Morgunblaðið - 18.11.2005, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
30% AFSLÁTTUR
Föstudag og laugardag.
Stök númer
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Sími 462 3505
Opið virka daga 10-18
laugardaga kl. 10-16Christawww.simnet.is/heilsuhorn PÓSTSENDUM
Fyrir Liðamót
Laust við skeldýr og
sodium 1000 mg
Glucosamine
Aðeins 1 hylki á dag.
Fæst m. a. í
Maður lifandi, Borgartúni og
Hæðarsmára
Yggdrasil, Skólavörðustíg 16
Lyfju, Selfossi
Fræinu, Fjarðarkaupum
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889
NÝTTGott verð
MIÐBÆRINN á Akureyri mun í
nánustu framtíð taka miklum
breytingum samkvæmt tillögum
um uppbyggingu miðbæjarins sem
lagðar hafa verið fram af stýrihópi
verkefnisins Akureyri í öndvegi.
Gert er ráð fyrir stórmarkaði í
miðbænum, umfangsmikilli íbúða-
byggð, uppbyggingu Glerárgötu og
að hluti Akureyrarvallar fari undir
íbúðabyggð og þar verði jafnframt
fjölskyldu- og skemmtigarður.
„Skipulag miðbæjarins mun end-
urspegla ásetning bæjaryfirvalda
um að hann verði þungamiðja
mannlífs og menningar á Akureyri
jafnt sem á Norðurlandi,“ sagði
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
á Akureyri og formaður stýrihóps
um verkefnið Akureyri í öndvegi.
Tillögur stýrihópsins verða
kynntar í umhverfisráði í dag,
föstudag og verða þær teknar til
umfjöllunar á fundi ráðsins á mið-
vikudag í næstu viku. Tillögurnar
verða kynntar almenningi á opnu
húsi á Amtsbókasafninu annan
laugardag, 26. nóvember. Þá er
stefnt að því að afgreiða tillög-
urnar í umhverfisráði á fundi í
byrjun desember og í framhaldi af
því mun bæjarstjórn væntanlega
afgreiða málið á fundi sínum í
næsta mánuði. Skipulagstillagan
verður svo kynnt almenningi í jan-
úar og þess vænst að ráðherra
staðfesti aðalskiplagsbreytingar í
lok mars á næsta ári.
Kristján Þór sagði verkefnið Ak-
ureyri í öndvegi tímamótaviðburð í
skipulagsmálum hér á landi enda
hefði framtakið vakið verulega at-
hygli meðal fagfólks innan lands
og utan og til þess hefði verið
kostað miklu, bæði hvað varðar
tíma og peninga. Tillögurnar
byggðust á traustari grunni en
flestar hliðstæðar skipulagsáætl-
anir sem hér hafa verið gerðar.
Um 10% íbúa Akureyrar sóttu
íbúaþing í Íþróttahöllinni í sept-
ember á liðnu ári þar sem hugur
þeirra til miðbæjarins var kann-
aður og þeir skiluðu inni tillögum
sínum. Niðurstöður þessa íbúa-
þings láu til grundvallar al-
þjóðlegri hugmyndasamkeppni, en
í þá keppni bárust fjölmargar til-
lögur, 151 alls frá 40 þjóðlöndum.
Tillögurnar sem hlutu verðlaun í
keppninni voru allar í góðum sam-
hljómi við áherslur íbúanna sem
fram komu á þinginu.
Bæjarstjóri sagði stýrihópinn
hafa unnið út frá þeirri forsendu
að skapa lifandi og fjölbreyttan
miðbæ með aðlaðandi borg-
arumhverfi á því svæði sem nú er
hjarta miðbæjarins.
Síkið nær aðeins að Skipagötu
Nú þegar er hafin vinna við út-
færslu síkis, frá Torfunefi, en sam-
kvæmt tillögu stýrihópsins nær
það ekki eins langt og í verðlauna-
tillögu, nær aðeins upp að Skipa-
götu. „Það var mjög flókið tækni-
lega að útfæra hugmyndina eins
og hún var sett fram,“ sagði Krist-
ján Þór, en gert var ráð fyrir að
síkið myndi ná upp að Skátagili.
Til þess að svo mætti vera hefði
þurft að rífa húsnæði Símans og
sagði bæjarstjóri að afar tímafrekt
hefði orðið að endurgera fjar-
skiptasamband bæjarins við um-
heiminn auk þess sem það hefði
orðið mjög dýrt. Áætlað er að gerð
síkisins muni í heild kosta um 500
milljónir, þ.e. gerð síkisins, vega-
gerð og niðurrif húsa. Fram-
kvæmdir við gerð síkisins hefjast á
næsta ári.
Íbúar Akureyrar vilja stórmark-
að á miðbæjarsvæðinu og í tillögu
stýrihópsins er gert ráð fyrir að
verslun af því tagi rísi á svo-
nefndum Sjallareit, sunnan við
veitingahúsið Sjallann.
Nýjar íbúðabyggingar reistar
á miðbæjarsvæðinu
Þá er gert ráð fyrir að á mið-
bæjarsvæðinu rísi 335 íbúðir með
700 til 1000 íbúa. Þá yrði þar at-
vinnuhúsnæði í allt að 8.700 fer-
metrum á þessu svæði. Nýjar
íbúðabyggingar sem reistar verða
á þessu svæði verða að jafnaði
fjórar til fimm hæðir, en einstaka
byggingar hærri, allt að sjö hæðir
og yrðu þá ný kennileiti í bænum.
Skýrt kom fram á íbúaþinginu
að bæjarbúar vilja ekki háhýsi á
þessum slóðum. „Við hlustum á
bæjarbúa, þeir gáfu þessa forsögn,
þeir vilja ekki háhýsi í mið-
bænum,“ sagði bæjarstjóri. Tillög-
urnar gera ráð fyrir að byggðar
verði íbúðir á ýmsum svæðum á
miðbæjarsvæðinu t.d. meðfram
Glerárgötu, en stefnt er að breyttu
yfirbragði hennar. Íbúðabyggð
verður meðfram götunni, rand-
byggð eða þá þriggja hæða stak-
stæðar byggingar. Nefna má að
gert er ráð fyrir einnar hæðar
húsum neðst í Skátagili og að
byggð verði einnig frá BSO, suður
að Kaupvangsstræti, sem og einnig
á uppfyllingu austan götunnar,
norðan Torfunefsbryggju.
Íbúðir og skemmtigarður á
Akureyrarvelli
Blönduð landnotkun verður á
Akureyrarvelli, hluti hans fer und-
ir íbúðabyggingar en þar er einnig
gert ráð fyrir að verði fjölskyldu-
og skemmtigarður. Íbúðirnar
verða austanmegin og í randbyggð,
þriggja til fjögurra hæða hús.
Garðurinn verður í miðju vallarins
og teygir sig til vesturs. Gönguleið
verður frá miðbæ og að Gler-
ártorgi.
Bæjarstjóri sagði menn einnig
velta fyrir sér gerð leiðbeininga
um lita- og efnisval í miðbænum.
Þannig yrðu blandaðir sérstakir
litir sem kalla mætti Akureyrar-
blár, rauður eða grænn.
„Við erum nú að færa okkur af
hugmyndastiginu og yfir í veru-
leikann, til framkvæmdanna,“
sagði Kristján Þór.
Tillögur stýrihóps um verkefnið Akureyri í öndvegi kynntar í umhverfisráði
Stórmarkaður og umfangsmikil
íbúðabyggð í miðbænum
Morgunblaðið/Kristján
Íþróttasvæði Akureyrarvöllur mun fá nýtt hlutverk í framtíðinni en þar
er gert ráð fyrir íbúðabyggð og skemmti- og fjölskyldugarði.
Miðbærinn Samkvæmt tillögu að uppbyggingu miðbæjarins á Akureyri er gert ráð fyrir stórmarkaði, íbúðabyggð, uppbyggingu Glerárgötu og síki frá
Pollinum að Skipagötu en ekki að Skátagilinu eins og sýnt er á þessari mynd. Einnig er gert ráð fyrir byggingum beggja vegna síkisins og á uppfyllingu
austan Glerárgötu og norðan Torfunefsbryggju.
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
AKUREYRI