Morgunblaðið - 20.11.2005, Síða 48
48 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Kristjana Guð-mundsdóttir
fæddist í Mýrarkoti
í Laxárdal í Austur-
Húnavatnssýslu 1.
september 1909.
Hún lést í Seljahlíð,
dvalarheimili fyrir
aldraða, föstudag-
inn 4. nóvember
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Guðmundur Steins-
son, f. 1872, d.
1956, og Jóhanna
Gísladóttir, f. 1883,
d. 1961, búsett í Bolungarvík.
Systkini Kristjönu voru María, f.
1905, d. 1992, Gísli Aðalsteinn, f.
1907, d. 1972, Lára, f. 1912, d.
1933, Halldór Jóhann, f. 1915, d.
1945, Jórunn, f. 1922, d. 1999, og
Óskar Guðmundur, samfeðra, f.
1898, d. 1917. Kristjana var tek-
in í fóstur við fæðingu af föð-
ursystur sinni Konkordíu Steins-
dóttur og manni hennar
Kristjáni Sigurðssyni sem
14. sept 1930. 3) Kristján Albert,
f. 22. maí 1932, maki Helga Guð-
ríður Friðsteinsdóttir, f. 1937.
Börn þeirra: a) Ásdís, f. 1957, b)
Albert, f. 1958. 4) Haukur, f. 10.
júlí 1938, d. 11. júní 1942. 5)
Sverrir Haukur, f. 19. mars 1943,
maki Dýrunn Ragnheiður Stein-
dórsdóttir, f. 1945. Börn þeirra:
a) Anna Rut, f. 1966, b) Eydís
Dóra, f. 1971. 6) Dóra, f. 14. febr-
úar 1947, sambýlismaður Filip
Woolford, f. 1944, synir Dóru: a)
Halldór Alberts Þorvaldsson, f.
1968, b) Ástráður Freyr, f. 1976.
7) Haukur, f. 22. janúar 1949,
maki Margrét Gísladóttir, f.
1953. Börn þeirra a) Gísli, f.
1976, b) Arnar, f. 1979, d) Daði, f.
1990. Barnabarnabörnin eru 25
og barnabarnabarnabörnin sjö.
Kristjana fluttist til Reykjavík-
ur 1966 og bjó þar síðan utan
þrjú ár á Selfossi. Hún var ráðs-
kona hjá Vegagerðinni í yfir 30
ár, fyrst í Austur-Húnavatnssýslu
og síðar víða um land í brúar- og
malarflokkum. Síðustu tíu árin
bjó hún í Seljahlíð, dvalarheimili
fyrir aldraða í Reykjavík.
Kristjana var jarðsungin frá
Kópavogskirkju föstudaginn 11.
nóvember og fór útförin fram í
kyrrþey að hennar ósk.
bjuggu í Mýrarkoti.
Fóstursystur henn-
ar voru Kristín
Gísladóttir, f. 1898,
d. 1933, María
Gísladóttir, f. 1899,
d. 1990, og Elín-
borg Kristjánsdótt-
ir, f. 1899, d. 1956.
Kristjana flutti
með fósturforeldr-
um sínum til
Blönduóss fjögurra
ára gömul og ólst
þar upp.
Hinn 10. nóvem-
ber 1929 giftist Kristjana Hall-
dóri Albertssyni frá Stóruvöllum
í Bárðardal, f. 15. júlí 1887, d.
18. maí 1961. Þau eignuðust sjö
börn. Þau eru: 1) Guðrún, f. 21.
okt. 1928, maki Steinþór Carl
Ólafsson, f. 1923, d. 1985. Börn
þeirra: a) Steinunn, f. 1952, b)
Kristjana, f. 1956, d) Halldór
Carl, f. 1959, d. 1985, Ólöf Björg,
f. 1962, og Theódór Carl, f. 1970.
2) Jón Albert, f. 2. sept. 1930, d.
Þegar Kiddý systir hringdi í mig
í vinnuna og sagði mér að amma
væri dáin kom það ekki á óvart,
amma var búin að vera mikið veik í
dálítinn tíma, en engu að síður var
fréttin sár. Amma mín Kristjana
Guðmundsóttir var fædd 1909 og
hafði lifað tímana tvenna og ekki
sigldi hún alltaf lygnan sjó. Tvítug
giftist hún afa, Halldóri Alberts-
syni kaupmanni, og bjuggu þau á
Blönduósi. Þau eignuðust sjö börn
en misstu tvö. Það var lífsreynsla
sem amma sagði mér einu sinni frá,
en annars bar hún þann harm sinn
ekki á torg, það var ekki til siðs á
þeim tíma að tala um sorg sína. Hin
börnin fimm eru öll á lífi, frum-
burðurinn Guðrún er móðir mín,
næstur er Baddi, þá Sverrir, Dóra
og Haukur sem er yngstur.
Ég var oft í heimsókn á Blöndu-
ósi hjá ömmu og afa. Þar sem ég
var elsta barnabarnið og það eina í
nokkur ár sat ég ein að dekrinu hjá
ömmu, afa og móðursystkinum
mínum sem ég hef alltaf litið frekar
á sem systkini en frændsystkini.
Amma var ráðskona hjá Vega-
gerð ríkisins á sumrin og að vera
hjá ömmu í „skúrunum“ víðs vegar
um landið voru forréttindi og æv-
intýri. Á þeim tímum sváfu menn í
tjöldum sumarlangt en ráðskonan
fékk skúr til umráða.
Þegar amma var 78 ára gömul
kom hún norður á Skagaströnd til
að hugsa um börnin mín fjögur á
meðan ég fór í nám til Reykjavíkur.
Fólk spurði mig hvort ég væri eitt-
hvað verri að leggja þetta á gömlu
konuna, en þetta fólk þekkti ekki
dugnaðinn í henni ömmu minni. Al-
veg fram á síðasta dag fylgdist hún
með hvað allir voru að gera í fjöl-
skyldunni, ekki bara hjá börnunum
sínum heldur líka hjá ömmu-, lang-
ömmu- og langalangömmubörnun-
um, og tók hún þátt í gleði okkar og
sorg.
Já, það er margs að minnast þeg-
ar litið er til baka. Ævi ömmu
minnar getur verið saga í heila bók.
Sú saga yrði full af kímni en það
yrði líka viðburðarík sorgar- og
gleðisaga um einstaka konu, konu
sem er fyrirmynd mín í svo ótal
mörgu.
„Ef Guð lofar koma bjartir dag-
ar,“ sagði amma oft og ég trúi því
að núna sé hún á björtum stað með
engum skuggum. Takk fyrir að
vera þú, amma mín, takk fyrir að
gefa okkur trúna á bjarta daga þeg-
ar skuggarnir læddust að okkur.
Steinunn Steinþórsdóttir.
Elsku amma. þökkum þér allt
það sem þú varst okkur og fyrir
alla þá ást og umhyggju sem þú
sýndir okkur í gegnum tíðina.
Megi guð leiða þig í nýju heim-
kynnum.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. S. Egilsson.)
Kveðja.
Anna Rut og Eydís.
KRISTJANA
GUÐMUNDSDÓTTIR
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj,
s. 691 0919
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
ODDNÝJAR ÓLAFSDÓTTUR
frá Látrum í Aðalvík.
Sérstakar þakkir til alls starfsfólks deildar 3-S á
hjúkrunarheimilinu Eir, Reykjavík, fyrir auðsýnda
hlýju og góða umönnun.
Guðbjörg Björnsdóttir,
Arndís H. Björnsdóttir,
Jóhanna G. Björnsdóttir, Tryggvi Eyvindsson,
Hildur Björnsdóttir,
Ólöf S. Björnsdóttir, Magnús Kristmannsson,
Arinbjörn Björnsson,
barnabörn, langömmubörn
og fjölskyldur þeirra.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓNU MARGRÉTAR TÓMASDÓTTUR,
Vesturgötu 7,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Vistheimilis-
ins Víðiness fyrir góða umönnun.
Tómas Guðmundsson, Sigurbjörg Ásta Magnúsdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir, Sigurður Skúlason,
Sigurður Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirrra sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
ÞÓRÐAR GUÐJÓNSSONAR
útgerðarmanns,
Akranesi.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki A-deildar
Sjúkrahúss Akraness og heimahjúkrunar Heilsugæslunnar fyrir góða
umönnun.
Marselía Guðjónsdóttir,
Inga Jóna Þórðardóttir, Geir H. Haarde,
Herdís Þórðardóttir, Jóhannes Ólafsson,
Guðjón Þórðarson, Hrönn Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
HANNESAR BJÖRGVINSSONAR
frá Skriðustekk,
Ásvegi 23,
Breiðdalsvík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkrahúsanna á Egilsstöðum og í
Nes- kaupstað fyrir frábæra umönnun.
Kristín Skúladóttir,
Stefanía B. Hannesdóttir, Haukur Elísson,
Skúli Hannesson, Þórhildur Pálsdóttir,
Hrefna Hannesdóttir, Ármann Guðmundsson,
Málfríður Hannesdóttir, Daníel Þorsteinsson,
Fanney H. Hannesdóttir, Þórhallur Hauksson,
Hrafnkell Hannesson, María Duff,
Kristín S. Hannesdóttir, Jón Brynjar Eiríksson,
afabörn og langafabörn.
Alúðarþakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur hlý-
hug og vináttu við andlát og útför elskulegs föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
HERMANNS BÚASONAR,
Dvalarheimili aldraðra,
Borgarnesi.
Georg Hermannsson, Helga Helgadóttir,
Björn Hermannsson, Þóra Þorkelsdóttir,
Brandur Hermannsson, Sigríður Sverrisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar elskulega frænka, mágkona og svilkona,
RAGNHILDUR (AGGA) ÞÓRODDSDÓTTIR,
Þorragötu 7,
Reykjavík,
er látin.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 22. nóvember kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim,
sem vilja minnast hinnar látnu er bent á líknarstofnanir.
Þórunn Böðvarsdóttir, Björk Engilbertsdóttir,
Högni Böðvarsson, Magnús Eyþórsson,
Örn Engilbertsson, Sveinbjörg Jónsdóttir,
Una Eyþórsdóttir, Jón Sigurðsson,
Sigríður Sveinsdóttir, Margrét Sveinsdóttir,
Sveinn Sveinsson, Erna Jónsdóttir,
Sighvatur Sveinsson, Arna Borg Snorradóttir,
Ingvar Sveinsson, Kristín Lárusdóttir,
börn og barnabörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal
senda í gegnum vefsíðu Morg-
unblaðsins: mbl.is (smellt á reit-
inn Morgunblaðið í fliparöndinni
– þá birtist valkosturinn „Senda
inn minningar/afmæli“ ásamt
frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður
hún að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánu-
degi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst
ekki innan hins tiltekna skila-
frests er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd Minningargreinar séu
ekki lengri en 2.000 slög (stafir
með bilum - mælt í Tools/Word
Count). Ekki er unnt að senda
lengri grein. Hægt er að senda
örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta
þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert
með langri grein. Ekki er unnt
að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli Minningargreinum
fylgir formáli, sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar
koma fram upplýsingar um hvar
og hvenær sá, sem fjallað er
um, fæddist, hvar og hvenær
hann lést, um foreldra hans,
systkini, maka og börn og loks
hvaðan útförin fer fram og
klukkan hvað athöfnin hefst.
Ætlast er til að þetta komi að-
eins fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Myndir Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa not-
uð með minningargrein nema
beðið sé um annað. Ef nota á
nýja mynd er ráðlegt að senda
hana á myndamóttöku: pix@m-
bl.is og láta umsjónarmenn
minningargreina vita.
Minningar-
greinar