Morgunblaðið - 20.11.2005, Síða 46
46 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Sverrir
Einarsson
Bryndís
Valbjarnardóttir
Oddur
Bragason
Guðmundur
Þór Gíslason
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir,
tengdamóðir, systir, mágkona og tengdadóttir,
GUÐBJÖRG HILMARSDÓTTIR,
Seljahlíð 7e,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstudag-
inn 11. nóvember.
Útförin fer fram frá Glerárkirkju mánudaginn
21. nóvember kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað. Þeim, sem vilja minnast hennar,
er bent á félag aðstandenda langveikra barna á Akureyri, Hetjurnar.
Smári L. Einarsson,
Hilmar Örn Smárason, Sigurveig Gunnarsdóttir,
Haukur Þór Smárason,
Hilmar Ágústsson,
Þora Jones, Axel Alan Jones,
Kristbjörg Hilmarsdóttir, Ingólfur Sveinsson,
Valgeir Hilmarsson, Elín Högnadóttir,
Signý Sigurlaug Tryggvadóttir, Haukur Þórðarson.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
HREINN KRISTINSSON,
Ystabæ 7,
Reykjavík,
lést á Alicante á Spáni, þriðjudaginn 8. nóvember.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem hafa sýnt okkur samúð og vinarhug.
Guðrún B. Helgadóttir,
Eva Kristín Hreinsdóttir, Jakob Jóhannsson,
Örn Elvar Hreinsson, Margrét Markúsdóttir,
Baldur Hreinsson, Hildur Þorvaldsdóttir,
Þór Hreinsson, Fanný Björk Ástráðsdóttir,
Jónína Hreinsdóttir, Albert Jón Sveinsson,
Kolbrún Helga Hauksdóttir, Gylfi Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, besti vinur og móðir okkar,
CARLA PIZARRO FERNADEZ,
sem lést sunnudaginn 13. nóvember, verður jarð-
sungin frá Landakotskirkju mánudaginn 21. nóv-
ember kl. 13.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á söfnun-
arreikning, banki 515-14-105600, kt. 140770-
3029, sem stofnaður var fyrir börn hennar.
Símon Jóhann Bragason,
Sóldís Rós Símonardóttir,
Veronica Alexandra Símonardóttir,
Rafael Róbert Símonarson.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURJÓN STEFÁNSSON
skipstjóri,
Austurbrún 33,
Reykjavík,
er látinn.
Ragnhildur Jónsdóttir og fjölskylda.
Elskuleg móðir okkar,
INGIBJÖRG H. AGNARS,
Austurbrún 4,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi aðfaranótt
föstudagsins 18. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Hólmfríður Júlíusdóttir,
Vilborg H. Júlíusdóttir
og aðstandendur.
✝ Hreinn Kristins-son fæddist á
Hauksstöðum í Jök-
uldal 1. október
1932 og fluttist
kornungur með for-
eldum sínum í
Bakkagerði í Jök-
ulsárhlíð. Hann lést
á Alicante á Spáni 8.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Guðrún Jónína
Gunnarsdóttir ljós-
móðir, f. 2. septem-
ber 1899, d. 29. nóv-
ember 1988, og Kristinn
Arngrímsson, kennari og bóndi, f.
11. júlí 1900, d. 9. júlí 1972. Systk-
ini Hreins eru Hörður Tryggvi, f.
10. september 1926, d. 5. maí 1927,
Ragnheiður Aðalgunnur, f. 23.
apríl 1929, gift Antoni Kr. Jóns-
syni, og Arnheiður Anna, f. 31. maí
Margrét Berglindi og Þóru. 3)
Baldur, f. 26. mars 1963, kvæntur
Hildi Þorvaldsdóttur, f. 1963. Börn
þeirra eru Dagný og Aðalsteinn. 4)
Þór, f. 2. janúar 1968, kvæntur
Fanný Björk Ástráðsdóttur, f.
1973. Þeirra barn er Aþena Íris.
Fyrir átti Þór Kristin Ágúst. 5)
Jónína, f. 2. janúar 1968, gift Al-
berti Jóni Sveinssyni, f. 1970.
Þeirra börn eru Rakel Lillý og Elv-
ar Smári. Fyrir átti Guðrún Kol-
brúnu Helgu Hauksdóttur, f. 12.
febrúar 1952, gift Gylfa Gunnars-
syni. Þeirra sonur er Haukur.
Árið 1959 flutti Hreinn til
Reykjavíkur með fjölskyldu sinni
og hóf fljótlega störf hjá Reykja-
víkurborg sem varð hans starfs-
vettvangur út starfsævina. Í byrj-
un var hann bílstjóri hjá
borgarskrifstofum í Austurstræti
16 og gerðist síðan aðstoðamaður
skjalavarðar borgarskrifstofanna.
Hann tók fljótlega við starfi skjala-
varðar og sá um safnið í um ald-
arfjórðung.
Útför Hreins var gerð frá Ár-
bæjarkirkju 18. nóvember – í kyrr-
þey að ósk hins látna.
1942, gift Ingimar
Einarssyni.
6. júlí 1957 kvænt-
ist Hreinn Guðrúnu
B. Helgadóttur, f.
22.desember 1932,
frá Geirólfsstöðum í
Skriðdal. Foreldar
hennar voru Jónína
Benediktsdóttir hús-
móðir, f. 10. febrúar
1890, d. 15. júní 1964,
og Helgi Finnsson
bóndi, f. 25. apríl
1887, d . 6. janúar
1979. Hreinn og Guð-
rún eignuðust fimm börn. Þau eru:
1) Eva Kristín, f. 21. júní 1958, gift
Jakobi Jóhannssyni, f. 1962. Börn
þeirra eru Hlynur Örn, Daníel og
Sólveig. 2) Örn Elvar, f. 22. júlí
1961, kvæntur Margréti Markús-
dóttur, f. 1957. Börn þeirra eru
Sunna Dögg og Atli Már. Fyrir átti
Elsku pabbi minn. Það vekur
mikinn söknuð í hjarta mínu að þú
sért farin frá okkur, stóru fjöl-
skuldunni þinni sem var þér allt og
öllum barnabörnunum sem þér
þótti svo vænt um. Ekki óraði mig
fyrir því þegar ég og mín fjölskylda
komum í sunnudagsheimsóknina og
vorum að kveðja ykkur mömmu
þegar þið voruð að fara til Beni-
dorm að það væri í síðasta sinn sem
ég sæi þig, ég kyssti þig bless og
óskaði ykkur góðrar ferðar.
Heimilið ykkar mömmu hefur
alltaf verið miðpunktur fyrir allar
fjölskylduveislur og síðasta veisla
sem þið mamma buðuð í síðastliðið
sumar var frábær grillveisla í garð-
inum, þar sem þú varst búinn að
tjalda æskutjaldinu fyrir barna-
börnin og dekka þar upp borð fyrir
litlu sólargeislana þína sem voru
þér allt og ekki kom annað til
greina en að þú borðaðir þar með
þeim. Sú minning er dýrmæt í huga
barnabarnanna sem eiga eftir að
minnast þín sem afa afanna.
Þið mamma hafið alla tíð hjálpað
okkur systkinunum með hvað sem
er og vil ég nú þakka ykkur alla
hjálpina og stundirnar. Aldrei var
vandamál ef mig vantaði pössun
fyrir litlu englana mína eða þurfti
að láta skutla mér eitthvað. Þá
varst þú alltaf boðinn og búinn.
Við stöndum þétt saman systk-
inin og hjálpum mömmu, sem er
svo sterk, yfir þetta erfiða tímabil
og við vitum, elsku pabbi minn, að
þú ert með okkur og vakir yfir okk-
ur.
Undanfarna mánuði vissi ég að
þú gekkst ekki heill til skógar en
aldrei kvartaðir þú og vildir nú
ekki láta okkur fjölskylduna hafa
áhyggur af því en undir niðri höfð-
um við öll áhyggjur af þér og þegar
þú varst sem veikastur á sjúkra-
húsinu sagðir þú við þína nánustu:
„Hafið engar áhyggjur af mér.“
Pabbi var svo góður við barna-
börnin sín og er ein minning of-
arlega í huga, þ. e. þegar hann fór
nokkrum dögum áður en hann
veiktist niður í miðbæ Benidorm til
að kaupa gjafir handa þeim öllum.
Þið mamma gáfuð syni mínum dýr-
mæta orrustuflugvél sem hann
dýrkar og dóttur minni postulíns-
dúkku. Allir fengu eitthvað. Þið
hugsuðuð svo vel um alla og ást-
arþakkir fyrir það.
Þið mamma skreyttuð húsið ykk-
ar svo flott um jólin og notalegt að
koma þangað í desember, allt í jóla-
ljósum. Við hjálpum mömmu með
að skreyta og láta ljósin skína, en
söknuðurinn við fráfall þitt er mik-
ill.
Hvíl í friði, elsku pabbi minn.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesú, þér ég sendi
bæn frá mínu hjarta, sjáðu,
blíði Jesú, að mér gáðu
(H. J. H.)
Þín dóttir
Jónína.
Að kvöldi miðvikudagsins 26.
október sl., þegar ég var að búa
mig undir að keyra út á flugvöll til
að ná í tengdaforeldra mína sem
voru að koma frá Spáni, hringdi
síminn. Þetta símtal sneri öllu á
hvolf. Hreinn Kristinsson, tengda-
faðir minn, hafði skyndilega veikst
mjög alvarlega og lá á sjúkrahús-
inu í Alicante á Spáni milli heims
og helju. Við tóku mjög erfiðir og
slítandi dagar þar sem maður beið
á milli vonar og óttar um hvað
verða vildi. Því miður var þetta það
mikið áfall fyrir líkama Hreins að
ekki varð við neitt ráðið og lést
hann á sama spítala 8. nóvember.
En hvernig maður var Hreinn og
úr hvaða jarðvegi var hann sprott-
inn? Hann var að austan, ólst upp í
Bakkagerði í Jökulsárhlíð við Hér-
aðsflóa. Héraðsflóinn var hans um-
hverfi og heimur á uppvaxtarárum
hans og náttúra þessa landsvæðis
hafði mikil og djúp áhrif á hann.
Hann heillaðist af fuglalífinu og
elskaði að liggja í tjaldi úti í nátt-
úrunni og njóta stundarinnar. Þessi
mikilfenglega náttúra fékk að móta
hann og fylgdi honum alla tíð síðan.
Hann stundaði nám við Héraðs-
skólann á Eiðum. Sem ungur mað-
ur vann hann m.a. hjá Vegagerð
ríkisins, á ýtu. Hann tók m.a. þátt í
því að leggja veginn um Hellisheiði
eystri.
Til Reykjavíkur fluttist hann árið
1959, þá kvæntur Guðrúnu B.
Helgadóttur, ásamt þeirra fyrsta
barni. Alls urðu börnin fimm. Þau
reistu sér hús í Árbænum í Ystabæ
7 og voru þau ein af frumbyggjum
þess hverfis. Á þessum árum var
Árbær nánast úti í sveit og undi
hann sér vel þar alla tíð. Náttúran
var á næsta leiti með Elliðaárdal-
inn á næstu grösum en hann bjó
einnig til sína eigin náttúru í garð-
inum heima. Hann hafði alltaf mik-
inn áhuga á framfaramálum hverf-
isins og fylgdist vel með.
Hreinn starfaði lengst af í Aust-
urstræti 16 þar sem borgarskrif-
stofur Reykjavíkur voru áður.
Fyrst sem bílstjóri skrifstofanna
en síðar sem aðstoðarmaður skjala-
varðar. Fljótlega tók hann við
starfi skjalavarðar borgarskrifstof-
anna og sá um safnið í um ald-
arfjórðung. Hann endaði sinn feril
hjá Reykjavíkurborg sem skjala-
vörður Ráðhúss Reykjavíkur.
Hann var alltaf nákvæmur í starfi
og þekkti sitt skjalasafn út og inn.
Hann var einnig mjög fróður um
sögu Reykjavíkur. Austurvöllinn og
umhverfi hans þótti honum mjög
vænt um og má segja að í honum
hafi blandast bæði náttúru- og
borgarbarn.
Persóna Hreins var afbragð. Mín
kynni af honum hófust þegar ég
kom inn í fjölskylduna árið 1986.
Hann var mjög hlýr, nærgætinn og
laus við allan hégóma. Nærvera
hans var góð og áreynslulaus. Mað-
ur fann sig alltaf velkominn í Ys-
tabæinn og ósjaldan fengum ég og
fjölskylda mín að gista þar þegar
við komum í frí frá Danmörku og
taldi hann ekki eftir sér að sækja
HREINN
KRISTINSSON
Frændi okkar,
HAUKUR HENDERSON,
Kleppsvegi 10,
Reykjavík,
andaðist þriðjudaginn 15. nóvember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ágúst Sigurðsson,
Magnhildur Sigurðardóttir,
Jón Sigurðsson.