Morgunblaðið - 20.11.2005, Síða 20

Morgunblaðið - 20.11.2005, Síða 20
20 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ S ýslumaður og bæjarfógeti, málaflutningsmaður, lands- höfðingjaritari, bankastjóri og umfram allt skáldið og fyrsti ráðherra Íslands, skipaður í janúarlok 1904 í kjölfar þess að Íslendingar öðluðust heima- stjórn: Hannes Hafstein. Hið nýja embætti færði honum meiri völd en nokkrum Íslendingi hafði hlotnast öldum sam- an, enda tók ráðherrann við valdi dönsku stjórnarinnar í sérmálum Íslands, en um leið axlaði hann gríðarlega ábyrgð og skyldur. Hannes leiddi Íslendinga inn í nýja öld og hef- ur verið mærður í ræðu og riti um langt skeið, án þess þó að einkalífi hans og persónu hafi verið gefinn nákvæmur gaumur. Afrek hans í stjórnmálum, skáldskapur og hetjudáðir á borð við glímuna við erlenda landhelgisbrjóta í Dýrafirði á sýslumannsárum hans á Ísafirði, hafa yfirleitt verið í forgrunni. Það lyftist því brúnin á mörgum þegar fréttir bárust af því í ársbyrjun 2004 að Guðjón Friðriksson, sagn- fræðingur og höfundur ævisagna Jónasar frá Hriflu, Einars Benediktssonar og Jóns forseta Sigurðssonar, hefði ákveðið að skrifa bók um Hannes Hafstein. „Kveikjan var sú að einn afkomenda Hann- esar, Valdimar Tryggvi Hafstein, mannfræð- ingur, kom til mín og stakk upp á ritun slíkrar ævisögu, enda væru margir af hans ættingjum þess fýsandi að ný ævisaga yrði skrifuð,“ segir Guðjón. „Mér fannst þetta liggja nokkuð vel við, þar eð ég hafði verið að fjalla um þetta tímabil í fyrri verkum, svo sem í bókinni um Einar Benediktsson. Þeir voru nánast jafn- aldrar, leiðir þeirra lágu oft saman og um margt var ferill þeirra ekki ýkja ólíkur, þeir urðu fyrir svipuðum áhrifum o.s.frv. Frá Valdimar fékk ég mörg gögn sem nýttust mér vel við verkið.“ Ekki að andæfa þverrandi ættjarðarást Þegar fréttist af áformum Guðjóns gagn- rýndu nokkrir sagnfræðingar að verið væri að beina sjónum að Hannesi og öðrum fyrirferð- armiklum einstaklingum í Íslandssögunni, svokölluð höfðingjasagnfræði væri varhuga- verð og beina ætti sjónum að mönnum sem hefðu haft sig minna í frammi. Meðal annars var spurt hvort Einar Ben, Jón forseti og Hannes væru ekki orðnir „þreyttir og útjask- aðir“ á sífelldri bakvakt gagnvart þverrandi ættjarðarást? Guðjón svarar því svo til að hann sé alls ekki að andæfa þverrandi ætt- jarðarást með bókum sínum, hann sé þvert á móti að leitast við að opna nýja sýn á menn sem hafi verið hafnir upp til skýjanna þegar þjóðernishyggjan var sem mest. Hann sé því raunar að endurskoða söguna. „Öll sagnfræði og margs konar aðferðafræði á rétt á sér og ekki er hægt að ætlast til að allir eltist við hvaða tískubólu sem er. Hin svonefnda ein- saga, sem töluvert hefur borið á undanfarin ár, einkum fyrir atbeina vinar míns Sigurðar Gylfa Magnússonar, hefur raunar alltaf verið iðkuð en nefndist lengstum þjóðleg fræði en hefur nú fengið þetta einkennilega nafn. En það er ekki hægt að ætlast til að aðeins saga óþekktra einstaklinga sé sögð og afburða- menn séu látnir afskiptalausir. Í bókum mín- um um fyrrnefnda menn er dregin upp breið þjóðfélagslýsing, þar sem bæði þjóðfélagið og einstaklingurinn er í forgrunni. Ég er heldur ekki að skrifa bækur fyrir aðra sagnfræðinga heldur fyrir almenna lesendur og tel að við- brögð við bókum mínum, sem hafa selst ákaf- lega vel, sýni að þær hafi átt erindi og aukið áhuga á sögu Íslands.“ Aðrir sagnfræðingar töldu að Hannesi hefði verið hampað á kostnað t.d. Jóns Magnússon- ar, fyrsta forsætisráðherrans, og enn aðrir að merkasti frumkvöðull íslenskra stjórnmála um aldamótin 1900, og hinn eiginlegi höfundur heimastjórnarinnar, hafi verið dr. Valtýr Guð- mundsson. Það var með þessar gagnrýnis- raddir í eyrunum sem Guðjón tók til starfa. Þar að auki kom ævisaga Hannesar Hafstein eftir Kristján Albertsson út í þremur bindum á árunum 1961 til 1964, sem mikill styr stóð reyndar um. „Það má alltaf deila um hverjum sé hampað á kostnað hvers og í fyrra kom út ágæt ævi- saga Valtýs eftir Jón Þ. Þór. Bók Kristjáns, þótt hún hafi verið ágætt brautryðjendaverk á sínum tíma, vakti heilmiklar deilur sökum þess hversu hlutdræg hún var í vil Hannesi. Hannes er auðvitað hafinn upp til skýjanna í bókinni en mesti galli hennar var þó sá hversu niðrandi var fjallað um andstæðinga Hann- esar og yfirleitt alla þá sem andmæltu honum. Þeim voru gjarnan gerðar upp afar illar hvat- ir. Börn margra þeirra manna sem áberandi voru í stjórnmálum aldamótanna voru á besta aldri, þegar ævisagan kom út, og ekki sátt við útreiðina sem feður þeirra fengu. Það var t.d. haldinn borgarafundur í sjálfstæðishúsinu við Austurvöll, þar sem hart var tekist á. Bræð- urnir Sveinn og Pétur, synir Benedikts Sveinssonar, sem var einn höfuðandstæðingur Hannesar, gengu þar hart gegn söguskoðun Kristjáns og tóku upp hanskann fyrir föður sinn og samherja hans. Menn hnakkrifust. Það er hins vegar merkilegt í þessu samhengi að ein dótturdóttir Hannesar sagði mér frá því að Bjarni Benediktsson, bróðir þeirra Sveins og Péturs, vildi skrifa ævisögu Hann- esar, áður en Kristján tók verkefnið að sér, trúlegast þegar Bjarni var utan ríkisstjórnar á árunum 1956 til 1959. Sumir úr fjölskyldu Hannesar voru þessu ekki mótfallnir en ein dóttir hans sagði að það skyldi aldrei verða, að sonur eins helsta andstæðings Hannesar skrifaði ævisögu hans. Bjarni féll því frá þess- ari hugmynd, en það er til ágætis ritgerð eftir hann um Hannes og velviljinn í hans garð er þar augljós.“ Faðirinn vanheill á geði Guðjón kveðst hafa langað að skrifa ævi- sögu þar sem æviferill Hannesar væri rakinn meira á persónulegum nótum en gert er í ævi- sögu Kristjáns og segja um leið hugmynda- og stjórnmálasögu tímabilsins á yfirvegaðri hátt. „Ég lít svo á að Hannes hafi verið mjög snjall og nútímalegur stjórnmálamaður og mörg verk hans og skoðanir eru kannski í meira samræmi við nútímann en samtíma hans. Hannes er hins vegar margbrotnari en svo að geislabaugur fari honum vel. Ég held raunar að geislabaugur sé mönnum aldrei til fram- dráttar og fólk missi áhuga á þeim sem slíkan baug bera. Kristján reynir líka að fella Hann- es inn í þann ramma sem viðtekin söguskoðun um sjálfstæðisbaráttuna krafðist en í raun og veru var Hannes andvígur allri „þjóðernistil- beiðslu“ eins og hann kallaði hana sjálfur.“ Þótt Hannes hefði alist upp á einu helsta höfðingjaheimili landsins átti hann mjög erf- iða æsku um margt, sökum mikilla veikinda föður hans. Faðir hans, Pétur Havstein, amt- maður á Möðruvöllum í Hörgárdal, var veill á geði og veikindi hans settu sterkan svip á heimilislífið. „Ég hafði undir höndum dagbæk- ur amtskrifarans á Möðruvöllum, Sveins Þór- arinssonar, föður Nonna og Manna, og þar er lýst daglegu lífi á heimilinu og lýsingarnar þar á Pétri eru oft og tíðum mjög átakanlegar,“ segir Guðjón. „Öll uppvaxtarár Hannesar lá faðir hans meira eða minna veikur mánuðum saman á hverju ári. Það var greinilegt að veikindin lögðust yfir hann af auknum þunga í skamm- deginu og þá þurfti gjarnan að vaka yfir hon- um á nóttinni. Ýmsir prestar þarna í nágrenn- inu og vinir hans skiptust á að sitja yfir honum, því hann varð stundum hreinlega Sár harmur og sterkar konur Hannes Hafstein ólst upp við geðsýki föður síns, þurfti barn að aldri að fara frá móður sinni, afneitaði guði á námsárum sínum og barðist fyrir réttindum kvenna. Hann varð margsinnnis fyrir sárum missi. Hann leiddi Ísland inn í nýja öld, en sagði Íslendingum ekki alltaf sannleikann eins og fram kemur í samtali Sindra Freyssonar við Guðjón Friðriksson, höfund nýútkominnar bókar um Hannes. Hannes Hafstein í ráðherrabúningnum sem ætlast var til að ráðherrar undir Danakonungi skrýddust við hátíðleg tækifæri. Sá siður var ekki aflagður fyrr en 1913. Guðjón Friðriksson: „Ég lít svo á að Hannes hafi verið mjög snjall og nútímalegur stjórnmálamaður og mörg verk hans og skoðanir eru kannski í meira samræmi við nútímann en samtíma hans.“ 

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.