Morgunblaðið - 20.11.2005, Page 1

Morgunblaðið - 20.11.2005, Page 1
Tímarit og Atvinna í dag Tímaritið | Frá Heklu til Fuji  Sæt án sykurs  Ávöxtur með þúsund andlit  Krossgáta  Flugan  Pistill Steinunnar Ólínu Atvinna | Hófleg streita getur verið góð  Nýtist vinnutíminn? STOFNAÐ 1913 315. TBL. 93. ÁRG. SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Geirmundur Valtýsson Hefur alltaf haft góða stráka með sér og passað að þeir væru yngri | 16 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350 SENN nálgast myrkasta skammdegi hins íslenska vetrar með til- heyrandi kulda og næðingi. En einmitt þegar sólin virðist ætla að kveðja bak við fjöllin fyrir fullt og allt og hætta að varpa löngum skuggum á húsin í bænum gengur hátíð ljóss og friðar í garð. Þá verða margir glaðari í geði og bægja burtu skammdegi og depurð með litríkum jólaljósunum eða gleyma sér í önnum. Gera má því skóna að stúlkurnar tvær sem gengu hröðum skrefum fram hjá einu af mörgum bárujárnshúsum borgarinnar, er ljósmyndari Morg- unblaðsins átti þar leið um, hafi einmitt haft komandi hátíð í huga, enda leikur bros um varir þeirra. Morgunblaðið/RAX Brosandi í vetrarsól DÆMI eru um að sumarhúsaeigendur sem hafa leigt eignarlóðir undir sumarbústaði sína, t.d. til 25–50 ára, hafi lent í því að nýir aðilar kaupi landið og vilji snarhækka leiguna þegar samningurinn rennur út. Eins og lögin eru núna hafa þeir engan annan kost en annað- hvort að borga hið nýja leiguverð, sem getur verið margfalt hærra en það gamla, kaupa lóð- ina á því verði sem eigandinn setur upp eða einfaldlega flytja bústaðinn burt af landinu, að sögn Ásgeirs Guðmundssonar, formanns Landssambands sumarhúsaeigenda. Hann segir að slíkum málum fari fjölgandi og að þau komi upp víða um land. Sambandið reynir nú að vinna í því við yfirvöld að reglunum verði breytt þannig að sumarhúsaeigendur séu ekki réttlausir ef þessi staða kemur upp. „Það er slæmt fyrir fólk að lenda í þessu, yf- irleitt er þetta fólk sem hefur fjárfest í bústað á sínum tíma, byggt sér afdrep og kannski rækt- að umhverfið í kring. Það eru alls ekki allir sem hafa efni á því að borga allt í einu stórar fúlgur fjár fyrir framhaldsdvöl í bústaðnum sínum. Þá er ekkert endilega hlaupið að því að flytja húsið af lóðinni,“ segir hann og bætir við að hann þekki dæmi þess að fólki hafi verið sagt að það geti einfaldlega farið af lóðinni ef það samþykki ekki nýja verðið. Ásgeir segir ástæðuna fyrir því að þessi mál komi upp nú vera að landslagið í lóðakaupum hafi breyst og jarðir gangi kaupum og sölum. „Hér áður fyrr voru bændur að leigja skika af jörðum sínum og voru ekki beinlínis með stór- ar hugmyndir um mikinn gróða.“ Hann segir að landssambandið vinni í því með forsætisráðuneytinu að settar verði regl- ur þannig að einhvers konar matsferli á lóðinni fari í gang þegar samningar renna út. Vonast hann til að málið nái fram að ganga. Ótrygg kjör eigenda sumarhúsa á leigulóðum víðs vegar um landið Leiga getur snarhækkað þegar samningar renna út Eftir Bryndísi Sveinsdóttur bryndis@mbl.is KARL Bretaprins hefur nú í fyrsta sinn lagt fram kæru vegna umfjöllunar fjölmiðla en hann hefur oft lent á milli tannanna á þeim. Blaðið Mail on Sunday birti um síðustu helgi hluta úr átta ára gömlum dagbókum prinsins þegar hann var viðstaddur athöfn í Hong Kong er Bretar afhentu Kínastjórn yfirráð borg- arinnar. Fer hann þar háðulegum orðum um kín- verska ráðamenn en einnig Tony Blair forsætis- ráðherra og liðsmenn hans. Hann kærir blaðið m.a. fyrir brot á höfund- arrétti, að sögn vefsíðu dagblaðsins Guardian. Karl lýsir í dagbókunum leiðtogum kommúnista í Kína sem „hroðalegum, gömlum vaxbrúðum“. Sagt er frá gæsagangi hermanna Alþýðulýðveld- isins og annarri viðhöfn sem hafi verið í „ömurleg- um sovét-stíl“. Karl gagnrýnir Blair og menn hans og segir þá ávallt taka ákvarðanir eftir að hafa „ráðfært sig við markaðsráðgjafa“. Ritari Karls, Sir Michael Peat, segir að Mail on Sunday hafi fengið afrit af dagbókunum án leyfis frá prinsinum. Karl höfðar mál vegna dagbóka Karl Bretaprins LEIÐTOGAR APEC, Samtaka ríkja í Austur-Asíu og við Kyrrahaf, reyndu í gær að hleypa nýjum krafti í viðræður um aukna heimsverslun á fundi sínum í Busan í Suður-Kóreu. Næsta lota viðræðna Heimsviðskiptastofnunarinnar, WTO, hefst í næsta mánuði í Hong Kong. Var í lokayfirlýsingu APEC hvatt til þess að öll WTO-ríki sýndu sveigjanleika, „einkum þær þjóðir sem mest eiga undir viðgangi hnattrænna viðskipta og hagnast mest á þeim“. Ástralar og Kanadamenn vildu að sagt yrði bein- um orðum að Evrópusambandið væri nú mesti þröskuldurinn á vegi frjálsra viðskipta, ekki síst vegna verndarstefnu í landbúnaði, en ákveðið var að gera það ekki beinum orðum. Ráðamenn APEC- ríkjanna sögðu hins vegar ljóst hverjum spjótunum væri beint að. „Það er óþarfi að nefna nöfn, það er augljóst hvaða þjóðir er átt við,“ sagði utanríkisráð- herra Filippseyja, Alberto Romulo. Meðal ríkja APEC eru Bandaríkin, Japan, Kína og Rússland. Er samanlögð þjóðarframleiðsla í að- ildarríkjunum, sem eru 21, nú um 57% af allri heimsframleiðslunni. George W. Bush Bandaríkjaforseti hélt frá Busan í heimsókn til Kína. Bandarískur embættismaður sagði að um helgina yrði skýrt frá samningi í Peking um kaup Kínverja á 70 Boeing 737-farþegaþotum. Bush fer frá Peking í heimsókn til Mongólíu. ESB sýni sveigjanleika Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is HANNES Hafstein sagði íslensku þjóðinni ekki rétt frá um setu sína á fundum dönsku ríkisstjórn- arinnar eftir að hann varð ráð- herra Íslands árið 1904, í því skyni að bjarga eigin pólitíska ferli. Þetta kemur fram í nýútkominni bók Guðjóns Friðrikssonar sagn- fræðings um ævi Hannesar. „Ráðherrar Íslands áttu ekki að taka þátt í dönskum ríkisstjórn- arfundum, en það gerði Hannes mjög gjarnan alla sína tíð sem ráð- herra, þvert raunar gegn því sem hann sjálfur hafði haldið fram og boðað og al- gerlega á svig við skilning allra íslenskra stjórn- málamanna um hvað mætti og hvað mætti ekki,“ segir Guð- jón í viðtali í Morgunblaðinu í dag. Dönsk blöð birtu fréttir um að Hannes hefði setið slíka fundi, en Hannes afneitaði því með öllu og sagði að um tóma vitleysu væri að ræða. Guðjón gróf upp fund- argerðarbækur dönsku rík- isstjórnarinnar frá þessum tíma og segir þær leiða í ljós að Hannes hafi ekki farið með rétt mál, hann hafi margsinnis setið þessa fundi og rætt þar mál er tengdust Ís- landi. „Það hefði trúlegast verið dauðadómur fyrir hann í pólitík- inni að viðurkenna að hann hefði setið danska ríkisstjórnarfundi,“ segir Guðjón. | 20–22 Sat fundi dönsku ríkisstjórnarinnar Hannes Hafstein ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.