Morgunblaðið - 20.11.2005, Side 37

Morgunblaðið - 20.11.2005, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 37 MENNING Hvort sem þú þarft að selja eða leigja atvinnuhúsnæði þá ertu í góðum höndum hjá Inga B. Albertssyni. Nú er góður sölutími sölutími fram- undan ekki missa af honum. Vandaðu valið og veldu fasteignasölu sem er landsþekkt fyrir traust og ábyrg vinnubrögð. Franz Jezorski, hdl. og lögg. fasteignasali ATVINNUHÚSNÆÐI HAFÐU SAMBAND „NÝ REFSIAÐFERÐ, sem miklar vonir eru bundnar við,“ stóð undir mynd eftir Sigmund í Morg- unblaðinu og var hún af Lög- reglukórnum. Þar var kórinn að syngja fyrir fanga í röndóttum fangabúningi og var greinilegt að sá kvaldist hroðalega. Myndin prýðir bakið á nýjum geisladiski með Lög- reglukórnum sem ber nafnið Hæfi- leg refsing og er auðséð að kórinn hefur húmor fyrir sjálfum sér. Hið merkilega er að söngur kórsins, sem stjórnað er af Guðlaugi Viktorssyni, er síður en svo einhver refsing; þvert á móti! Á diskinum eru lög sem flest eru orðin sígild; Vegir liggja til allra átta, Riddari göt- unnar, Þú ert aldrei einn á ferð, Blue Moon og hið bráðskemmtilega Lög og regla eftir Bubba Morthens. Segja má að textinn þar sé viðeig- andi: „… Það var ekki fyrr en um morguninn að við sáum að hann væri dáinn. / Ekki benda á mig, segir varðstjórinn. / Þetta kvöld var ég að æfa lögreglukórinn …“ Jóhann Friðgeir Valdimarsson syngur einsöng í nokkrum laganna og gerir það einkar líflega; sömu sögu er að segja um aðra söngvara í aðalhlutverki, sem eru Regína Ósk Óskarsdóttir, Jón Jósep Snæbjörns- son og Páll Rósinkranz. Útsetning- arnar eru eftir Óskar Einarsson eft- ir því sem næst verður komist; ef það er rétt hefði það mátt koma bet- ur fram á geisladiskinum. Reyndar eru upplýsingar um eitt og annað dálítið loðnar, t.d. er Regína Ósk ekki nefnd sérstaklega í laginu Gull- vagninn þótt hún sé þar aðalmann- eskjan og er það vissulega furðulegt, því frammistaða hennar er prýðileg, söngur hennar er kraftmikill og til- finningaþrunginn og kemur veru- lega vel út. Almennt er þetta ágætlega heppnaður geisladiskur, hann er mun poppaðri en aðrir diskar með karlakórum, en poppið er fagmann- legt og útsetningarnar nægilega fjölbreyttar til að áheyrandanum leiðist ekki. Söngur kórsins er auk þess oftast þéttur og hreinn og eng- inn kórfélaga ætti að þurfa að skammast sín, þótt ætla mætti ann- að af kápu disksins. Eins og áður sagði er hann EKKI refsing og ég get vel ímyndað mér að hann eigi eftir að stytta mörgum fanganum stundir í betrunarvistinni. Hæfileg refsing? TÓNLIST Íslenskur geisladiskur Lögreglukór Reykjavíkur ásamt ein- söngvurum. Útgefandi: Lögreglukór Reykjavíkur 2005. Hæfileg refsing Morgunblaðið/Halldór Kolbeins „Upp með hendur.“ Lögreglukórinn ljóðar á Jónsa á góðri stund. Jónas Sen Í TILEFNI íslensks tónlistardags og dags tónlistargyðjunnar Sesselju nú um helgina mun Söngskólinn í Reykjavík vekja athygli borgarbúa og nágranna á því fjölbreytta söng- lífi sem á sér rætur í tónlistarskólum landsins. Nemendur Söngskólans munu gleðja kirkjugesti í Reykjavík og ná- grenni með því að syngja einsöng við guðþjónustur í kirkjum á höfuðborg- arsvæðinu og nágrenni í dag. Dagskráin er sem hér segir: Áskirkja: Guðbjörg Björnsdóttir. Bústaðakirkja: Kristín Þóra Har- aldsdóttir. Dómkirkjan:Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir. Fella- og Hólakirkja: Hulda Björg Víðisdóttir og Magnús Hallur Jónsson. Graf- arvogskirkja: Rannveig Björg Þór- arinsdóttir. Grensáskirkja: Rósa Jó- hannesdóttir. Hallgrímskirkja: Bjarni Atlason. Háteigskirkja: Hanna Þóra Guðbrandsdóttir. Langholtskirkja: Sigurður Þeng- ilsson. Laugarneskirkja: Þórey Sif Brink. Neskirkja: Unnur Sigmars- dóttir. Seljakirkja: Helga Björk Arnardóttir. Digraneskirkja: Erla Alexandersdóttir. Hjallakirkja: Guð- rún Árný Guðmundsdóttir. Kópa- vogskirkja: Hulda Jónsdóttir. Vídal- ínskirkja: Ásgeir Páll Ágústsson. Fríkirkjan í Hafnarfirði: Guðný Birna Ármannsdóttir og Linda María Nielsen. Hafnarfjarðarkirkja: Magnús Guðmundsson. Víðistaða- kirkja: Eva Dögg Sigurðardóttir. Seltjarnarneskirkja: Hrafnhildur Ólafsdóttir. Söngnemendur í kirkjum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.