héraðsdómi 14.
nóvember sl. Maðurinn framvísaði
fölsuðum skilríkjum við komuna
hingað til lands frá Ósló í sept-
ember, og gaf upp rangt nafn. Var
hann ákærður fyrir þau brot, og
dæmdur til að sitja í 45 daga í fang-
elsi, sem lauk 14. nóvember, og
kom því gæsluvarðhaldið í beinu
framhaldi af afplánuninni.
Varðhald
Albana staðfest
ÁKVÆÐI í samningum Sambands
bankamanna tryggir þeim sömu
hækkanir og samdist um vegna end-
urskoðunar samnings Alþýðusam-
bands Íslands og Samtaka atvinnu-
lífsins og þeir voru líklega fyrstir til
að setja slíkt ákvæði inn í samninga
sína, þar sem þeir gerðu sína samn-
inga í október í fyrra, fyrir rúmu ári.
Í 11. gr. kjarasamnings banka-
manna við Samtök fjármálafyrir-
tækja segir: „Komi til þess að samn-
ingum á almennum vinnumarkaði
verði sagt upp á grundvelli forsendu-
ákvæðis þeirra á gildistíma samn-
ings þessa skal aðilum heimilt að
segja launalið samningsins upp með
þriggja mánaða fyrirvara miðað við
mánaðamót. Komi til þess að nefnd
sú sem fjallar um forsendur kjara-
samninga á almennum vinnumarkaði
nái samkomulagi um breytingu á
samningum skal sambærileg breyt-
ing gilda um þennan samning.“
Samhljóða ákvæði er síðan að
finna í kjarasamningum Bandalags
háskólamanna sem gerðir voru í
febrúar/mars í vetur.
Bankamenn fá
einnig hækkun
Morgunblaðið/Golli
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
þriggja ára fangelsisdóm Héraðs-
dóms Reykjavíkur yfir manni fyrir
að hafa nauðgað fyrrverandi sam-
býliskonu sinni, fyrir ölvunarakstur
og fíkniefnabrot. Dómarar Hæsta-
réttar gagnrýndu drátt á rannsókn
lögreglu, sem tók ekki skýrslu af
manninum fyrr en tæpum tveimur
mánuðum eftir atburðinn.
Maðurinn játaði fíkniefnabrot og
ölvunaraksturinn en neitaði að hafa
haft kynmök við konuna. Þótti fram-
burður konunnar trúverðugur, auk
þess sem áverkar sem hún hlaut
þóttu renna stoðum undir sögu
hennar. Framburður mannsins var
hins vegar metinn ótrúverðugur.
Var því maðurinn sakfelldur fyrir öll
brotin. Auk þess að vera dæmdur í
þriggja ára fangelsi var manninum
gert að greiða fórnarlambi sínu eina
milljón króna í skaðabætur, og
greiða allan sakarkostnað, samtals
um 970 þúsund krónur.
Fram kemur í dómi Hæstaréttar
að lögregla hafi verið kvödd til að
beiðni konunnar eftir atburðinn, og
hafi hún gefið upp símanúmer hjá fé-
laga mannsins sem var með honum í
bíl. Náði lögreglan þannig sambandi
við manninn, sem neitaði að hafa ver-
ið á heimili konunnar, en sagðist
engu að síður ætla að koma á lög-
reglustöðina til viðræðna.
Í annarlegu ástandi með
þriggja ára barn sitt
Þegar hann stóð ekki við það fór
lögreglan að heimili mannsins, en
hann svaraði ekki þegar þeir knúðu
dyra. Lögreglumenn heyrðu greini-
leg merki um umgang inni í íbúðinni,
og nágrannar sögðu manninn hafa
verið fyrir utan íbúðina 15 mínútum
áður, ásamt þriggja ára barni sínu,
og hafi hann virst í annarlegu
ástandi.
„Við þessar aðstæður hefði lög-
regla átt að handtaka ákærða og
færa til skýrslugjafar. Þá hefði verið
unnt að gera á honum líkamsrann-
sókn, sem hugsanlega hefði komið að
gagni við sönnunarfærslu í málinu,“
segir í dómi Hæstaréttar. Skýrsla
var ekki tekin af manninum fyrr en
tæpum tveimur mánuðum síðar.
„Þessi dráttur á rannsókn lögreglu
hefur ekki verið skýrður og er að-
finnsluverður,“ segir í dóminum.
Dóm Hæstaréttar kváðu upp
Markús Sigurbjörnsson, Árni Kol-
beinsson, Garðar Gíslason, Gunn-
laugur Claessen og Hrafn Bragason.
Málið flutti fyrir hönd ákæruvalds-
ins Ragnheiður Harðardóttir vara-
ríkissaksóknari, en verjendur voru
Sveinn Andri Sveinsson hrl. og Guð-
rún Helga Brynleifsdóttir hdl.
Hæstiréttur staðfesti dóm fyrir nauðgun og fíkniefnabrot
Dráttur á rannsókn
lögreglu gagnrýndur
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær
konu á fimmtugsaldri rúmlega
tvær milljónir króna í skaðabætur
vegna tjóns sem hún varð fyrir þeg-
ar hún rann á svellbunka fyrir
framan Fjölbrautaskólann í Breið-
holti í janúar 2000, og sneri með því
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.
Taldi Hæstiréttur ljóst af fram-
burði vitna að starfsmenn hefðu
sýnt af sér gáleysi með því að sand-
eða saltbera ekki svellbunkann sem
konan féll á nema um morguninn,
þrátt fyrir að kennsla í skólanum
stæði fram á kvöld. Starfsmenn
skólans sögðu staðinn þar sem kon-
an féll hafa verið til vandræða,
snjóbræðslukerfi á göngustígnum
sem konan gekk eftir hefði ekki
náð að enda stígsins, og þar hefði
því myndast svellbunki.
Vildi stefndi, íslenska ríkið, að
konan bæri hluta af ábyrgðinni á
slysinu þar sem hún hefði ekki farið
nægilega varlega á stígnum. Á
þetta féllst Hæstiréttur ekki, ekk-
ert hefði komið fram sem benti til
þess að konan hefði ekki farið
nægilega varlega. Fram kom að
hún þekkti aðstæður ekki vel, enda
hafði hún nýlega hafið kvöldnám í
skólanum.
Dæmdi Hæstiréttur ríkið til að
greiða konunni tæplega 2,1 milljón
króna, auk vaxta og dráttarvaxta,
og til að greiða 700 þúsund króna
sakarkostnað.
Dóminn kváðu upp hæstarétt-
ardómararnir Guðrún Erlends-
dóttir, Ingibjörg Benediktsdóttir
og Jón Steinar Gunnlaugsson. Lög-
maður konunnar var Hákon Árna-
son hrl., en lögmaður íslenska rík-
isins var Guðrún Margrét
Árnadóttir hrl.
Dæmdar skaða-
bætur vegna
falls á svelli