Morgunblaðið - 18.11.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 23
MINNSTAÐUR
LANDIÐ
Samtök um skólaþróun | Stofn-
þing samtaka áhugafólks um skóla-
þróun verður haldið á Selfossi í dag.
Á þinginu verður fjölbreytt dagskrá
allan daginn þar sem fjallað verður
um ýmis efni í málstofum, á sam-
ráðsfundum og síðan í erindum und-
ir reglulegri dagskrá stofnfundar
samtakanna.
Í málstofum verður fjallað um
teymiskennslu, lýðræði í leikskóla-
starfi, einstaklingsmiðað námsmat,
sveigjanlega nýtingu á kennslurými,
hvernig unnt er að auka sjálfstæði
og ábyrgð unglinga í námi og sam-
kennslu aldurshópa.
Eftir fundinn verður hinn nýi
skóli á Selfossi, Sunnulækjarskóli,
heimsóttur.
Borgarfjörður | Í einni sæng – til-
hugalíf fjögurra sveitarfélaga, er yf-
irskrift þings sem íbúar fjögurra
sveitarfélaga í Borgarfirði og Kol-
beinsstaðahreppi eru boðaðir til á
Hvanneyri næstkomandi laugardag.
Tilefnið er sameining sveitarfélag-
anna sem tekur gildi að afloknum
sveitarstjórnarkosningum í vor.
Íbúar í Borgarbyggð, Borgar-
fjarðarsveit, Hvítársíðuhreppi og
Kolbeinsstaðahreppi eru boðaðir til
þingsins sem haldið verður í Land-
búnaðarháskóla Íslands á Hvann-
eyri, frá klukkan 10.30 til 15.30 næst-
komandi laugardag. Rannsóknamið-
stöð Viðskiptaháskólans á Bifröst
skipuleggur íbúaþingið.
Á þinginu verður greint frá
reynslunni af sameiningu sveitarfé-
laga á Fljótsdalshéraði og Gísli Ein-
arsson fréttamaður segir frá því
hvernig nýtt sveitarfélag eigi að
starfa. Þá skipta þátttakendur sér í
vinnuhópa til að fjalla um afmörkuð
viðfangsefni sveitarfélagsins. Í lokin
verður greint frá helstu niðurstöð-
um.
Sameining Borgarbyggðar, Borg-
arfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps
og Kolbeinsstaðahrepps var sam-
þykkt í kosningum sl. vor og mun
sameiningin taka gildi vorið 2006.
Sameiningu sveitarfélaga fylgja
óhjákvæmilega breytingar. Mikil-
vægt er að við breytingar séu hug-
myndir og sjónarmið íbúanna höfð
að leiðarljósi, segir í fréttatilkynn-
ingu um þingið. Er stöðunni nú líkt
við það að sveitarfélögin séu „trúlof-
uð“ og nú hafi íbúarnir tækifæri til
að taka þátt í tilhugalífinu og stuðla
að því að vel takist til með „hjóna-
bandið“.
Sameining í Borgarfirði
Íbúarnir
taka þátt í
tilhugalífinu
Selfoss | Um 240 krakkar, 12 ára
og yngri, tóku þátt í Íslandsbanka-
móti ungmennaráðs Ungmenna-
félags Selfoss sem fram fór í Iðu,
íþróttahúsi Fjölbrautaskóla Suður-
lands á Selfossi, á dögunum. Margt
annað var um að vera en knatt-
spyrna, meðal annars ýmis af-
þreying fyrir keppendur og gesti
sem einnig voru fjölmargir.
Keppendur í hraðmótinu komu
frá félögum á Suðurlandi, það er að
segja frá Selfossi, Garpi, Umf.
Gnúpverja, Umf. Hrunamanna,
Hamri í Hveragerði og Ægi í Þor-
lákshöfn. Andlitsmálning og vídeó-
sýning var allan tímann ásamt því
þegar hápunkti hátíðarinnar var
náð með verðlaunaafhendingu,
hópmyndatöku og heimsókn
tveggja landsliðsmanna. Það voru
þeir Sævar Gíslason og Helgi Valur
Daníelsson sem heimsóttu krakk-
ana, en þeir eiga rætur sínar í Sel-
fossknattspyrnunni. Áætlað er að
knattspyrnustjörnurnar hafi skrif-
að nálægt 300 eiginhandaráritanir,
hvor um sig, á klukkutíma.
Skrifuðu 300
eiginhandar-
áritanir
Milljónaútdráttur
Þar sem einvörðungu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigendi bæði að
hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
11. flokkur, 17. nóvember 2005
Kr. 1.000.000,-
2028 H
4219 E
11876 B
15963 E
24139 B
28858 E
29475 B
46870 B
48437 H
51776 H
Símar: 660 4753 • 462 4250
www.tindur.is • tindur@tindur.is
Fyrsti kossinn
er orðinn langur ...
„Rokklífið á Íslandi er bara tilbrigði við Rúnar Júl“. Bjartmar Guðlaugsson
Rúnar Júlíusson stendur á sextugu.
Hann gekk í bítlahljómsveitina Hljóma
úr Keflavík 18 ára, var kominn á topp-
inn nokkrum vikum síðar og hefur
verið þar síðan. Við upphaf tónlistar-
ferilsins stóð knattspyrnuferillinn
sömuleiðis í blóma.
Í bókinni HERRA ROKK lítur Rúnar
yfir tónlistarferilinn til þessa dags,
rifjar upp gömul afrek af knattspyrnu-
vellinum og segir frá öðrum baráttu-
málum sínum svo sem því að halda
lífi eftir að í ljós kom fyrir nokkrum
árum að hann hafði verið með hjarta-
galla frá fæðingu.
Höfundur er Ásgeir Tómasson,
fréttamaður.
Guðni Ágústsson, ráðherra:
„Fyrstu minningar mínar um Rúnar Júlíusson eru 40 ára gamlar. Þá var ég stadd-
ur á Laugarvatni. Þar var Landsmót ungmennafélaga. Séníið úr Keflavík er að
koma á lokuðum bíl inn á Landsmótið. Í lögreglufylgd. Glæsilegur maður, Rúnar
Júlíusson. Líkur Þóroddi frá Þóroddsstöðum. Fullur af orku stóðhestsins stígur
hann út. Það líður yfir ungu stúlkurnar sem snerta hann. Ég stend þarna 16 ára
unglingur og horfi á þetta undur og er það ógleymanlegt. Ég geri mér grein fyrir
því að ég hef hitt séníið úr Keflavík sem er að breyta Íslandi. Sem hefur tekið að
sér að flytja hljóminn, röddina, heim. Sem gerir kröfur um frelsi æskunnar. Bítl-
arnir, Rolling Stones, Hljómar. Afl til æskunnar, til að gera uppreisn á heimilum.
Það eru fjörutíu ár síðan ég upplifði þetta vor á Laugarvatni. Engin stúlka leit á
mig. Allar elskuðu Rúnar Júlíusson.“
Hemmi Gunn:
„Við Rúnar vorum and-
stæðingar inni á vellinum
en samherjar á skemmti-
stöðum“.
Meðal þeirra sem segja frá:
Þorsteinn Eggertsson
Magnús Kjartansson
Magnús Torfason
Gerður G. Bjarklind
Hermann Gunnarsson
Ámundi Ámundason
Björgvin Halldórsson
Bjartmar Guðlaugsson
Óttar Felix Hauksson
Valgerður Sverrisdóttir