Morgunblaðið - 20.11.2005, Side 41

Morgunblaðið - 20.11.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 41 UMRÆÐAN Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Laugavegur 182 • 105 Rvík • Fax 533 4811 • midborg midborg.is BOLLAGARÐAR 224,4 fm glæsilegt einbýli á einni hæð, með inn- byggðum tvöföldum bílskúr, á Seltjarnarnesi. Húsið skiptist í forstofu, hol, stórar stofur, sjónvarpshol, eld- hús með borðkrók, fimm góð svefnherbergi, snyrt- ingu, baðherbergi og þvottahús. Merbau stafaparket á gólfi. Verðlaunagarður. Bílaplan er flísalagt með hitalögn. Stór og falleg verönd til suðurs með skjól- vegg. Eign sem vert er að skoða. 5937. V. 70,0 millj. Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali OPIÐ HÚS - GRETTISGATA 57A Falleg 3ja herb. 89 fm íbúð í gömlu stein- húsi. Íbúðin sem er björt og snyrtileg skipt- ist í tvær stofur (önnur stofan er notuð sem svefnherbergi), svefnherb., eldhús og bað- herbergi. Svalir eru útaf stigapalli. Stór sér geymsla (16,4 fm) fylgir í kjallara ásamt sameignar-þvottahúsi. Búið er að skipta um skólplagnir undir húsinu og út á götu. Eignin verður til sýnis og sölu í dag (sunnu- dag) á milli kl. 15-17. Guðbjörg á bjöllu. V. 17,9 m. 5402 ARNARHRAUN - LAUST FLJÓTLEGA Mjög fallegt ca 200 fm einbýlishús á tveimur hæðum við Arnarhraun í Hafnarfirði, ásamt innbyggðum bílskúr. Húsið skiptist þannig. 1. hæð: forstofa, hol, snyrting, stofa, borð- stofa, eldhús og þvottahús. Innangengt er í bílskúr sem er notaður að hluta sem sjón- varpsherbergi. Efri hæð: fjögur herbergi, baðherbergi, hol og gangur. Stór og fallegur suðurgarður með nýlegri ca 50 fm timbur- verönd út af borðstofu. V. 43 m. 5401 LYNGHAGI - FALLEG Falleg og björt 103 fm neðri sérhæð, með sérinngangi, sem skiptist í forstofu, gang eldhús, tvær samliggjandi stofur, þrjú her- bergi, eldhús og bað. Frábær staðsetning. V. 29,5 m. 5441 FJARÐARÁS - LAUST FLJÓTLEGA Fallegt og vel staðsett ca 260 fm einbýlis- hús á tveimur hæðum með 37 fm inn- byggðum bílskúr. Húsið skiptist þannig. Aðalhæð: stofa, borðstofa, þrjú herbergi, eldhús, baðherbergi og hol. Jarðhæð: for- stofa, tvö herbergi, baðherbergi, snyrting og geymsla. V. 45,9 m. 5442 LAUGATEIGUR - NEÐRI SÉRHÆÐ Falleg u.þ.b. 130 fm neðri sérhæð í botn- langa við Laugateig í Reykjavík auk 38,0 fm stórs bílskúrs. Eignin skiptist í forstofu, hol, tvennar stofur, eldhús, baðherbergi og tvö herbergi. Sérinngangur. Rúmgóður og góður bílskúr með gryfju. V. 29,9 m. 5293 LANGAGERÐI - VANDAÐ Vandað og mjög vel staðsett tvílyft 213 fm einbýlishús með 42,5 fm bílskúr og falleg- um garði. Á 1. hæð er forstofa, hol, stofa og borðstofa, sólstofa, eldhús, tvö her- bergi og baðherbergi. Í risi er stórt herbergi og tvö minni auk baðherbergis og geymslu. Arinn er í stofunni og einnig í sól- stofunni. Áhv. 23 millj. á 4,15 % vöxtum. V. 45 m. 5413 RAUÐHAMRAR - M/BÍLSKÚR Falleg 4ra herbergja 126 fm endaíbúð á 2. hæð ásamt 20,5 fm bílskúr. Íbúðin skiptist m.a. í hol, þvottaherb., þrjú góð svefn- herb., stóra stofu, eldhús og baðherb. Í sameign er m.a. geymsla, hjólag. o.fl. Sér geymsla. V. 28,9 m. 5416 HLÍÐARHJALLI - GLÆSILEGT ÚTSÝNI Falleg og vel skipulögð 98 fm 4ra her- bergja íbúð á 3. hæð í húsi sem búið er að taka allt í gegn m.a. þakjárn, sprungu og steypuviðgert, málað að utan auk þess sem garður hefur verið lagfærður og skipt um tæki. Íbúðin skiptist í hol, eldhús, bað- herbergi, stofu og 3 svefnherbergi. Í kjall- ara er sér geymsla, hjólageymsla og sam. þvottahús. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni. V. 19,5 m. 5419 REYNIMELUR - FRÁBÆR STAÐSETNING Mjög falleg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð (efstu) í þríbýli við Reynimel. Eignin skiptist m.a. í hol, herbergi, baðherbergi, eldhús og tvennar stofur. Svalir út af stofu. Geymsluloft er yfir íbúðinni sem möguleiki væri að breyta í herbergi. V. 16,9 m. 5471 ÞVERHOLT Erum með í leigu mjög gott 380 fm skrif- stofuhúsnæði í þessu nýlega og vandaða skrifstofuhúsi rétt við Miðbæinn. Sjö stæði í bílageymslu fylgja. Plássið er vel innrétt- að og með öllum tölvulögnum. Lyfta er í húsinu. Vönduð skrifstofuhæð. 5469 Fallegt og vel við haldið 113 fm einlyft einbýlishús, auk 20 fm sérstæðs bílskúrs á þessum eftirsótta stað. Eignin skiptist í forstofu, hol/gang, eldhús með uppruna- legri innréttingu og borðaðstöðu, þrjú her- bergi, bjarta stofu, borðstofu, þvottaher- bergi og flísalagt baðherbergi. Góð stað- setning, efst í lokaðri götu. 632,0 fm falleg ræktuð lóð. Verð 34,9 millj. Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16 Verið velkomin. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali. Steinagerði 19 Einlyft einbýlishús - góð staðsetning Opið hús frá kl. 14 - 16 ÞAÐ ER dapurlegt hvað hundar fá oft neikvæða umfjöllun í fjölmiðlum, þessar skepnur hafa fátt sér til saka unnið sem réttlætir þessa neikvæðni. Aftur á móti eru eigendur hunda ekki alltaf með á nótunum hvað þarf til, til þess að hundahald verði eðli- legur og sjálfsagður þáttur í mannlífinu. Fjölmiðlar eiga mikinn þátt í því að fjalla á nei- kvæðan hátt um hunda og er það ekki í neinu samræmi við fjölda til- efna. Ég hef haft hund í 11 ár, og hefur hann verið frábær förunautur fjöl- skyldunnar allan þann tíma. Ég hef reynslu af hundahaldi hér í Hafnarfirði og í Hamborg í Þýskalandi þar sem hundurinn okkar flutti með okkur þangað ungur að árum og aftur til Hafnarfjarðar þremur árum síðar. Það er mikill munur á því að vera með hund í Hamborg og Hafnarfirði. Vissulega fá hundar neikvæða um- fjöllun í fjölmiðlum erlendis því hundaeigendur þar eru líka sóðar og trassar eins og hér, það þarf svo sem heldur ekki hundaeigendur til. En hundahald í Þýskalandi er svo sjálf- sagður hluti tilverunnar að það hvarflar ekki að nokkrum manni að vera að amast við þessum skepnum. Þar eru reglur eins og hér og Þjóð- verjar hjálpast að til að halda þær. Tilefni þess að ég set þetta á blað eru tillögur sem hafa verið til umfjöll- unar um að banna hunda í mið- bænum eða á ákveðnum stöðum í landi Hafnarfjarðar. Þessar tillögur eru hreint út sagt út í hött og engin röksemd sem stenst, hefur litið dags- ins ljós sem gefur tilefni til slíkra að- gerða. Ef lausir hundar í uppsveitum Hafnarfjarðar eyðileggja fuglalífið, hvað gera þá refirnir, minkarnir, villikettirnir, hrafnarnir og mávarnir sem þar eru á sveimi, ég er nokkuð viss um að þessar skepnur sem eru hluti íslenskrar náttúru hafi margfalt meiri áhrif á fuglalíf í landi skóg- ræktarinnar eða við Hvaleyrarvatn en allir heimilishundar höfuðborg- arsvæðisins. Við förum reglulega með hundinn okkar í göngu á svæði fyrir ofan Hafnarfjörð og förum oft að Hvaleyr- arvatni, leyfum honum að trítla um lausum eða leyfum honum að svamla í vatninu þegar svo ber undir. En við höfum það líka sem reglu að setja hann alltaf í ól þegar aðrir eru á svæðinu eða hreinlega finnum okkur annan stað til að rölta um á. Hundaskítur fer mjög fyrir brjóst- ið á mörgum og iðulega birtast hundaskítsfréttir í fjölmiðlum og vissulega er það hvimleitt að hunda- eigendur geti ekki séð sóma sinn í því að hirða upp eftir hundana. Ég geng mik- ið um götur bæjarins og um uppland Hafn- arfjarðar og verð að viðurkenna að hunda- skítur sést hér og þar, en allt ruslið sem fólk hendir frá sér er mun meira áberandi, rusl sem hverfur ekki, hundaskíturinn er þó horfinn sjónum manna á tiltölulega stuttum tíma. Ég hef nokkrum sinnum pirrast yfir þeim gífurlegu forréttindum sem hestamenn hafa fengið í upplandi bæjarins, þar sem lagðar hafa verið hestagötur út um allar trissur meira að segja á svæði sem hundaeigendum var bannað að ganga um hér áður fyrr. Þetta skyldi þó ekki vera vegna þess að hesta- menn eigi sér fulltrúa í bæjarstjórn, fleiri en einn og fleiri en tvo, sem gæta sérhagsmuna sinna. En ágætu bæjarfulltrúar, þið skuluð bara hafa það í huga að hundaeigendur eru kjósendur og þeir sem taka upp hanskann fyrir hundana eiga stuðn- ing æði margra vísan og þá skiptir kannski ekki máli hvað flokkurinn heitir. Að lokum vil ég hvetja hundaeig- endur að vera til fyrirmyndar, það er gott að eiga hund, það er gott fyrir alla að kynnast dýrum og við skulum reyna að forðast tilefni til boða og banna því það eru litlar lausnir fólgn- ar í slíku. Það væri líka jákvætt að sjá hvetjandi tilkynningar frá hundaeft- irlitinu um til hvers er ætlast af hundaeigendum, en það er kannski lítill afgangur af hundagjaldinu þeg- ar búið er að setja upp öll þessi hundabannskilti út um allan bæ og því lítill peningur til jákvæðra ábend- inga til hundaeigenda. Hundaskítur ojbara Pétur Pálsson fjallar um hunda og umgengni eigenda þeirra ’Hundaskítur fer mjögfyrir brjóstið á mörgum og iðulega birtast hundaskítsfréttir í fjöl- miðlum og vissulega er það hvimleitt að hunda- eigendur geti ekki séð sóma sinn í því að hirða upp eftir hundana. ‘ Pétur Pálsson Höfundur er námsmaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.