Morgunblaðið - 18.11.2005, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FULLTRÚAR Bandaríkjastjórnar hafa átt
viðræður við stjórnvöld í Póllandi og fleiri
Evrópuríkjum um að komið verði þar upp
varnarkerfi gegn langdrægum eldflaugum.
Jafnframt hefur verið rætt við stjórnvöld í
Búlgaríu og Rúmeníu um að þar verði rekn-
ar nokkrar bandarískar herstöðvar.
Alþjóðlegar fréttastofur höfðu í gær eftir
ónefndum bandarískum embættismanni að
slíkar viðræður hefðu farið fram og væri
markmiðið að tryggja varnir Evrópu gagn-
vart hugsanlegri eldflaugaárás. Væri þá horft
til þess að koma upp varnarkerfi gegn lang-
drægum eldflaugum. Til að tryggja varnir
Evrópu gegn öðrum gerðum eldflauga og
skammdrægari myndi síðan þurfa að koma
fyrir annars konar búnaði í álfunni.
Bandaríkjamenn hafa lengi unnið að þróun
slíks kerfis til að verja land sitt og er þá gert
ráð fyrir að langdrægum eldflaugum yrði
grandað á flugi. Slíku kerfi hefur nú verið
komið upp í Alaska. Eftir því sem næst verð-
ur komist er þar um að ræða sex eld-
flaugaskotpalla, hið minnsta, sem eru neð-
anjarðar. Þessi búnaður mun einkum
hugsaður til að unnt reyndist að granda
langdrægum eldflaugum frá Norður-Kóreu.
Frekari þróun þessa kerfis er fyrirhuguð.
Embættismaðurinn, sem starfar í varn-
armálaráðuneyti Bandaríkjanna, sagði Pól-
verja hafa lýst yfir áhuga á að taka við slíkri
varnarstöð. Stjórnvöld í fleiri Evrópuríkjum
hefðu og sagt hugsanlegt að þau væru
reiðubúin til að hýsa kerfið, sem trúlega
myndi einkum samanstanda af gagneld-
flaugum og ratsjárbúnaði. Embættismað-
urinn kvað viðræður þessar hafa hafist árið
2002 og einna lengst væru þær komnar
gagnvart Póllandi.
Ákvörðun liggur á hinn bóginn ekki fyrir.
Á mánudag lýsti nýr forsætisráðherra Pól-
lands, Kazimierz Marcinkiewicz, því yfir að
hann vildi hefja opna umræðu um hvort Pól-
verjum bæri að heimila Bandaríkjamönnum
að reisa eldflaugastöð í landinu. Málið væri
Pólverjum mikilvægt, um væri að ræða ör-
yggishagsmuni þjóðarinnar og samstarf við
náinn bandamann. Haft er fyrir satt að fyrri
ríkistjórn Póllands hafi lýst yfir efasemdum
um ágæti þessarar ráðstöfunar og vísað til
þess að slík varnarstöð gæti skaðað sam-
skiptin við Rússa. Pólland hefur verið eitt að-
ildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO)
frá árinu 1999.
5.000 hermenn til
Búlgaríu og Rúmeníu
Bandaríkjamenn ráða nú ekki yfir her-
stöðvum í Mið- og Austur-Evrópu. Á hinn
bóginn hefur komið fram að Bandaríkja-
stjórn hefur áhuga á því að koma þar upp
nokkrum herstöðvum þar sem staðsettur yrði
heldur léttvopnaður liðsafli, sem gæti látið til
sín taka með skömmum fyrirvara. Þá hefur
og komið fram að rætt hefur verið við stjórn-
völd í Rúmeníu og Búlgaríu um að þessi ríki
hýsi slíkar herstöðvar. AP-fréttastofan
greindi frá því 25. október sl. að ákveðið
hefði verið að 5.000 bandarískir hermenn
myndu halda til þessara tveggja landa á
næsta ári. Haft var eftir Jeffrey Levine,
næstráðanda sendiherra Bandaríkjanna í
Búlgaríu, að hermennirnir myndu fara á milli
þessara tveggja landa og yrði því um
ákveðna „samnýtingu“ að ræða. Taldi hann
að 2.700 hermenn færu til Búlgaríu en 2.300
til Rúmeníu. Þar í landi yrði og stjórnstöð
þessa herliðs.
Formleg tilkynning um samkomulag þessa
efnis er sögð vera tilbúin en hún hefur enn
ekki borist. Búlgaría og Rúmenía gengu í
Atlantshafsbandalagið í fyrra. Bæði þessi ríki
eru dyggir bandamenn Bandaríkjanna í
„stríðinu hnattræna gegn hryðjuverkaógn-
inni“, sem George W. Bush forseti lýsti yfir
eftir árás hryðjuverkamanna á Bandaríkin
11. september 2001. Að sögn Jeffrey Levine
hafa Bandaríkjamenn veitt Búlgörum hern-
aðaraðstoð frá árinu 1989, sem nemur 100
milljónum Bandaríkjadala, liðlega sex millj-
örðum króna. Á sama tíma hafa Búlgarar
þegið 500 milljónir dala í formi beinnar efna-
hagsaðstoðar.
Eldflaugavarnir til Póllands?
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
Gert ráð fyrir bandarískum herstöðvum í Búlgaríu og Rúmeníu
ÚKRAÍNSKIR fréttamenn voru ósáttir við lagalegar
hömlur á störf þeirra í baráttunni fyrir væntanlegar
þingkosningar í mars á næsta ári. Efndu þeir í gær til
mótmælastöðu við þinghúsið í Kíev og sjást hér með
nokkrar táknrænar hengingarólar.
Mótmælin og annar þrýstingur báru greinilega árang-
ur. Þingið samþykkti síðdegis í gær með miklum meiri-
hluta að aflétta hömlunum sem torvelduðu með ýmsum
hætti störf fjölmiðla. Framvegis geta fréttamenn sjálfir
tjáð skoðanir sínar á baráttu einstakra flokka og fram-
bjóðenda og fjölmiðlar ákveða sjálfir hve miklum tíma
eða plássi þeir úthluta undir kosningaáróður.
Reuters
Tjáningarfrelsið varið
Ekkimissa af þessari
frábæru sýningu!
Sýningatímabili að ljúka
Gautaborg. Morgunblaðið. | Það vakti
athygli í Svíþjóð þegar Nalin Pekgul,
formaður kvennahreyfingar sænska
Jafnaðarmannaflokksins, lýsti því
yfir í útvarpsviðtali að hún hygðist
flytja úr hverfinu Tensta sem er út-
hverfi Stokkhólms. Ástæðan var að
öfgatrú og ofbeldi væri orðið útbreitt
í hverfinu að hennar mati.
Pekgul hefur búið í hverfinu frá
þrettán ára aldri, þegar hún fluttist
til Svíþjóðar sem pólitískur flótta-
maður ásamt fjölskyldu sinni frá
Kúrdistan. Í hverfinu hafa alltaf búið
innflytjendur að miklum meirihluta.
Pekgul er nú 38 ára að aldri og býr
með eiginmanni og tveimur börnum
þeirra í Tensta en hyggst nú leita að
íbúð í hverfi þar sem íbúasamsetn-
ingin er blönduð, þ.e. bæði innflytj-
endur og innfæddir Svíar.
Í útvarpsviðtalinu lýsti hún því
hvernig henni þætti hún og fjöl-
skyldan ekki örugg lengur í Tensta
og það væri með sorg í hjarta sem
hún yfirgæfi hverfið sem hún hefði
búið í alla sína tíð í Svíþjóð. Það sem
réði úrslitum um ákvörðun fjölskyld-
unnar var skotárás á markaðnum í
Tensta fyrr í haust. Atburðurinn
varð rétt við íbúð
fjölskyldunnar og
einn maður særð-
ist illa en skothelt
vesti bjargaði lífi
hans. Slíkur við-
búnaður þykir
eðlilegur meðal
ákveðinna hópa í
Tensta. Nalin og
átta ára sonur
hennar voru á leið heim og sáu blóð
um allt. „Það er ekki skemmtilegt
fyrir átta ára barn að þurfa að sjá
svoleiðis,“ sagði hún í viðtalinu.
Baráttukona og virkur múslimi
Nalin Pekgul er menntaður hjúkr-
unarfræðingur en hefur helgað sig
stjórnmálunum frá árinu 1994. Hún
sat á þingi fyrir Jafnaðarmanna-
flokkinn 1994–2002 og hefur setið í
stjórn flokksins frá árinu 1996. Frá
árinu 2003 hefur hún verið formaður
kvennahreyfingar flokksins og alla
tíð tekið virkan þátt í umræðum um
og baráttu fyrir jafnrétti kynjanna
auk þess sem hún hefur barist gegn
hvers kyns fordómum gagnvart inn-
flytjendum, kynþáttum og trú. Hún
er virkur múslimi en segir öfgatrú
nú einkenna Tensta. Börnum sé t.d.
innrætt að konur eigi að hylja hár
sitt og að islam sé æðri kristni.
Pólitískur ferill Nalin Pekgul ein-
kennist ekki síst af þeirri staðreynd
að hún þekkir af eigin raun aðstæður
innflytjenda í Svíþjóð og hefur beitt
sér fyrir bættum hag þeirra. Hún
segist yfirgefa Tensta með trega og
gera sér grein fyrir að ákvörðun
hennar hafi ekki jákvæð áhrif á orð-
spor hverfisins. „Því miður munu
margir segja að þeir hafi haft rétt
fyrir sér. Sjáið, meira að segja hún
hefur gefist upp,“ segir hún í út-
varpsviðtalinu.
Nalin Pekgul hefur ekki tjáð sig
frekar í fjölmiðlum um ákvörðun
fjölskyldunnar um að yfirgefa
Tensta en það hafa aðrir hins vegar
gert. Abdo Goriya, fulltrúi Jafnaðar-
manna í bæjarhlutastjórn Spånga-
Tensta, hefur gagnrýnt Pekgul fyrir
lýsingu hennar á ástandinu í Tensta
en gagnrýnir ekki ákvörðun hennar
um að flytja. Hann segir hana ekki
gefa rétta mynd af Tensta þegar hún
segi að glæpir séu framdir um allt
hverfi og fólk þori ekki út úr húsi.
Hann viðurkennir að fíkniefnavið-
skipti fari fram í hverfinu og fólk hafi
verið rænt. Goriya bendir á að slíkt
fyrirfinnist þó einnig í öðrum hlutum
Stokkhólms.
Flýr úthverfi
Stokkhólms vegna
öfga og ofbeldis
Eftir Steingerði Ólafsdóttur
steingerdur@mbl.is
Nalin Pekgul