Morgunblaðið - 20.11.2005, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 39
UMRÆÐAN
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
TJARNARMÝRI - PARHÚS
Bjart og vel skipulagt glæsilegt parhús á
tveimur hæðum ásamt kjallara og inn-
byggðum bílskúr. Húsið er alls 251 fm og
er fallegur garður, mjög viðhaldsléttur með
sólpalli til suðurs og skjólgirðingum. Hiti í
bílaplani. 4 stór herbergi, stórt og glæsi-
legt eldhús og bjartar stofur. MJÖG NÝ-
TÍSKULEGT OG FJÖLSKYLDUVÆNT
HÚS. V. 59 m.
GARÐABÆR - ÚTSÝNI
Vorum að fá í sölu sérlega vandað og ein-
staklega vel staðsett 341 fm einbýlishús í
"holtinu" í Garðabæ. Um er að ræða mjög
vandaðan frágang utan sem innan. Gólf-
efni eru parket og steinskífa. Allar innrétt-
ingar eru vandaðar úr ljósum við. Óvenju
stór stofa með óviðjafnanlegu útsýni. 5
rúmgóð svefnherbergi. Tvöfaldur 47 fm bílskúr með nær 3ja m. lofthæð. 3498
LÆKJARHJALLI - PARHÚS
Vorum að fá í einkasölu þetta glæsilega
183 fm parhús ásamt 32 fm bílskúr eða
alls 215 fm. Lóðin við húsið er hönnuð af
arkitekt og er allt hið glæsilegasta, miklir
sólpallar og hellulögn með hita undir, heit-
ur pottur skjólgirðingar, gosbrunnur og fl.
Húsið skiptist þannig að gengið er inn á
neðri hæðina, þar eru 4 mjög stór her-
bergi, baðherbergi og sturtuaðstaða fyrir heita pottinn. Efri hæðin skiptist í góðar
stofur með mikilli lofthæð, innbyggð lýsing, suðursvalir, vandað eldhús, hjónaher-
bergi og mjög stórt baðherbergi með hornkari og sturtu. Vandað massívt heillímt
parket er á nánast öllu húsinu, vandaðir miklir skápar og allur frágangur til fyrirmynd-
ar. SJÓN SÖGU RÍKARI. Verð 47,0 millj. 3492
LAUGALÆKUR - ENDARAÐHÚS
215 fm endaraðhús sem skiptist í kjallara
og 2 hæðir ásamt 38 fm bílskúr eða sam-
tals 253 fm. Á 1. hæð er forstofa, gest-
asn., eldhús með borðkrók, borðstofa og
stofa með útg. út á suður svalir. Á efri
hæð eru 2 barnaherbergi með skápum,
hjónaherbergi með skápum, þvottahús og
baðherbergi flísal. í hólf og gólf. Í kjallara
er stórt sjónvarpsherbergi með geymslu
innaf. Einnig er í kjallara sér 2ja her-
bergjaíbúð með sér inngang. Búið er að skipta um stórann hluta af gólfefnum og
setja gegnheilt eikarparket. Eign sem býður uppá mikla möguleika. 3483
NÆFURÁS - ENDARAÐHÚS
252 fm endaraðhús sem er tvær hæðir og
ris ásamt innbyggðum bílskúr. Á 1. hæð
er anddyri, eldhús með fallegri viðarinnr.
og granít í borðpl., stór stofa og borðstofa
með útg. út á hellul. vestur verönd. Á 2.
hæð eru 4 rúmgóð herbergi, þvottahús
með innr. og baðherbergi flísalagt í hólf og
gólf með hvítri innréttingu. Úr holi á 2.
hæð er gengið út á vestur svalir með frá-
bæru útsýni yfir alla borgina. Í risi er óinn-
réttað 37 fm rými. Einstaklega snyrtileg og vel viðhaldin eign á vinsælum stað V. 45,8
m. 3486
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Mjög góð 4ra herbergja 104,3
fm íbúð á 2. hæð í 6 íbúða
stigahúsi við Engjasel. Mjög
gott útsýni. Stórt og gott
stæði í bílageymslu. Hús og
sameign lítur vel út. Íbúðin
skiptist í forstofu, eldhús,
þvottahús, búr, stofu, baðher-
bergi og þrjú svefnherbergi.
Nýlegar kirsuberjainnréttingar
í eldhúsi og baðherbergi.
Þvottahús innan íbúðar.
Verð 18,3 millj.
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 15 OG 17 – ENGJASEL 11
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
HB FASTEIGNIR
HAGALAND, MOSFELLSBÆR - GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS MEÐ
TVEIMUR ÍBÚÐUM. SJÓN ER SÖGU RÍKARI! VERÐ 64,9 MILLJ.
Húsið er á tveimur hæðum og er samtals
361,2 fm á stærð, en þar af er 52,5 fm
bílskúr. Í dag eru í húsinu tvær rúmgóðar
íbúðir en auðvelt er að breyta því aftur í eina
íbúð. Húsið er mjög vel byggt og hefur mikið
verið endurnýjað á síðustu árum. Það stendur
á eignarlóð og er staðsett á útsýnisstað en
ekkert hús er fyrir framan það. Garðurinn er í
góðri rækt. Hús fyrir vandláta.
Opið hús í samráði við Hrafnhildi Bridde, löggiltan fasteignasala í s: 821-4400.
Íbúðin er um 80,8 fm á stærð og er mjög
rúmgóð. Hún skiptist í tvö svefnherb, stofu,
baðherb. og mjög rúmgott eldhús. Sér-
inngangur er á hlið hússins. Nýlegar neyslu-
og hitalagnir. Nýl. gluggar og gler í eldhúsi og
stofu. Íbúðin er laus og til afhendingar við
kaupsamning.
Opið hús í samráði við
Hrafnhildi Bridde,
löggiltan fasteignasala í
s: 821-4400.
LAUS! TÓMASARHAGI, 107 REYKJAVÍK. RÚMGÓÐ 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Í
KJALLARA M/SÉRINNGANGI. BÍLSKÚRSRÉTTUR. VERÐ 17,9 MILLJ.
Hrafnhildur Bridde, löggiltur fasteignasali, sími 821-4400
Sími 534-4400 • Hús verslunarinnar, Kringlan 7, 103 Reykjavík
Hrafnhildur Bridde, löggiltur fasteignasali
ÉG VARÐ hálfhissa við bréf sem
ég fékk frá Umhverfisstofnun sem
sagði að landbúnaðarráðherra væri
hinn ábyrgi fulltrúi fyrir dýravernd á
lögbýlum en ekki umhverfisráðherra,
og þá um leið æðsti ábyrgi fulltrúi
fyrir vinnueftirlit og heilbrigðiseft-
irlit innandyra á lögbýlum á Íslandi
en umhverfisráðherra væri hinn
ábyrgi fulltrúi í sama
máli fyrir hunda, ketti,
hesta og páfagauka í
þéttbýli og lögbýli utan-
dyra. Þessi stjórnsýsla
er vægast sagt dul-
arfull.
Ástæða fyrirspurnar
minnar til Umhverf-
isstofnunar var heim-
sókn mín til Steingríms
bónda í Grímstungu,
Vatnsdal, og raunasaga
hans við kerfiskarla
sem þann 14. maí sl.
tóku allar kindur og
bæði kæfðu og drápu á frekar vafa-
saman hátt og á frekar vafasömum
forsendum.
Þann 15. janúar sl. tilkynnti Gríms-
tungubóndinn héraðsdýralækni um
undarlegt tilfelli veikinda í kindum
sem hann mat sem einhvers konar
eitrunartilfelli en Steingrímur bóndi
er einnig útlærður vélstjóri. Þegar
héraðsdýralæknir kom á vettvang og
skoðaði dýrin urðu þeir sammála um
að hér væri á ferðinni eitrunartilfelli.
Engin rannsókn fór þarna fram á
vettvangi samanber lög um dýra-
vernd og reglugerð um aðbúnað
sauðfjár, samanber vatnsgæði og
gæði andrúmslofts. Reyndar tók hér-
aðsdýralæknir nokkrar myndir á
digital-myndavél af einni kindinni,
það var öll rannsóknin. Um miðjan
febrúar óskar embætti yfirdýralækn-
is eftir því að veiku dýri sé lógað og
það sent suður til Reykjavíkur og var
það gert af bóndanum.
Nú gerist ekkert fyrr en 12. maí er
hringt er úr landbúnaðarráðuneytinu
og tilkynnt að kindin hefði greinst
með riðuveiki og að fulltrúar land-
búnaðarráðuneytis kæmu þann 14.
maí til að útrýma dýrunum sem þeir í
ráðuneytinu kalla lækningu með
dauða. Bóndinn maldaði í móinn
vegna einkenna eitrunar og óskaði
eftir frekari rannsókn en fékk þá á
sig að ef hann ekki afhenti dýrin fengi
hann verra af í dómsalnum. Þegar
fulltrúar ráðuneytisins höfðu fjarlægt
og drepið öll dýrin hafði bóndinn ekk-
ert í höndunum í þessu þá ólögmæta
fjárnámi.
Meðferð opinberra fulltrúa á dýr-
unum þarna í fjárhúsinu og á bílnum
þarna í miðjum sauðburði og á meðan
þingmenn Alþingis voru í sauðburð-
arleyfi varð tilefni kæru til lögreglu á
Blönduósi þar sem grunur var á um
ætlað brot á lögum um dýravernd.
Ég kom í Grímstungu, í boði bóndans
þann 18. maí, til að mæla gasmyndun
í haughúsi. Við mældum saman gasið
ég og bóndinn og fundum gastegund-
ina ammónia NH3 í magninu 40 ppm
við alla útveggi en 77 ppm fyrir miðju
húsi og til suðurs þar sem kindurnar
voru sem veikastar urðu og rann blóð
úr nösum dýranna. Í spjalli við bónd-
ann kom í ljós að hann hafði keypt
örflóruefni sem átti að auðvelda dæl-
ingu með haugsugunni ári síðar og
var þetta þriðji veturinn sem efnið
var notað.
Ég hafði samband við
seljanda efnisins og
fékk að vita að það var
frá Hollandi og var
samsetning loftháðra
og loftfælinna baktería
og hafði landbún-
aðarráðuneytið sam-
þykkt innflutning þess
og dreifingu í landbún-
aði á Íslandi.
Í lögum um dýrahald
á lögbýlum og reglu-
gerð um aðbúnað sauð-
fjár stendur að hámark
gastegundarinnar
ammónía NH3 skuli vera 10 ppm.
Það er landbúnaðarráðherra sem ber
ábyrgð á eftirlitinu eins og segir í lög-
unum. Nú veit ég ekki um vinnueft-
irlitsstaðla Guðna landbún-
aðarráðherra en ég veit að kollegi
hans í USA metur ástand vinnustaða
þannig að þegar gastegundin NH3
fer í og yfir 50 ppm þá er gasmagnið
hættulegt heilsu manna og loka ber
vinnustaðnum. Það eru margir bænd-
ur sem hafa keypt þetta eiturefni frá
Hollandi í ár og undanfarin ár og svo
er þessu bakteríueitri sprautað á
gæsir og aðra viðkvæma fugla vor og
haust. Ef þeir frá Umhverfisstofnun
tækju haugsýni til rannsóknar er ég
ansi hræddur um að margir verði
mjög hissa á innihaldinu. Við erum að
tala um margra ára gamla saurgerla
sem sprautað er á tún til að fæla frá
hungraðar gæsir vor og haust. Svo
eru menn að tala um fuglaflensu hér
og í Evrópu. Þeir í Englandi dæla út
80 milljónum tonna af beljudrullu,
uppgerjaðri til margra ára og eru síð-
an hissa á því að kýr og kindur veikist
á dularfullan hátt og farfuglar verði
veikir. Ekki er ég hissa.
Sagan er ekki öll, því hinn 19. maí
hringdi ég í lögreglustjórann og
sýslumanninn á Blönduósi og til-
kynnti honum um eiturefni í landbún-
aði sem hefði þá náttúru að gera
kindur alvarlega veikar og óskaði eft-
ir lögreglurannsókn á vandamálinu
og hver bæri ábyrgð á þessu ástandi
og þannig fékk Guðni búfræðingur og
ráðherra á sig tvær kærur og var hin
frá dýraverndunarsamtökum. Það
ótrúlega gerist, Guðni búfræðingur,
þingmaður Framsóknarflokksins á
Suðurlandi, varaformaður Fram-
sóknarflokksins á Íslandi og hátt-
virtur landbúnaðarráðherra, gerir
sér lítið fyrir og tekur upp símann og
stöðvar þessa lögreglurannsókn á
þeirri forsendu að mér komi starf-
semi landbúnaðarráðuneytisins ekk-
ert við og ég sé ekki aðili að málinu.
Hvað segir háttvirtur dóms- og
kirkjumálaráðherrann við þessu
ástandi, að ég ekki tali um hinn trú-
verðugi ríkissaksóknari Bogi Nilsson.
Hver stjórnar sýslumanninum og
lögreglustjóranum á Blönduósi!
Um bænda- og dýravernd
Guðbrandur Jónsson fjallar um
heilbrigðiseftirlit og dýravernd ’Ástæða fyrirspurnarminnar til Umhverfis-
stofnunar var heimsókn
mín til Steingríms
bónda í Grímstungu,
Vatnsdal, og raunasaga
hans við kerfiskarla…‘
Guðbrandur Jónsson
Höfundur er rannsóknarstjóri
gastegunda, Saurbær-Biogas.
Jakob Björnsson: Útmálun
helvítis. „Álvinnsla á Íslandi
dregur úr losun koltvísýrings í
heiminum borið saman við að ál-
ið væri alls ekki framleitt og
þyngri efni notuð í farartæki í
þess stað, og enn meira borið
saman við að álið væri ella fram-
leitt með raforku úr eldsneyti.“
Þorsteinn H. Gunnarsson
fjallar um rjúpnaveiðina og aug-
lýsingu um hana, sem hann telur
annmarka á.
Eggert B. Ólafsson: Vegagerð-
in hafnar hagstæðasta tilboði í
flugvallarrútuna.
Örn Sigurðsson: Bornir eru
saman fjórir valkostir fyrir nýj-
an innanlandsflugvöll.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
Hlíðasmára 11, Kópavogi
sími 517 6460
www.belladonna.is
Réttu stærðirnar