Morgunblaðið - 20.11.2005, Side 31
Hann hafði fengið tækifæri til að
gerast bóndi því að náðuninni fylgdu
fjörutíu hektarar lands í grennd við
Oatlands, sem stjórnvöld gáfu hon-
um, og þeim fylgdi loforð um aðra
spildu jafnstóra ef hann notaði landið
skynsamlega. En hann átti enga pen-
inga til að kaupa sauðfé og hafði ekki
hugmynd um hvernig hann ætti að
stunda fjárbúskap eða nýta landið á
nokkurn annan hátt. Landið lá ónot-
að um skeið en var loks selt Anstey.
Jorgenson var einn af veiðimönnum
og söfnurum þessa lífs; hugmyndir
akuryrkjumannsins virtust eins fjar-
lægar honum og frumbyggjunum
sjálfum.
Hann festi reyndar ráð sitt á einn
hátt, þótt tæpast væri það besta leið-
in til rólegs lífs: Hann kvæntist Nóru
25. janúar 1831 í Matthíasarkirkj-
unni í New Norfolk. Sá bær varð fyr-
ir valinu af því að enginn þekkti þau
þar, en þau óttuðust gömlu óvinina
enn. Anstey (er var húsbóndi Jorgen-
sons) þurfti að gefa Arthur opinbert
álit sitt á ráðahagnum og hann skrif-
aði þetta:
Ég hef oft sagt Jorgenson að hann
hljóti óhjákvæmilega að fara flatt ef
hann kvænist þessari konu. Hann
hefur verið ofur hrifinn af henni
langalengi og þar sem skynsamlegar
fortölur eða íhugun koma hér að
engu haldi leyfi ég mér með fyllstu
virðingu að biðja hans ágæti að heim-
ila hjúskap karlsins og konunnar.
Nóra Corbett hefur örugglega unnið
lögreglunni mikið þarfaverk fyrir
nokkru þegar hún tvístraði glæpa-
hyski. Ég hef ekkert illt um þessa
konu að segja annað en það að hún
hneigist mjög til drykkju og er líkleg
til að lemja og klóra Jorgenson þegar
hún er full.
Jorgenson mátti búast við klóri og
marblettum þegar hann var í nánd
við Nóru en hið hættulegasta við at-
ferli hennar var drykkjusýkin sem
leiddi hann aftur út í hina mögnuðu
drykkju sem hafði næstum orðið
honum að falli í London – þótt honum
tækist að halda sig frá fjárhættuspili
eftir það. Hann og Nóra sáust oft
staulast völtum fótum um götur Hob-
art og í ýmsum bæjum í Miðlöndum
þar sem þau bjuggu næstu árin, og
oft réðst hún að honum með orðum
eða átökum. Jorgenson sjálfur var
ekkert lamb að leika sér við – það
höfðu verið hörkuáflog í Waterloo-
kránni 1829 – en árásir hennar á
hann virtust tíðari og harkalegri; hún
var helmingi yngri en hann og tvöfalt
grimmari. Óstaðfestar heimildir
segja að það hafi verið eftirlætis-
skemmtun á laugardagskvöldum
hvar sem þau bjuggu að sjá hana elta
hann út eftir götunni þegar kránni
hafði verið lokað, með kökukefli eða
kústskaft í hendi.
En Anstey áttaði sig á því að Jorg-
enson var ástfanginn og það þýddi
ekkert að reyna að tala um fyrir hon-
um. Nóra hafði tiltekna persónutöfra
þegar best lét hjá henni og Jorgen-
son fannst hann þurfa að vernda
hana. Hann taldi sig líka bera ábyrgð
á því að samfangar hennar ofsóttu
hana og það átti drjúgan þátt í and-
legu jafnvægisleysi hennar. Hrifning
og sektarkennd réðu afar miklu um
viðbrögð Jorgensons gagnvart
henni.
Nú var Jorgenson kvæntur maður
og fann til meiri fjárhagslegrar
ábyrgðar en áður – en hvorugu
þeirra reyndist auðvelt að afla fjár.
Nóra vann sér inn smáræði með
þvottum; Jorgenson fór aftur að
skrifa fyrir dagblöðin þótt lítið væri
upp úr því að hafa. Það verkefni sem
hann hafði mestan hug á var fremur
viðfangsefni til lengri tíma: bók um
frumbyggja Tasmaníu og nýafstaðin
átök. Hann langaði til að verða fyrsti
sagnfræðingur Svarta stríðsins.
Raunar skrifaði hann einhverja
fyrstu umfjöllun um þetta viðfangs-
efni, en það verk tók hann mörg ár og
því var aldrei lokið til fulls. Það var
ekki gefið út í heild fyrr en 1991 og
hafði þá legið nafnlaust í 150 ár í
skjalasafni annars manns.
Vatnslitamynd eftir Jorgenson er sýnir þegar Porpoise og Cato fórust 1803.
Hann var hæfileikaríkur listamaður; margar af fyrri teikningum hans hafa ekki
varðveist en 1810 gaf hann William Jackson Hooker vini sínum nokkrar fallegar
vatnslitamyndir, þar á meðal þessa.
Jörundur eftir Söruh Bakewell í þýð-
ingu Björns Jónssonar kemur út hjá
Skruddu. Bókin er 280 bls.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 31
!
" # # $%$ &
'
(
)#
*++,
'
##
-
.
///
/// 0 #
!
Frum – flutningur
Landsbanki Føroya
Nordea and Landsbanki Føroya
arrange a DKK 750 million bond
loan for the Faroese government
The Faroese government, Føroya Landsstýri, will issue bonds totalling a nominal amount of DKK 750 million
to refinancing outstanding loans. The issue will be arranged by Nordea in co-operation with Landsbanki
Føroya and with Føroya Banki, Føroya Sparikassi and Kaupthing Føroyar as co-managers (hereafter called the
"Consortium").
The bonds will have the following terms:
DKK 750 million 3.75% annuity notes with maturity date 10 June 2018
The notes will be issued and registered with the Iceland Stock Exchange on 24 November 2005 and an
application has been filed with the Iceland Stock Exchange for admission to its official list as from that date.
Settlement of the bonds will take place through the Danish VP-system.
Issue price will be publicised on 21 November 2005 in the Iceland Stock Exchange´s news system.
Copy of the prospectus is available at the website of Landsbanki Føroya: www.landsbank.fo. Documents
mentioned in the prospectus are available for inspection at the registered office of Landsbanki Føroya.
The above mentioned Consortium will purchase the notes and subsequently sell them to investors.
The notes will not be open for further issuance.
For further information please call Mr. Christian Hyldahl, Managing Director,
Nordea Markets, on +45 33 33 58 02.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn